Meistaradeildin
257 258 259 260 261 262 263 264 265 … 274 ›
Viss um að Vieira fær góðar móttökur David Dein, aðstoðarstjórnarformaður Arsenal var hæstánægður með dráttinn í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í hádeginu, þar sem hans menn lentu á móti Juventus. Það er því ljóst að miðjumaðurinn Patrick Vieira mun spila einn leik enn á Highbury eftir allt saman. Sport 10.3.2006 12:53
Arsenal mætir Juventus Nú er ljóst hvaða lið mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu, en dregið var í París í Frakklandi nú rétt í þessu. Arsenal mætir ítölsku meisturunum Juventus, Englendingabanarnir Benfica mæta Barcelona, Lyon mætir AC Milan og Inter eða Ajax mætir spænska liðinu Villareal. Sport 10.3.2006 12:10
Liðið er að smella saman Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var hæst ánægður með sína menn eftir að þeir slógu Real Madrid út úr Meistaradeildinni í gær eftir markalaust jafntefli á Highbury. Wenger segist sjá mikil batamerki á liðinu á síðustu tveimur mánuðum. Sport 9.3.2006 04:54
Misnotuð færi kostuðu okkur dýrt Rafa Benitez var skiljanlega svekktur með að detta út úr meistaradeildinni í gær eftir að hans menn töpuðu 2-0 á heimavelli fyrir portúgalska liðinu Benfica. Leikmenn Liverpool fengu fjölda tækifæra til að skora í leiknum en inn vildi boltinn ekki og Evrópumeistararnir því úr leik. Sport 9.3.2006 05:08
Evrópumeistararnir úr leik Evrópumeistarar Liverpool eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-0 tap á heimavelli sínum fyrir Benfica og samanlagt 3-0. Arsenal er komið áfram í keppninni eftir jafntefli við Real Madrid, AC Milan og Lyon eru sömuleiðis komin áfram í 8-liða úrslitin eftir stórsigra í sínum leikjum. Sport 8.3.2006 21:42
Liverpool er undir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Evrópumeistarar Liverpool eiga á brattann að sækja á heimavelli sínum Anfield, þar sem liðið er undir 1-0 í hálfleik og þarf því að skora þrjú mörk í þeim síðari til að komast áfram í keppninni. Sport 8.3.2006 20:36
Hyypia á bekknum hjá Liverpool Finnski varnarjaxlinn Sami Hyypia er á varamannabekk Liverpool þegar liðið tekur á móti Benfica í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni. Leikurinn fer fram á Anfield og þarf Liverpool að skora minnst tvö mörk til að komast áfram. Peter Crouch og Fernando Morientes eru í fremstu víglínu hjá Liverpool. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 8.3.2006 19:31
Robinho aðvarar Arsenal Brasilíski snillingurinn Robinho hjá Real Madrid hefur gefið út aðvörun á hendur leikmönnum Arsenal og skorar á þá að vanmeta ekki styrk spænska liðsins, sem sýndi sig glögglega um daginn þegar liðið var næstum búið að vinna upp fimm marka forskot Real Zaragoza í spænska bikarnum eftir að allir höfðu afskrifað liðið. Sport 8.3.2006 17:28
Við þurfum ekki Ronaldinho John Terry og Frank Lampard hjá Chelsea segja að Chelsea þurfi ekki leikmenn eins og Ronaldinho til að vinna Meistaradeildina og benda á að Chelsea hafi í sínum röðum leikmenn sem geta breytt gangi leiksins upp á eigin spýtur með einstaklingsframtaki. Sport 8.3.2006 17:51
Ronaldinho er ekki til sölu Roman Abramovich eigandi Chelsea virðist vekja ótta hvar sem hann kemur, því á blaðamannafundi eftir leik Barcelona og Chelsea þótti Frank Rijkaard ástæða til að taka það fram að peningar gætu ekki keypt snillinginn Ronaldinho frá Barcelona. Sport 8.3.2006 16:00
Missir af 8-liða úrslitunum Unglingurinn Lionel Messi hjá Barcelona getur ekki leikið með liði sínu í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hann reif vöðva í fæti í leiknum gegn Chelsea í gær og talið er að hann verði frá í að minnsta kosti mánuð. Þá verður Carles Puyol í leikbanni í fyrri leiknum í næstu umferð eftir að hann fékk gult spjald fyrir óþarft brot á Eið Smára Guðjohnsen í leiknum í gær. Sport 8.3.2006 15:49
Við vanmetum ekki Real Madrid Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur varað við of mikilli bjartsýni fyrir leikinn gegn Real Madrid á Highbury í Meistaradeildinni í kvöld og segir að þó sínir menn séu vissulega í góðri stöðu, sé Real Madrid hættulegt lið sem ekki megi vanmeta. Sport 8.3.2006 15:41
Getum skorað tvö mörk Rafa Benitez hefur ekki áhyggjur af að hans menn nái ekki að skora þau tvö mörk sem liðið þarf á að halda í leiknum gegn Benfica á Anfield í kvöld, þegar liðin spila síðari leik sinn í Meistaradeildinni. Benfica vann fyrri leikinn 1-0. Sport 8.3.2006 15:31
Nýr verðlaunagripur afhentur í vor Á föstudaginn verður kynntur nýr verðlaunagripur sem afhentur verður sigurvegaranum í Meistaradeild Evrópu eftir úrslitaleik keppninnar í vor. Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool mun þá afhenda borgarstjóranum í París gripinn, sem hann mun hafa undir höndum fram að úrslitaleik keppninnar. Sport 8.3.2006 05:21
Aldrei verið eins stoltur af mínum mönnum Alex McLeish var stoltur af sínum mönnum í gær þrátt fyrir að þeir hefðu fallið úr leik gegn sterku liði Villareal í Meistaradeildinni á mörkum skoruðum á útivelli. Leikurinn í gær endaði með jafntefli 1-1 á Spáni, en um tíma leit út fyrir að skoska liðið ætlaði að fara með sigur af hólmi. Sport 8.3.2006 03:09
Þakkaði Cannavaro fyrir markið Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Juventus eignaði félaga sínum Fabio Cannavaro allan heiðurinn að sigurmarkinu sem hann skoraði í leiknum gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í gærkvöld, því eins og sást í endursýningum frá aðdraganda marksins, sneri Emerson baki í markvörðin Tim Wiese þegar hann missti boltann frá sér á klaufalegan hátt. Sport 8.3.2006 02:48
Spyr mig af hverju ég gerðist markvörður Tim Wiese, markvörður Werder Bremen hefur eflaust ekki sofið vel í nótt, því skelfileg mistök hans undir lok leiksins gegn Juventus í gærkvöldi urðu þess valdandi að Bremen missti af sæti í 8-liða úrslitunum í Meistaradeildinni. Wiese átti vart til orð til að lýsa líðan sinni eftir leikinn í gær. Sport 8.3.2006 02:30
Barcelona á skilið að vera komið áfram Jose Mourinho gat lítið sagt eftir að hans menn féllu úr keppni í Meistaradeildinni á Nou Camp í gærkvöldi og viðurkenndi að úr því að Barcelona væri komið í næstu umferð keppninnar, ættu liðið það líklega skilið. Frank Rijkaard sagðist ekki hafa verið í hefndarhug, eftir tapið fyrir Chelsea í fyrra. Sport 8.3.2006 01:06
Stuðningsmenn Rangers með ólæti Stuðningsmenn Glasgow Rangers sem ekki fengu miða á leikinn gegn Villareal í kvöld brugðust ókvæða við og réðust að rútu sem flutti leikmenn spænska liðsins á völlinn. Talið er að um 50 manns hafi verið á bak við verknaðinn, en þeir köstuðu bjórflöskum og öðru lauslegu í rútuna. Atvikið er í rannsókn hjá lögreglu, en þetta átti sér stað fyrir leik liðanna í kvöld. Sport 7.3.2006 21:58
Chelsea úr leik Barcelona er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Chelsea á heimavelli sínum. Snillingurinn Ronaldinho skoraði mark Barcelona, en Frank Lampard jafnaði metin fyrir Chelsea úr vafasamri vítaspyrnu í uppbótartíma. Barcelona fer því áfram samanlagt 3-2. Sport 7.3.2006 21:34
Markalaust hjá Barcelona og Chelsea í hálfleik Staðan í leik Barcelona og Chelsea í meistaradeildinni er jöfn 0-0 í hálfleik. Heimamenn hafa verið heldur sprækari í hálfleiknum, en urðu fyrir því óláni að missa undrabarnið Lionel Messi meiddan af velli. Inná í hans stað kom hinn sænski Henrik Larsson. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 7.3.2006 20:36
Eiður Smári byrjar á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea í leiknum gegn Barcelona í kvöld sem hefst nú innan skamms á Nou Camp í Barcelona og er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 7.3.2006 19:24
Barcelona er besta lið í heimi Brasilíumaðurinn Rivaldo sem var lykilmaður í liði Barcelona þegar það varð Spánarmeistari árið 1999, segir að Barcelona sé besta félagslið heimsins í dag og spáir að Barca slái Chelsea út úr Meistaradeildinni í kvöld. Sport 7.3.2006 18:47
Við erum meira en hálfnaðir Arsene Wenger segir sína menn í Arsenal vera rúmlega hálfnaða með verkefni sitt gegn Real Madrid í Meistaradeildinni eftir að Arsenal vann fyrri leik liðanna í Madrid á dögunum og lítur því á það sem formsatriði að ná hagstæðum úrslitum á Highbury annað kvöld. Sport 7.3.2006 17:10
Vill gera hið ómögulega Alex McLeish og lærisveinar hans í skoska liðinu Glasgow Rangers eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar liðið mætir spænska liðinu Villareal á útivelli í síðari leiknum í Meistaradeildinni. Fyrri leiknum í Skotlandi lauk með 2-2 jafntefli og McLeish leitast við að koma enn einu sinni á óvart og stela sigrinum. Sport 7.3.2006 16:03
Hugsar um Arsenal, ekki Ronaldo Fernando Martin, nýráðinn forseti Real Madrid, segir að honum sé efst í huga að vinna sigur á Arsenal í Meistaradeildinni annað kvöld en ekki að velta sér upp úr því hvort Brasilíumaðurinn Ronaldo verði í liðinu eða ekki. Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð framherjans hjá liðinu og hafa þær á tíðum varpað skugga á leikinn mikilvæga annað kvöld. Sport 7.3.2006 15:52
Mourinho ætlar að tvídekka Messi Jose Mourinho hefur gefið það út að hann ætli að láta leikmenn sína tvídekka ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona í leik liðanna á Nou Camp í kvöld. Messi fór á kostum í fyrri leik liðanna á Stamford Bridge, en Mourinho ætlar ekki að láta það koma fyrir aftur. Sport 7.3.2006 15:40
Rijkaard stillir til friðar Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, vill að stuðningsmenn Barcelona sýni Jose Mourinho og lærisveinum hans í Chelsea virðingu og taki vel á móti þeim þegar liðin mætast á Nou Camp í meistaradeildinni annað kvöld, en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 6.3.2006 20:45
Lampard verður með gegn Barcelona Miðjumaðurinn Frank Lampard verður í byrjunarliði Chelsea gegn Barcelona í síðari leik liðanna í meistaradeild Evrópu annað kvöld eftir að hann komst vel frá æfingu með liði sínu í kvöld. Lampard hefur átt við meiðsli að stríða, en hefur nú náð sér nógu vel til að spila leikinn mikilvæga annað kvöld. Sport 6.3.2006 20:10
Hyypia verður klár gegn Benfica Finnski varnarmaðurinn Sami Hyypia hjá Liverpool verður væntanlega tilbúinn í slaginn í síðari leiknum gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið, en óttast var að hann mundi missa af leiknum vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Charlton um helgina. Sport 6.3.2006 17:03