Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað
1 2 ›
Sé Alfreð sakhæfur eigi að horfa til tuttugu ára eða ævilangs fangelsis Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari hjá héraðssaksóknara, segir að ef fallist verði á að sakfella Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðing, sem er grunaður um að hafa orðið eldri hjónum að bana í Neskaupstað í fyrra, væri eðlilegt að dæma hann í tuttugu ára fangelsi, og jafnvel ævilangt fangelsi. Innlent 12.2.2025 14:04
Kveðst hafa komið að hjónunum látnum Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðingur, sem er grunaður um að hafa orðið eldri hjónum að bana í Neskaupstað í fyrra, neitar sök og segist hafa komið að hjónunum látnum. Hann vill meina að „vísindamennirnir“ sem og Guð og djöfullinn séu ábyrgir. Innlent 12.2.2025 09:00
„Hann er aldrei sakhæfur“ Mjög reyndur geðlæknir sem vann matsgerð í máli Alfreðs Erlings Þórðarsonar, 46 ára manns sem er grunaður um að hafa orðið eldri hjónum að bana í Neskaupstað í fyrra, telur að Alfreð Erling sé ósakhæfur. Hann hafi verið alls ófær um að stjórna gjörðum sínum á verknaðarstundu. Innlent 11.2.2025 14:38
Eins og hjónunum hafi verið komið fyrir í sérstökum stöðum Talið er að Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðingur, sem er grunaður um að hafa orðið eldri hjónum að bana í Neskaupstað í fyrra, hafi mögulega fært við líkum eða líkömum þeirra látnu og fært annað þeirra í þvingaða stöðu. Innlent 11.2.2025 10:58
Hamar fannst í bíl hjónanna sem Alfreð ók Reynslubolti hjá tæknideild lögreglu sagði verksummerki í húsinu við Strandgötu í Neskaupstað þar sem eldri hjón fundust látin í ágúst í fyrra hafa bent til þess að morðinginn hefði notað hamar. Hamar fannst í bíl Alfreðs Erlings Þórðarsonar þegar hann var handtekinn í bíl hjónanna við Snorrabraut í Reykjavík. Innlent 10.2.2025 17:11
Fékk að borða hjá hjónunum þegar hann var svangur Mágur Alfreðs Erlings Þórðarsonar, sem grunaður er um að hafa banað hjónum í Neskaupstað í fyrrasumar, segir Alfreð stundum hafa komið við hjá hjónunum og fengið hjá þeim kaffi eða að borða á kvöldin þegar hann var svangur. Hann grunaði Alfreð strax um græsku þegar hann sá hvað hafði gerst. Innlent 10.2.2025 14:49
Ungir nágrannar heyrðu óvenjuleg hljóð frá heimili hjónanna Menntaskólanemar sem bjuggu í íbúð sem deildi innvegg með hjónunum sem var ráðinn bani í Neskaupstað í ágúst í fyrra segjast hafa séð Alfreð Erling Þórðarson við hús hjónanna og heyrt þaðan hljóð og hvelli. Innlent 10.2.2025 14:32
Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Verslunareigandi í Neskaupstað segir Alfreð Erling Þórðarson sem ákærður er fyrir að ráða hjónum í bænum bana hafa verið svakalega duglegan, greindan og færan í höndunum. Undanfarin ár hafi greinilega farið að halla á ógæfuhliðina sem sjá mátti á arki hans um bæinn. Innlent 10.2.2025 11:42
Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Lögregluþjónn sem kom að handtöku Alfreðs Erlings Þórðarsonar á Snorrabraut í ágúst í fyrra segir Alfreð hafa verið mjög rólegan, samvinnuþýðan og rætt um dauðann, djöfulinn og guð. Upptökurnar eru til á búkmyndavél lögreglumannsins. Innlent 10.2.2025 10:41
Aðkoman vægast sagt ekki fögur Lögreglukona sem stóð vaktina í Neskaupstað þann 22. ágúst þegar útkall barst að Strandgötu í bænum segir litinn á blóðinu baðherbergisgólfinu hafa bent til þess að blóðið var ekki nýtt. Nokkur tími hefði liðið frá því atburðirnir hefðu átt sér stað. Innlent 10.2.2025 10:16
Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Alfreð Erling Þórðarson sem sakaður er um að hafa banað eldri hjónum í Neskaupstað í ágúst í fyrra óskaði eftir því að tjá sig ekkert við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vísaði til fyrri skýrslugjafar sinnar hjá lögreglu. Innlent 10.2.2025 09:37
„Þetta hörmulega og sorglega atvik endurspeglar langvinnan vanda“ Karlmaður sem sætir ákæru fyrir að hafa banað hjónum í Neskaupstað síðasta sumar átti að vera í nauðungarvistun þegar voðaverkið var framið. Heilbrigðisráðherra segir atvikið endurspegla langvinnan vanda kerfisins. Núverandi húsnæði undir geðþjónustu sé barn síns tíma. Innlent 6.2.2025 19:10
„Þetta er bara rétt byrjunin ef við hugsum ekki í forvörnum“ Varaformaður Geðhjálpar segir að setja þurfi meira púður í fyrirbyggjandi aðgerðir í geðheilbrigðismálum. Maður sem sætir ákæru fyrir að hafa banað hjónum í Neskaupstað í fyrrasumar átti að vera í nauðungarvistun þegar voðaverkið var framið. Innlent 6.2.2025 13:28
Hefði ekki átt að ganga laus þegar morðin voru framin Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðingur sem sætir ákæru fyrir að hafa orðið hjónum á áttræðisaldri að bana í fyrrasumar, átti samkvæmt dómsúrskurði að vera í nauðungarvistun þegar hann lét til skarar skríða. Innlent 6.2.2025 09:51
Neitar sök í manndrápsmálinu í Neskaupstað Maðurinn sem ákærður er fyrir að bana hjónum í Neskaupstað neitaði sök. Málið var þingfest í dag í Héraðsdómi Austurlands. Innlent 6.1.2025 16:00
Talinn hafa drepið hjónin í Neskaupstað með hamri Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðingur, hefur verið ákærður fyrir að verða hjónum á áttræðisaldri sem hann þekkti vel að bana á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst síðastliðnum. Talið er að hann hafi verið í geðrofi, notað hamar og slegið fólkið endurtekið í höfuðið með verkfærinu með fyrrnefndum afleiðingum. Innlent 2.1.2025 12:19
Þung bankhljóð heyrðust kvöldið áður en hjónin fundust látin Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst fannst blóðugur í bíl hjónanna að aka um Snorrabraut í Reykjavík. Þar var hann handtekinn af sérsveitinni, en hann mun hafa verið með ýmsa muni í eigu hinna látnu með sér. Innlent 5.12.2024 08:05
Grunaður morðingi áfram bak við lás og slá Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. desember. Ganga í málinu er beðið en rannsókn hefur teygt sig vel yfir tólf vikna viðmið um hámarkslengd í gæsluvarðhaldi án útgefinnar ákæru. Innlent 3.12.2024 10:08
Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst sætir gæsluvarðhaldi til 29. nóvember. Héraðsdómur féllst á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi. Varðhaldstíminn teygir sig yfir tólf vikna viðmið um hámarkslengd í gæsluvarðhaldi án útgefinnar ákæru. Innlent 15.11.2024 16:39
Áfram á bak við lás og slá vegna andláts hjónanna Fallist hefur verið á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 3.10.2024 13:25
Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað í ágúst er á viðkvæmu stigi en miðar vel, að sögn yfirlögregluþjóns. Lögregla bíður þess að fá niðurstöður rannsókna á rafrænum gögnum og lífsýnum. Innlent 23.9.2024 11:33
Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Aldrei hafa verið framin jafn mörg manndráp á Íslandi á einu ári líkt og það sem af er þessu ári. Afbrotafræðingur vonast til þess að um sé að ræða topp sem gangi svo aftur niður. Þjóðin finni sérstaklega til þegar börn eiga í hlut í málunum. Innlent 17.9.2024 12:17
Þriðja manndrápsmálið á árinu þar sem barn lætur lífið Íslenskur maður var handtekinn í Krýsuvík í gærkvöldi, grunaður um að hafa orðið dóttur sinni að bana. Um er að ræða sjötta manndrápsmálið hér á landi í ár, og það þriðja þar sem barn lætur lífið. Innlent 16.9.2024 15:07
Í gæsluvarðhaldi þangað til í nóvember Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald mannsins sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 6.9.2024 11:21
Munu fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Lögreglan á Austurlandi mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 5.9.2024 13:48
Fallist á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í síðustu viku. Krafan nær til 6. september næstkomandi. Innlent 30.8.2024 11:05
Fallist á geðrannsókn á hinum grunaða Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í síðustu viku. Lögreglan gerði einnig kröfu um geðrannsókn á hinum grunaða en fallist var á þá kröfu. Innlent 29.8.2024 15:28
Hinn grunaði ógæfumaður sem íbúar höfðu áhyggjur af Tengsl hins grunaða við hjón á áttræðisaldri sem fundust látin í Neskaupstað á fimmtudag, voru hvorki mikil né djúp eftir því sem lögregla kemst næst þótt enn sé unnið að því að upplýsa um þann þátt málsins. Niðurstöður krufninga munu liggja fyrir fljótlega. Innlent 27.8.2024 12:01
Rannsókn í Neskaupstað stendur enn yfir og miðar vel Rannsókn á dauða eldri hjóna sem fundust látin í Neskaupstað fimmtudaginn 22. ágúst síðastliðinn stóð áfram yfir um helgina og miðar vel. Þetta segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, í samtali við fréttastofu. Innlent 26.8.2024 10:19
Skoða kreditkortagögn og rannsaka tengsl grunaða við hjónin Tengsl voru milli hins grunaða og eldri hjóna sem fundust látin á Neskaupstað í gær. Notast er við gögn um kreditkortanotkun og ferðir hins grunaða til að reyna að ná utan um atburðarásina. Innlent 23.8.2024 16:00