Sport

Iðrast orða sinna í garð Wenger

"Fyrirgefðu, gamli."  Jose Mourinho leitar sátta við Arsene Wenger
"Fyrirgefðu, gamli." Jose Mourinho leitar sátta við Arsene Wenger NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist sjá eftir því að hafa kallað Arsene Wenger gluggagægir á sínum tíma og viðurkennir að hann mundi taka orð sín til baka ef hann gæti. Þetta viðurkennir Mourinho í samtali við breska blaðið The Sun.

"Ég sé eftir því að hafa látið þessi orð falla við Arsene. Það var ekki ætlunin að særa hann. Ef ég gæti farið til baka og breytt því sem ég sagði, hefði ég líklega bara sagt honum að hætta að skipta sér að liði mínu og einbeita sér að sínu, í stað þess að láta eitthvað særandi falla. Það var ekki ætlunin að gera það og ég mundi breyta því sem ég sagði ef ég gæti það," sagði Mourinho, sem greinilega er kominn í jólaskapið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×