Innlent

Rann­sókn á mann­drápi við Krýsu­víkur­veg til sak­sóknara

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ómerktur lögreglubíll á vettvangi þegar málið kom upp í september.
Ómerktur lögreglubíll á vettvangi þegar málið kom upp í september. Vísir/Bjarni

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg í september er lokið. Málið er nú komið á borð héraðssaksóknara.

Faðir stúlkunnar er grunaður um að hafa banað henni. Hann gerði lögreglu sjálfur viðvart um málið. Hann var handtekinn á vettvangi og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan þá.

Þetta staðfestir Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir málið hafa verið sent til héraðssaksóknara í þessari viku. Fyrst var greint frá á vef RÚV.

„Við teljum okkur hafa nokkuð skýra mynd af því sem gerðist,“ segir Elín Agnes um rannsókn málsins. Héraðssakóknari muni nú meta gögn málsins og ákveða framhaldið í kjölfarið. 


Tengdar fréttir

Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi

Karlmaður sem er grunaður um að hafa orðið barnungri dóttur sinni að bana um miðjan septembermánuð var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. nóvember næstkomandi.

Engu um að kenna nema „hand­ó­nýtu kerfi“

Inga Dagný Ingadóttir, móðir hinnar tíu ára Kolfinnu Eldeyjar sem ráðinn var bani í síðasta mánuði, segir um að ræða hörmulegan og ófyrirsjáanlegan atburð sem ekki sé hægt að kenna neinu öðru um en „handónýtu kerfi“.

Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna

Lögregla fylgdi eftir ábendingum um að menn úr undirheimum hafi komið að andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg þann 15. september. Ekki er talið að nokkuð bendi til aðkomu annarra en föður stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana.

Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar

Stór hópur listamanna á Akureyri heldur styrktartónleika fyrir aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar Sigurðardóttur. Tónleikarnir eru haldnir næsta miðvikudag, 2. október, klukkan 20. Hildur Eir Bolladóttir verður kynnir á tónleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×