Fasteignamarkaður
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 29 ›
Húsnæðisverðslækkanir í kortunum Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,2% í júní og hefur þar með hækkað um 25% undanfarna tólf mánuði. Þrátt fyrir að vera rúmlega tvöfalt meiri hækkun en í meðalmánuðinum undanfarin 8 ár þá er þetta minnsta mánaðarhækkun á markaðnum síðan í janúar. Skoðun 3.8.2022 08:01
Eftirlitsnefnd Fasteignasala – Hlutlaus eða í vasa Félags Fasteignasala? Ingibjörg Þórðardóttir, fyrrverandi formaður Félags Fasteignasala, sagði í viðtali á Bylgjunni í vikunni að það væri „óþolandi að fasteignasalar þurfi að sitja undir rógburði“. Af viðtalinu að dæma sér Ingibjörg ekki að neitt vafasamt sé við núverandi vinnubrögð eða gjaldtöku fasteignasala, þetta sé einfaldlega rógburður. Skoðun 27.7.2022 12:00
Segir marga svekkta sem reyna við fasteignamarkaðinn Formaður Félags fasteignasala segir marga sitja eftir með sárt ennið sem gera tilboð í fasteignir eins og staðan er á markaðnum í dag. Þrátt fyrir yfirboð nái þeir ekki að festa kaup á húsnæði, samkeppnin sé of hörð. Viðskipti innlent 20.7.2022 14:09
Markaðurinn róaðist minna en búist var við Íbúðaverð hækkaði um 2,2 prósent milli maí og júní. Það er minni hækkun en undanfarna mánuði en þó meiri en hagfræðideild Landsbankans hafði reiknað með. Viðskipti innlent 20.7.2022 11:05
Vísitala íbúðaverðs ekki hækkað minna síðan í janúar Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu var 941 í júní og hækkaði um 2,2 prósent á milli mánaða. Minni hækkun hefur ekki orðið á milli mánaða síðan í janúar á þessu ári en þá var hún 1,7 prósent. Innlent 19.7.2022 22:31
Hið opinbera hefði þurft að stíga inn á byggingamarkað fyrir áratug Doktor í hagfræði segir að ekki sé tilefni til að hið opinbera stígi inn á húsnæðismarkað á meðan einkaðilar byggja nóg. Hins vegar hefði það mátt stíga inn fyrir tíu árum þegar lítið var byggt. Viðskipti innlent 17.7.2022 11:49
Auka fasteignasalar traust við sölu fasteigna? Í hugum margra koma fasteignasalar með aukið traust og öryggi inn í söluferli fasteigna. Að aðkoma fasteignasala sé ákveðinn gæðastimpill. Eftir að hafa skoðað dómasafn Héraðsdóms[1] og álit Eftirlitsnefndar Fasteignasala[2] á ég hins vegar erfitt með að sjá að það sé raunin. Skoðun 13.7.2022 10:01
Spá rúmlega níu prósent verðbólgu í júli Hagsjá Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent milli júní og júlí. Gangi sú spá eftir fari ársverðbólga upp í 9,2 prósent, en hún mældist 8,8 prósent í júní. Talið er að verðbólga fari hæst í 9,5 prósent í ágúst áður en hún lækkar aftur. Viðskipti innlent 13.7.2022 09:38
„Fasteignamarkaðurinn er líkast til að taka stakkaskiptum“ Óverðtryggð lán eru mun hægkvæmari en verðtryggð um þessar mundir, segir í mánaðarskýrslu hagdeildar HMS fyrir júlímánuð. Hlutfall íbúða sem seldist yfir ásettu verði dróst saman í maí og þá fór meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu úr 35 dögum í 46 daga. Innlent 12.7.2022 07:48
Tilboð hefur borist í Laugar í Sælingsdal Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur borist tilboð í ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal. Þorpið hefur verið til sölu frá árinu 2016 og illa hefur gengið að selja það. Viðskipti innlent 8.7.2022 10:41
Húsnæðismarkaðurinn á leið í kalda sturtu Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,0% í maí sem þýðir að húsnæðisverð hefur hækkað um 24% undanfarna tólf mánuði. Skoðun 8.7.2022 08:01
Vísir að bólu á íbúðamarkaði og vaxandi líkur á leiðréttingu Það var mat fjármálastöðugleikanefndar að vísir að eignabólu á íbúðamarkaði geti verið til staðar og hafa aukist líkur á stöðnun eða leiðréttingu raunverðs íbúða. Þetta kom fram í fundargerð fjármálastöðugleika frá síðasta fundi nefndarinnar um miðjan júní. Innherji 4.7.2022 14:58
Lánþegaskilyrðin drógu úr áhættu en áhrifin á verðþróun óljós Hert lánþegaskilyrði hafa líklega haft takmörkuð áhrif á verðþróun á húsnæðismarkaði hingað til en jákvæð áhrif á lánveitingar og kerfisáhættu. Innherji 1.7.2022 14:19
Fjárfestar haldi fyrstu kaupendum frá fasteignamarkaði Elvar Guðjónsson, fasteignasali, segir fjárfesta halda nýjum kaupendum frá fasteignamarkaðnum. Fjárfestar eigi of auðvelt með að kaupa sér fleiri fasteignir á kostnað nýrra kaupenda og seðlabankastjóri hafi gert fasteignamarkaðinn enn ójafnari með því að hækka vexti og lækka lánshlutfall. Innlent 1.7.2022 14:10
Fólk eigi ekki að þurfa að fresta lífinu Verðbólguhorfur fara versnandi og ekki gert ráð fyrir að seðlabankinn nái markmiðum sínum fyrr en 2025. Forseti Alþýðusambandsins segir að fasteignaverð sé vandamálið; stjórnvöld séu fyrir löngu búin að missa stjórn á húsnæðismarkaðnum. Innlent 28.6.2022 16:27
Hátt hygla fasteignasalar sér – Ólögleg sérhagsmunastefna Undanfarið hef ég skrifað um sjálftöku fasteignasala út frá gjaldheimtu og lægra fasteignaverði á kostnað seljenda. Sjálftakan og eiginhagsmunasemin einskorðast þó ekki við þau atriði. Því til stuðnings ætla ég að nefna þrjú atriði, frá einkennilegu yfir í lögbrot. Skoðun 28.6.2022 08:01
Reykjavík fari að fordæmi Helsinki í húsnæðismálum Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands segir að borgarstjórn ætti að fara að fordæmi borgaryfirvalda í Helsinki og bæði fjölga félagslegum íbúðum og víkka út skilyrðin þannig að fleiri tekjuhópar geti nýtt sér úrræðið í ljósi hækkandi fasteignaverðs. Hlutfall félagslegs húsnæðis í Helsinki er um 19 til 25 prósent á meðan það er um 5 prósent í Reykjavík. Innlent 23.6.2022 13:19
Björgvin Páll selur húsið sitt með gufu á pallinum Handboltamaðurinn Björgvin Páll Gústavsson hefur sett fallega parhúsið sitt og fjölskyldu sinnar á sölu. Húsið er staðsett í póstnúmerinu 108 og er með glæsilegu útsýni yfir Esjuna frá svefnherberginu. Lífið 21.6.2022 14:03
Árshækkun íbúðaverðs 24 prósent og ekki hærri síðan 2006 Samkvæmt nýbirtum upplýsingum frá Þjóðskrá hækkaði íbúðaverð um þrjú prósent í maí á milli mánaða. Það er sem af er ári hefur íbúðaverð hækkað um þrettán prósent og 24 prósent á síðustu tólf mánuðum. Viðskipti innlent 21.6.2022 13:36
Það þarf meira en aðgerðir Seðlabankans Ársverðbólga í dag (7,6%) er að langmestu leyti drifin áfram af fasteignamarkaðinum: ríflega þrjú prósentustig af 7,6% ársverðbólgu eiga sér rætur í fasteignamarkaðinum á meðan t.d. innfluttar vörur eru ábyrgar fyrir minna en tveimur prósentustigum af 7,6% ársverðbólgunni. Skoðun 19.6.2022 10:31
Takk Seðlabankastjóri Þau stórmerkilegu tíðindi gerðust í gær að í fyrsta skipti kom fram seðlabankastjóri sem hafði kjark og þor til að benda á það augljósa að verðtryggð húsnæðislán séu í raun stórhættuleg og kalli fram mikla áhættusækni hjá neytendum. Skoðun 16.6.2022 12:00
Margir komist ekki inn á markaðinn eftir inngrip Seðlabankans Varaformaður Félags fasteignasala telur að ákvörðun Seðlabankans um að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur geti leitt til þess að margir komist ekki inn á fasteignamarkaðinn. Viðskipti innlent 15.6.2022 20:02
Milljónir tapist vegna hvatakerfis fasteignasala Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í hagfræði, hefur undanfarnar vikur vakið máls á slæmri stöðu á fasteignamarkaði og gagnrýnt feitar söluþóknanir fasteignasala. Í skoðanagrein sem Haukur birti á Vísi í dag bendir hann á að hvatakerfi fasteignasala sé þannig uppbyggt að betra sé fyrir fasteignasala að selja eignir hratt á lágu verði fremur en að bíða lengur og fá betra verð. Innlent 15.6.2022 19:25
„Verið að segja við almenning, þetta er hættulegt fyrir ykkur“ Seðlabankinn vill að lánastofnanir gefi skýrari upplýsingar um greiðslubyrði fasteignalána og hefur í fyrsta skipti gefið út viðmið við útreikning þeirra. Seðlabankastjóri segir þetta gert svo fólk taki ekki verðtryggð lán á röngum forsendum. Fyrstu kaupendur þurfa að leggja meira út en áður. Innlent 15.6.2022 19:01
Segir leiguverð ekki þurfa að fylgja hækkandi fasteignaverði Leiguverð hefur ekki mælst lægra að raunvirði síðan 2017. Hagfræðingur hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun segir leiguverð ekki alltaf þurfa að fylgja fasteignaverði. Kostnaður við að eiga og reka íbúð hafi ekki hækkað mikið Viðskipti innlent 15.6.2022 14:21
Óttast endurkomu verðtryggðra lána Fyrstu kaupendur munu þurfa að leggja út 15 prósent af kaupverði fasteignar í stað 10 prósent, samkvæmt tilmælum Seðlabanka Íslands sem kynnt voru í morgun. Bankinn hefur áhyggjur af óhóflegri skuldsetningu en með aðgerðunum vill seðlabankastjóri fyrst og fremst hemja endurkomu verðtryggingarinnar. Viðskipti innlent 15.6.2022 12:07
Saga af íbúð sem notuð er til okurs Hér verður sögð saga af íbúð sem er notuð til kúgunar og okurs undir sérstakri vernd stjórnvalda. Íslensk stjórnvöld hafa kosið að taka ætíð stöðu með okrurum og bröskurum og aldrei með leigjendum. Skoðun 15.6.2022 10:41
Lækka hámarkshlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur Gæta þarf þess að vaxandi efnahagsumsvifum fylgi ekki yfirdrifin áhættusækni og óhóflegur vöxtur útlána sem gæti veikt viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Verði bakslag í alþjóðlegum efnahagsbata gæti það haft áhrif á fjármálastöðugleika hér á landi. Bankinn hefur ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90 prósent í 85 prósent. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:37
Leiguverð sem hlutfall af launum ekki mælst lægra síðan 2013 Umsvif á fasteignamarkaði halda áfram að dragast saman og framboð af íbúðum til sölu er farið að aukast á nýjan leik eftir verulegan samdrátt allt frá því í maí 2020. Hátt hlutfall íbúða sem seldist á yfirverði í apríl og stuttur sölutími er hins vegar vísbending um að eftirspurnarþrýstingur hafi þó enn verið mikill í mánuðinum. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:15
Illa verðlagðar fasteignir – Hærra verð með því að selja sjálfur Rannsakendur við Stanford háskóla ráku sig á áhugaverða staðreynd sem varð til þess að nánast engir seljendur nota fasteignasala til að selja eignir sínar þar lengur: Fólk sem notaði fasteignasala til þess að selja eignir sínar á háskólasvæðinu fékk að meðaltali 5,9% til 7,7% lægra verð fyrir þær[1]! Skoðun 15.6.2022 07:31