Mæðgin týndust á Langjökli
Tíu ár síðan móðir með ellefu ára son óttaðist um líf sitt á Langjökli Þau urðu viðskila við hóp sinn í blindbyl á Langjökli. Þau grófu sig í fönn og leituðu skjóls bak við vélsleðann í átta klukkustundir. Ferðaþjónustufyrirtækið fór í ferðina þrátt fyrir slæma veðurspá. Ellefu ára barn fékk kalsár. Innlent 14.1.2020 11:13
Forsvarsmenn Snowmobile kallaðir til skýrslutöku Forsvarsmenn Snowmobile verða kallaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni á Selfossi á næstu dögum vegna skosku mæðginana sem týndust á Langjökli fyrir viku. Óhappið er rannsakað sem hvert annað slys. Innlent 22.2.2010 12:31
Voru úrkula vonar Mæðginin Beata og Jeremy Scott voru búin að gefa upp alla von um að finnast á lífi þegar björgunarsveitarmenn römbuðu fram á þau á Langjökli. Þau áfellast ferðaþjónustufyrirtækið en geta vart orðað þakklætið í garð björgunarmanna. Innlent 16.2.2010 22:39
Skoska konan sá björgunarþyrluna sveima yfir sér Skoska konan sem týndist á Langjökli ásamt ellefu ára syni sínum hátt í átta tíma segist margsinnis hafa séð þyrlu Landhelgisgæslunnar sveima yfir þeim mæðginum en sökum blindbyls sást ekki til þeirra. Innlent 16.2.2010 19:02
Dvelur enn á Landsspítalanum Skoska konan, sem bjargað var kaldri og hrakinni af Langjökli í fyrrinótt, dvelur enn á Landsspítalanum, en hún hlaut minniháttar kal á höndum. Samkvæmt heimildum fréttastofu dvelur hún þar til öryggis, á meðan hún er að jafna sig á miklu andlegu losti, sem hún varð fyrir. Innlent 16.2.2010 11:52
Fræðsla betri vörn gegn slysum en reglur Aukin fræðsla og opin umræða getur fækkað slysum á hálendinu en reglur hafa lítið að segja, er mat Kristins Ólafssonar framkvæmdastjóra slysavarnafélagsins Landsbjargar. Kristinn segir nauðsynlegt að þeir sem bjóði upp á skipulagðar ferðir upp á jökla og björgunarsveitir þurfi nú að rýna í slysið uppi á Langjökli í sameiningu og reyna að læra af því. Innlent 15.2.2010 21:51
Héldu kyrru fyrir og lifðu af Björgun skoskra mæðgina í vonskuveðri á Langjökli í fyrrinótt var kraftaverki líkust, segir björgunarsveitarmaður sem fann þau. Rétt viðbrögð urðu þeim til lífs. Fararstjóri segir óveður hafa komið fyrr en spáð var. Innlent 15.2.2010 21:51
Mæðgin fundin á Langjökli Björgunarsveitarmenn fundu skoska ferðakonu og 12 ára son hennar, sem saknað hafði verið á Langjökli frá því klukkan hálf sex í gærkvöldi, að þau urðu viðskila við samferðafólk sitt, en hópurinn var á vélsleðum. Innlent 15.2.2010 06:51
Slæmar aðstæður til leitar Hátt í þriðja hundruð manns leituðu að konu og unglingi á Langjökli í gær. Innlent 14.2.2010 22:45
Tæplega 300 manns taka þátt í leitinni Leit stendur enn yfir að konu og unglingi á Langjökli en fólkið varð viðskila við ferðafélaga sína í vélsleðaferð. Að sögn Ólafar Snæhólm, upplýsingafulltrúa Landsbjargar eru um 270 björgunarsveitarmenn við leitina en veður er slæmt og skyggni lítið á leitarsvæðinu. Síðast sást til fólksins við Skálpanes. Innlent 14.2.2010 20:55
150 manns taka þátt í leitinni á Langjökli Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar leita nú að konu og unglingi sem voru í vélsleðaferð með hópi á Langjökli og urðu viðskila við hann. Innlent 14.2.2010 19:18
Leitað að vélsleðamönnum á Langjökli Björgunarsveitir Landsbjargar hafa verið kallaðar út ásamt þyrlu frá Landhelgisgæslunni til þess að leita að tveimur vélsleðamönnum sem urðu viðskila við hóp sleðamanna á Langjökli í dag. Innlent 14.2.2010 18:27