Sovétríkin
1 2 ›
Samþykktu naumlega að stefna að ESB-aðild Naumur meirihluti kjósenda í Moldóvu samþykkti stjórnarskrárbreytingu sem leggur grunninn að Evrópusambandsaðild fyrrum Sovétlýðveldisins. Niðurstaðan þykir koma á óvart þar sem talið var að breytingin yrði samþykkt með ríflegum meirihluta. Forseti landsins sakar Rússa um að reyna að hafa áhrif á úrslitin. Erlent 22.10.2024 10:33
Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Sæbraut verður lokað frá klukkan 8 á laugardagsmorgun til klukkan 13 sama dag vegna kvikmyndatöku á Hollywoodmynd um leiðtogafund Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev í Höfða árið 1986. Sæbrautinni verður lokað frá Borgartúni og að Snorrabraut. Búast má við umferðartöfum vegna lokunarinnar. Lífið 17.10.2024 09:28
Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, ítrekaði í dag að landið myndi alltaf verja sig fyrir árásum annarra ríkja eftir að einn nánasti ráðgjafi hans kom sér í klandur með því að segja að Ungverjar hefðu ekki tekið til varna ef Rússar hefðu ráðist inn í landið. Erlent 27.9.2024 22:24
Norræna módelið og framtíð lýðræðis „Það sem við nú erum vitni að er ekki bara endalok Kalda stríðsins eða kaflaskipti í eftir-stríðs sögunni, heldur endalok sögunnar sem slíkrar; þ.e.a.s. endapunkturinn á hugmyndafræðilegri þróun mannkyns, þar sem vestrænt lýðræði ríkir sem hið endanlega form mannlegra stjórnarhátta“. Skoðun 16.3.2024 08:00
Sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsþjóða: Söguleg upprifjun Sjálfstæðisbarátta ykkar á seinustu áratugum seinustu aldar var þjóðarvakning: syngjandi byltingin. En hún var líka pólitísk grasrótarhreyfing – fyrir lýðræðið: Mannlega keðjan (e. Human chain). Skoðun 21.2.2024 07:01
Eftirlýst í Rússlandi vegna sovéskra minnisvarða Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands. Taimar Peterkop, nokkurskonar ráðuneytisstjóri ríkisstjórnar Eistlands er einnig eftirlýstur í Rússlandi en talskona utanríkisráðuneytis Rússlands segir þau eftirlýst vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum. Erlent 13.2.2024 10:55
Keypti eftirlíkingu á 27 milljónir og situr uppi með Svarta-Pétur Noah Siegel, bandarískur fjárfestir, pókerspilari og skákmaður, keypti taflborð í þeirri trú að um væri að ræða borð sem notað var í einvígi aldarinnar milli þeirra Bobby Fischers og Borisar Spasskí. Hins vegar kom á daginn að um var að ræða eftirlíkingu og Siegel keypti þannig köttinn í sekknum. Innlent 12.6.2023 09:02
Einn alræmdasti njósnari í sögu Bandaríkjanna látinn Robert Hanssen, fyrrverandi alríkislögreglumaður sem þáði mútur fyrir að njósna um Bandaríkin fyrir Rússa, er látinn í fangelsi. Hann er meðal annars talinn hafa verið ábyrgur að hluta til á dauða þriggja sovéskra embættismanna sem njósnuðu fyrir Bandaríkjamenn. Erlent 6.6.2023 11:01
„Það var útgöngubann og herinn var búinn að hertaka sjónvarpsturninn“ RAX fór til Eystrasaltsríkjanna um sama leyti og blóðugustu atburðir sjálfstæðisbaráttu þeirra áttu sér stað. Fólk safnaðist saman á götum úti, kveikti varðelda og reisti vegatálma og beið þess sem vera vildi. Sovéskar hersveitir reyndu að berja niður sjálfstæðistilburðina og það var alls ekki hættulaust að lenda í klónum á þeim. Lífið 27.4.2023 08:02
„Við vorum í verulegri hættu“ Árið 1990 lýstu Eystrasaltsríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum og í janúar 1991 hélt Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, utan til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra fyrir hönd Íslands, fyrst ríkja heims. RAX fylgdi honum út ásamt öðru fjölmiðlafólki. Lífið 23.4.2023 07:01
Selenskí þakklátur Íslandi Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis. Erlent 23.3.2023 14:32
Alþingi ræðir ályktun um hungursneyðina í Úkraínu sem hópmorð Þingmenn allra flokka eru á þingsályktunartillögu sem rædd verður á Alþingi í dag um að hungursneyðin í Úkraínu í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar hafi verið hópmorð. Milljónir manna í Úkraínu og Moldóvu létust úr hungri vegna aðgerða Jósefs Stalíns þáverandi einræðisherra Sovétríkjanna. Innlent 22.2.2023 11:43
Arne Treholt látinn Norski njósnarinn Arne Treholt er látinn, áttatíu ára gamall. Hann lést á heimili sínu á Moskvu þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Hann lætur eftir sig son og tvö barnabörn. Erlent 12.2.2023 14:42
Sjálfsvígsheimsvaldastefna Kremlar Eins fráleit og hún var, þá var ekkert sem kom á óvart í ræðunni sem Pútín hélt í tilefni innlimunar úkraínsku landsvæðanna. Á undanförnum vikum hefur Rússland orðið fyrir hverju öðru, hernaðarlegu áfallinu í norðaustur Úkraínu. Að sýna veikleika er óhugsandi í huga Pútín og þar af leiðandi bætir hann upp dapurt gengi á vígvellinum með sífellt meira ógnandi málflutningi. Umræðan 8.10.2022 10:01
Methafi í samfelldri geimdvöl allur Rússneski geimfarinn Valeríj Poljakov sem á metið yfir lengstu samfelldu dvöl í geimnum er látinn, áttræður að aldri. Poljakov dvaldi í sovésku geimstöðinni Mír á braut um jörðu í rúma 437 daga samfleytt á tíunda áratug síðustu aldar. Erlent 19.9.2022 11:43
Segir kveðjuathöfn Gorbatsjov hafa verið virðulega og viðeigandi Sendiherra Íslands í Rússlandi, Árni Þór Sigurðsson var viðstaddur kveðjuathöfn sem haldin var í gær til heiðurs Míkhaíl Gorbatsjov sem lést nú á dögunum, 91 árs. Árni segir athöfnina hafa verið virðulega og viðeigandi. Erlent 4.9.2022 10:26
Sendiherra Íslands vottaði virðingu sína: Langar raðir við útför Gorbatsjovs Langar biðraðir hafa myndast við útför Míkhaíl Gorbatsjov í Moskvu í morgun. Útförin fer fram í dag en líkkista síðasta leiðtoga Sovétríkjanna liggur í Súlnasalnum í Húsi verkalýðsins í Moskvu þar sem fólk vottar honum virðingu sína í dag. Erlent 3.9.2022 11:00
Pútín verður ekki viðstaddur útför Gorbatsjov Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun ekki sækja útför Míkhaíl Gorbatsjov, síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem fram fer í Moskvu á laugardag. Erlent 1.9.2022 10:34
Snör handtök og fljótir fætur vegna leiðtogafundar Íslendingar þurftu að hafa snör handtök og fljóta fætur þegar embætti forseta Bandaríkjanna óskaði eftir því að leiðtogafundur Ronalds Reagans og Mikhails Gorbachevs yrði haldinn á Íslandi innan örfárra daga. Atburður af þessari stærðargráðu hafði þá aldrei átt sér stað á Íslandi áður. Innlent 31.8.2022 20:02
Putin grætur Gorbachev krókódílatárum Þjóðarleiðtogar víða um heim minnast Mikhails Gorbachevs síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem lést í gærkvöldi níutíu og eins árs að aldri, fyrir þátttöku hans í lokum kaldastríðsins. Ráðamenn í Rússlandi bera harm sinn hins vegar í hljóði enda andúð Rússlandsforseta á sovétleiðtoganum fyrrverandi öllum kunn. Erlent 31.8.2022 19:40
Fékk senda drelliflotta loðhúfu frá Gorbachev Þorsteinn Úlfar Björnsson rithöfundur með meiru kann að segja skemmtilega og athyglisverða sögu af því hvernig það kom til að hann eignaðist forláta loðhúfu sem sjálfur Gorbachev sendi honum sérstaklega. Innlent 31.8.2022 12:34
Dáður á Vesturlöndum en fyrirlitinn heima fyrir Mikhail Gorbachev síðasti leiðtogi Sovétríkjanna sem lést í dag níutíu og eins árs að aldri var dáður á Vesturlöndum fyrir þátt hans í lokum kalda stríðsins en fyrirlitinn heima fyrir vegna hruns Sovétríkjanna og versnandi hag almennings. Erlent 31.8.2022 11:55
„Greiddi leiðina fyrir frjálsa Evrópu“ Leiðtogar þjóða og alþjóðastofnana, núverandi og fyrrverandi, víðs vegar um heim hafa minnst Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, sem lést í gær, 91 árs að aldri. Erlent 31.8.2022 07:41
Míkhaíl Gorbatsjov er látinn Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, er látinn 91 árs að aldri. Gorbatsjov hafði verið að glíma við veikindi í langan tíma og lést á spítala í Moskvuborg í dag. Erlent 30.8.2022 20:46
Litla þjóðin reyndist risi í ljósi sögunnar Utanríkisráðherra Eistlands segir Eystrasaltsríkin ævarandi þakklát Íslendingum fyrir að hafa, fyrst þjóða, viðurkennt sjálfstæði þeirra. Þessi litla þjóð hafi reynst mikill risi í ljósi sögunnar. Innlent 26.8.2022 20:01
Forseti Lettlands: Ísland breytti sögunni Í Höfða var þess minnst með hátíðarsamkomu að þennan dag árið 1991 var skrifað undir yfirlýsingar um stjórnmálasamband Íslands við Eistland, Lettland og Litháen og var sjálfstæði þeirra viðurkennt. Innlent 26.8.2022 14:42
Segir að ekki hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin Fyrrverandi samflokksmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að íslensk stjórnvöld og Háskóli Íslands hafi ekki ætlað sér að bjóða Jóni Baldvin á hátíðarsamkomu um sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna sem fyrirhuguð er síðar í vikunni. Forsetar ríkjanna þriggja munu allir mæta á samkomuna. Innlent 24.8.2022 07:20
Eistar fjarlægja alla sovéska minnisvarða Stjórnvöld í Eistlandi hafa ákveðið að fjarlægja alla sovéska minnisvarða úr almannarými í landinu. Erlent 16.8.2022 12:56
Sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsþjóða og endalok Sovétríkjanna: Þegar Ísland leiðrétti kúrsinn hjá NATO Þann 9.maí s.l.birti Morgunblaðið frétt af því, að skjöl þýska utanríkisráðuneytisins frá lokum Kalda stríðsins hefðu verið gerð opinber. Samkvæmt þeim hefðu leiðtogar Þýskalands, Kohl kanslari og Genscher utanríkisráðherra, beitt sér gegn endurreistu sjálfstæði Eystrasaltsþjóða og aðild hinna nýfrjálsu ríkja að varnarbandalagi lýðræðisríkjanna, NATO. Skoðun 11.5.2022 13:30
Fyrrverandi forseti Hvíta-Rússlands látinn Stanislav Shúshkevitsj, fyrrverandi forseti Hvíta-Rússlands, er látinn, 87 ára að aldri. Erlent 4.5.2022 09:58