Innlent
105 106 107 108 109 110 111 112 113 … 334 ›
Forstjóraskipti hjá Plastprenti Stjórn Plastprents hf hefur ráðið Ólaf Steinarsson sem forstjóra félagsins frá og með gærdeginum, 1. mars. Á sama tíma lét Sigurður Bragi Guðmundsson, fráfarandi forstjóri, af störfum hjá fyrirtækiinu. Viðskipti innlent 2.3.2007 10:48
Minna tap hjá Icelandic Group Icelandic Group tapaði 1.078 milljónum króna, 11,4 milljónum evra, á síðasta ári. Árið á undan tapaði félagið hins vegar rétt rúmlega 1,3 milljörðum króna. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandic Group, segir mikið hafa verið gert til að bæta reksturinn en margt hafi verið dýrara og tekið lengri tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir. Viðskipti innlent 2.3.2007 09:13
Útgáfu Fjármálatíðinda Seðlabankans hætt Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hætta útgáfu tímarits bankans, Fjármálatíðinda. Síðasta hefti þeirra verður gefið út í ár og lýkur þá meira en fimmtíu ára sögu Fjármálatíðinda. Í upphafi var markmið ritsins að birta aðgengilegar upplýsingar og greinar um innlend efnahagsmál og ritgerðir og umræður um hagfræðileg málefni. Innlent 1.3.2007 22:09
MS-félagið fékk 20 milljóna styrk MS-félagið tók í dag við 20 milljóna króna styrk úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur, en styrkinn á að nýta í viðbyggingu við MS-heimilið að Sléttuvegi 5 í Reykjavík. Innlent 1.3.2007 20:08
Laun stjórnarmanna hækkuð Stóru bankarnir og fjármálafyrirtækin samþykktu eitt af öðru á nýafstöðnum aðalfundum sínum, að tvö- til þrefalda þóknun stjórnarformanna og stjórnarmanna sinna. Algeng mánaðarlaun fyrir að sitja einn fund í mánuði geta numið 350 þúsund krónum. Innlent 1.3.2007 20:02
Danir styrkja dönskukennslu á Íslandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Bertel Haarder, menntamálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag, 1. mars 2007, samning milli landanna um sérstakan stuðning við dönskukennslu á Íslandi. Samningurinn nær til fimm ára, frá 1. ágúst 2007 - 31. júlí 2011. Fjárveitingar Dana til þessa fimm ára verkefnis nema um 30 milljónum íslenskra króna árlega en fjárframlag Íslendinga 6 milljónum. Innlent 1.3.2007 18:04
Vinsælasti bloggarinn bloggar á Vísi Nýtt bloggsvæði leit dagsins ljós á Vísi í dag. Meðal þeirra sem blogga þar er Steingrímur Sævarr Ólafsson, vinsælasti bloggari landsins, sem hingað til hefur bloggað á mbl.is. Rúmlega 26 þúsund manns lesa bloggsíðu hans í viku hverri. Innlent 1.3.2007 18:03
Kaupþing hækkar verðmat á Bakkavör Greiningardeild Kaupþings hefur uppfært verðmat sitt á Bakkvör í kjölfar birtingar á ársuppgjöri fyrirtækisins og mælir með því að fjárfestar kaupi bréf í félaginu. Kaupþing segir sjóðstreymi Bakkaverar í fyrra hafa verið mjög sterkt og hafi það verið notað til að vinna á langtímaskuldum. Við það hafi lánastofnanir lækkað lánaálag félagsins. Viðskipti innlent 1.3.2007 16:36
Hækkar og lækkar Verð á hlutabréfum í Evrópu hefur hækkað nokkuð þrátt fyrir verðlækkanir á mörkuðum í Asíu í morgun, þriðja daginn í röð. Verð á hlutabréfum lækkuðu í Asíu og Evrópu í gær og fyrradag og mátti merkja áhrif lækkananna hér á Íslandi. Í morgun hækkaði þó úrvalsvísitalan íslenska um tæp 2% og hækkanir hafa einnig orðið víðar í Evrópu, þar á meðal í Frankfurt, Lundúnum og París. Innlent 1.3.2007 12:09
Gengi Mosaic Fashions hækkar eftir verðmat Mosaic Fashions, móðurfélag nokkurra tískuverslanakeðja, hefur hækkað um tæp sex prósent í Kauphöll Íslands í dag. Helsta ástæðan er nýtt verðmat Landsbankans, sem birt var fyrr í dag. Viðskipti innlent 1.3.2007 12:28
Það er verra veður um helgar Það vita allir að það rignir meira um helgar en á virkum dögum. Þetta hefur nú verið vísindalega staðfest. Slæmu fréttirnar er að þetta er okkur sjálfum að kenna. Tveir þýskir viðurfræðingar, við háskólann í Karlsruhe hafa skoðað veðurfar á tólf stöðum í Þýskalandi á árunum 1991 til 2005 og hafa komist að því að daglegt líf mannskepnunnar hefur ekki bara langtíma áhrif á veðrið, heldur einnig skammtíma áhrif. Innlent 1.3.2007 11:10
Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga næstum fjórfaldast Sparisjóður Vestfirðinga skilaði 800,6 milljóna króna hagnaði í fyrra samanborið við 212,6 milljóna króna hagnað árið áður. Það jafngildir því að hagnaðurinn hafi tæplega fjórfaldast á árinu. Viðskipti innlent 1.3.2007 10:14
Fallegur veturhiminn yfir Reykjavík í kvöld Falleg ský sáust yfir höfuðborginni nú í kvöld. Þau voru marglit og alla vega í laginu og glöddu margan manninn. Vísir hafði samband við Sigurð Þ. Ragnarsson, veðurfræðing á Stöð tvö og bað hann að útskýra þessa fágætu sjón. Innlent 28.2.2007 21:06
Rykbinding skilar árangri Rykbinding gatna í Reykjavík, með því að úða þær, hefur skilað árangri. Þrátt fyrir kalt og þurrt veður í gær og í dag hefur svifryk ekki farið yfir heilsuverndarmörk. Innlent 28.2.2007 19:48
Vill banna alla símanotkun í akstri Doktor í sálfræði vill að ökumönnum verði bannað að tala í síma á akstri hvort sem þeir nota handfrjálsan búnað eða ekki. Síminn veldur miklu áreiti og getur skapað stórhættu í umferðinni. Innlent 28.2.2007 19:43
Ekki tilefni til lögsóknar Varaformaður Stéttarsambands lögreglumanna segir að ástæða þess að fá mál gegn lögreglu fari fyrir dómstóla sé einfaldlega sú að ekki sé tilefni til lögsóknar. Innlent 28.2.2007 19:39
Vantar starfsfólk á Hrafnistu Dýrmæt dvalar- og hjúkrunarrými eru ónotuð á meðan hundruð manna bíða eftir vistun, jafnvel bráðveikt fólk heima við sem getur eingöngu treyst á aðhlynningu ættingja. Ástæðan er að ekki tekst að manna umönnunarstöður og er lélegum launum kennt um. Ástandið hefur ekki verið verra í þrjátíu ár, segir forstöðumaður Hrafnistu. Innlent 28.2.2007 19:37
Martin Ingi hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum klukkan fimm í dag. Sigur úr býtum bar Martin Ingi Sigurðsson fyrir verkefni sitt um áhrif aldurs á utangenamerki mannsins. Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru fyrst veitt árið 1996. Markmið þeirra er að verðlauna námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Innlent 28.2.2007 17:46
Eldur kviknaði útfrá eldavél Húsmóðir í einbýlishúsi á Brekkunni á Akureyri, sýndi snarræði þegar hún vaknaði við reykskynjara í nótt, greip til slökkvitækis og náði að slökkva eld, sem kviknað hafði út frá eldavél. Hvorki hana né tvö börn hennar sakaði af reyk, en konan kallaði slökkvilið á vettvang til að reykræsta húsið. Innlent 28.2.2007 07:15
Eldur í sendibíl Eldur blossaði upp í litlum sendibíl, sem stóð við íbúðarhús í Kópavogi í nótt. Heimilisfólk vaknaði og kallaði á slökkvilið, sem náði að koma í veg fyrir að eldurinn læsti sig í húsið, en útveggur var byrjaður að sviðna. Innlent 28.2.2007 07:13
Fundað um varnarmál Íslenskir og danskir embættismenn funduðu öðru sinni í gær um samstarf þjóðanna um öryggismál, en fyrsti fundurinn var haldinn rétt fyrir jól. Líkt og á fundi með norskum embættismönnum nýverið, var ákveðið að leggjast nú yfir nánari útfærslur og að embættismenn verði í rafrænu sambandi þar til ástæða þykir til að boða til fundar á ný. Innlent 28.2.2007 07:09
Landsmenn bjartsýnni en nokkru sinni fyrr Landsmenn eru bjartsýnni en nokkru sinni fyrr, samkvæmt væntingavísitölu, sem Gallup mælir. Hún mælist nú tæp 150 stig , eða hærri en nokkru sinni fyrr. Þessi mæling lýsir viðhorfum til efnahags og atvinnumála í næstu framtíð. Þessar mælingar hófust í mars árið 2001, þannig að vísitölustigið núna er hið hæsta síðan mælingar hófust. Innlent 28.2.2007 07:10
Meirihluti landsmanna andvígur stækkun álvers í Straumsvík Meirihluti landsmanna, eða rúm 63 prósent , er andvígur stækkun álvers í Straumsvík og tæp 36 prósent fylgjandi, samkvæmt þeim sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðsins um málið. Úrtakið var 800 manns og tóku um 70 prósent afstöðu. Innlent 28.2.2007 07:06
Tekinn á 155 kílómetra hraða Lögreglumenn af Suðurnesjum stöðvuðu ökumann á Reykjanesbrautinni eftir að hann mældist á 155 kílómetra hraða. Hann á yfir höfði sér ökuleyfissviftingu og háa sekt. Annar var svo stöðvaður eftir að hafa ekið á rúmlega 120. Báðir voru þeir á vegarkafla, sem búið er að tvöfalda í báðar áttir. Innlent 28.2.2007 07:03
Tekinn á 155 kílómetra hraða Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í kvöld. Var það á þeim kafla þar sem hún er tvöföld. Annars þeirra ók á 121 kílómetra hraða og má búast við sekt. Hann var einn á ferð. Annar var síðan tekinn á 155 kílómetra hraða og var með farþega í bílnum. Sá má búast við því að missa ökuleyfi í einhvern tíma og fá einnig sekt að sögn lögreglu Suðurnesja. Innlent 27.2.2007 21:39
Þurftu samþykki Fjármálaeftirlitsins Sú ákvörðun Sparisjóðs Svarfdæla að gefa Dalvíkurbyggð eitt stykki menningarhús er einstæð í sögu fjármálafyrirtækis. Leita þurfti samþykkis Fjármálaeftirlitsins áður en ákvörðunin var tekin. Innlent 27.2.2007 19:38
Kílómetra á eftir tímaáætlun Búið er að grafa tæpan fimmtung af Héðinsfjarðargöngum, milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Verkið er þegar þúsund metrum á eftir tímaáætlun en verktakar vona að þær tafir verði hægt að vinna upp. Innlent 27.2.2007 19:30
Íslendingar og Danir funda öðru sinni um varnarmál Íslenskir og danskir embættismenn áttu í dag öðru sinni fund um samstarf þjóðanna um öryggismál. Fundurinn var haldinn í Reykjavík og var áfram fjallað um mögulegar leiðir til að auka samstarf á sviði öryggismála og ákveðið að hefja vinnu við nánari útfærslu þess. Ennfremur var öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli heimsótt og aðstæður þar skoðaðar. Innlent 27.2.2007 19:50
Tekist á um konur Tekist var á um það á Alþingi í dag hvaða stjórnmálaflokkur hefði á að skipa flestum konum fyrir kosningarnar í vor. Þingmenn Framsóknarflokksins sögðust hafa vinninginn hvað varðar leiðtogasæti en fulltrúar stjórnarandstöðunnar bentu á að til að halda jöfnu hlutfalli kynjanna, mætti flokkurinn ekki fá fleiri en einn þingmann í hverju kjördæmi. Innlent 27.2.2007 19:26
Sveitarfélögum að blæða út Verst settu sveitarfélögunum er að blæða út vegna aðgerðarleysis ríkisstjórnarinnar, að mati þingmanna Samfylkingarinnar, og vinstri grænir segja að frelsa þurfi landsbyggðarmálin undan Framsóknarflokknum. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra sagði hins vegar á Alþingi í dag, að ríkisstjórnin hefði gripið til fjölþættra aðgerða til að bæta atvinnumál á landsbyggðinni. Innlent 27.2.2007 19:04