Alvotech
1 2 3 4 5 … 5 ›
Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Alvotech hefur gert samning um endurfjármögnun skulda við GoldenTree Asset Management, bandarískt eignastýringarfyrirtæki, sem fer fyrir hópi alþjóðlegra stofnanafjárfesta. Samningurinn er um lánafyrirgreiðslu að fjárhæð allt að 965 milljónir Bandaríkjadal, eða um 135 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 7.6.2024 08:47
Félag Róberts fékk um þrjá milljarða með sölu á breytanlegum bréfum á Alvotech Fjárfestingafélag í aðaleigu Róberts Wessman, forstjóra og stjórnarformanns Alvotech, hefur klárað sölu á hluta af breytanlegum bréfum sínum á líftæknilyfjafyrirtækið fyrir samtals um þrjá milljarða króna. Þrátt fyrir uppfærða afkomuspá Alvotech ásamt jákvæðum viðbrögðum frá erlendum greinendum hefur það ekki skilað sér í hækkun á hlutabréfaverði félagsins. Innherji 29.5.2024 17:50
Árangur Alvotech bendi til að félagið geti orðið „alþjóðlegur líftæknilyfjarisi“ Alvotech hefur fengið skuldbindandi pantanir á meira en milljón skömmtum af Simlandi-hliðstæðu sinni við Humira í Bandaríkjunum fyrir þetta ár, sem tryggir félaginu umtalsverða hlutdeild á þeim markaði að sögn Barclays, en bankinn hefur hækkað verðmat sitt á Alvotech og telur fyrirtækið á góðri leið með að verða alþjóðlegur líftæknilyfjarisi. Stjórnendur Alvotech vinna nú í endurfjármögnun á skuldum félagsins, sem nema yfir hundrað milljörðum, með það fyrir augum að lækka verulega fjármagnskostnað. Innherji 25.5.2024 12:45
Alvotech sér fram á tvöfalt meiri rekstrarhagnað miðað við spár greinenda Eftir að Alvotech hækkaði verulega áætlun sína um tekjur og afkomu á þessu ári er útlit fyrir að EBITDA-hagnaður líftæknilyfjafélagsins verði um tvöfalt meiri en meðalspá greinenda hefur gert ráð fyrir. Fjárfestar tóku vel í uppfærða afkomuspá Alvotech, aðeins tveimur mánuðum eftir að hún var fyrst birt, en félagið ætti núna að vera ná því markmiði að skila umtalsverðu jákvæðu sjóðstreymi. Innherji 22.5.2024 15:59
Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Tekjur Alvotech á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru 37 milljónir dala. Á sama tímabili í fyrra voru tekjurnar sextán milljónir dala en upphæðirnar samsvara um 5,1 milljarði króna annars vegar og um 2,2 milljörðum hinsvegar. Viðskipti innlent 21.5.2024 22:17
Landa stórum sölusamningi Alvotech tilkynnti í dag að nýgerður samningur í Bandaríkjunum um dreifingu og sölu á líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech í háum styrk með útskiptileika við Humira (adalimumab) sé við Quallent Pharmaceuticals, dótturfélag Cigna. Samningurinn sé gerður með samþykki Teva Pharmaceuticals, sem er samstarfsaðili Alvotech í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 30.4.2024 08:34
Heilbrigðistryggingafélag tekur lyf Alvotech upp á sína arma Bandaríska heilbrigðistryggingafélagið Cigna hyggst bjóða upp á líftæknilyfjahliðstæður af gigtarlyfinu Humira án þess að viðskiptavinir þurfi að greiða sérstaklega fyrir lyfið. Alvotech, sem er býður upp á slíkt lyf, hefur hækkað um 3,7 prósent það sem af er degi. Innherji 26.4.2024 12:13
Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur gert langtímasamning við „leiðandi innkaupaaðila lyfja í Bandaríkjunum“ um sölu og markaðssetningu á Simlandi (adalimumab-ryvk), fyrstu líftæknilyfjahliðstæðunni í háum styrk með útskiptanleika við Humira. Viðskipti innlent 19.4.2024 11:23
Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt Alvotech markaðsleyfi fyrir Selarsdi (ustekinumab-aekn), líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara. Gert er ráð fyrir að Selarsdi komi á markað í Bandaríkjunum um eða eftir 21. febrúar 2025 í samræmi við samkomulag við framleiðanda frumlyfsins Stelara Viðskipti innlent 16.4.2024 21:31
Mun stýra mannauðsmálum Alvotech Jenný Sif Steingrímsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Alvotech. Jenný gekk til liðs við Alvotech í október 2022 og hefur verið mannauðsráðgjafi fyrir rannsóknar- og þróunarsvið Alvotech. Viðskipti innlent 11.4.2024 09:37
Vogunarsjóðum Akta reitt þungt högg eftir óvænt gengisfall Alvotech Ævintýralegar sveiflur hafa verið á gengi vogunarsjóða í stýringu Akta á undanförnum vikum samhliða hröðu risi og síðan falli á hlutabréfaverði Alvotech. Sjóðastýringarfélagið hefur lagt mikið undir á Alvotech, sem fékk undir lok febrúar langþráð samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum, en einn af flaggskipssjóðum Akta tók dýfu um nærri fimmtíu prósent á nokkrum viðskiptadögum þegar það fór að síga á ógæfuhliðina hjá líftæknilyfjafyrirtækinu á hlutabréfamarkaði. Innherji 9.4.2024 10:29
Fjárfestar tóku dræmt í skilaboð Alvotech um stóran sölusamning „á næstu vikum“ Skilaboð Alvotech um stöðuna í viðræðum vegna sölusamninga vestanhafs á stuttum kynningarfundi í hádeginu ollu nokkrum vonbrigðum meðal innlendra fjárfesta og féll hlutabréfaverð félagsins skarpt strax að afloknum fundi. Félagið segist vera á „lokastigi“ með að klára samning við einn stærsta söluaðilann í Bandaríkjunum vegna líftæknilyfjahliðstæðunnar Simlandi. Innherji 3.4.2024 14:19
Alvotech í mótvindi þegar eftirspurn innlendra fjárfesta mettaðist Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið. Innherji 3.4.2024 10:55
Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Alvotech fékk kaupauka að andvirði rúmlega þrjú hundruð milljóna króna á dögunum. Viðskipti innlent 26.3.2024 13:31
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. Innherji 21.3.2024 10:53
Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. Viðskipti innlent 20.3.2024 21:35
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. Innherji 4.3.2024 15:55
Hástökk Alvotech fyrir bí Fjórða daginn í röð lækkar verð á bréfum í Alvotech eftir hástökkið á mánudaginn þegar verðið hækkaði um ellefu prósent. Það er nú lægra en það var áður en matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna veitti fyrirtækinu langþráð leyfi síðastliðna helgi. Viðskipti innlent 1.3.2024 10:23
Alvotech sagði 21 upp í gær 21 starfsmanni var sagt upp störfum hjá Alvotech í gær. Þar af voru fjórtán sem starfa á Íslandi. Þetta staðfestir Benedikt Stefánsson, forstöðumaður fjárfesta- og almannatengsla hjá Alvotech, í samtali við Vísi. Viðskipti innlent 29.2.2024 11:03
Uppsagnir hjá Alvotech Þónokkrum starfsmönnum lyfjafyrirtækisins Alvotech var sagt upp störfum í dag. Viðskipti innlent 28.2.2024 16:42
Lækkaði um átta prósent eftir mikla hækkun í gær Virði hlutabréfa í Alvotech lækkuðu um 7,76 prósent í dag. Velta dagsins var um 1,3 milljarðar króna. Verð hlutar í félaginu stendur nú í 2.260 krónum og á síðastliðnu ári hefur verðið hækkað um 42,6 prósent. Viðskipti innlent 27.2.2024 20:01
Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“ Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki. Innherji 27.2.2024 14:29
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07
Tóku 23 milljarða tilboði í morgunsárið Alvotech gekk í morgun að tilboði frá hópi fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila um sölu á 10.127.132 almennum hlutabréfum í félaginu að verðmæti um 22,8 milljarðar króna. Tilboðið er jafnvirði 166 milljóna dala miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands síðastliðinn fösudag á genginu 2.250 krónur á hlut, 16,41 dalir á hlut. Verð á bréfum í félaginu hækkaði um þrettán prósent eftir fyrstu viðskipti dagsins. Viðskipti innlent 26.2.2024 09:31
Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 24.2.2024 03:00
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Eina athugasemdin vegna of mikillar sótthreinsunar Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech. Eina athugasemdin var vegna þess að eftirlitsmaður sá starfsmann Alvotech sótthreinsa hanska sína of oft og nota þá ekki með hárréttum hætti. Viðskipti innlent 31.1.2024 15:19
Fimmtán sagt upp hjá Alvotech Líftæknifyrirtækið Alvotech sagði upp fimmtán starfsmönnum í gær. Viðskipti innlent 31.1.2024 12:37
Mælir nú með kaupum í Alvotech og hækkar verðmatið um 70 prósent Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays mælir með því að fjárfestar bæti við sig í Alvotech, áður ráðlagði hann þeim að halda stöðu sinni, og hækkar verulega verðmatsgengi sitt á íslenska líftæknilyfjafélagið eftir að ljóst varð að það á von á því að fá samþykkt markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf. Fjárfestar eru nú með meiri vissu um að sá fjöldi lyfja sem eru í þróun hjá Alvotech fari að skila tekjum, að sögn Barclays, sem telur félagið verða með sterka samkeppnisstöðu á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Innherji 29.1.2024 12:30
Fjármagn flæddi í hlutabréfasjóði á síðasta mánuði ársins Eftir nánast samfellt útflæði úr hlutabréfasjóðum um langt skeið varð viðsnúningur á síðasta mánuði ársins 2023 þegar fjárfestar settu talsvert fjármagn í slíka sjóði samhliða því að hlutabréfamarkaðurinn fór á mikið flug. Á sama tíma var hins vegar ekkert lát á áframhaldandi sölu fjárfesta í blönduðum sjóðum og skuldabréfasjóðum. Innherji 29.1.2024 10:37