Erlent
140 141 142 143 144 145 146 147 148 … 334 ›
Keypti dagbækur Önnu Nicole fyrir 33 milljónir Tvær dagbóka Önnu Nicole Smith hafa verið seldar þýskum auðjöfri. Dagbækurnar eru frá árunum 1992 og 1994 og eru handskrifaðar af Önnu Nicole. Að því er fram kemur á danska fréttavefnum bt.dk þá hyggst þýski auðjöfurinn selja brot úr dagbókunum þeim fjölmiðlum sem áhuga á því hafa. Erlent 24.3.2007 14:54
Kveiktu í fíkniefnum Yfirvöld í Bólívíu og Perú lögðu fyrir helgi eld að um 35 tonnum af eiturlyfjum. Götuverðmætið er sagt mörg hundruð milljónir króna. Hald var lagt á efnin í fjölmörgum aðgerum lögreglu í báðum löndum. Erlent 24.3.2007 12:26
Sjóliðar fluttir til Teheran Evrópusambandið og bresk stjórnvöld krefjast þess að Íranar láti þegar lausa 15 breska sjó- og landgögnuliða sem teknir voru höndum á Persaflóa í gær. Stjórnvöld í Teheran segjast geta sannað það að mennirnir hafi farið ólöglega inn í íranska landhelgi. Erlent 24.3.2007 12:24
Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi á frumvarp sem felur í sér heimkvaðningu bandarískra bardagasveita frá Írak fyrir fyrsta september á næsta ári. Varaforseti Íraks segist fullviss um að hægt verði að senda erlenda hermenn heim frá Írak fyrir þann tíma. Erlent 24.3.2007 12:22
Ný ályktun gegn Íran samþykkt í kvöld Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í kvöld atkvæði um nýja ályktun gegn Írönum. Í gærkvöldi var gengið frá texta ályktunarinnar sem felur í sér frekari refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran. Fulltrúi Breta í ráðinu greindi frá þessu og sagðist þess fullviss að ályktunin yrði samþykkt einróma. Erlent 24.3.2007 10:38
Stillt til friðar í Austur-Kongó Stjórnarherinn í Austur-Kongó stillti til friðar í höfuðborginni, Kinsjasa, í gærkvöldi. Til harðra bardaga hefur komið þar í vikunni milli stjórnarhersins og fylgismanna Jean-Pierre Bemba, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Yfirvöld í Austur-Kongó hafa sakað Bemba um landráð og hefur hann leitað hælis í sendiráði Suður-Afríku. Erlent 24.3.2007 10:06
Ætlar ekki að dagsetja heimkvaðningu hermanna Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gærkvöldi að hann ætlaði að beita neitunarvaldi sínu á frumvarp sem felur í sér heimkvaðningu bandarískra bardagasveita frá Írak fyrir 1. september á næsta ári. Um er að ræða frumvarp um aukafjárveitingu til stríðsrekstursins í Afganistan og Írak en dómkratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings bættu við heimkvaðningarákvæðinu áður en það var samþykkt. Erlent 24.3.2007 10:03
Segja sjóliða hafa brotið gegn alþjóðalögum Íranar segja 15 breska sjóliða sem þeir handtóku í gær hafa siglt án leyfis inn í íranska landhelgi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá íranska utanríkisráðuneytinu þar sem aðgerðir sjóliðanna eru fordæmdar og þær sagðar brjóta gegn alþjóðalögum. Erlent 24.3.2007 10:02
Dagbækur Önnu seldust á 35 milljónir Tvær dagbækur sem Anna Nicole Smith hélt voru í dag seldar uppboðsvefnum eBay fyrir meira en hálfa milljón dollara, eða um 35 milljónir íslenskra króna. Kaupandinn sagðist ætla að nota þær til þess að skrifa bók um Önnu. Dagbækurnar fundust þegar að hreingerningamaður var að fara í gegnum hús sem að Anna bjó í á meðan hún var við tökur á bíómyndum árið 1992 og 1994. Hann seldi þær síðan til safnara sem síðan geymdi þær allt þar til Anna lést og seldi þær nú á eBay. Erlent 23.3.2007 23:49
Íranar segja Breta hafa verið í órétti Stjórnvöld í Íran halda því fram að sjóliðarnir bresku sem þau handtóku í dag hafi verið á írönsku yfirráðasvæði. Utanríkisráðherra Breta, Margaret Beckett, þvertekur hins vegar fyrir þær fullyrðingar. Erlent 23.3.2007 23:30
Friður kominn á í Kinshasa Kongóski herinn hefur náð að stilla til friðar í höfuðborginni Kinshasa á ný. Síðastliðna tvo daga hafa harðir bardagar átt sér stað á milli fylgismanna Jean-Pierre Bemba, stjórnarandstöðuleiðtoga, og stjórnarhersins. Bemba, sem er fyrrum uppreisnarleiðtogi, hefur verið sakaður um landráð af yfirvöldum í Kongó. Erlent 23.3.2007 23:02
Kosið í Hong Kong á sunnudaginn Á sunnudaginn fara fram í Hong Kong fyrstu kosningar, þar sem kosið er um fleiri en einn frambjóðanda, síðan Bretar létu svæðið af hendi til Kínverja fyrir tæpum tíu árum. Í henni verður kosið á milli Donald Tsang, sem nú er framkvæmdastjóri svæðisins, og Alan Leong, en hann er lýðræðissinni. Erlent 23.3.2007 22:24
Íranar vilja samstarf með Evrópuþjóðum Íranar ætla sér að leggja fram nokkrar tillögur fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á morgun til þess að reyna að komast hjá refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Ein af þeim er að Evrópuþjóðir taki þátt í kjarnorkuáætluninni og fjárfesti í henni. Erlent 23.3.2007 22:07
Wall Street að ná sér á strik Vikan sem er að líða var sú besta á Wall Street undanfarin fjögur ár. Uppgangurinn er að mestu leyti að þakka auknum kaupum á fasteignum en fasteignamarkaðurinn var farinn að hægja verulega á sér. Viðskipti erlent 23.3.2007 22:02
Ætla að bæta gæludýraeigendum tapið Fyrirtækið Menu Foods hefur lofað að bæta gæludýraeigendum sem misstu gæludýr sín vegna eitrunar í mat frá fyrirtækinu allan skaða sem þeir urðu fyrir. Að því gefnu að eigendurnir geti sannað að dýrin hafi drepist vegna eitrunar úr gæludýramat fyrirtækisins. Erlent 23.3.2007 21:29
Bush að beita neitunarvaldi George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hótaði því í dag að beita neitunarvaldi gegn tillögu demókrata um að kalla alla bardagabúna hermenn heim frá Írak fyrir september 2008. Tillagan hefur þegar verið samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins. Erlent 23.3.2007 20:56
Framdi sjálfsmorð í beinni Tveggja barna breskur faðir sem framdi sjálfsmorð í beinni útsendingu á netinu átti við veikindi að stríða að sögn eiginkonu hans. Lögregla fann Kevin Whitrick, 42 ára, látinn á heimili sínu stuttu eftir hún var látin vita. Einn af áhorfendum á netinu hafði þá hringt í lögregluna. Erlent 23.3.2007 20:46
Forseti Írans ekki til Bandaríkjanna Forseti Írans, Mahmoud Amhadinejad, hefur aflýst ferð sinni til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna þar sem Bandaríkin voru of lengi að gefa út vegabréfsáritanir fyrir fylgdarlið hans. Sendiherra Íran hjá Sameinuðu þjóðunum, Javad Zarif, skýrði frá þessu í kvöld. „Forsetinn kemur ekki." sagði Zarif við fréttamenn í kvöld. Erlent 23.3.2007 20:17
Knútur vinsæll Berlínarbúar sem og aðkomumenn flykktust í dýragarðinn í Berlín í dag til að berja ísbjarnarhúninn Knút augum. Örlög hans hafa verið Þjóðverjum hugleikin síðustu daga en móðir hans hafnaði Knúti og bróður hans skömmu eftir að þeir komu í heiminn í byrjun desember. Bróðirinn drapst en sjálfur dafnar Knútur vel hjá þjálfara sínum. Erlent 23.3.2007 17:36
Rómarsáttmálinn fimmtugur á sunnudaginn Á sunnudaginn er hálf öld frá því að Rómarsáttmálinn var undirritaður og Efnahagsbandalag Evrópu, forveri Evrópusambandsins, stofnað. Um fimmtugt skartar ESB 27 aðildarríkjum og sameiginlegri mynt. Það sinnir friðargæslu í Afríku, Asíu, Miðausturlöndum og á Balkanskaga. Í sambandsríkjunum er fimmtung verslana heimsins að finna og þar býr tæplega hálfur milljarður manna. Erlent 23.3.2007 17:34
Myrtur á heimsmeistaramótinu í krikket Bob Woolmer, landsliðsþjálfari Pakistana í krikket, var myrtur á hótelherbergi sínu á Jamaíka fyrir tæpri viku. Talið er að einhver nákominn honum hafi framið ódæðið og fórnarlambið haft uppi áform um að afhjúpa spillingu í íþróttinni. Erlent 23.3.2007 17:30
Ógnað með byssum og síðan rænt Liðsmenn íranska byltingarhersins tóku í dag höndum 15 breska sjó- og landgönguliða sem voru við eftirlit í íraskri landhelgi. Þeim var ógnað með skotvopnum en ekki kom til átaka. Erlent 23.3.2007 17:26
Bardagasveitir heim 2008 Fulltrúardeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag frumvarp sem felur í sér að kalla skuli alla bardagasveitir Bandaríkjahers heim frá Írak fyrir 1. september 2008. Frumvarpið fól í sér rúmlega 8.000 milljarða króna aukafjárveitingu til stríðsrekstursins en demókratar í fulltrúadeildinni bættu heimkvaðningarskilyrðinu við. Erlent 23.3.2007 17:23
Bardagasveitir frá Írak á næsta ári Neðri deild bandaríska þingsins samþykkti í dag að allar bardagasveitir hersins skuli vera komnir heima frá Írak hinn fyrsta september á næsta ári. Þar sem bardagasveitir eru sérstaklega tilteknar er haldið opnum þeim möguleika að stuðningsdeildir eins og verkfræðisveitir verði eitthvað lengur í landinu. Erlent 23.3.2007 17:06
Duglegur elskhugi Bresku hjónin Sara og Charles Bostock eru skilin eftir langt og farsælt hjónaband. Þeim varð sjö barna auðið og af þeim átti Charles tvö. Charles, sem í dag er á eftirlaunum, er 69 ára gamall. Hann býr einn. Sara er tuttugu árum yngri og býr með elskhuganum sem gjörði henni börnin fimm, sem Charles hélt að hann ætti. Erlent 23.3.2007 16:13
Bretar heimta sjóliða sína aftur Bretar hafa krafist þess að Íranar láti strax lausa fimmtán breska sjóliða sem þeir handtóku þegar þeir voru við venjubundið eftirlit um borð í flutningaskipi undan ströndum Íraks. Bretarnir veittu enga mótspyrnu þegar írönsk flotasveit dreif að þegar þeir voru á leið frá skipinu á gúmmíbátum sínum. Skipið sem þeir voru að skoða var í Íraskri landhelgi. Erlent 23.3.2007 16:09
Enn óvissa um stjórnarskrá Evrópusambandið heldur upp á fimmtíu ára afmæli sitt hinn 25. þessa mánaðar. Þann dag árið 1957 var stofnsáttmáli þess undirritaður í Rómarborg. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og líklega flestir sammála um að mikill árangur hafi náðst. Engu að síður er enn tekist á um grundvallaratriði, eins og til dæmis sameiginlega stjórnarskrá allra aðildarríkjanna. Á skýringarmyndinni hér til hliðar má sjá þróun sambandsins og þau mál sem helst steytir á. Erlent 23.3.2007 15:05
Ground control to Major Tom Frakkar hafa fyrstir þjóða opnað X-skýrslurnar svokölluðu, þar sem er að finna allar rannsóknir og tilkynningar til stjórnvalda um fljúgandi furðuhluti. Allar skýrslurnar hafa verið settar á sérstaka netsíðu. Talsmaður frönsku geimrannsóknarstofnunarinnar segir að þeir vonist til að með þessu verði hægt að tala um fyrirbærið án blindrar trúar eða fordóma. Erlent 23.3.2007 13:40
Enn barist í Mógadisjú Harðir bardagar héldu áfram í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í morgun, þriðja daginn í röð. Átök herskárra múslima við eþíópískar og sómalskar hersveitir hafa harnað síðustu vikur. Íbúar hafa flúið borgina í stórum hópum í gær og í morgun. Erlent 23.3.2007 12:13
Landar 508 hvölum Japanska verksmiðjuskipið Nisshin Maru legst að bryggju í Tokyo, í dag, með 508 hvali innanborðs. Blaðamenn fá ekki aðgang að bryggjunni sem skipið legst að, né heldur andstæðingar hvalveiða, sem búist er við að mæti á staðinn. Hvalkjötið verður étið eftir að vísindamenn hafa skoðað fenginn og tekið úr honum sýni. Erlent 23.3.2007 10:16
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent