Erlendar

Fréttamynd

Miami komið í þægilega stöðu

Miami Heat lagði New Jersey 102-92 í fjórða leik liðanna í nótt og er þar með komið yfir 3-1 í einvíginu í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Dwayne Wade fór að venju á kostum í liði Miami, en það voru minni spámenn á borð við Antonie Walker og Udonis Haslem sem riðu baggamuninn í nótt.

Sport
Fréttamynd

Larry Brown rekinn frá New York?

Heimildarmaður dagblaðsins New York Daily News greindi frá því um helgina að stjórnarformaður New York Knicks væri alvarlega að hugsa um að kaupa upp samning þjálfarans Larry Brown og láta hann fara frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Ciudad tapaði úrslitaleiknum

Nýkrýndir Evrópumeistarar Ciudad Real töpuðu úrslitaleiknum í spænska bikarnum í dag fyrir liði Valladolid 35-30. Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk fyrir Ciudad í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Tveir nýliðar í landsliðshópi Frakka

Tveir nýliðar verða í landsliðshópi Frakka fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar, en hópurinn var tilkynntur í dag. Miðjumaðurinn Franck Ribery hjá Marseille, sem kallaður hefur verið nýr Zidane, er í 23 manna hópi Frakka í fyrsta sinn líkt og bakvörðurinn Pascal Chimbonda hjá Wigan.

Sport
Fréttamynd

New Jersey - Miami á Sýn

Fjórði leikur New Jersey Nets og Miami Heat verður sýndur á Sýn í kvöld um klukkan 22:30. Miami hefur yfir 2-1 í einvíginu og getur komist í þægilega stöðu með sigri í New Jersey í kvöld. Klukkan tólf á miðnætti er svo fjórði leikur LA Clippers og Phoenix Suns sýndur í beinni útsendingu á NBA TV.

Sport
Fréttamynd

Ólöf María hafnaði í 36. sæti

Íslandsmeistarinn Ólöf María Jónsdóttir hafnaði í 36.-44. sæti á Opna Spánarmótinu í golfi sem fram fór í Castellon um helgina. Ólöf lauk keppni á tveimur höggum yfir pari eftir að hafa leikið á 3 höggum yfir pari á lokadeginum.

Sport
Fréttamynd

Hörður skoraði í sigri Silkeborg

Hörður Sveinsson skoraði fyrsta mark Silkeborg í óvæntum 3-2 útisigri liðsins á meistudum FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Silkeborg hafnaði því í 8. sæti deildarinnar, en Kaupmannahafnarliðið sigraði í deildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Bölvar "meindýrum" í skoska boltanum

Vladimir Romanov notaði tækifærið eftir að lið hans varð bikarmeistari í gær til að viðra samsæriskenningar sínar um skosku úrvalsdeildina. Romanov segir það hneyksli að lið hans skildi ekki verða meistari og kennir um "meindýrum" eins og dómurum, umboðsmönnum og knattspyrnuyfirvöldum í landinu.

Sport
Fréttamynd

Nadal lagði Federer og jafnaði met

Spænski tenniskappinn Rafael Nadal hafði betur gegn Roger Federer í úrslitaleik meistaramótsins í Róm sem lauk nú síðdegis. Þetta var 53. sigur Nadal í röð á leirvelli sem er metjöfnun. Federer hefur aðeins tapað tveimur leikjum á tennisvellinum í ár og bæði voru þau gegn hinum unga Nadal, sem hafði betur í dag 6-7 (0-7) 7-6 (7-5) 6-4 2-6 7-6 (7-5) í æsilegum úrslitaleik.

Sport
Fréttamynd

Hatton lagði Collazo í frábærum bardaga

Ricky Hatton mætti líklega einhverjum sterkasta andstæðingi sínum á ferlinum þegar hann lagði hinn örvhenta Luis Collazo naumlega í Boston Garden í nótt. Hatton er þar með orðinn heimsmeistari WBA meistari í veltivigt og sveik engann í fyrsta bardaga sínum í Bandaríkjunum sem sýndur var beint á Sýn í nótt.

Sport
Fréttamynd

Chelsea staðfestir áhuga sinn á Shevchenko

Forráðamenn Chelsea hafa nú staðfest það í samtali við breska fjölmiðla að félagið hafi áhuga á úkraínska framherjanum Andriy Shevchenko hjá AC Milan og reyni væntanlega að fá hann í sínar raðir í sumar.

Sport
Fréttamynd

Ballack í raðir Chelsea á mánudag

Nú hefur verið staðfest að Michael Ballack hjá Bayern Munchen muni ganga formlega í raðir Englandsmeistara Chelsea á mánudaginn, þegar haldinn verður sérstakur blaðamannafundur til að tilkynna komu hans. Jose Mourinho segist ánægður með þær viðræður sem hann hafi átt við þýska leikmanninn og fagnar jákvæðu hugarfari hans í garð vistaskiptanna.

Sport
Fréttamynd

Juventus meistari

Juventus tryggði sér í dag Ítalíumeistaratitilinn í knattspyrnu, annað árið í röð, þegar liðið lagði Reggina 2-0 í lokaumferðinni þar í landi. Helstu keppinautar Juve í AC Milan unnu einnig leik sinn, en Tórínó-liðið hafði þriggja stiga forystu fyrir leikinn. David Trezeguet og Alessandro del Piero skoruðu mörk meistaranna í dag.

Sport
Fréttamynd

Alonso sigraði á heimavelli

Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði örugglega í Spánarkappakstrinum sem fram fór í Barcelona í dag. Alonso leiddi frá upphafi til enda í dag og olli fjölmörgum stuðningsmönnum sínum engum vonbrigðum. Michael Schumacher hjá Ferrar hafnaði í öðru sæti og Giancarlo Fisichella hjá Renault varð þriðji.

Sport
Fréttamynd

Dallas komið í vænlega stöðu

Dallas Mavericks hefur náð 2-1 forystu í einvígi sínu við meistara San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Í gær vann liðið 105-104 í æsispennandi leik og næsti leikur fer einnig fram á heimavelli Dallas.

Sport
Fréttamynd

Cleveland lagði Detroit

Cleveland Cavaliers lagði Detroit Pistons 86-77 í nótt og minnkaði munninn í 2-1 í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. LeBron James skoraði 15 af 21 stigi sínu í fjórða leikhluta og hirti auk þess 10 fráköst og var með 10 stoðsendingar. Rip Hamilton var stigahæstur hjá Detroit með 22 stig.

Sport
Fréttamynd

Nistelrooy fyrir Diarra?

Talsmaður franska stórliðsins Lyon segir að félagið hefði ekkert á móti því að krækja í Ruud van Nistelrooy í staðinn ef Manchester United hefði áhuga á að kaupa miðjumanninn sterka Mahamadou Diarra.

Sport
Fréttamynd

De Santis fer ekki á HM

Ítalska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt FIFA að það sé hætt við að senda dómarann Massimo de Santis til keppni á HM eftir að ljóst var að hann væri viðriðinn stóra knattspyrnuhneykslið þar í landi. Aðstoðardómararnir sem áttu að fara með de Santis á HM hafa einnig verið settir út úr myndinni.

Sport
Fréttamynd

Federer og Nadal mætast í úrslitum í Róm

Það verða Roger Federer og Rafael Nadal sem leika til úrslita á meistaramótinu í tennis sem fram fer í Róm, eftir að þeir lögðu andstæðinga sína í undanúrslitum í dag. Nadal er eini maðurinn sem hefur lagt Federer að velli á árinu og með sigri getur hann jafnað metið yfir flesta sigurleiki í röð á leirvelli.

Sport
Fréttamynd

Hearts bikarmeistari

Úrvalsdeildarlið Hearts frá Edinborg varð í dag skoskur bikarmeistari í sjöunda sinn þegar liðið lagði 2. deildarlið Gretna í úrslitaleik eftir framlengingu og vítakeppni. Gretna-liðið hefur farið upp um deild tvö ár í röð og slapp við að mæta úrvalsdeildarliði í bikarnum í ár alla leið í úrslitin, þar sem heppnin var á bandi Hearts í vítakeppninni.

Sport
Fréttamynd

Skotar fögnuðu sigri

Skotar tryggðu sér í dag sigur á æfingamótinu Kirin Cup í Japan, þrátt fyrir markalaust jafntefli í leiknum sem réði úrslitum á mótinu. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum en náðu ekki að nýta færi sín og því fögnuðu Skotarnir sigrinum.

Sport
Fréttamynd

Körfuboltaveisla um helgina á Sýn og NBA TV

Það verður að venju mikið um dýrðir í NBA körfuboltanum um helgina og hægt verður að fylgjast með fjölda leikjanna á Sýn og NBA TV, en báðir leikir kvöldsins verða til að mynda í sjónvarpinu. Leikur Cleveland og Detroit verður sýndur á Sýn um klukkan 22 í kvöld og þá verður bein útsending á NBA TV síðar um miðnætti frá þriðja leik Dallas og San Antonio.

Sport
Fréttamynd

Biðum eftir vítakeppninni

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og maður bikarúrslitaleiksins í dag, sagði að sigurinn hefði verið einstakur fyrir sig. Þrátt fyrir hetjulega tilburði markvarðarins Jose Reina í lokin, var það Gerrard sem var maður leiksins og hann þakkaði sigurinn baráttuanda Liverpool-liðsins.

Sport
Fréttamynd

Óheppnin eltir Coulthard

David Coulthard hafði ekki heppnina með sér í tímatökunum fyrir Spánarkappaksturinn í dag, en hann verður á morgun aðeins áttundi ökumaðurinn í sögunni til að taka þátt í 200 keppnum. Coulthard ók bíl sínum út af brautinni í dag og þarf að ræsa í næst síðasta sætinu á morgun.

Sport
Fréttamynd

Shevchenko er ekki til sölu

Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að þangað til félaginu berst formleg beiðni frá frá leikmanninum sjálfum um að fá að vera settur á sölulista, sé Andriy Shevchenko hreinlega ekki til sölu.

Sport
Fréttamynd

Liverpool bikarmeistari

Liverpool vann í dag enska bikarinn í knattspyrnu þegar liðið lagði West Ham í dramatískum leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakeppni. Þar var það markvörður liðsins Jose Reina sem var hetja dagsins þegar hann varði þrjár spyrnur West Ham-manna í vítakeppninni.

Sport
Fréttamynd

Ólöf aftur á pari

Íslandsmeistarinn Ólöf María Jónsdóttir úr Keili lauk þriðja hringnum á opna Spánarmótinu á pari í dag og er því samtals á einu höggi undir pari. Ólöf er því í 18.-22 sæti keppenda á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Wigan hafnar tilboði Tottenham í Chimbonda

Wigan hefur sagt þvert nei við 3 milljón punda tilboði Tottenham í bakvörðinn knáa Pascal Chimbonda og stendur félagið fast á því að fá helmingi hærri upphæð en það fyrir leikmanninn. Chimbonda vill fara frá Wigan í sumar.

Sport
Fréttamynd

Kristján skoraði fyrir Brann

Íslendingalið Brann sigraði Sandefjord 2-0 í fyrsta leiknum í norska boltanum í dag. Kristján Örn Sigurðsson skoraði annað marka Brann í leiknum, sem reyndar var nokkuð umdeilt. Ólafur Örn Bjarnason var einnig í liði Brann í dag, sem skaust í annað sæti deildarinnar með sigrinum.

Sport
Fréttamynd

Framlengt í Cardiff

Úrslitaleikurinn í enska bikarnum í dag er að verða ansi sögulegur, en grípa þarf til framlengingar eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma er 3-3. Lengst af leit út fyrir að West Ham færi með sigur af hólmi í leiknum, en Steven Gerrard var enn og aftur hetja þeirra rauðklæddu þegar hann skoraði stórglæsilegt mark með viðstöðulausu skoti af 30 metra færi undir lokin.

Sport