Ástin á götunni
319 320 321 322 323 324 325 326 327 … 334 ›
Coco í viðræðum við Newcastle Francesco Coco, fyrrverandi leikmaður AC Milan og Barcelona, á nú í viðræðum við Newcastle United. Sport 13.10.2005 19:37
Valsmenn leiða í hálfleik Valur leiðir 1-0 gegn Fylki þegar flautað hefur verið til hálfleiks í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Garðar Gunnlaugsson skoraði markið á 3. mínútu en leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40. Valsmenn hafa verið ögn sterkari í fyrri hálfleik og verið skynsamari. Sport 13.10.2005 19:37
Phil Neville til Everton Phil Neville er genginn til lið við Everton frá Manchester United fyrir 3 milljónir punda. Phil Neville hefur leikið með United allan sinn ferilen. Phil, sem er 28 ára, hefur leikið 52 landsleiki fyrir Englands hönd og lék 392 leiki fyrir Manchester United Sport 13.10.2005 19:37
Garðar búinn að skora fyrir Val Garðar Gunnlaugsson hefur komið Val 1-0 yfir gegn Fylki strax á 3. mínútu í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarnum. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hófst kl. 19:40. Mark Garðars kom eftir sendingu frá Bjarna Ólafi Eiríkssyni af vinstri kanti. Þetta er sjöunda mark Garðars fyrir Val í 4 leikjum í bikarkeppninni. Sport 13.10.2005 19:37
Garðar skorar aftur fyrir Val Garðar Gunnlaugsson hefur skorað aftur fyrir Val sem er við það að tryggja sig í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla og er nú 2-0 yfir gegn Fylkir á Laugardalsvelli. Markið kom á 82. mínútu og hefur Garðar gert bæði mörk Vals. Daninn Christian Christiansen sem kom inn sem varamaður gerði stutt stopp á vellinum og hefur fengið rautt spjald. Sport 13.10.2005 19:37
Stoke fær Luke Chadwick Enska knattspyrnuliðið Stoke City hefur fengið lánaðan kantmanninn Luke Chadwick frá úrvalsedildarliði West Ham. Chadwick sem er fyrrverandi leikmaður Man Utd hefur gert 6 mánaða lánssamning við Íslendingafélagið til að byrja með en hann er samningsbundinn West Ham til ársins 2007. Sport 13.10.2005 19:37
Solskjær með ManUtd í fyrsta leik? Stuðningsmönnum Manchester United hlýnar nú um hjartarætur því einn vinsælasti leikmaður félagsins, Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær, er við það að snúa aftur eftir meðsli sem hafa haldið honum utan vallar í tæp tvö ár. Ekki var búist við því Solskjær myndi byrja að leika aftur með aðalliðinu fyrr en í október. Sport 13.10.2005 19:37
Rangers á eftir Bostjan Cesar Forsvarsmenn Glasgow Rangers reyna nú að næla í Bostjan Cesar, varnarmann Dinamo Zagreb og slóvenska landsliðsins. Cesar segir forráðamenn skosku meistarana hafa rætt við sig eftir landsleikleik fyrir skömmu. Sport 13.10.2005 19:37
Tryggði Víkingum sigur á 90. mín. Einn leikur fór fram í 1 deild karla í kvöld en þá hófst 13. umferð. Víkingur úr Reykjavík vann nauman sigur á KS, 2-1. Einar Oddsson tryggði heimamönnum sigur þegar 90 mínútur sléttar voru komnar á klukkuna. Víkingar er þar með komnir í 28 stig í 2. sæti deildarinnar, sjö stigum á undan KA sem er í 3. sæti og á leik til góða. Sport 13.10.2005 19:37
Meiðsli hjá Fylki en engin hjá Val Valsmenn eiga ekki í neinum meiðslavandræðum fyrir undanúrslitaleikinn gegn Fylki í VISA bikarkeppninni í kvöld. Willum Þór Þórsson þjálfari Vals segir tíma kominn til að hið fornfræga bikarfélag Valur láti á sér bera í keppninni. Þorlákur Árnason þjálfari Fylkis segir alla þá menn sem hafa verið að spila í undanförnum leikjum séu leikfærir. Sport 13.10.2005 19:37
Wenger: Á ég að fara í spilavítið? Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að Chelsea sé að borga tvöfalt markaðsverð á þeim leikmönnum sem þeir kaupa. Wenger hefur verið undir pressu undanfarna daga frá stuðningsmönnum sem vilja að hann kaupi nýja leikmenn á meðan ríku félögin Real Madrid og Chelsea eru að hrifsa hvern leikmanninn á fætur öðrum sem Wenger ætlaði að kaupa. Sport 13.10.2005 19:37
Kólombíumenn voru líka sviknir Það var ekki aðeins íslenska knattspyrnusambandsið sem var svikið í landsleikjamálum nýlega. Í ljós hefur komið að ástæðan fyrir því að Kólombíumenn geta komið og leikið á Íslandi með svo skömmum fyrirvara er sú að þeir urðu fyrir sömu reynslu með Ástrala. Sport 13.10.2005 19:37
"Borgvardt var munurinn" Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram var í skýjunum með baráttu sinna manna í sigurleiknum gegn FH í gærkvöldi en þá tryggði Fram sér farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarsins. Fram var síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik þó þeir væru tveimur mörkum undir í hálfleik. "<em>Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var bara Allan Borgvardt</em>." sagði Ólafur. Sport 13.10.2005 19:37
Valur í úrslitaleikinn gegn Fram Valsmenn unnu Fylki, 2-0 og tryggðu sig í úrslitaleikinn gegn Fram í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. Garðar Gunnlaugsson skoraði bæði mörk Valsmanna í leiknum á Laugardalsvelli, það fyrra strax á 3. mínútu en seinna markið á 80. mínútu. Garðar hefur þar með skorað 8 mörk í fjórum leikjum fyrir Val í bikarkeppninni. Sport 13.10.2005 19:37
Enn tapar Ísland U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag öðrum leik sínum í röð, nú fyrir Írum, 2-0, á Keflavíkurvelli, í A-riðli á Norðurlandamótinu sem hófst í gær. Ísland hefur þar með tapað báðum fyrstu leikjunum sínum eftir að hafa steinlegið fyrir Dönum á KR-vellinum í gær, 4-0. Sport 13.10.2005 19:37
Kieran Richardson áfram hjá United Táningurinn Kieran Richardson sem sló í gegn með W.B.A. á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnunni vill ekki fara aftur félagsins en hann var þar af láni á síðustu leiktíð frá Manchester United. Þess í stað ætlar hann að reyna að berjast fyrir sæti sínu hjá United. Sport 13.10.2005 19:37
Zidane aftur í franska landsliðið Franska goðsögnin Zinedine Zidane hjá Real Madrid kom fótboltaheiminum í opna skjöldu í dag þegar hann tilkynnti endurkomu sína í franska landsliðið, um ári eftir að hann tilkynnti að hann væri endanlega hættur að leika með liðinu. Claude Makelele, miðjumaður Chelsea hefur einnig boðið þjónustu sína í landsliðið en hann hafði einnig sagt skilið við landsliðið. Sport 13.10.2005 19:37
Tottenham í skýjunum með Davids Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs hafa landað einum mesta hvalreka seinni ára í sögu félagsins en hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Edgar Davids hefur gengið í raðir liðsins. Tottenham fær Davids á frjálsri sölu frá Inter Milan þar sem hann var farinn að gróa fastur við varamannabekkinn. Sport 13.10.2005 19:37
Nokkrir tæpir fyrir Fram-FH Í kvöld mætast Fram og FH í fyrri undanúrslitaleik VISA bikarsins í knattspyrnu. Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram segir óljóst með nokkra leikmenn í Fram-liðinu vegna meiðsla. Leifur Garðarsson aðstoðarþjálfari FH notaði tækifærið á fréttamannafundi og skaut aðeins léttilega á KSÍ fyrir að hafa undanúrslitaleikina í bikarnum á Laugardalsvelli. Sport 13.10.2005 19:37
FH komið yfir gegn Fram Allan Borgvardt hefur komið FH yfir gegn Fram, 1-0, í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu. Daninn fékk sendingu inn fyrir vörn Fram og komst einn á móti Gunnari Sigurðssyni markverði á 28. mínútu. Leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40 og er í beinni útsendingu á <a href="http://www.visir.is/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000301&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank"><strong>BOLTAVAKTINNI</strong></a> hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Ólafur Örn fékk rautt með Brann Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn. Sport 13.10.2005 19:37
Evrópudraumur Newcastle úti Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. Sport 13.10.2005 19:37
FH 2-0 yfir í hálfleik gegn Fram Allan Borgvardt hefur skorað tvívegis fyrir FH sem leiðir 2-0 í hálfleik gegn Fram á Laugardalsvelli. Síðara mark Borgvardt var einkar glæsilegt og kom eftir sendingu Jóns Þorgríms Stefánssonar af hægri kanti á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:37
Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. Sport 13.10.2005 19:37
Sigurbjörn með gegn Fylki Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals má leika með liði sínu gegn Fylki á morgun í undanúrslitum Vísabikarsins. Sigurbjörn var í gær úrskurðaður í bann vegna fjögurra gulra spjalda en bannið tekur hins vegar ekki gildi fyrr en á föstudag. Sigurbjörn missir því af leiknum á mánudaginn við Fram á Laugardalsvelli í Landsbakadeildinni. Sport 13.10.2005 19:37
Ekkert enn skorað í framlengingu Síðari hálfeikur framlenginar var að hefjast í leik Fram og FH í undanúrslialeik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2 og var ekkert mark skorað í fyrri hálfleik framlengingarinnar. Við fylgjumst með gangi mála hér á fréttahlutanum ef eitthvað markvert gerist. Sport 13.10.2005 19:37
Butt til Birmingham Miðvallarleikmaðurinn Nicky Butt er genginn til liðs við Birmingham City að láni frá Newcastle. Fyrir hjá Birmingham hittir hann Steve Bruce, knattspyrnustjóra, sem lék með honum hjá Manchester United á tíunda áratugi síðustu aldar. Butt er einn af sigursælustu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar.... Sport 13.10.2005 19:37
Van Persie kannski með Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Robbie van Persie eigi möguleika á að spila leikinn um Samfélagsskjöldin á sunnudag. Van Persie á enn kæru yfir höfði sér vegna nauðgunarmáls en hann þurfti að dvelja í fangelsi ekki alls fyrir löngu vegna málsins. Sport 13.10.2005 19:37
Fram í úrslitaleik VISA bikarsins Fram tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir ótrúlega dramatískan sigur á FH í framlengdum leik og þrefaldan bráðabana í vítaspyrnukeppni. Lokatölur urðu 9-8 fyrir Fram. Sport 13.10.2005 19:37
Fram minnkar muninn gegn FH Fram hefur minnkað muninn gegn FH á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 2-1. Það var Daði Lárusson markvörður FH sem gerði heldur klaufalegt sjálfsmark en hann náði ekki að halda boltanum eftir harðan ágang Andra Fannars Ottóssonar. Markið kom á 81. mínútu. Framarar sækja nú stíft lokamínúturnar. Sport 13.10.2005 19:37