Erlendar

Fréttamynd

Dawson inn fyrir Young

Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu hefur kallað á Michael Dawson, varnarmann Tottenham til að vera til taks fyrir HM í Þýskalandi í næsta mánuði. Hinn 22 ára Dawson tekur sæti Luke Young, leikmanns Charlton sem meiddist á ökkla á æfingu.

Sport
Fréttamynd

Watford yfir í háfleik gegn Leeds

Watford er yfir gegn Leeds, 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jay DeMerit skoraði eina mark leiksins á 25. mínútu en leikið er á Þúsaldarvellinum í Cardiff undir lokuðu þaki.

Sport
Fréttamynd

Etoo markakóngur á Spáni

Kamerúninn Samúel Etoo varð markakóngurinn í spænska fótboltanum. Evrópu og Spánarmeistarar Barcelona máttu þola ósigur, 3-1 fyrir Athletic Bilbao í síðasta leiknum í spænsku úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Watford eða Leeds í úrvalsdeildina

Leeds og Watford keppa í dag um réttinn til þess að spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en úrslitaleikur liðanna hófst nú kl 14. Leikurinn fer fram á Þúsaldarvellinum í Cardiff og er sýndur beint á Sýn. Gylfi Einarsson er ekki í leikmannahópi Leeds.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári í skiptum fyrir Nistelrooy?

Enska dagblaðið News of the World greinir frá því í dag að fótboltaliðin Chelsea og Manchester United skipti hugsanlega á leikmönnum. Samkvæmt blaðinu er Eiður Smári Guðjohnsen á leið til Manchester United en hollenski sóknarmaðurinn hjá United, Ruud van Nistelrooy fer í staðinn til Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Samkomulag um framtíð F1 í höfn

Bernie Ecclestone skrifaði í dag undir samkomulag við lið Renault, BMW, Mercedes, Honda og Toyota um að halda áfram keppni í heimsmeistaramótinu á næstu árum, en þessi lið höfðu hótað að draga sig úr keppni og stofna nýtt mót vegna almennrar óánægju með fyrirkomulag mótsins í núverandi mynd og vildu stærri hluta af innkomunni.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári er til sölu

Jose Mouriho gaf það út í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina í dag að Chelsea væri tilbúið að taka við kauptilboðum í landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen. Mourinho segir Chelsea áfram hafa not fyrir hann, en segir að félagið muni þó athuga málið ef gott tilboð fæst í hann.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur á pari í Belgíu

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er að leika samtals á pari á áskorendamótinu í Belgíu eftir að hann lauk keppni í dag á einu höggi undir pari í dag, 71 höggi og er kominn í gegn um niðurskurðin á mótinu. Birgir kláraði á 73 höggum í gær eða einu höggi yfir pari.

Sport
Fréttamynd

Ólöf náði sér ekki á strik

Ólöf María Jónsdóttir náði sér ekki á strik á öðrum degi opna svissneska meistaramótsins í golfi í dag, en eftir að hafa leikið á tveimur höggum undir pari í gær, lauk hún keppni á sjö höggum yfir pari í dag. Ólöf komst fyrir vikið ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Grönholm í forystu

Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford hefur forystu eftir fyrstu 6 sérleiðirnar í Sardínurallinu á Ítalíu sem hófst í dag. Grönholm hefur rúmrar hálfrar mínútu forskot á heimsmeistarann Sebastien Loeb á Citroen eftir að hafa unnið fjórar af sex fyrstu leiðunum á fyrsta keppnisdeginum.

Sport
Fréttamynd

Danny Williams kemur inn fyrir Harrison

Þungavigtarhnefaleikarinn Danny Williams hefur samþykkt að koma í stað Scott Harrison á hnefaleikakvöldinu í Belfast á annað kvöld, en Harrison hætti við að keppa til að fara í áfengismeðferð. Williams mun hita upp fyrir annan bardaga sinn við Matt Skelton með því að berjast við lítt þekktan Þjóðverja.

Sport
Fréttamynd

Slegist um Andy Johnson

Nú er útlit fyrir að nokkur úrvalsdeildarfélög muni há harða baráttu um að landa framherjanum Andy Johnson frá Crystal Palace í sumar eftir að liði hans tókst ekki að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eins og til stóð. Everton hefur nú bæst í hóp Bolton og Wigan, sem talin eru ætla að bjóða allt að 7 milljónir punda í Johnson.

Sport
Fréttamynd

Stórleikir í beinni á Sýn og NBA TV

Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni NBA í kvöld og gefst íslenskum körfuboltaáhugamönnum tækifæri til að sjá þá báða í beinni útsendingu. Sjötti leikur Detroit og Cleveland verður í beinni á NBATV um miðnættið og sjötti leikur San Antonio og Dallas á Sýn klukkan 1:30.

Sport
Fréttamynd

Ákvörðun Henry lykillinn að framtíðinni

Arsene Wenger segist hafa sett sér tvö markmið í vikunni og í dag náði hann öðru þeirra. Arsenal tókst ekki að vinna Barcelona í úrslitum meistaradeildarinnar, en Wenger segir að ákvörðun Thierry Henry um að framlengja samning sinn í dag hafi verið mikilvægari en að vinna meistaradeildina.

Sport
Fréttamynd

Drogba verður ekki seldur

Jose Mourinho segir að ekki komi til greina að selja Fílabeinsstrandarmanninn Didier Drogba frá Chelsea, en framherjinn hefur látið það í ljós að undanförnu að hann vilji fara frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Bruce verður áfram stjóri

Steve Bruce verður áfram knattspyrnustjóri Birmingham, þrátt fyrir að liðið hafi fallið í fyrstu deildina í vor. Þetta var staðfest á blaðamannafundi í Birmingham í dag og þar á bæ eru menn staðráðnir í að dvelja ekki nema eitt tímabil í næstefstu deild.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Napoli

Napoli, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í ítölsku A-deildinni í körfuknattleik, vann í gær auðveldan sigur á Udine 107-87 í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni þar í landi. Jón Arnór skoraði 8 stig í leiknum, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu kemst áfram í næstu umferð.

Sport
Fréttamynd

Thierry Henry semur við Arsenal

Thierry Henry hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Arsenal og hefur þar með bundið enda á allar sögusagnir um að hann sé á leið til Barcelona á Spáni. Henry sagði að hjartað hefði ráðið ferðinni hjá sér og að hjartað hefði sagt honum að vera áfram hjá Arsenal.

Sport
Fréttamynd

Oddaleikur hjá Phoenx og LA Clippers

Los Angeles Clippers knúði í nótt fram oddaleik í undanúrslitaeinvígi liðanna í Vesturdeildinni með 118-106 sigri á heimavelli sínum í sjötta leiknum í nótt. Bæði lið hafa því unnið þrjá leiki í einvíginu og hreinn úrslitaleikur verður í Phoenix á mánudagskvöldið.

Sport
Fréttamynd

Jason Terry í eins leiks bann

Leikstjórnandinn Jason Terry hjá Dallas Mavericks missir af sjötta leik liðsins í einvíginu við meistara San Antonio á föstudagskvöld, eftir að hann var dæmdur í eins leiks bann fyrir að kýla fyrrum félaga sinn Michael Finley hjá San Antonio undir lok fimmta leiksins í fyrrinótt.

Sport
Fréttamynd

Taylor dregur sig út úr viðræðum

Peter Taylor, knattspyrnustjóri Hull City og U-21 árs liðs Englendinga, hefur dregið sig út úr viðræðum við úrvalsdeildarliðið Charlton og því er ljóst að hann verður ekki næsti stjóri Lundúnaliðsins eins og margir höfðu spáð. Taylor sagðist ekki finna að það væri rétt ákvörðun að sækjast eftir starfinu og nú hefur Mick McCarthy, fyrrum stjóri Sunderland, verið orðaður við stöðuna.

Sport
Fréttamynd

Terry lenti í átökum við Ballack

John Terry segist fagna komu þýska miðjumannsins Michael Ballack til Chelsea, en viðurkenndi í dag að þeir hefðu lent í riskingum fyrir leik Chelsea og Bayern Munchen í meistaradeildinni.

Sport
Fréttamynd

Khan ætlar ekki að misstíga sig

Hinn 19 ára gamla vonarstjarna Breta í hnefaleikum, Amir Khan, ætlar að láta vandræði þeirra Scott Harrison og Prince Naseem Hamed verða sér víti til varnaðar í framtíðinni, en þeir hafa báðir lent í miklum erfiðleikum utan hringsins og bardaga Harrison sama kvöld hefur verið frestað eftir að hann ákvað að fara í áfengismeðferð.

Sport
Fréttamynd

Hrósaði Arsenal í hástert

Frank Rijkaard komst í einstakan hóp manna í knattspyrnusögunni þegar hann varð aðeins fimmti maðurinn til að verða Evrópumeistari bæði sem leikmaður og þjálfari. Rijkaard hrósaði leikmönnum Arsenal fyrir baráttu sína í úrslitaleiknum í gær og sagðist hafa gert sér grein fyrir að yrði gríðarlega erfitt að brjóta vörn þeirra á bak aftur.

Sport
Fréttamynd

Lögregla réðist inn á skrifstofur Juventus

Heimildamaður Reuters-fréttastofunnar greindi frá því í dag að ítalskar lögreglusveitir hefðu í dag ráðist til inngöngu á skrifstofur knattspyrnufélagsins Juventus og lagt þar hendur á gögn sem tengjast meðal annars leikmannakaupum Ítalíumeistaranna.

Sport
Fréttamynd

Gaf vísbendingar um framtíðina

Thierry Henry þótti gefa vísbendingar um að hann ætlaði að vera áfram í herbúðum Arsenal á næsta ári þegar hann ávarpaði félaga sína í flugvélinni á leið frá París.

Sport
Fréttamynd

Hafnaði tilboði frá Manchester United

Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov, sem gengur í raðir Tottenham á næstu vikum fái hann atvinnuleyfi á Englandi, segir að honum hafi borist tilboð frá Manchester United sem hann hafi hafnað.

Sport
Fréttamynd

Heiðar Davíð í vandræðum

Heiðar Davíð Bragason, Íslandsmeistari í höggleik, náði sér alls ekki á strik á öðrum keppnisdeginum í sænsku mótaröðinni í golfi í dag. Eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á pari í gær, spilaði hann annan hringinn á 75 höggum í dag eða 5 höggum yfir pari.

Sport
Fréttamynd

Birgir á höggi yfir pari í Belgíu

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék fyrsta hringinn á einu höggi yfir pari eða 73 höggum á áskorendamóti sem haldið er í Belgíu. Birgir Leifur byrjaði frekar illa og átti erfitt uppdráttar á fyrstu holunum, en náði að rétta hlut sinn á lokasprettinum.

Sport
Fréttamynd

Góð byrjun hjá Ólöfu

Ólöf María Jónsdóttir byrjar mjög vel á Deutsche Bank mótinu í golfi sem fram fer í Sviss. Ólöf lauk keppni á tveimur höggum undir pari á fyrsta keppnisdeginum eða 70 höggum. Hún á því ágæta möguleika á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu á morgun ef hún heldur uppteknum hætti.

Sport