Sveitarstjórnarkosningar
8 9 10 11 12 13 … 13 ›
Meirihlutinn kolfallinn á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn samkvæmt könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkurinn geldur afhroð og missir tvo af fjórum bæjarfulltrúum. Innlent 18.5.2010 18:25
Skilyrði fyrir samstarfi að viðkomandi hafi horft á The Wire „Ég bjóst við meiru. Það var sjokkerandi að heyra að það væru ekki fleiri að kjósa Besta flokkinn,“ segir Jón Gnarr sem er ótvíræður sigurvegari í skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Stöð 2 greindi frá en þar kemur í ljós að Besti flokkurinn nær 6 fulltrúum inn í borgarstjórn fari kosningar eins og könnunin gefur til kynna. Innlent 17.5.2010 20:32
„Hver borgaði Framsókn?“ „Sá flokkur sem sópar undir teppið er að víkja sér undan ábyrgð. Það er Framsóknarflokkurinn að gera. Hann hefur ekki gert hreint fyrir sínum dyrum,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í grein í Morgunblaðinu í dag. Innlent 12.5.2010 10:01
Óttast að hann kjósi sé nafnið á kjörskrá „Af því að það vill enginn axla ábyrgð ætla ég að gera það því ég er náttúrlega ábyrgur sem kjósandi,“ segir Kristján Sig. Kristjánsson rafvirkjameistari sem sendi borgarstjóra bréf með ósk um að verða vinsamlegast tekinn af kjörskrá fyrir komandi kosningar. Innlent 11.5.2010 23:47
Sjálfstæðisflokkur heldur meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum en heldur hreinum meirihluta bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi. Innlent 10.5.2010 22:42
Engar kosningar á Skagaströnd Ljós er að ekki þarf að kjósa til sveitastjórnar á Skagaströnd þar sem einungis einn listi býður þar fram samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. Innlent 10.5.2010 15:42
Kosningar 2010: VG með félagslegt réttlæti að leiðarljósi Vinstri grænir í Reykjavík, undir forystu Sóleyjar Tómasdóttur, kynntu stefnumál sín síðdegis í dag. Sóley sagði kosningarnar snúast um hugmyndafræði en Vinstri grænir hefðu félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Flokkurinn boðaði fleiri úrræði í húsnæðismálum með leigu- og kaupleigumarkaði, fjölbreyttari atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónustu og sorpflokkun við heimili fólks. Innlent 9.5.2010 17:58
Kosningar 2010: H - listinn kynnti framboð sitt í dag H-listi Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra, sem kallar sig framboð um heiðarleika og almannahagsmuni, kynnti frambjóðendur og stefnumál á heimili Ólafs í Fossvogi nú síðdegis. Innlent 9.5.2010 17:54
Kosningar 2010: Frestir framlengdur í Mývatnssveit og á Súðavík Frestur til að skila inn framboði í Mývatnssveit vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hefur verið framlengdur um tvo daga. Innlent 8.5.2010 12:58
Kosningar 2010: Ólafur F. leiðir H-listann Ólafur F. Magnússon, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, mun skipa fyrsta sæti H-listans fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Ólafur mun leggja fram lista skipaðan 30 frambjóðendum á fundi kjörstjórnar í dag en frestur til að skila inn framboðum rennur út á hádegi. Bryndís H. Torfadóttir, framkvæmdastjóri, skipar annað sæti listans og Katrín Corazon Surban það þriðja. Innlent 8.5.2010 10:59
Línurnar í borginni lítt teknar að skýrast Fundargestir á opnum fundi með oddvitum allra framboða fyrir borgarstjórnarkosningarnar þann 29. maí næstkomandi héldu að þeir hefðu orðið vitni að tímamótum í borgarstjórnarpólitíkinni í gær. Innlent 5.5.2010 22:35
Kosningar 2010: Utankjörfundur í Laugardalshöll frá og með mánudegi Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga þann 29. maí 2010, hófst við embætti sýslumannsins í Reykjavík, Skógarhlíð 6, þann 6. apríl næstkomandi og er opin á skrifstofutíma á milli kl. 9:00 - 15:30 virka daga. Um helgar er opið frá kl. 12:00 - 14:00. Innlent 5.5.2010 11:48
Ekkert persónukjör í kosningunum í vor Ekkert persónukjör er í boði í kosningum til sveitarstjórna í maí. Frumvarp um slíkt var lagt fram í haust en er inni í allsherjarnefnd. Meðal þeirra sem lögðust gegn afgreiðslu frumvarpsins var stjórn Vinstri grænna, sem vildi vísa málinu til stjórnlagaþings. Þá töldu sveitarfélögin of skamman tíma til stefnu fyrir vorið. Innlent 4.5.2010 22:10
Svarti listinn býður fram í Borgarbyggð Nýtt framboð, Svarti listinn, býður fram í Borgarbyggð í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 29. maí næstkomandi. Svarti listinn hyggur á umbætur á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Ástandið sé slæmt og ekki sé hægt að kenna efnahagsgruni eingöngu um. Innlent 4.5.2010 21:14
Þingmaður í framboði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur þátt í sameiginlegu framboði allra stjórnmálaafla í Garðinum fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Oddný er fyrrverandi bæjarstjóri í Garðinum og sat áfram sem bæjarfulltrúi eftir að hún tók sæti á Alþingi. Oddný segist ekki telja að störf sín fyrir sveitastjórnina í Garði hafi áhrif á þingstörf sín. Innlent 4.5.2010 12:48
Flestir vilja Hönnu Birnu Flestir vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, gegni borgarstjóraembættinu að loknum kosningum, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö. Innlent 1.5.2010 09:19
Tíu sveitarfélög til sérstakrar skoðunar vegna fjárhagsvanda Tíu sveitarfélög á Íslandi hafa verið til sérstakrar skoðunar af hálfu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurði ráðherra út í málið á Alþingi. Samkvæmt svari ráðherra er um að ræða sveitarfélögin Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarbæ, Sveitarfélagið Álftanes, Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbæ, Bolungarvík, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað. Innlent 30.4.2010 10:02
Jónína hætt í framsókn Jónína Benediktsdóttir hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum en hún skipaði 15. sæti listans í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Á Facebook síðu sína skrifaði hún í dag: „Ég hef sagt mig úr Framsóknarflokknum. Treysti því ekki að spilltu öflin séu horfin úr flokknum. Ég verð því ekki á listanum.“ Innlent 29.4.2010 19:48
Samstarf við VG fyrsti kostur Valdimar Svavarsson, oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segir að Hafnfirðingar vilji gefa Samfylkingunni frí frá stjórn bæjarfélagsins. Meirihlutasamstarf með Vinstri grænum sé fyrsti kostur verði niðurstöður kosninganna í næsta mánuði í samræmi við skoðanakönnun sem Fréttablaðið birti í dag. Innlent 29.4.2010 11:25
Oddviti VG: Könnunin gefur okkur byr í seglin „Þetta er náttúrulega ekki fast í hendi en þetta yrði mjög gleðileg niðurstaða og við kæmumst í lykilstöðu. Þessi könnun gefur okkur byr í seglin,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti VG í Hafnarfirði, um skoðanakönnun sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Innlent 29.4.2010 10:51
Samfylkingin bíður afhroð í Hafnarfirði Samfylkingin missir meirihluta sinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í komandi sveitarstjórnarkosningum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi. Innlent 28.4.2010 23:05
Víkur af lista framsóknarmanna Guðrún Valdimarsdóttir, sem skipaði annað sætið á lista framsóknarmanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hefur ákveðið að verða við ósk oddvita flokksins og víkja af listanum. Innlent 27.4.2010 19:00
Peningamarkaðssjóðir þöndust út Heildarverðmæti peningamarkaðssjóða stóru bankanna þriggja jókst um rúm 400 prósent á árunum 2004 til 2008. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að einn starfsmaður hjá Fjármálaeftirlitinu hafði yfirlit með sjóðunum fram til 2007. Viðskipti innlent 12.4.2010 15:51
Landsbankinn bannaði innlausn kaupréttarsamninga Landsbankinn bannaði starfsmönnum sínum að innleysa kaupréttarsamninga í árslok 2007. Grunur leikur á um að þetta hafi verið gert til að koma í veg fyrir lækkun á hlutabréfaverði bankans og að þetta geti flokkast sem markaðsmisnotkun. Viðskipti innlent 12.4.2010 13:30
Sigurjón Árnason með 35 milljónir í mánaðarlaun 2008 Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, fékk ríflega launahækkun á milli áranna 2007 og 2008. Mánaðarlaun bankastjórans námu tæpum 19,8 milljónum króna árið 2007. Þau voru komin í rúmar 34,8 milljónir ári síðar. Bankastjórinn var þó langt í frá launahæsti starfsmaður bankans. Viðskipti innlent 12.4.2010 13:16
Sextán starfsmenn fengu 8,4 milljarða lán hjá Glitni Sextán starfsmenn Glitnis fengu rúma 8,4 milljarða króna að láni hjá bankanum. Kristinn Þór Geirsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs bankans, fékk rúma 1,2 milljarða króna en fimm aðrir fengu átta hundruð milljónir. Viðskipti innlent 12.4.2010 13:02
Landsbankinn handstýrði virði Iceland Group Landsbankinn hækkaði verð á hlutabréfum bresku matvöruverslunarinnar Iceland Food Group um sextíu prósent á sama tíma og verð lækkaði á sambærilegum fyrirtækjum. Hækkunin jók bókfærðan hagnað bankans á fyrri helmingi 2008 um átta milljarða króna. Viðskipti innlent 12.4.2010 12:44
VG býður fram í 15 sveitarfélögum Vinstrihreyfingin grænt framboð býður fram lista á mun fleiri stöðum í sveitarstjórnarkosningunum í vor en áður, eða í 15 sveitarfélögum. Forystumenn flokksins í sveitastjórnarmálum komu saman í Grindavík um helgina til að leggja línurnar fyrir átökin sem eru framundan. Innlent 11.4.2010 19:40
Vilhjálmur: Golfið kemur ekki í stað vinnu Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist alls ekki vera þeirrar skoðunar að golfíþróttin geti komið í staðin fyrir atvinnu. Orð hans á borgarstjórnarfundi í dag um að stærri golfvöllur yrði mikilvægt tómstundasvæði fyrir atvinnulausa hafa vakið athygli, svo ekki sé dýpra í árina tekið. Innlent 6.4.2010 19:33
Hanna Birna: Allir hafa tekið á sig niðurskurð, líka golfklúbburinn „Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þegar hún var borgarstjóri, skrifaði undir sjö íþróttasamninga fyrir yfir tvo milljarða króna, nokkrum vikum fyrir kosningar 2006,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri á fundi borgarstjórnar nú fyrir stundu. Innlent 6.4.2010 15:58