Meistaradeildin
259 260 261 262 263 264 265 266 267 … 274 ›
Bayern Munchen er sigurstranglegast Fabio Capello, stjóri ítölsku meistaranna í Juventus, segir að Bayern Munchen sé sigurstranglegasta liðið í Meistaradeildinni af þeirri einföldu ástæðu að liðið hafi notið þess að fá langt vetrarfrí öfugt við liðin á Ítalíu, Spáni og Englandi. Sport 20.2.2006 19:05
Völlurinn er ekki svo slæmur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur boðið liði Barcelona að æfa á æfingasvæði Chelsea fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni í stað þess að æfa á Stamford Bridge, því eins og áhorfendur Sýnar sáu um helgina, er völlurinn eitt moldarflag eftir miklar rigningar. Sport 20.2.2006 17:57
Beckham hlakkar til að mæta Arsenal David Beckham, leikmaður Real Madrid, segist hlakka mikið til að mæta loks ensku liði í Meistaradeildinni, en lið hans leikur við Arsenal annað kvöld. Hann segist þó heldur hafa viljað mæta sínum gömlu félögum í Manchester United í keppninni. Sport 20.2.2006 15:10
Bergkamp gefur kost á sér í leikinn á Spáni Hinn flughræddi framherji Arsenal, Dennis Bergkamp, segist ætla að gefa kost á sér í fyrri leik Arsenal gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í næstu viku, en hann fer sjaldan í keppnisferðalög með liðinu í Meistaradeildinni því hann neitar að fljúga. Sport 17.2.2006 13:19
Dæmdur í eins leiks bann Vængmaðurinn knái, Cristiano Ronaldo hjá Manchester United, var í dag dæmdur til að greiða sekt og taka út eins leiks bann í Meistaradeild Evrópu fyrir að senda stuðningsmönnum Benfica í heimalandi hans fingurinn í leik liðanna í Meistaradeildinni í haust. Aganefnd evrópska knattspyrnusambandsins greindi frá þessu í dag og hefur leikmaðurinn frest fram yfir helgi til að svara dómnum. Sport 3.2.2006 16:59
Ronaldo á yfir höfði sér bann Gary Neville er ekki eini leikmaður Manchester United sem hefur verið tekinn fyrir vegna ósæmilegrar framkomu á leikvellinum í dag, því nú hefur evrópska knattspyrnusambandið kært Cristiano Ronaldo fyrir að storka áhorfendum Benfica í leik í Portúgal í Meistaradeildinni þegar United féll úr keppni. Sport 26.1.2006 16:46
Vona að Chelsea og Barcelona hafi þroskast Forráðamenn UEFA segjast vona að ekki sjóði uppúr í aðdraganda viðureignar Barcelona og Chelsea í þetta sinn, en mikið fjaðrafok varð í kring um rimmu liðanna í vor sem endaði með leikbönnum og sektum. "Ég ætla að vona að menn hafi lært af mistökum sínum í fyrra og einbeiti sér að því að leysa málin á knattspyrnuvellinum í þetta sinn," sagði William Gaillard hjá UEFA. Sport 16.12.2005 18:16
Ronaldinho spáir öðru klassísku einvígi Framherjinn Ronaldinho hjá Barcelona, sem flestir hallast að því að sé besti knattspyrnumaður í heimi, spáir því að viðureign Chelsea og Barcelona í 16-úrslitum meistaradeildarinnar í ár fari á spjöld sögunnar sem klassísk viðureign, rétt eins og rimma þeirra í fyrra sem var sannarlega ógleymanleg. Sport 16.12.2005 16:45
Hélt að eldingar kæmu ekki niður á sama stað tvisvar Peter Kenyon sagðist allt eins hafa búist við því að lið hans Chelsea mundi dragast á móti stórliði í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í dag og hlakkar til að endurtaka leikinn frá í fyrra. Sport 16.12.2005 15:00
Sáttur við að mæta Benfica Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir á heimasíðu félagsins í dag að hann sé sáttur við að mæta Benfica í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar og segir að þó Benfica verði erfiðir mótherjar, hefði Liverpool geta verið óheppnara með andstæðinga á þessu stigi keppninnar. Sport 16.12.2005 14:49
Chelsea og Barcelona mætast aftur Nú áðan varð ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Eiður Smári og félagar í Chelsea fá það erfiða verkefni að mæta Barcelona, en þessi lið háðu eftirminnilegt einvígi í keppninni í fyrra. Arsenal mætir Real Madrid og Liverpool mætir portúgalska liðinu Benfica. Sport 16.12.2005 11:35
Fær tveggja leikja bann Miðjumaðurinn harðskeytti hjá Chelsea, Michael Essien, var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd UEFA fyrir ljóta tæklingu hans á Dietmar Hamann hjá Liverpool í leik liðanna í Meistaradeildinni á dögunum. Essien missir því af báðum leikjum Chelsea í 16-liða úrslitum keppninnar. Sport 15.12.2005 16:22
Fótbolti er karlmannsíþrótt Michael Essien, miðjumaður Chelsea segist í viðtali við People í dag ekki vera grófur leikmaður en hann liggur þessa dagana undir harðri gagnrýni vegna ljótrar tæklingar á Dietmar Hamann í leiknum gegn Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni. Sport 11.12.2005 16:03
Sýndi áhorfendum fingurinn Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United gæti átt yfir höfði sér refsingu frá UEFA eftir að hann sýndi löndum sínum í fingurinn þegar hann gekk af velli í tapinu gegn Benfica í Meistaradeildinni. Stuðningsmenn Benfica bauluðu á hann í hvert skipti sem hann snerti boltann í leiknum, en Ronaldo lék áður með erkifjendum Benfica í Sporting Lissabon. Sport 9.12.2005 16:09
Kærður fyrir tæklinguna á Hamann Miðjumaðurinn Michael Essien hefur verið kærður af aganefnd UEFA fyrir grófa tæklingu sína á Dietmar Hamann í viðureign Chelsea og Liverpool á þriðjudaginn, en Þjóðverjinn sagðist eftir leikinn hafa verið fullviss um að hann væri fótbrotinn eftir árás Ganamannsins. Sport 8.12.2005 20:10
Jafnt hjá Chelsea og Liverpool Chelsea og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í tíðindalausum og hörðum leik á Stamford Bridge í kvöld og því hélt Liverpool toppsætinu í riðlinum. Rangers náðu að tryggja sér áframhaldandi þáttöku með jafntefli við Inter, en það nægði Skotunum eftir að Artmedia og Porto skyldu jöfn í leik sem hefði aldrei átt að fara fram, svo skelfilegar voru vallaraðstæður. Sport 6.12.2005 22:07
Chelsea - Liverpool í beinni á Sýn Lokaumferðin í fjórum riðlum Meistaradeildarinnar fer fram í kvöld, þar sem leikur Chelsea og Liverpool er stóra viðureign kvöldsins. Leikur Schalke og AC Milan verður í beinni á Sýn Extra, en auk þess eru á dagskrá leikir PSV-Fenerbahce, Lyon-Rosenborg, Olimpiakos-Real Madrid, Betis-Anderlecht, Rangers-Inter og Artmedia-Porto. Bein útsending hefst kl. 19:30 á Sýn. Sport 6.12.2005 19:23
Ensku liðin áfram - Shevchenko skoraði fjögur Ensku liðin Liverpool og Chelsea eru komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir leiki kvöldsins og úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan undirstrikaði enn og aftur að hann er einn besti markaskorari heimsins þegar hann afgreiddi Fenerbahce með fjórum mörkum. Sport 23.11.2005 21:41
Eiður getur slegið met Árna í kvöld Átta leikir verða á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld og leikur Liverpool og Betis verður sýndur klukkan 19:30 á Sýn. Viðureign Anderlecht og Chelsea verður í beinni á Sýn Extra á sama tíma, en þar getur Eiður Smári Guðjohnsen slegið met Árna Gauts Arasonar yfir flesta Evrópuleiki ef hann fær að spila í kvöld. Sport 23.11.2005 18:58
Markalaust á Old Trafford Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið. Manchester United náði ekki að leggja vængbrotið lið Villareal á heimavelli sínum og því eru möguleikar liðsins ekki glæsilegir í riðlinum. Bayern Munchen burstaði Rapid Vín 4-0 og Arsenal stal sigrinum gegn Thun í blálokin. Sport 22.11.2005 21:34
Stórleikir á Sýn í kvöld Tveir stórleikir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bein útsending frá leik Manchester United og Villareal hefst klukkan 19:30 á Sýn, en klukkan 19:35 fer í loftið bein útsending á Sýn Extra frá leik Barcelona og Werder Bremen. Sport 22.11.2005 18:35
Makelele verður frá í þrjár vikur Hinn öflugi miðjumaður Claude Makelele verður ekki með Chelsea í leiknum gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld og talið er að hann verði frá keppni í um þrjár vikur eftir að hafa meiðst á hné í leiknum gegn Newcastle um helgina. Sport 22.11.2005 18:26
Riquelme verður ekki með Villareal Leikstjórnandinn snjalli Juan Roman Riquelme verður ekki með liði sínu Villareal í leiknum gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í kvöld, vegna meiðsla á læri. Þetta eru góð tíðindi fyrir enska liðið, því Riquelme hefur farið á kostum með spænska liðinu í vetur, sem og landsliði Argentínu. Sport 22.11.2005 15:53
Wenger heimtar sigur Arsene Wenger vill ná í öll þrjú stigin á útivelli gegn FC Thun í Meistaradeildinni annað kvöld, þrátt fyrir að Arsenal hafi þegar tryggt sér áframhaldandi þáttöku í keppninni með góðri frammistöðu í undangengnum leikjum. Sport 21.11.2005 18:36
Verðum að sigra Villareal Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að leikurinn við Villareal í Meistaradeildinni annað kvöld verði að vinnast og treystir á að heimavöllurinn nægi til að koma sínum mönnum áfram. Sport 21.11.2005 16:26
Arsene Wenger hrósaði Robin van Persie Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með sigurinn á Sparta Prag í Meistaradeildinni í gær og hrósaði framherja sínum Robin van Persie sérstaklega fyrir frammistöðu sína, eftir að hann kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk. Sport 3.11.2005 04:07
Okkar bíður erfitt verkefni Alex Ferguson segir að liði Manchester United bíði mjög erfitt verkefni í Meistaradeildinni eftir tapið gegn Lille í kvöld og segir að liðið verði einfaldlega að vinna tvo síðustu leiki sína í riðlinum ef það eigi að hafa möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin. Sport 3.11.2005 03:52
Manchester United tapaði fyrir Lille Leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið. Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap gegn Lille í Frakklandi, en betur gekk hjá Arsenal sem sigraði Sparta Prag 3-0. Thierry Henry skoraði eitt mark fyrir Arsenal og Robin van Persie skoraði tvö og Arsenal er öruggt áfram í keppninni. Barcelona burstaði Pananthinaikos 5-0 á Spáni. Sport 2.11.2005 21:42
United er undir í hálfleik Hrakfarir Manchester United virðast ætla að halda áfram, því liðið er undir 1-0 í hálfleik gegn franska liðinu Lille í Meistaradeildinni. Barcelona er að taka Pananthinaikos í kennslustund og hefur yfir 4-0. Sport 2.11.2005 20:40
Lille - Manchester United á Sýn Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu nú á eftir og sjónvarpsleikurinn verður viðureign franska liðsins Lille og Manchester United. Stórleikur Juventus og Bayern Munchen verður sýndur í beinni á Sýn Extra og hefst útsending á báðum stöðvum um klukkan 19:30. Sport 2.11.2005 18:27