Innlent

Laun stjórnarmanna hækkuð

Stóru bankarnir og fjármálafyrirtækin samþykktu eitt af öðru á nýafstöðnum aðalfundum sínum, að tvö- til þrefalda þóknun stjórnarformanna og stjórnarmanna sinna. Algeng mánaðarlaun fyrir að sitja einn fund í mánuði geta numið 350 þúsund krónum.

Nú virðist ekki tiltökumál þótt stjórnarmenn eða bankaráðsmenn hafi 350 þúsund krónur á mánuði fyrir einungis stjórnarsetu, sem er ýmist tvöföldun frá því í fyrra eða þrefödun frá árinu áður.Þá eru nokkrir stjórnarformenn komnir með um og yfir milljón á mánuði. Auk þess njóta þeir yfirleitt kaupréttarákvæða , sem geta skilað þeim miklum kaupauka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×