Sport

Ronaldo á yfir höfði sér bann

Cristiano Ronaldo fær líklega keppnisbann í Meistaradeildinni
Cristiano Ronaldo fær líklega keppnisbann í Meistaradeildinni NordicPhotos/GettyImages

Gary Neville er ekki eini leikmaður Manchester United sem hefur verið tekinn fyrir vegna ósæmilegrar framkomu á leikvellinum í dag, því nú hefur evrópska knattspyrnusambandið kært Cristiano Ronaldo fyrir að storka áhorfendum Benfica í leik í Portúgal í Meistaradeildinni þegar United féll úr keppni.

Ronaldo var látinn heyra það af áhorfendum í hvert sinn sem hann snerti boltann í leiknum og gat ekki stillt sig um að senda þeim dónalegt látbragð á móti í leiknum. "Það er ekkert sem afsakar framkomu þeirra í minn garð," sagði Ronaldo, sem líklega verður dæmdur í bann í keppninni sem tekur þó ekki gildi fyrr en á næstu leiktíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×