Sport

Ungverjar fyrstu gestirnir á nýja Wembley

Englendingar vilja eflaust ekki endurtaka leikinn frá því árið 1953 í vor
Englendingar vilja eflaust ekki endurtaka leikinn frá því árið 1953 í vor NordicPhotos/GettyImages

Nú hefur verið staðfest að Ungverjar verði fyrsta þjóðin til að mæta Englendingum á nýja Wembley leikvangnum í vor, en framkvæmdir við völlinn standa nú sem hæst og eru raunar margir dauðhræddir um að verkið klárist ekki í tæka tíð fyrir úrslitaleikinn í enska bikarnum.

Ungverjar urðu á sínum tíma fyrsta liðið til að leggja Englendinga að velli á Wembley á sínum tíma, en það var árið 1953, þar sem Ungverjarnir höfðu sigur 6-3. Nú stendur til að þjóðirnar spili fyrsta landsleikinn á nýja Wembley þann 30 maí, þar sem Englendingar munu leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir HM skömmu síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×