Erlent Ford lokar verksmiðju í Bandaríkjunum Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur ákveðið að loka einni af verksmiðjum fyrirtækisins í Indianapolis í Bandaríkjunum á næsta ári. Að sögn fyrirtækisins er verksmiðjan úreld. Starfsmönnum verksmiðjunnar, sem eru 1.700 talsins, hefur ýmist verið boðnir starfslokasamningar eða að þeir hefji töku lífeyris fyrr en ella. Viðskipti erlent 12.1.2007 11:36 Minni hagnaður hjá Samsung Hagnaður suður-kóreska tækniframleiðandans Samsung dróst saman um 8,5 prósent á síðasta fjórðungi liðins árs. Helsta ástæðan eru verðlækkanir á minnikortum, farsímum og flatskjássjónvörpum. Viðskipti erlent 12.1.2007 09:39 Bandaríkjamenn handtaka sex Írani Íraski herinn skýrði frá því í kvöld að alþjóðlegt herlið undir forystu Bandaríkjamanna hneppti í dag sex Írana í varðhald eftir að hafa ráðist á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Irbil. Bandaríski herinn sagðist hafa handtekið sex manns á sama svæði en minntist ekkert Írana eða ræðismannsskrifstofu. Erlent 11.1.2007 23:23 Prestur dæmdur til dauða Hæstiréttur í Nígeríu hefur dæmt prest til dauða fyrir að hafa brennt sex konur en ein af þeim lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Presturinn, sem kallaður er séra Kóngur, var fundinn sekur um fimm morðtilraunir og eitt morð. Erlent 11.1.2007 23:14 Bloggarar metnir til jafns við fjölmiðla Réttaryfirvöld í Washington í Bandaríkjunum hafa ákveðið að leyfa bloggurum að fylgjast með réttarhöldunum yfir Lewis Libby, fyrrum aðstoðarmanni Dick Cheney, til jafns við hefðbundna fjölmiðla. Munu þeir fá alls fjögur sæti við réttarhöldin en búist er við því að Cheney eigi eftir að bera vitni við þau. Erlent 11.1.2007 22:52 Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. Erlent 11.1.2007 22:37 Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. Erlent 11.1.2007 22:22 Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. Erlent 11.1.2007 22:05 NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. Erlent 11.1.2007 21:47 Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. Erlent 11.1.2007 21:11 Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. Erlent 11.1.2007 20:53 Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. Erlent 11.1.2007 20:29 Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. Erlent 11.1.2007 20:09 Búist við árekstri skips og borpalls í Norðursjó Björgunarsveitir þurfa að sækja starfsmenn olíuborpalls á Norðursjó þar sem stjórnlaust skip er við það rekast á hann samkvæmt fréttum frá strandgæslunni í Bretlandi. Alls voru 30 starfsmenn á borpallinum og er þegar búið að flytja 20 þeirra í land með þyrlum. Erlent 11.1.2007 20:02 Ruddust inn á ræðismannsskrifstofurnar Bandaríska ríkisstjórnin ætlar að fjölga í herliði sínu í Írak um rösklega tuttugu þúsund manns á næstu vikum í þeirri von að þar með dragi úr ofbeldinu í landinu. Hersveitir Bandaríkjamanna réðust inn í ræðismannsskrifstofur Írans í bænum Irbil í Norður-Írak í dag. Erlent 11.1.2007 18:20 Engin hætta á ferðum í Lundúnum Pakkinn sem varð til þess að breska lögreglan lokaði fjölfarinni götu í miðborg Lundúna í dag var ekki hættulegur. Lögregla rannsakaði málið og komst að því að ekki var um sprengju eða annað slíkt að ræða og var hann því fjarlægður og er nú verið að opna götuna á ný. Erlent 11.1.2007 17:57 Sprengjuógn í Lundúnum Erlent 11.1.2007 16:45 Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. Erlent 11.1.2007 16:29 Hagvöxtur í Þýskalandi tekur stökk Hagvöxtur í Þýskalandi jókst um 2,5 prósent í fyrra samanborið við 0,9 prósenta hagvöxt árið 2005. Hagvöxtur í Þýskalandi hefur ekki verið jafn mikill síðastliðin sex ár, samkvæmt upplýsingum þýsku hagstofunnar. Viðskipti erlent 11.1.2007 16:25 Kjötæta afhjúpuð Moira Cameron, sem er 42 ára undirforingi í breska hernum, mun á næstunni ganga í lið varðsveitarinnar við Tower of London. Ástæðan fyrir því að þetta þykir fréttnæmt er sú að varðsveitin hefur starfað frá árinu 1337 og Moira er fyrsta konan sem tekin er í sveitina. Erlent 11.1.2007 15:59 Yfir 100 hengdir til að hefna fyrir Saddam Hussein Yfir eitthundrað sjía múslimar hafa verið hengdir í ljósastaurum og símastaurum í Bagdad, í hefndarskyni fyrir aftöku Saddams Hussein. Hinir hengdu eru venjulegir óbreyttir borgarar, sem súnní múslimar safna saman í stóra hópa til að hengja opinberlega. Erlent 11.1.2007 14:40 Ég gaf skipanir um að drepa alla í þorpunum Efnavopna Ali, frændi Saddams Hussein, var kokhraustur fyrir rétti í dag, þar sem hann hefur verið kærður fyrir þjóðarmorð. Hann kvaðst hafa skipað hermönnum að drepa alla þá sem ekki hlýddu skipunum um að yfirgefa þorp sín, í herförinni gegn kúrdum árið 1988. Erlent 11.1.2007 14:02 Loftárásir mistókust Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana. Erlent 11.1.2007 13:45 Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum á evrusvæðinu. Greinendur leita nú vísbendinga hvort Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri, fylgi fordæmi peningamálanefndar Englandsbanka og hækki stýrivexti í febrúar eða mars. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í 3,5 prósentum og hafa aldrei verið hærri Viðskipti erlent 11.1.2007 13:40 Nei er ekkert svar Það er ekki óalgengt, í Bandaríkjunum, að svokallaðir hausaveiðarar frá stórfyrirtækjum fari í skóla til þess að leita að framtíðar starfsmönnum. Ekki er ekki heldur óalgengt að nemendur byrji að leita fyrir sér, og skrifa fyrirtækjum, þegar kemur að námslokum. Einn nemandi skrifaði eftirfarandi: Erlent 11.1.2007 11:20 Fimm ár frá opnun Guantanamo-búðanna Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efnir Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi klukkan fimm í dag. Erlent 11.1.2007 12:13 Brak úr vélinni loks fundið Búið er að finna hluta af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið síðan á nýársdag. Það voru fiskimenn á eynni Sulawesi sem fundu stélhluta með sama verksmiðjunúmeri og vélin hafði. Erlent 11.1.2007 12:11 Þrumufleygur frá Englandsbanka Erlent 11.1.2007 12:59 Stýrivextir hækka í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að hækka stýrivexti bankans um 25 punkta og verða stýrivextir í Bretlandi eftirleiðis 5,25 prósent. Ákvörðunin kom greinendum talsvert á óvart enda bjuggust flestir við að stýrivextir yrðu ekki hækkaðir fyrr en í næsta mánuði. Þeir höfðu engu að síður þrýst á um hærri vexti. Viðskipti erlent 11.1.2007 12:34 Umtalsverð fjölgun hermanna í Írak Demókratar á Bandaríkjaþingi segjast ætla að koma í veg fyrir að fleiri hermenn verði sendir til Íraks með því að neita ríkisstjórninni um fjárveitingar. George Bush greindi í gær frá þeirri ákvörðun sinni að tuttugu þúsund manna aukaherlið færi á næstunni til landsins til að binda enda á vargöldina þar. Erlent 11.1.2007 12:08 « ‹ 182 183 184 185 186 187 188 189 190 … 334 ›
Ford lokar verksmiðju í Bandaríkjunum Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur ákveðið að loka einni af verksmiðjum fyrirtækisins í Indianapolis í Bandaríkjunum á næsta ári. Að sögn fyrirtækisins er verksmiðjan úreld. Starfsmönnum verksmiðjunnar, sem eru 1.700 talsins, hefur ýmist verið boðnir starfslokasamningar eða að þeir hefji töku lífeyris fyrr en ella. Viðskipti erlent 12.1.2007 11:36
Minni hagnaður hjá Samsung Hagnaður suður-kóreska tækniframleiðandans Samsung dróst saman um 8,5 prósent á síðasta fjórðungi liðins árs. Helsta ástæðan eru verðlækkanir á minnikortum, farsímum og flatskjássjónvörpum. Viðskipti erlent 12.1.2007 09:39
Bandaríkjamenn handtaka sex Írani Íraski herinn skýrði frá því í kvöld að alþjóðlegt herlið undir forystu Bandaríkjamanna hneppti í dag sex Írana í varðhald eftir að hafa ráðist á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Irbil. Bandaríski herinn sagðist hafa handtekið sex manns á sama svæði en minntist ekkert Írana eða ræðismannsskrifstofu. Erlent 11.1.2007 23:23
Prestur dæmdur til dauða Hæstiréttur í Nígeríu hefur dæmt prest til dauða fyrir að hafa brennt sex konur en ein af þeim lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Presturinn, sem kallaður er séra Kóngur, var fundinn sekur um fimm morðtilraunir og eitt morð. Erlent 11.1.2007 23:14
Bloggarar metnir til jafns við fjölmiðla Réttaryfirvöld í Washington í Bandaríkjunum hafa ákveðið að leyfa bloggurum að fylgjast með réttarhöldunum yfir Lewis Libby, fyrrum aðstoðarmanni Dick Cheney, til jafns við hefðbundna fjölmiðla. Munu þeir fá alls fjögur sæti við réttarhöldin en búist er við því að Cheney eigi eftir að bera vitni við þau. Erlent 11.1.2007 22:52
Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. Erlent 11.1.2007 22:37
Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. Erlent 11.1.2007 22:22
Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. Erlent 11.1.2007 22:05
NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. Erlent 11.1.2007 21:47
Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. Erlent 11.1.2007 21:11
Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. Erlent 11.1.2007 20:53
Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. Erlent 11.1.2007 20:29
Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. Erlent 11.1.2007 20:09
Búist við árekstri skips og borpalls í Norðursjó Björgunarsveitir þurfa að sækja starfsmenn olíuborpalls á Norðursjó þar sem stjórnlaust skip er við það rekast á hann samkvæmt fréttum frá strandgæslunni í Bretlandi. Alls voru 30 starfsmenn á borpallinum og er þegar búið að flytja 20 þeirra í land með þyrlum. Erlent 11.1.2007 20:02
Ruddust inn á ræðismannsskrifstofurnar Bandaríska ríkisstjórnin ætlar að fjölga í herliði sínu í Írak um rösklega tuttugu þúsund manns á næstu vikum í þeirri von að þar með dragi úr ofbeldinu í landinu. Hersveitir Bandaríkjamanna réðust inn í ræðismannsskrifstofur Írans í bænum Irbil í Norður-Írak í dag. Erlent 11.1.2007 18:20
Engin hætta á ferðum í Lundúnum Pakkinn sem varð til þess að breska lögreglan lokaði fjölfarinni götu í miðborg Lundúna í dag var ekki hættulegur. Lögregla rannsakaði málið og komst að því að ekki var um sprengju eða annað slíkt að ræða og var hann því fjarlægður og er nú verið að opna götuna á ný. Erlent 11.1.2007 17:57
Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. Erlent 11.1.2007 16:29
Hagvöxtur í Þýskalandi tekur stökk Hagvöxtur í Þýskalandi jókst um 2,5 prósent í fyrra samanborið við 0,9 prósenta hagvöxt árið 2005. Hagvöxtur í Þýskalandi hefur ekki verið jafn mikill síðastliðin sex ár, samkvæmt upplýsingum þýsku hagstofunnar. Viðskipti erlent 11.1.2007 16:25
Kjötæta afhjúpuð Moira Cameron, sem er 42 ára undirforingi í breska hernum, mun á næstunni ganga í lið varðsveitarinnar við Tower of London. Ástæðan fyrir því að þetta þykir fréttnæmt er sú að varðsveitin hefur starfað frá árinu 1337 og Moira er fyrsta konan sem tekin er í sveitina. Erlent 11.1.2007 15:59
Yfir 100 hengdir til að hefna fyrir Saddam Hussein Yfir eitthundrað sjía múslimar hafa verið hengdir í ljósastaurum og símastaurum í Bagdad, í hefndarskyni fyrir aftöku Saddams Hussein. Hinir hengdu eru venjulegir óbreyttir borgarar, sem súnní múslimar safna saman í stóra hópa til að hengja opinberlega. Erlent 11.1.2007 14:40
Ég gaf skipanir um að drepa alla í þorpunum Efnavopna Ali, frændi Saddams Hussein, var kokhraustur fyrir rétti í dag, þar sem hann hefur verið kærður fyrir þjóðarmorð. Hann kvaðst hafa skipað hermönnum að drepa alla þá sem ekki hlýddu skipunum um að yfirgefa þorp sín, í herförinni gegn kúrdum árið 1988. Erlent 11.1.2007 14:02
Loftárásir mistókust Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana. Erlent 11.1.2007 13:45
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum á evrusvæðinu. Greinendur leita nú vísbendinga hvort Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri, fylgi fordæmi peningamálanefndar Englandsbanka og hækki stýrivexti í febrúar eða mars. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í 3,5 prósentum og hafa aldrei verið hærri Viðskipti erlent 11.1.2007 13:40
Nei er ekkert svar Það er ekki óalgengt, í Bandaríkjunum, að svokallaðir hausaveiðarar frá stórfyrirtækjum fari í skóla til þess að leita að framtíðar starfsmönnum. Ekki er ekki heldur óalgengt að nemendur byrji að leita fyrir sér, og skrifa fyrirtækjum, þegar kemur að námslokum. Einn nemandi skrifaði eftirfarandi: Erlent 11.1.2007 11:20
Fimm ár frá opnun Guantanamo-búðanna Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efnir Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi klukkan fimm í dag. Erlent 11.1.2007 12:13
Brak úr vélinni loks fundið Búið er að finna hluta af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið síðan á nýársdag. Það voru fiskimenn á eynni Sulawesi sem fundu stélhluta með sama verksmiðjunúmeri og vélin hafði. Erlent 11.1.2007 12:11
Stýrivextir hækka í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að hækka stýrivexti bankans um 25 punkta og verða stýrivextir í Bretlandi eftirleiðis 5,25 prósent. Ákvörðunin kom greinendum talsvert á óvart enda bjuggust flestir við að stýrivextir yrðu ekki hækkaðir fyrr en í næsta mánuði. Þeir höfðu engu að síður þrýst á um hærri vexti. Viðskipti erlent 11.1.2007 12:34
Umtalsverð fjölgun hermanna í Írak Demókratar á Bandaríkjaþingi segjast ætla að koma í veg fyrir að fleiri hermenn verði sendir til Íraks með því að neita ríkisstjórninni um fjárveitingar. George Bush greindi í gær frá þeirri ákvörðun sinni að tuttugu þúsund manna aukaherlið færi á næstunni til landsins til að binda enda á vargöldina þar. Erlent 11.1.2007 12:08