Erlent Óheppileg þýðingarvilla Doris Moore, sem býr í Kanada var heldur brugðið þegar hún fékk nýja sófann sinn sendan heim. Sófinn var dökkbrúnn og fallegur, og í fyrstu var hún alsæl. Það fór þó af þegar hún sá litamiðann þar sem liturinn á sófanum var tiltekinn. Á honum stóð; "Nigger brown." Erlent 20.4.2007 16:33 Bráðasveit landamæravarða Innanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í dag að stofna 450 manna bráðasveit landamæravarða. Sveitina verður hægt að senda til landa eins og Spánar, ef fyrirsjáanlegt að mikill fjöldi ólöglegra innflytjenda sé að hellast yfir landið. Á síðasta ári komu 31.000 ólöglegir innflytjendur til Spánar. Erlent 20.4.2007 16:27 Bagdad skipt með múrveggjum Verkfræðingasveit bandaríska hersins er að reisa varnarvegg um hverfi súnní múslima í Bagdad. Bygging hans er sögð lykilþáttur í nýrri áætlun til að rjúfa vítahring ofbeldis milli súnní og sjía múslima í borginni. Þetta er annar múrveggurinn sem byggður er um hverfi súnnía í höfuðborginni. Erlent 20.4.2007 14:58 Hommar tapa máli í Moskvu Rússneskur dómstóll vísaði í dag frá máli tveggja homma gegn borgarstjóranum í Moskvu. Málið var höfðað vegna þess að Yuri Luzhkov hafði lýst hinsegin dögum sem djöfullegu athæfi. Yfirvöld í Moskvu bönnuðu hinsegin daga á síðasta ári. Þegar engu að síður var farið í skrúðgöngu handtók lögreglan þáttakendur. Herskáir kristnir menn Erlent 20.4.2007 14:41 Skýrslu skilað um sölu á aðalstignum Breska lögreglan hefur sent skýrslu sína um hugsanlega sölu á aðalstignum til ríkissaksóknarans. Málið hefur varpað skugga á ríkisstjórn Tonys Blair, síðustu mánuði hans í embætti. Saksóknari mun nú ákveða hvort gefin verður út ákæra og hvort forsætisráðherrann verður meðal hinna ákærðu. Erlent 20.4.2007 14:12 Neyddi börn sín til að berjast Erlent 20.4.2007 13:03
124 125 126 127 128 129 130 131 132 … 334 ›
Óheppileg þýðingarvilla Doris Moore, sem býr í Kanada var heldur brugðið þegar hún fékk nýja sófann sinn sendan heim. Sófinn var dökkbrúnn og fallegur, og í fyrstu var hún alsæl. Það fór þó af þegar hún sá litamiðann þar sem liturinn á sófanum var tiltekinn. Á honum stóð; "Nigger brown." Erlent 20.4.2007 16:33
Bráðasveit landamæravarða Innanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í dag að stofna 450 manna bráðasveit landamæravarða. Sveitina verður hægt að senda til landa eins og Spánar, ef fyrirsjáanlegt að mikill fjöldi ólöglegra innflytjenda sé að hellast yfir landið. Á síðasta ári komu 31.000 ólöglegir innflytjendur til Spánar. Erlent 20.4.2007 16:27
Bagdad skipt með múrveggjum Verkfræðingasveit bandaríska hersins er að reisa varnarvegg um hverfi súnní múslima í Bagdad. Bygging hans er sögð lykilþáttur í nýrri áætlun til að rjúfa vítahring ofbeldis milli súnní og sjía múslima í borginni. Þetta er annar múrveggurinn sem byggður er um hverfi súnnía í höfuðborginni. Erlent 20.4.2007 14:58
Hommar tapa máli í Moskvu Rússneskur dómstóll vísaði í dag frá máli tveggja homma gegn borgarstjóranum í Moskvu. Málið var höfðað vegna þess að Yuri Luzhkov hafði lýst hinsegin dögum sem djöfullegu athæfi. Yfirvöld í Moskvu bönnuðu hinsegin daga á síðasta ári. Þegar engu að síður var farið í skrúðgöngu handtók lögreglan þáttakendur. Herskáir kristnir menn Erlent 20.4.2007 14:41
Skýrslu skilað um sölu á aðalstignum Breska lögreglan hefur sent skýrslu sína um hugsanlega sölu á aðalstignum til ríkissaksóknarans. Málið hefur varpað skugga á ríkisstjórn Tonys Blair, síðustu mánuði hans í embætti. Saksóknari mun nú ákveða hvort gefin verður út ákæra og hvort forsætisráðherrann verður meðal hinna ákærðu. Erlent 20.4.2007 14:12
Átök blossa upp á ný Bardagar hafa blossað upp á ný í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, en þrjátíu manns hafa látið þar lífið í ofbeldisverkum undanfarins sólarhrings. Sameinuðu þjóðirnar segja algert neyðarástand ríkja meðal borgarbúa. Erlent 20.4.2007 12:39
Handfarangur minnkaður Evrópusambandið hefur frestað því til maí á næsta ári að setja reglur um stærð handfarangurs sem fólk má hafa með sér í flugvélar. Það er gert að beiðni flugfélaga, sem vilja fá rýmri tíma til þess að upplýsa farþega sína um nýju reglurnar. Erlent 20.4.2007 12:37
Gráðugi samverjinn Þrjátíu og tveggja ára gamall maður fannst látinn í járnbrautarlest á leið til Hamborgar. Hann var einn í vagninum og tuttugu og sex ára gamall maður sem fann hann var ekkert að láta af því vita. Þess í stað stal hann veski hins látna. Og sneri svo aftur og aftur að líkinu til þess að plokka af því armbandsúrið og aðra verðmæta hluti. Erlent 20.4.2007 11:38
Enga blauta kossa Ísraelsk kona beit óvart stykki úr tungu kærasta síns, í heitum ástarleik. Sem betur fer gleypti hún ekki bitann, og ók kærastanum á ofsahraða á næsta sjúkrahús, þar sem hann komst undir læknishendur. Heilbrigðisþjónusta er á háu stigi í Ísrael, og læknum tókst að sauma hinn brottnumda bita aftur á tunguna. Erlent 20.4.2007 11:26
Óvissuferðir Það er þrettán sinnum hættulegra að fljúga í Rússlandi en annarsstaðar í heiminum. Að Afríku meðtalinni. Afríka er þó ekki rómuð fyrir flugöryggi. Þetta kemur fram í tölum International Air Transport Association. Erlent 20.4.2007 10:39
Skíthræddir Það var alveg sama hvað yfirvöld í Austurríki reyndu, það tókst ekki að venja ökumenn af því að stoppa í vegkantinum og ganga örna sinna í næsta runna eða skurði. Sérstaklega voru það ökumenn frá Austur-Evrópu sem gerðu þetta, frekar en fara inn á næstu bensínstöð, þar sem salernisaðstaðan er þó ókeypis. Erlent 20.4.2007 10:32
Um 170 manns létust í Bagdad í dag. Um 170 manns létust í sprengjuárásum í Bagdad í dag. Eru þetta mannskæðustu sprengingar sem orðið hafa síðan Bandaríkjamenn byrjuðu að herða öryggi í borginni fyrir tveimur mánuðum síðan. Í einni árásinni fórust um 120 manns og aðrir 100 særðust þegar bílsprengja sprakk á markaðnum Sadriyah. Í febrúar síðastliðin sprakk sprengja á þessum sama markaði og varð þá 130 manns að bana. Erlent 18.4.2007 21:08
Dow Jones vísitalan aldrei hærri Dow Jones hlutabréfavísitalan fór í methæðir við lokun markaða í Bandaríkjanna í dag. Vísitalan hækkaði um 31 punkt í viðskiptum dagsins eftir nokkrar sveiflur og endaði í 2.803,84 stigum. Góð afkoma fjármálafyrirtækja á hlut að hækkun vísitölunnar en slæleg afkoma tæknifyrirtækja kom í veg fyrir að vísitalan færi enn hærra. Viðskipti erlent 18.4.2007 20:44
Sæll, hún er hætt með þér Flestir kannast við það að hafa grátið eða valdið táraflóði við sambandsslit elskenda. Sumir bara treysta sér ekki til þess að horfast í augu við elskuna sína og segja að allt sé búið. Þýskur maður hefur tekið að sér að gera það, gegn 4000 króna greiðslu. Erlent 18.4.2007 16:29
160 fórust í bílsprengjuárásum Bílsprengjur urðu að minnsta kosti 160 manns að fjörtjóni í Bagdad, í dag. Hver sprengjan af annarri sprakk nokkrum klukkustundum eftir að Nuiri al-Maliki, forsætisráðherra, lýsti því yfir að íraskar öryggissveitir muni taka við gæslu í öllu landinu um næstu áramót. Erlent 18.4.2007 14:14
Stýrivaxtahækkun vofir yfir Bretlandi Miklar líkur eru taldar á því að stýrivextir verði hækkaðir um 25 punkta hið minnsta í Bretlandi á næsta vaxtaákvörðunarfundi Englandsbanka í byrjun maí. Verðbólga mælist nú 3,1 prósent og hefur ekki verið meiri í áratug. Auk þessa stendur gengi breska pundsins í hámarki gagnvart bandaríkjadal en það hefur ekki verið hærra í 26 ár. Viðskipti erlent 18.4.2007 13:41
Dýrt að kúga konur Misrétti gagnvart konum kostar Asíu- og Kyrrahafsþjóðir um 80 milljarða dollara á ári, að mati Sameinuðu þjóðanna. Þetta fé tapast með því að takmarka aðgang kvenna að heilbrigðisþjónustu, skólum og atvinnutækifærum. Ef til dæmis indverskar konur kæmust út á vinnumarkaðinn í sama mæli og þær bandarísku, myndi það auka þjóðarframleiðsluna um meira en eitt prósent, eða 19 milljarða dollara. Erlent 18.4.2007 12:43
Kasparov settur í fjölmiðlabann Fréttamenn við eina stærstu einkareknu útvarpsstöð Rússlands, sögðu í dag að þeim hafi verið skipað að hleypa ekki stjórnarandstæðingum í þætti sína og fréttir. Skipanirnar koma frá nýjum stjórnendum stöðvarinnar sem voru fengnir frá ríkisrekinni sjónvarpsstöð. Nær allir ljósvakamiðlar Rússland hafa lent undir stjórn húsbændanna í Kreml, síðan Vladimir Putin varð forseti fyrir sjö árum. Erlent 18.4.2007 13:28
Fyrsta tap Motorola í fjögur ár Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola, annað stærsta farsímafyrirtæki í heimi, skilaði tapi upp á 181 milljón bandaríkjadala, 11,8 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Fyrirtækið hefur ekki skilað taprekstri í fjögur ár en hann er að mestu tilkominn vegna verðlækkana og sölu á ódýrum farsímum. Greinendur gera ráð fyrir áframhaldandi samdrætti á yfirstandandi fjórðungi. Viðskipti erlent 18.4.2007 12:12
BNA bjóða Rússum að skoða eldflaugastæði Bandaríkjamenn eru reiðubúnir að leyfa Rússum að skoða eldflaugavarnastöð sem þeir ætla að setja upp í Póllandi, til þess að sannfæra Rússa um að hún ógni ekki hagsmunum þeirra. Bandaríkjamenn vilja setja upp tíu eldflaugar í Póllandi og ratsjárstöð í Tékklandi fyrir árið 2012. Erlent 18.4.2007 11:03
Forseti S-Kóreu harmar morðin Forseti Suður-Kóreu hefur lýst harmi yfir fjöldamorðunum sem brottfluttur landi hans framdi í Bandaríkjunum. Kóreskir embættismenn héldu í gær neyðarfundi um málið, þar sem þeir óttast hefndaraðgerðir gegn þeim mikla fjölda Kóreumanna sem búa í Bandaríkjunum. Erlent 18.4.2007 10:42
Kennari varaði margsinnis við morðingjanum Fyrrverandi kennari við Virginía Tech háskólann segir að hún hafi margsinnis varað skólayfirvöld við Cho Seung-Hui, sem myrti 32 nemendur og kennara við skólann. Hún vakti fyrst athygli á honum árið 2005, en segir að aðvaranir hennar hafi ekki verið teknar alvarlega. Bekkjarbróðir morðingjans segir að skrif hans hafi verið eins og "eitthvað upp úr martröð." Erlent 18.4.2007 10:16
Niðurskurðarhnífnum beitt hjá Sony Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur látið í veðri vaka að hann ætli að fækka í starfsliði sínu í Evrópu. Verði það raunin getur svo farið að 160 manns verði sagt upp störfum. Forsvarsmenn Sony segja hagræðingu í Evrópuhluta fyrirtækisins ekki tengjast dræmri sölu á PlayStation 3, nýjustu leikjatölvunni frá fyrirtækinu, sem kom út í enda síðasta mánaðar. Leikjavísir 18.4.2007 08:57
Hollenskir bjórframleiðendur sektaðir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur dæmt hollensku bjórframleiðendurna Heineken, Grolsch og Bavaria til að greiða um 273,7 milljónir evra, jafnvirði rúmra 24 milljarða íslenskra króna, í sektir vegna ólögmæts verðsamráðs fyrirtækjanna og aðrar samkeppnishamlandi aðgerðir. Viðskipti erlent 18.4.2007 09:29
Samdráttur hjá Yahoo Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Yahoo nam 142 milljónum bandaríkjadala, rúmlega 9,2 milljörðum íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þetta er 11 prósenta samdráttur frá sama tíma í fyrra. Afkoman er undir væntingum greinenda. Fyrirtækið barist hart á netmarkaðnum við risann Google. Viðskipti erlent 17.4.2007 21:47
Hagnaður IBM jókst um 8 prósent milli ára Bandaríski tölvurisinn IBM skilaði hagnaði upp á 1,8 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 117,4 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er átta prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Mesti vöxturinn var í þjónustuhluta fyrirtækisins og yfirtökum á öðrum fyrirtækjum. Viðskipti erlent 17.4.2007 21:07
Knútur tekur tennur Hvítabjarnarhúnninn Knútur skemmti gestum í dýragarðinum í Berlín í dag en í gær fékk hann að hvíla sig af því að hann var með tannverki. Að sögn dýrahirða í garðinum bar litli anginn sig þá aumlega þar sem hann er að taka tennur en nokkrar verkjatöflur hafa hins vegar slegið á óþægindin. Erlent 17.4.2007 19:07
Sego saxar á Sarko Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í frönsku forsetakosningunum, hefur sótt mjög í sig veðrið undanfarna daga og mælist nú með nánast jafn mikið fylgi og helsti keppinautur sinn, Nicolas Sarkozy. Fyrri umferð kosninganna fer fram á sunnudaginn. Erlent 17.4.2007 19:04
Andúð á ríkum ungmennum sögð ástæðan Andúð á auðugum ungmennum er sögð rót fjöldamorðanna óhugnanlegu í Blacksburg í Virginíu í gær. 23 ára gamall suðurkóreskur maður stráfelldi þá 32 samnemendur sína og starfsmenn við aðalháskóla borgarinnar. Íslensk kona sem stundar nám við skólann segir mikinn samhug hafa ríkt á meðal nemenda skólans í dag. Erlent 17.4.2007 19:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent