Erlendar

Fréttamynd

Lítið jólaskap í Kobe og Shaq

Annað árið í röð mættust fyrrum félagarnir Kobe Bryant og Shaquille O´Neal að kvöldi jóladags með liðum sínum LA Lakers og Miami Heat. Shaq og félagar höfðu betur í gærkvöldi eins og í fyrra 97-92. Þá mættust liðin sem léku til úrslita í fyrra, Detroit Pistons og San Antonio Spurs í Detroit, þar sem heimamenn höfðu betur 85-70.

Sport
Fréttamynd

Ég er fasisti, ekki rasisti

Hinn umdeildi Paolo di Canio hjá Lazio á Ítalíu heldur áfram að valda fjaðrafoki með fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum og hefur verið sektaður og dæmdur í leikbann í kjölfarið. Sjálfur segist hann aðeins vera misskilinn og hefur nú tekið það skýrt fram að hann sé fasisti - ekki rasisti.

Sport
Fréttamynd

Óttaðist að komast ekki á HM

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, viðurkenndi í viðtali um helgina að hann hafi á tímabili óttast að liðið kæmist ekki á HM vegna slakrar spilamennsku. Þetta hafi sérstaklega átt við þegar Englendingar voru rassskelltir í Danmörku og þegar liðið tapaði fyrir Norður-Írum í haust.

Sport
Fréttamynd

Toppmöller tekur við Georgíu

Þýski þjálfarinn Klaus Toppmöller, sem náði frábærum árangri með Bayer Leverkusen árið 2002, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Georgíu og mun skrifa formlega undir tveggja ára samning fljótlega. Landslið Georgíu endaði í næstneðsta sæti riðils síns í haust og því var þjálfara liðsins sagt upp störfum í kjölfarið.

Sport
Fréttamynd

Kobe og Shaq kljást á jólunum

Það er engu líkara en að forráðamenn NBA deildarinnar séu með afbrigðum kaldhæðnir, því annað árið í röð mætast fyrrum liðsfélagarnir og erkifjendurnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant í leik að kvöldi jóladags. Leikur Miami Heat og LA Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:30 á jóladag.

Sport
Fréttamynd

Heinze missir af HM

Sir Alex Ferguson hefur látið hafa eftir sér að hann óttist að argentínski landsliðsmaðurinn Gabriel Heinze muni missa af HM í sumar vegna alvarlegra hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leik með Manchester United í Meistaradeildinni í haust.

Sport
Fréttamynd

Íhugar tilboð í Walter Pandiani

Birmingham hefur borist kauptilboð í framherjann Walter Pandiani sem er langt undir þeirri upphæð sem liðið borgaði fyrir hann þegar hann var keyptur fyrir aðeins sex mánuðum síðan.

Sport
Fréttamynd

Yfirtaka fyrirhuguð fyrir áramót

Hópur fjárfesta sem undirbýr yfirtöku á knattspyrnufélaginu Aston Villa hefur fullan hug á því að klára málið fyrir áramót, en þeir vonast til að kaupa félagið af Doug Ellis fyrir upphæð sem nemur 64,4 milljónum punda.

Sport
Fréttamynd

Floro ráðinn til Real Madrid

Benito Floro, fyrrum þjálfari hjá Real Madrid, var í dag ráðinn sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Hinn 53 ára gamli Spánverji starfaði sem þjálfari hjá félaginu á árunum 1992-94 og mun í dag starfa með núverandi þjálfara liðsins Juan Ramon Lopez Caro, sem tók við þjálfun eftir að Wanderlei Luxemburgo hætti á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Gardner orðaður við Charlton

Varnarmaðurinn Anthony Gardner hjá Tottenham er nú orðaður við grannaliðið Charlton þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar í janúar. Talið er að Gardner muni kosta um 2 milljónir punda, en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði Tottenham, þar sem meiðsli hafa gjarnan sett strik í reikninginn hjá honum.

Sport
Fréttamynd

Vlaar fer ekki til Tottenham

Hollenski varnarmaðurinn Ron Vlaar mun ekki ganga til liðs við Tottenham Hotspurs eins og til stóð og nú hefur landi hans Martin Jol vísað fregnum af kaupunum á bug. Jol var ósáttur við að fréttir af fyrirhuguðum kaupum á leikmanninum lækju í fréttirnar og segir að hann hafi úr fjölda varnarmanna að moða í liði sínu og hafi ekkert við einn í viðbót að gera.

Sport
Fréttamynd

Boateng verður frá í átta vikur

Hollenski miðjumaðurinn George Boateng hjá Middlesbrough verður frá keppni í átta vikur vegna ökklameiðsla sem hann hlaut í bikarleiknum gegn Blackburn í vikunni. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir lið Boro, því Boateng er lykilmaður í öllu miðjuspili liðsins.

Sport
Fréttamynd

Tví-Bent á The Valley í janúar?

Forráðamenn Charlton eru sagðir vera að undirbúa tilboð í sóknarmanninn Marcus Bent hjá Everton í janúar, en fyrir í framlínu Charlton er hinn ungi Darren Bent, sem vann sér sæti í enska landsliðshópnum í haust með góðri byrjun á tímabilinu. Framherjarnir tveir eru ekki skildir þó þeir beri sama eftirnafn.

Sport
Fréttamynd

Iðrast orða sinna í garð Wenger

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist sjá eftir því að hafa kallað Arsene Wenger gluggagægir á sínum tíma og viðurkennir að hann mundi taka orð sín til baka ef hann gæti. Þetta viðurkennir Mourinho í samtali við breska blaðið The Sun.

Sport
Fréttamynd

Skjóttu mig ef þú vilt verða frægur

Argentíska knattspyrnugoðið Diego Maradona komst í hann krappann á flugvelli í Brasilíu í gær, þegar hann reyndi að troða sér um borð í flugvél eftir að hafa mætt of seint. Hann var handtekinn fyrir að vera með leiðindi á vellinum eftir að ljóst var að hann næði ekki fluginu, en þótti móttökur öryggisvarða heldur glannalegar.

Sport
Fréttamynd

Belgar ráða landsliðsþjálfara

Belgíska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að Rene Vanderwycken yrði næsti landsliðsþjálfari Belga í knattspyrnu. Samningur hans nær til ársins 2008, en hann er fyrrum landsliðsmaður og er 52 ára gamall. Vandereycken tekur við af Aime Anthenunis, sem tekur við þjálfun Lokeren í Belgíu. Vandereycken var áður þjálfari Genk.

Sport
Fréttamynd

Ungverjar fyrstu gestirnir á nýja Wembley

Nú hefur verið staðfest að Ungverjar verði fyrsta þjóðin til að mæta Englendingum á nýja Wembley leikvangnum í vor, en framkvæmdir við völlinn standa nú sem hæst og eru raunar margir dauðhræddir um að verkið klárist ekki í tæka tíð fyrir úrslitaleikinn í enska bikarnum.

Sport
Fréttamynd

Osasuna saxaði á forskot Barcelona

Spútniklið Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni minnkaði forskot Barcelona niður í tvö stig í gærkvöldi, þegar liðið vann 2-1 sigur á Atletico Madrid í lokaleik ársins í úrvalsdeildinni. Osasuna vann þar með níunda heimasigur sinn í röð, sem er met, og minnkaði forskot meistaranna niður í tvö stig á toppnum.

Sport
Fréttamynd

Skelfilegt gengi hjá Leverkusen

Hvorki gengur né rekur hjá liði Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta, en landsliðsmaðurinn Jakob Sigurðarson leikur með liðinu. Liðið tapaði enn einum leiknum sínum í gærkvöldi, nú fyrir Nurnberg 83-80 á heimavelli sínum. Jakob kom lítið við sögu í leiknum, en þetta var níunda tap Leverkusen í síðustu tíu leikjum og ljóst að botnbaráttan er það sem koma skal hjá liðinu ef gengi þess lagast ekki.

Sport
Fréttamynd

Souness vill að Shearer verði eitt ár enn

Graeme Souness, stjóri Newcastle, vill að fyrirliðinn Alan Shearer hætti við að hætta eftir þetta tímabil og verði eitt ár í viðbót með liðinu. Shearer hugleiddi að hætta eftir síðasta tímabil, en fékkst til að halda áfram og nú eru sömu vangavelturnar komnar upp á borð hjá hinum 36 ára gamla sóknarmanns.

Sport
Fréttamynd

Leikmenn United lögðu ekki nógu hart að sér

Goðsögnin Sir Bobby Charlton hjá Manchester United segir að ástæðan fyrir lélegu gengi félagsins í Meistaradeildinni, þar sem liðið endaði á botni riðils síns og komst ekki einu sinni í Evrópukeppni félagsliða fyrir vikið, sé að leikmenn hafi ekki lagt sig nógu vel fram.

Sport
Fréttamynd

Óviss með að fara til Tottenham

Varnarmaðurinn ungi, Ron Vlaar hjá AZ Alkmaar í Hollandi, er ekki viss um að hann vilji fara til Englands og ganga til liðs við úrvalsdeildarlið Tottenham ef marka má heimildir BBC. AZ og Tottenham höfðu samið um kaupverð á leikmanninum, en heimildir herma að hann sé tvístíga með að yfirgefa foreldrahús og flytja til annars lands. Búist er við að Vlaar taki ákvörðun á næstu tveimur vikum.

Sport
Fréttamynd

George Burley tekur við Southampton

George Burley, fyrrum stjóri Hearts og Ipswich, verður næsti stjóri 1. deildarliðs Southampton, en þetta verður tilkynnt formlega seinnipartinn í dag. Sir Clive Woodward mun gegna stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu, en Dave Bassett, sem hefur gegnt stöðu knattspyrnustjóra síðan Harry Redknapp fór til Portsmouth, mun fara frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Nowitzki og James heitir

Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Cleveland vann góðan útisigur á Chicago á útivelli 108-100, þar sem LeBron James skoraði 37 stig fyrir Cleveland, en Ben Gordon var með 22 stig fyrir Chicago. Dallas lagði Sacramento á útivelli 105-95. Dirk Nowitzki skoraði 37 stig fyrir Dallas, en Mike Bibby skoraði 22 stig fyrir Sacramento.

Sport
Fréttamynd

Sacramento tekur á móti Dallas

Leikur Sacramento Kings og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV í nótt. Staða þessara liða er mjög ólík, því lið Sacramento á mjög erfitt uppdráttar í vetur, liðið fékk til sín marga nýja leikmenn í sumar og svo hafa meiðsli sett svip sinn á leik liðsins. Allt gengur hinsvegar í haginn hjá Dallas, sem hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir að hafa enn ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði í vetur.

Sport
Fréttamynd

Krefst þess að fá að fara frá félaginu

Hinn 29 ára gamli Mark Delaney hjá Aston Villa hefur farið fram á það opinberlega að vera seldur frá félaginu því honum þykir sem liðið hafi engan áhuga á að gera við sig nýjan samning. Delaney er landsliðsmaður Wales og á aðeins sex mánuði eftir af samningi sínum við Villa, en David O´Leary stjóri Villa, segist ekki vilja semja við hann nema hann komi sér í betra form en verið hefur.

Sport
Fréttamynd

Minningarathöfn um Richard Burns haldin í dag

Í dag var haldin sérstök minningarathöfn um rallýkappann Richard Burns, en hann lést af völdum heilaæxlis í síðasta mánuði, aðeins 34 ára að aldri. Burns er eini Englendingurinn sem hefur unnið heimsmeistaratitil ökumanna í ralli, en hann náði þeim árangri á Subaru-bíl sínum árið 2001.

Sport
Fréttamynd

Mér verður ekki sagt að þegja

Jose Mourinho hefur lýst því yfir að honum verði ekki sagt að þegja og segist muni halda áfram að tjá skoðanir sínar. Þetta segir hann á meðan hann bíður eftir úrskurði aganefndar enska knattspyrnusambandsins vegna ummæla hans um leikmann Wigan, sem hann kallaði svindlara í leik Wigan og Chelsea á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Bayern mætir Mainz í 8-liða úrslitunum

Bayern Munchen tryggði sér í gærkvöld sæti í undanúrslitum þýska bikarsins með sigri á HSV 1-0. Það var enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sem skoraði mark Bayern í framlengingu. Þriðjudeildarlið St.Pauli sló Hertha Berlin úr keppni með sigri í framlengingu 4-3.

Sport
Fréttamynd

Tottenham heldur Mido lengur en áætlað var

Enska úrvalsdeildarliðið Tottenahm er við það að ná samningum við egypska knattspyrnusambandið um að fá að halda sóknarmanninum Mido eins lengi og hægt er áður en hann fer í Afríkukeppnina með landsliði sínu. Hann fer væntanlega ekki í keppnina fyrr en fjórum til fimm dögum áður en hún hefst og er það forráðamönnum enska liðsins mikill léttir.

Sport