Erlent
269 270 271 272 273 274 275 276 277 … 334 ›
Rekinn úr starfi fyrir spillingu í Shanghai Æðsti leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins í Shanghai hefur verið rekinn úr starfi fyrir spillingu. Frá þessu greinir kínverska ríkisfréttastofan og segir að maðurinn, Chen Liangyu, hafi misnotað eftirlaunasjóði borgarinnar. Erlent 25.9.2006 08:17
Olíuverð undir 60 dölum Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór niður fyrir 60 bandaríkjadali á tunnu á nokkrum helstu fjármálamörkuðum í dag. Hráolíuverðið hefur ekki verið lægra í rúmt hálf ár. Viðskipti erlent 25.9.2006 09:07
Spillingarnefnd tekur til starfa í Taílandi Nefnd sem skipuð hefur verið til að rannsaka meinta spillingu í ráðherratíð Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, kom saman í fyrsta sinn í dag. Erlent 25.9.2006 07:31
Páfi fundar með fulltrúum múslima í dag Benedikt páfi sextándi fundar í dag með fulltrúum múslima í Róm til þess að reyna að lægja þær reiðiöldur sem blossað hafa upp í kjölfar ummæla hans um Múhameð spámann. Erlent 25.9.2006 08:02
Mannskætt rútuslys í Ekvador Að minnsta kosti 47 manns, þar af 17 börn, létust í rútuslysi á fjallvegi nærri Quito, höfuðborg Ekvadors, í gærkvöld. Bílstjóri rútunnar mun hafa verið á miklum hraða og misst stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún valt. Erlent 25.9.2006 08:13
Áfram mótmælt í Búdapest Um fimm þúsund Ungverjar komu saman í Búdapest áttunda daginn í röð í gærkvöld til þess að krefjast afsagnar forsætirsráðherra landsins, Ferenc Gyurcsany, í kjölfar þess að hann var uppvís að því að ljúga að þjóðinni um efnahagsástandið í landinu. Erlent 25.9.2006 07:24
Smyglaði inn kókalaufum Evo Morales, forseti Bólivíu, ávarpaði allsherjarþingið í síðustu viku og mótmælti harðlega framgangi „stríðsins gegn vímuefnum“ og hélt við það tækifæri á lofti kókalaufi, sem hann hafði komið með frá heimalandi sínu. Erlent 24.9.2006 22:03
Hryðjuverkahætta jókst við Íraksstríð Stríðið hefur kynt undir öfgahyggju múslima og andúð þeirra á Vesturlöndum. Þetta er niðurstaða bandarískra leyniþjónustna og gengur þvert á staðhæfingar George W. Bush, sem hefur kallað Íraksstríðið stríð gegn hryðjuverkum. Erlent 24.9.2006 22:03
Aðskilnaðarhreyfingvaknar úr löngum dvala Fyrir rúmri viku voru haldnar kosningar í Transnistríu, litlu héraði í Moldóvu. Kosið var um sjálfstæði héraðsins, sem í reynd hefur verið sjálfstætt frá árinu 1990 þótt formleg viðurkenning á þeirri stöðu hafi aldrei fengist. Erlent 24.9.2006 22:03
Fjöldahandtaka mótmælenda Mótmæli í Kaupmannahöfn fóru úr böndunum í gær. Flöskum, grjóti og eggjum var fleygt að lögreglunni, að sögn talsmanns hennar. 220 mótmælendur voru handteknir. Fólkið, sem var í yngri kantinum að sögn lögreglu, vildi mótmæla sölu húss, sem hústökufólk hafði fengið leyfi til að búa í frá borgaryfirvöldum árið 1982. Erlent 24.9.2006 22:03
Aðskilnaðar krafist að nýju Þrír grímuklæddir menn sem sögðust vera talsmenn ETA-aðskilnaðarsamtakanna stigu á svið á samkomu um sjálfstæði Baskalands um helgina. Lesin var tilkynning um að ETA legði ekki niður vopn fyrr en Baskaland fengi sjálfstæði frá Spáni. Að loknum lestrinum skutu mennirnir úr vélbyssum í loftið. Erlent 24.9.2006 22:03
Frekar Satan en Hillary Clinton Áhrifamikill evangelískur predikari lýsti því yfir í gær að fólkið í sínu kjördæmi myndi leggja harðar að sér við að koma í veg fyrir mögulegt forsetakjör demókratans Hillary Clintons en þótt Lúsifer sjálfur færi í framboð. Erlent 24.9.2006 22:03
Frumbyggjarnir eiga borgina Alríkisdómstóll Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Nyoongar-ættbálkurinn sé eigandi landsvæðis Perth-borgar. Þetta er í fyrsta skipti sem frumbyggjum er tryggður eignarréttur á þéttbýlissvæði, að sögn áströlsku fréttastofunnar ABC. Eignarrétturinn nær þó ekki til lands sem byggt er á. Erlent 24.9.2006 22:03
Ofsóknir frekar en rannsóknir Esteban Lazo Hernández, starfandi varaforseti Kúbu, hélt reiðilestur yfir bandarískum ráðamönnum á allsherjarþinginu í New York á dögunum. Hann hélt því fram að ríkisstjórn Bandaríkjanna eyddi meiri fjármunum í að ofsækja og refsa þeim fyrirtækjum sem ættu í viðskiptum við eyríkið en eytt væri í rannsókn á því hver hefði fjármagnað hryðjuverkaárásirnar á Tvíburaturnana. Erlent 24.9.2006 22:03
Verri eftir brott-hvarf Saddams Manfred Novak, sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna á sviði ómannúðlegrar meðferðar fanga, segir að pyntingar á föngum hafi versnað til muna í Írak, eftir að Saddam Hussein var komið frá völdum. Áður hafi ákveðin regla verið á hlutunum en nú vaði uppi öryggissveitir, herskáar einkahersveitir og ýmsir hatursmenn hernámsins. Novak segir ástandið í Írak farið gjörsamlega úr böndunum. Erlent 24.9.2006 22:03
Heimsmet í humarrúllu áti Japaninn Takeru Kobayashi setti ansi sérstakt heimsmet í gær. Hann mætti til leiks í árlegri humarátskeppni í Boston í Bandaríkjunum. Hann gerði sér lítið fyrir og setti heimsmet með því að borða 41 humarrúllu á 10 mínútum. Þar með fór hann nálægt því að tvöfalda gamla metið sem var 22 rúllur á jafn löngum tíma. Erlent 24.9.2006 17:51
Þrjú börn myrt í Saint Louis Íbúar í Saint Louis í Bandaríkjunum eru slegnir óhug eftir að þrjú börn fundust myrt þar í borg í gær. Skömmu áður var 26 ára kona ákærð fyrir að hafa myrt móður þeirra með því að skera fóstur úr kvið hennar. Erlent 24.9.2006 17:58
Bin Laden sagður á lífi Heimildarmenn bandaríska fréttatímaritsins Time fullyrða að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé ekki allur en hann sé hins vegar við dauðans dyr. Fullyrt var í frönsku blaði í gær að hann væri látinn. Erlent 24.9.2006 17:47
Kynþokkafullir og krúttlegir auðmenn Á meðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes birtir árlegan lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina hefur Financial Times tekið saman annars konar lista. Þar er kaupsýslumönnum skipt í hópa eftir ýmsu, þar á meðal fegurð og krúttleika. Samkvæmt listanum eigum við Íslendingar kynþokkafyllsta kaupsýslumanninn. Erlent 24.9.2006 18:05
Björgólfur Thor kynþokkafyllstur Á meðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes birtir lista sinn yfir ríkustu Bandaríkjamennina hefur Financial Times tekið saman annars konar lista. Þar er kaupsýslumönnum skipt í hópa eftir fegurð og gælni. Á þessu lista er Björgólfur Thor Björgólfsson sagður bera af þegar kemur að kynþokka. Erlent 24.9.2006 12:13
Íraksstríðið sagt hafa aukið hættuna á hryðjuverkum Íraksstríðið hefur aukið hryðjuverkahættuna í heiminum og auðveldað róttækum múslimum að afla stuðnings. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri leyniskýrslu sem dagblaðið New York Times vitnar til í morgun. Erlent 24.9.2006 12:06
Óhugnarlegt myndband birt Hryðjuverkasmatök sem sögð eru tengd al-Kaída birtu í morgun á vef sínum óhugnarlegt myndband sem sýnir illa meðferð á líkum bandarískra hermanna í Írak. Erlent 24.9.2006 11:01
Vongóður um skipan þjóðstjórnar Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sagðist í morgun vongóður um skipan þjóðstjórnar Hamas- og Fatah-liða. Þar með vísaði hann á bug ummælum Abbas forseta frá í gær um að viðræður væru aftur komnar á byrjunarreit. Haniyeh segir viðræðum framhaldið og þeim miði í rétta átt. Erlent 24.9.2006 10:51
Dregur fréttir af andláti bin Ladens í efa Sendiherra Pakistana í Bandaríkjunum dregur í efa fréttir fransks blaðs frá í gær um að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Blaðið vitnaði í leynilega skýrslu frönsku leyniþjónustunnar þar sem sagði að hann hefði dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði. Erlent 24.9.2006 10:48
Bandaríkjamenn biðja stjórnvöld í Venesúela afsökunar Bandarísk yfirvöld hafa beðið stjórnvöld í Venesúela afsökunar á því að utanríkisráðherra landsins, Nicolas Madura, hafi verið í haldi öryggisvarða á Kennedyflugvelli í New York í eina og hálfa klukkustund í gær. Madura sótti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem haldið er þar í borg. Erlent 24.9.2006 10:06
Börnin þrjú fundin Þrjú börn, sem íbúar í Saint Louis í Bandaríkjunum hafa leitað síðustu daga, fundust myrt þar í borg í gærkvöldi. Nokkru áður hafði 26 ára kona verið ákærð fyrir að hafa myrt móður barnanna og skorið fóstur úr kvið hennar. Erlent 24.9.2006 10:01
Leita forsætisráðherra Herforingjastjórnin í Taílandi fundaði um helgina um möguleg forsætisráðherraefni. Talið er að þeir muni láta konung Taílands, Bhumibol Adulyadej, fá lista yfir þá einstaklinga sem þeir telja hæfa og verður lokaákvörðunin í höndum konungsins. Erlent 23.9.2006 21:10
Endurkoma í desember Utanríkisráðherra Kúbu, Felipe Perez Roque, lýsti því yfir opinberlega að hann væri þess fullviss að Fidel Castro myndi snúa aftur til valda í desember. Castro hefur ekki komið fram opinberlega síðan 26. júlí en á síðustu vikum hafa birst myndir af honum í náttfötum á fundum með bæði Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, og Hugo Chavez, forseta Venesúela. Erlent 23.9.2006 21:10
Múslimar fasta Ramadan er byrjaður í flestum ríkjum múslima í Mið-Austurlöndum en mánuðurinn hefst þegar nýtt tungl rís í níunda mánuði ársins samkvæmt Hijri-dagatalinu. Erlent 23.9.2006 21:10
Bara milljarðamæringa á Forbes listanum 400 ríkustu menn Bandaríkjanna eru samanlagt metnir á jafnvirði tæplega 90 þúsund milljarða króna. Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur birt lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina þetta árið og í fyrsta sinn dugir ekki að vera milljónamæringur til að komast á blað. Erlent 23.9.2006 18:24
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent