Kvöldfréttir Stöðvar 2
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 64 ›
Mikil hætta á gosi í Grindavík og óvissa í flugrekstri Mikil hætta er nú talin á gosi innan Grindavíkur samkvæmt nýju hættumati Veðurstofunnar. Jarðeðlisfræðingur segir sprungukerfið í bænum eiga þátt í því. Innlent 23.7.2024 18:15
Jákvæðar hliðar færri ferðamanna og vendingar í bandarískum stjórnmálum Sagan mun fara mjúkum höndum um Joe Biden og ákvörðun hans um að hætta við að sækjast eftir endurkjöri, að mati stjórnmálaskýrenda. Enn er á brattan að sækja fyrir demókrata þrátt fyrir að skipt verði um forsetaefni. Innlent 22.7.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2: Biden stígur til hliðar Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst draga framboð sitt til endurkjörs til baka og styður að Kamala Harris varaforseti taki við keflinu. Fréttir 21.7.2024 18:21
Skipbrot í skólakerfinu og afhjúpun í Hafnarfirði Viðskiptaráð Íslands kennir stefnumótun Kennarasambandsins um neyðarástand í íslensku grunnskólakerfi, og vill fá samræmd próf aftur inn í skólana. Stjórnarmaður í sambandinu gefur lítið fyrir slíka gagnrýni. Við fjöllum um skólamálin í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30. Innlent 20.7.2024 18:01
Vandræði á heimsvísu og berskjaldaðir íbúar hjólhýsabyggðar Kerfisbilun olli vandræðum um allan heim í dag. Flugsamgöngur og greiðslukerfi lágu niðri en íslensk fyrirtæki virðast hafa sloppið vel. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við sérfræðing í netöryggismálum í beinni. Innlent 19.7.2024 18:11
Hitnar undir Biden, sóðaskapur í skógum og skátar í beinni Aukinn þrýstingur er á Joe Biden um að draga forsetaframboð sitt til baka. Háttsettir demókratar segja útilokað að hann sigri Trump sem er á siglingu í könnunum. Innlent 18.7.2024 18:25
Viðgerðir á meðan búist er við gosi og skötuveisla um hásumar Hefja á viðgerðir á götum í Grindavík á næstu dögum þrátt fyrir að búist sé við gosi á allra næstu vikum og þá jafnvel innan bæjarins. Við förum til Grindavíkur í kvöldfréttum Stöðvar 2, kynnum okkur fyrirhugaðar framkvæmdir og ræðum við jarðfræðing. Innlent 17.7.2024 18:19
Slæm hegðun fanga, veiran skæða og sundballett Forstöðumaður Litla Hrauns og Hólmsheiðarfangelsis segir slæma hegðun fanga færast í aukana. Fangelsin séu vel í stakk búin til að takast á við vandann eins og sakir standa en haldi sama þróun áfram geti skapast vandamál. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 16.7.2024 18:10
Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána Mohamad Kourani var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, og fjölda annarra brota. Um er að ræða hans fjórða fangelsisdóm frá því hann kom hingað til lands árið 2017. Innlent 15.7.2024 18:11
Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil Bandaríska leyniþjónustan sætir gagnrýni eftir morðtilræði gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. Alríkislögreglan gerir ráð fyrir að rannsókn málsins muni taka langan tíma. Innlent 14.7.2024 18:17
Dæmi um meintan hagsmunaárekstur við mat á sakhæfi Dæmi eru um að sömu geðlæknar leggi mat á sakhæfi einstaklinga fyrir dómstólum og sem sinna myndu þeim á réttargeðdeild. Þetta skapar óeðlilegan hagsmunaárekstur að mati formanns Afstöðu. Alvarlegt ástand ríki í geðheilbrigðismálum fanga. Innlent 13.7.2024 18:01
Pínleg mistök Biden og móðurlausir þrastarungar í fóstri Þeim þingmönnum Demókrataflokksins fjölgar sem kalla eftir því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, stígi til hliðar í forsetakosningum. Hann segist ekki ætla fet þrátt fyrir pínleg mistök á blaðamannafundi í gær og slæma frammistöðu í kappræðum. Innlent 12.7.2024 18:01
Biden hrósar Íslendingum og litlaus bílafloti Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Við fjöllum um fundinn í fréttatímanum. Innlent 11.7.2024 18:27
Alvarlegt bílslys á Holtavörðuheiði Framkvæmdastjóri NATO segir Rússa hafa hert á skemmdarverkum og árásum á innviði aðildarríkja bandalagsins. Atlantshafsbandalagið bregðist við með því að auka varnir sínar og styrkja hernaðarmátt Úkraínu. Innlent 10.7.2024 18:24
Allra augu á Biden og bein útsending úr loftbelg Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri. Innlent 9.7.2024 18:19
Alvarleg vanskil aukast og hryllingur í Úkraínu Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan í efnahagslífinu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 8.7.2024 18:01
Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Bandalag vinstri flokka leiðir samkvæmt útgönguspám í Frakklandi og Þjóðfylking Marine Le Pen er þriðji stærsti flokkurinn. Metþátttaka var í síðari umferð þingkosninganna. Sérfræðingur spáir í spilin í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 7.7.2024 18:16
Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Bóndi í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu lýsir miklum raunum í áratugalangri baráttu við kerfið, en á, sem rennur um land hans er upp urin. Hrygningarfiskar í ánni eru dauðir og útlitið svart. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 6.7.2024 18:01
Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi Ofbeldi gegn heilbrigðisstarfsfólki hefur aukist og hótunum fjölgað. Starfsfólk heilsugæslu, þar sem ráðist var á lækni í vikunni, upplifir aukið óöryggi í vinnunni. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við framkvæmdastjóra lækninga hjá heilsugæslunni og formann Félags heimilislækna. Innlent 5.7.2024 18:20
Akranesbær í sárum eftir gjaldþrot eins stærsta vinnustaðarins Stálsmiður hjá Skaganum 3X á Akranesi segir þrot fyrirtækisins hafa legið í loftinu en nú sé óljóst hvað taki við. Yfir hundrað manns urðu atvinnulausir á einu bretti í bænum í dag. Bæjarstjóri segir það mikið áfall að missa svo stóran vinnustað. Við förum upp á Skaga í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 4.7.2024 18:14
Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Í kvöldfréttum Stöðvar 2 er fjallað um að íslenska ríkið verði af verulegum fjármunum á meðan lög eru ekki sett í kringum starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja hér á landi. Ekkert hefur gerst í málinu síðan starfshópur skilaði skýrslu fyrir hálfu öðru ári. Innlent 3.7.2024 18:01
Lítið fylgi Framsóknar og kynjaðar paprikur Formaður Framsóknarflokksins segir lítið fylgi flokksins mega rekja til stöðunnar í efnahagsmálum. Prófessor í stjórnmálafræði telur meira þarna að baki, sérstaklega þreytu almennings á að flokkar, sem illa nái saman, sitji saman við ríkisstjórnarborðið. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 2.7.2024 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ekki er ætlast til að fólk í hefðbundnu eftirliti vegna sjúkdóma leiti á heilsugæsluna í sumar. Þar verður lögð áhersla á bráðaerindi þar til haustar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við forstjóra heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.7.2024 18:30
Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Kjörstöðum í Frakklandi hefur verið lokað og útgönguspár gefnar út strax í kjölfarið. Við förum yfir fyrstu tölur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og fáum Torfa Tulinius, prófessor og sérfræðing í málefnum Frakklands, til að greina stöðuna í myndveri í beinni útsendingu. Innlent 30.6.2024 18:01
Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Fjölskylda palestínsks drengs með skæðan vöðvarýrnunarsjúkdóm segir heim hans hafa hrunið þegar honum var tilkynnt endanlega nýverið að fjölskyldunni yrði vísað úr landi. Hundruð sýndu samstöðu með fjölskyldunni á Austurvelli í dag en drengurinn dvelur nú á Barnaspítalanum. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. Innlent 29.6.2024 18:12
Birta viðkvæmar upplýsingar um lögreglumenn á netinu Dæmi eru um að persónuupplýsingar um lögreglumenn séu birtar á netinu í þeim tilgangi að hvetja til eignaspjalla, ögrunar eða ofbeldis. Embætti ríkislögreglustjóra merkir aukna neikvæða þróun í þessum efnum, sem grafi undan trausti milli lögreglu og borgara. Við ræðum við lögreglu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30. Innlent 28.6.2024 18:00
Erfið staða Sjálfstæðisflokksins og Cybertruck mættur til Íslands Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega. Við förum yfir stöðuna í pólitíkinni í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 27.6.2024 18:07
Eldsvoði á Höfðatorgi, Assange laus og afmæli forsetans Eldur kviknaði við veitingastað á jarðhæð turnsins á Höfðatorgi í dag og rýma þurfti bygginguna þar sem á annað þúsund manns starfa. Farið verður yfir atburðarásina og aðstæður á vettvangi brunans í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við slökkviliðsstjóra í beinni. Innlent 26.6.2024 18:02
Coolbet farið að herja á menntaskólakrakka Átján hafa stöðu sakbornings í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem kókaíni var smyglað í pottum á skemmtiferðaskipi. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 25.6.2024 17:49
Dapurlegar aðstæður heimilislausra og sögufrægur þristur Lögregla greinir mikla aukningu á stórfelldum líkamsárásum, sem framin eru af ungmennum á aldrinum tíu til sautján ára. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing, sem segir góð samskipti við börn vera bestu forvörnina. Innlent 24.6.2024 18:00