Matvöruverslun
1 2 3 4 5 ›
Krónan ekki að svína á tollareglum um lambakjöt Bjarni Friðrik Jóhannesson, forstöðumaður innkaupa og birgðastýringar Krónunnar, hafnar því alfarið að þau þar séu að svína á lögum og reglum varðandi innflutning á lambakjöti. Innlent 20.10.2023 16:36
Bjarni Þór og Sæunn til Heimkaupa Bjarni Þór Logason hefur verið ráðinn innkaupastjóri Heimkaupa og Sæunn Viggósdóttir mannauðsstjóri. Viðskipti innlent 18.10.2023 08:42
Þreytt á Krambúðinni í anddyri Vestfjarða Sveitarstjóri Dalabyggðar segist vera ósáttur við svör Samkaupa um rekstur verslunar í Búðardal. Sveitarstjórn hefur skorað á Samkaup að opna þar dagvöruverslun í stað Krambúðarinnar. Forsvarsmenn Samkaupa segja reynsluna kenna þeim að ekkert nema tap fáist af slíkum rekstri. Þeir ætla samt að funda með sveitarstjórn á miðvikudag. Innlent 10.10.2023 06:45
Guðmundur hættir aftur hjá Bónus Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu frá og með áramótum. Hann hefur gegnt starfinu síðan árið 1998, 25 ár. Björgvin Víkingsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og innkaupastjóri Bónus hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra og tekur við um áramótin. Viðskipti innlent 27.9.2023 16:29
Krónan á Granda opnuð á ný í dag Krónan opnar dyrnar á ný á Granda klukkan 15 í dag eftir fjögurra vikna framkvæmdir. Tveir veitingastaðir munu bjóða upp á rétti sína í versluninni til viðbótar við þrjá sem þar eru þegar til staðar. Forsvarsmenn verslunarinnar segjast gríðarlega ánægð með breytingarnar. Neytendur 21.9.2023 12:36
Kaupmaðurinn á horninu endurvakinn með snjalltækni „Mér finnst oft gaman að segja frá því að Pikkoló sé í raun sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu. Því í áratugi sótti fólk alltaf vörurnar sínar í nærumhverfinu með því að versla hjá honum og nú getur fólk að vissu leyti gert það aftur með tilkomu Pikkoló,“ segir Ragna M. Guðmundsdóttir og brosir. Atvinnulíf 11.9.2023 07:01
Léleg afkoma í landbúnaði leiði til hærra verðs í haust Búist er við að verð á landbúnaðarvörum hækki enn meira í haust. Meginástæðan er léleg afkoma í landbúnaði en stýrivaxtahækkun bætir gráu ofan á svart. Innlent 28.8.2023 15:48
Leitast við að gera Kjörbúðina að „góðum kosti“ fyrir landsbyggðina Stjórnendur Samkaupa, sem rekur Kjörbúðina og þrjár aðrar verslanakeðjur á Íslandi, segja útsöluverð á kattamat ekki hafa hækkað þrátt fyrir verðhækkanir frá birgjum. Þá séu nauðsynjavörur á verði sem er samkeppnishæft við aðrar verslanir. Neytendur 10.8.2023 11:43
Íbúar Hellu þreyttir á „sturluðu“ verðlagi Kjörbúðarinnar Elín Dögg Arnarsdóttir, íbúi í nágrenni við Hellu, lýsir verðlagi í Kjörbúðinni á Hellu sem sturlun en 637 krónum munar á verði á kattanammi þar og í Fjarðarkaupum. Hún segir íbúa Hellu gagngert sneiða framhjá því að versla í búðinni meðan vonir eru bundnar við opnun annarrar ódýrari matvöruverslunar í bæjarfélaginu. Neytendur 9.8.2023 18:36
Örtröð og tómar hillur á rýmingarsölu Krónunnar Örtröð myndaðist í verslun Krónunnar á Granda í dag þar sem rýmingarsala fór fram. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagðist verslunarstjóri eiga von á því að allar hillur verði tómar í kvöld. Neytendur 7.8.2023 20:28
Slær á putta Nettós vegna verðmerkinga Neytendastofa hefur slegið á putta Samkaupa vegna verðmerkinga í vefverslun Nettós þar sem einingarverð vantaði á fjölda vara á vefsíðunni. Þeim fyrirmælum hefur verið beint til félagsins að koma einingaverðum í rétt horf, ellegar sæta dagsektum. Neytendur 4.7.2023 13:18
Verslanir Iceland munu brátt heyra sögunni til á Íslandi Verslanir sem reknar eru undir merkjum Iceland munu hverfa af markaðnum hér á landi á næstu mánuðum. Viðskipti innlent 30.6.2023 13:44
Skoðar að selja áfengi til matvöruverslana Forstjóri Ölgerðarinnar segir að fyrirtækið geti ekki annað en skoðað það hvort hægt verði að selja áfengi til matvöruverslana í kjölfar yfirlýsingar ráðherra um lögmæti sölunnar. Ölgerðin hefur hingað til ekki selt áfengi til netverslana vegna óvissu um lögmæti hennar. Viðskipti innlent 15.6.2023 16:47
Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála. Neytendur 9.6.2023 20:01
Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni. Neytendur 9.6.2023 13:30
Vísbendingar um verðsamráð verslana eftir útgáfu Verðgáttar Vísbendingar eru um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt örfáum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi. Í sumum tilfellum var verð hækkað þar sem varan reyndist dýrari annars staðar. Neytendur 8.6.2023 19:12
Neytendur geta borið saman matvöruverð þriggja verslunarrisa Vefurinn Verðgáttin er nú komin í loftið en hún gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar. Neytendur 7.6.2023 15:38
Breyta merkinu án ótta við hæðni netverja Nýtt útlit lágvöruverslunarinnar Krónunnar var frumsýnt í dag. Daði Guðjónsson, markaðsstjóri Krónunnar segir mikla spennu ríkja fyrir breytingunum og segist ekki hræðast gagnrýni netverja á nýja merkinu. Viðskipti innlent 7.6.2023 14:49
Bónus opnar verslun í Norðlingaholti Ný verslun verslunarkeðjunnar Bónus opnaði í dag við Norðlingabraut í Norðlingaholti. Viðskipti innlent 3.6.2023 10:12
Betri stjórnendur með betri samskiptum Ég er einn þeirra sem þurftu að hafa mikið fyrir námi í gegnum tíðina. Reyndar er það svo að mér hefur alltaf fundist mjög flókið að læra það sem ég hef ekki haft verklega reynslu af áður. Það voru því blendnar tilfinningar sem fylgdu því þegar mér bauðst að skrá mig í leiðtoganámið Forysta til framtíðar, í Háskólanum á Bifröst , en það er samstarfsverkefni skólans og vinnuveitanda míns, Samkaupa. Skoðun 1.6.2023 10:31
Hlynnt því að framlengja tollfrelsi úkraínskra vara Forsætisráðherra telur það skynsamlegt að framlengja tollfrjálsan innflutning úkraínskra vara. Efasemdir eru þó uppi um ágæti innflutningsins. Bráðabirgðaákvæði sem heimilar innflutninginn rennur út á morgun. Innlent 30.5.2023 19:01
Taka stikkprufur á meðan ný lausn sannar gildi sitt í Bónus Viðskiptavinir Bónus á Smáratorgi geta nú gripið sér skanna við inngang verslana og skannað vörur beint ofan í poka á leið sinni um verslunina. Nýja sjálfsafgreiðslulausnin heitir Gripið og greitt eins og samnefnd verslun sem lagði upp laupana snemma á öldinni. Helsti samkeppnisaðilinn Krónan hefur í hálft annað ár boðið upp á svipaða lausn þar sem viðskiptavinir geta skannað vörur með notkun apps. Neytendur 25.5.2023 13:52
Stuðningur við Úkraínu hljóti að vega þyngra en „sérhagsmunir í landbúnaði“ Alþingi samþykkti í fyrra að tillögu fjármála-og efnahagsráðherra að fella niður tolla á vörur sem koma frá Úkraínu en þetta var liður í stuðningi Íslands við efnahagslíf Úkraínu á stríðstímum. Í lok mánaðar rennur ákvæðið út og framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda óttast að fjármálaráðherra nái ekki að endurnýja ákvæðið í tæka tíð. Innlent 23.5.2023 15:33
Sælgætið og snakkið oftast ódýrast í Fjarðarkaupum Bónus var ódýrasta verslunin í matvörukönnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi þann 9. maí. Verðið í Bónus var að meðaltali 4% frá lægsta verði, og bauð verslunin upp á lægsta verðið í 76 tilfellum. Krónan var með næst lægsta meðalverðið sem var 10% frá lægsta verði. Neytendur 12.5.2023 14:36
Uppgjör smásala sýna að þeir eru ekki að maka krókinn á tímum verðbólgu Verðmatsgengi Haga er 14 prósentum yfir markaðsgengi þrátt fyrir nokkra lækkun á matinu sem gert var eftir að verslunarsamsteypan birti síðasta uppgjör. Hlutabréfagreinandi segir að miðað við fréttaflutning mætta halda smásölufyrirtæki væru að svíngræða á tímum verðbólgu en uppgjör sýni að svo sé ekki. Innherji 10.5.2023 15:45
Snúnasti fjórðungur í verslun í manna minnum að baki en staðan fer batnandi Mánuðirnir frá desember til febrúar voru þeir snúnustu í verslunarrekstri sem elstu menn muna. Verðhækkanir voru tíðari og „miklu hærri en við höfum séð áður“. Staðan er þó að „aðeins að batna“, að sögn forstjóra Haga, „tilfinningin er að takturinn í verðhækkunum á matvöru sé að hægjast“. Aðfangaverð er þó enn að hækka en „ekki eins ört og í kringum áramótin.“ Innherji 28.4.2023 14:00
60 prósenta verðmunur á nautalund Bónus var með lægsta meðalverð á matvöru í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 28. mars. Neytendur 30.3.2023 22:23
Farið að hægja á miklum verðhækkunum á matvöru frá birgjum Farið er að hægja á verðhækkunum frá birgjum, að sögn heildsala og smásala á matvörumarkaði, en ástandið er þó enn afar krefjandi og borið hefur á verðhækkunum frá innlendum framleiðslufyrirtækjum á undanförnum vikum vegna nýrra kjarasamninga. Vísbendingar eru um að lækkandi hrávöruverð á heimsmarkaði hafi ekki enn skilað sér í lægra innkaupverði. Innherji 30.3.2023 07:01
Úkraínskar kjúklingabringur langtum ódýrari en þær íslensku Kílóið af frosnum úkraínskum kjúklingabringum kostar neytendur á bilinu 24-32 prósent minna en aðrar innfluttar bringur. Innlent 21.3.2023 22:13
Kynntust á Íslandi og opnuðu saman búð Þrír vinir frá Írak og Sýrlandi sem búið hafa á Íslandi um nokkurt skeið hafa nú opnað fyrstu matvöruverslunina í Hlíðarendahverfinu. Þeir segja íbúa hverfisins hafa tekið þeim vel. Innlent 11.3.2023 21:01