Erlent

Fréttamynd

Kínverskar verksmiðjur sakaðar um barnaþrælkun

Verksmiðjur í Kína hafa verið sakaðar um barnaþrælkun í framleiðslu á varningi fyrir Ólympíuleikanna sem fram fara í landinu á næsta ári. Barnaþrælkun er ekki það eina sem verksmiðjurnar eru sakaðar um.

Erlent
Fréttamynd

UMP vinnur stórsigur í Frakklandi

Samkvæmt útgönguspám í Frakklandi mun flokkur Nicolas Sarkozy, forseta landsins, vinna stórsigur í þingkosningum. Fyrri umferð þeirra fór fram nú um helgina. Talið er að flokkur hans eigi eftir að hljóta að minnsta kosti 383 af 577 þingsætum, eða um sextíu og sjö prósent þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Útlit fyrir stórsigur mið- og hægrimanna í Frakklandi

Útgönguspár benda til þess að bandalag mið- og hægrimenn hafi unnið stórsigur í frönsku þingkosningunum í dag og hafi ríflegan meirihluta í neðri deild þingsins - sjötíu til áttatíu prósent þingsæta. Endanleg úrslit liggja þó ekki fyrir fyrr en eftir viku. Einnig var kosið til þings í Belgíu í dag og benda fyrstu tölur til þess að stjórn frjálslyndra og sósíalista sé fallin. Kristilegir demókratar í Flæmingjalandi eru sigurvegarar kosninganna með rúm þrjátíu prósent atkvæða.

Erlent
Fréttamynd

Bush í Albaníu

George Bush, Bandaríkjaforseti, kom til Albaníu í morgun, fyrstur bandarískra forseta. Bush átti fund með Sali Berisha, forsætsisráðherra, og fullvissaði hann um að aðildarumsókn Albana að Atlantshafsbandalaginu væri til meðferðar og stutt í að hún yrði samþykkt.

Erlent
Fréttamynd

Mugabe ráðlagt að draga sig í hlé

Robert Mugabe, forseta Simbabve, hefur verið ráðið frá því að sækjast eftir endurkjöri á næsta ári. Ekki er þó víst að hann farið að ráðum samstarfsmanna sinna.

Erlent
Fréttamynd

Gekk grátandi úr dómssal

Paris Hilton gekk grátandi úr dómssal í Los Angeles í gær eftir að dómari úrskurðaði að hún skyldi send aftur í fangelsi. Lögreglustjóri segir Hilton eiga við geðræn vandamál að stríða og því ekki rétt að senda hana aftur í steininn.

Erlent
Fréttamynd

Bush á ferð og flugi

Mótmælendur létu hátt í sér heyra á götum Rómarborgar í dag. George Bush Bandaríkjaforseti sótti borgina heim og var allt annað en velkominn. Forsetinn er á ferð og flugi um Evrópu þessa dagana og ræðir eldflaugavarnarkerfi og Kósóvódeiluna.

Erlent
Fréttamynd

Hægt að hlusta á Vatnajökul

Nú er hægt að fylgjast með hlýnunar jarðar í gegnum símann. Katie Paterson, skoskur listamaður, hefur komið hljóðnema fyrir í vatni við rætur Vatnajökuls. Hún segir loftslagsbreytingar hafa alvarleg áhrif á Vatnajökul en verkefnið vera mest um það hvernig mikilfengleiki jökulsins er að hverfa.

Erlent
Fréttamynd

Bush í Róm

Bush, Bandaríkjaforseti, kom í Vatíkanið í Róm í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Bush mun einnig funda með Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Leynifangelsi og fangaflug verða ekki rædd við Prodi þó réttarhöld tengd séu hafin á Ítalíu.

Erlent
Fréttamynd

Paris í fangelsi á ný

Dómarinn í máli Parisar Hilton hefur fyrirskipað að hún verði send rakleiðis í fangelsi á ný og skuli dúsa þar allan þann tíma sem hún var dæmd til. Paris brotnaði niður þegar að dómarinn kvað upp úrskurð sinn og grét hástöfum. Hún var síðan leidd í handjárnum út í lögreglubíl og þaðan var hún keyrð í fangelsið á ný.

Erlent
Fréttamynd

Danstilskipun til að draga úr offitu

Kínverska menntamálaráðuneytið hefur upplýst að það hyggist láta skólabörn landsins læra að dansa, til þess að draga úr offitu. Gagnfræðaskólakrökkum verður til dæmis skipað að læra vals. Kínverjar hafa alltaf stært sig af því að vera grennri en vesturlandabúar. Það hefur hinsvegar breyst með aukinni velmegun og vestrænum skyndbitastöðum.

Erlent
Fréttamynd

Olmert tilbúinn til þess að skila Golan hæðum

Hægri menn í Ísrael eru sjóðandi reiðir yfir fréttum um að Ehud Olmert forsætisráðherra hafi sagt Sýrlendingum að hann sé reiðubúinn að skila þeim Golan hæðum. Ísraelar hertóku hæðirnar í sex daga stríðinu árið 1967. Olmert setur þau skilyrði að Sýrlendingar slíti öll tengsl við Íran og Hisbolla og hætt stuðningi við hryðjuverkamenn. Og geri friðarsamning við Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Bærileg vist í höndum sjóræningja

Dönsku sjómennirnir á flutningaskipinu sem var rænt undan ströndum Sómalíu í síðustu viku hafa það þokkalegt, samkvæmt upplýsingum sem danska utanríkisráðuneytið hefur aflað sér. Ráðuneytið vill ekki upplýsa hvort það sé í sambandi við sjóræningjana sjálfa. Fimm Danir eru um borð í Danica White.

Erlent
Fréttamynd

Sitja fyrir fjársjóðsleitarskipum

Spænsk herskip sitja nú fyrir tveim bandarískum fjársjóðsleitarskipum sem liggja í höfn á Gíbraltar. Spánverjar telja líklegt að 17 tonn af gull- og silfurpeningum sem fjársjóðsleitarmennirnir fundu hafi komið úr flaki af spænsku skipi. Þeir eigi því tilkall til fjársjóðsins.

Erlent
Fréttamynd

Leynifangelsi CIA í Evrópu

Rannsóknari Evrópuráðsins segist hafa sannanir fyrir því að Evrópuríki hafi leyft bandarísku leyniþjónustunni CIA að reka leynifangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn. Svissneski þingmaðurinn Dick Marty segist hafa sannanir fyrir því að slík fangelsi hafi verið bæði í Póllandi og Rúmeníu. Hann sakar Þjóðverja og Ítali um að hafa reynt að halda leyndum upplýsingum um fangaflutningana.

Erlent
Fréttamynd

Ábendingar frá nágrönnum leiddu til handtöku HIV-smitaðs manns

Upp komst um HIV smitaðan mann sem smitaði ungar stúlkur í Svíþjóð eftir ábendingar frá nágrönnum. Þetta kemur fram á vef sænska dagblaðsins Aftonbladet. Nágrannarnir urðu varir við kynlífsmyndir af manninum og barnungum stúlkum á heimili hans. Eins tóku þeir eftir miklu magni HIV - lyfja og lyfseðla, drógu þá ályktun að hann væri smitaður og tilkynntu lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Lækkanir á helstu fjármálamörkuðum

Gengi hlutabréfa lækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins á 14 af 17 fjármálamörkuðum í Evrópu í dag. Lækkanirnar koma í kjölfar lækkana í Bandaríkjunum í gær og í Japan. Þetta er fimmti lækkanadagurinn í röð í Evrópu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Íbúum Los Angeles sagt stilla sturtuferðum í hóf

Íbúum Los Angeles hefur verið ráðlagt að vera ekki lengi í sturtu, nota ekki garðúðara og sturta sjaldnar niður til þess að reyna að minnka notkun á vatni. Töluverður skortur er á vatni í borginni vegna mikilla þurrka sem þar hafa verið undanfarið. Þetta er þurrasta árið síðan mælingar hófust fyrir 130 árum síðan. Þetta hefur einnig haft áhrif á skógar- og kjarrelda í Kaliforníu það sem af er ári.

Erlent
Fréttamynd

Dómari og saksóknari mótfallnir því að Paris hafi verið send heim

Dómarinn og saksóknarinn í máli Parisar Hilton mótmæltu í kvöld þeirri ákvörðun fangelsisyfirvalda að leyfa henni að afplána dóm sinn heima hjá sér. Saksóknarinn, Rocky Delgadillo, sagði að hugsanlega hefðu reglur réttlætisins verið beygðar. „Útskýringin er furðuleg. Heilbrigðisaðstaðan í fangelsinu sem hún var í eru vel í stakk búin til þess að taka á tilfellum sem þessum.“

Erlent
Fréttamynd

Hlutabréf í Apple hækka enn

Apple hefur ekki enn selt einn einasta iPhone en engu að síður eru fjárfestar að veðja á að hann eigi eftir að slá í gegn. Verð á bréfum í Apple hefur því risið ógurlega hratt undanfarna daga. Hlutabréf í Apple hafa hækkað um 30% síðan iPhone var kynntur í janúar og gefur það í skyn hversu miklar væntingar fjárfestar binda við tækið.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Grunaður um að smita stúlkur viljandi af HIV

Breskur HIV smitaður maður sem búsettur er í Svíþjóð er grunaður um að hafa smitað ungar stúlkur af veirunni að ásettu ráði. Hann var handtekinn í dag í bænum Solna í Svíþjóð eftir ábendingar sem bárust lögreglu. Tvö tilfelli lágu að baki handtökunni og hefur hann viðurkennt að hafa stundað óvarið kynlíf með annarri stúlkunni. Ungu stúlkurnar gætu einnig hafa fært smitið áfram.

Erlent
Fréttamynd

Al-Sadr ákallar Arabaríki

Sjía klerkurinn Múktada al-Sadr ákallaði í kvöld Arabaríki um allan heim og bað þau um hjálp við að binda enda á þjáningar Íraka. Hann kom fram í sínu fyrsta sjónvarpsviðtali í kvöld síðan hann kom úr felum fyrir tveimur vikum síðan. Hann hafði verið í felum síðan Bandaríkjamenn hertu öryggisaðgerðir sínar í Írak í miðjum febrúar.

Erlent
Fréttamynd

Þingmenn í Arizona í handalögmálum

Handalögmál brjótast stundum út í þingsölum um víða veröld. Óvenjulegt er að það gerist í Bandaríkjunum en það gerðist þó í dag þegar þingmenn á ríkisþingi Arizona tókust á.

Erlent
Fréttamynd

Vill bara 3 milljarða

Dómari í Bandaríkjunum hefur samþykkt að lækka skaðabótakröfu sína vegna buxna sem týndust í hreinsun. Bótakrafan hljóðar eftir lækkun hljóðar upp á jafnvirði rúmlega þriggja milljarða íslenskra króna.

Erlent
Fréttamynd

Samkomulag í loftslagsmálum

Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims náðu samkomulagi í loftslagsmálum á fundi sínum í Þýskalandi í dag. Kaslari Þýskalands var sigurreif þó tillaga hennar um að útblástur yrði minnkaður um helming fyrir árið 2050, hafi ekki náð fram að ganga vegna andstöðu Bandaríkjamanna.

Erlent
Fréttamynd

Bandaríkjaþing ögrar forsetanum

Bandaríska þingið ögraði í dag Georg W. Bush, forseta Bandaríkjanna, þegar þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpi um að auka ríkisstyrki til stofnfrumurannsókna.

Erlent