Viðskipti

Fréttamynd

Júlí metmánuður hjá Icelandair

Farþegar Icelandair í júlí 2005 voru rúmlega 214 þúsund og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði í sögu félagsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Farþegum fjölgaði um 16,2 prósent frá því í júlí í fyrra en þá voru farþegarnir 184 þúsund. Farþegafjöldinn í júlí í ár samsvarar því að félagið hafi flutt um 70 prósent íslensku þjóðarinnar í mánuðinum, en sú er ekki raunin, því mikill meirihluti farþeganna er erlendur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Minni ábati

Hætt er við að þjóðhaglsegur ábati af virkjunum og álverum verði mun minni þar sem raforkan er seld mjög nærri kostnaðarverði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Áfram lágir vextir

"Það er áframhaldandi útlit fyrir lága vexti á evrusvæðinu og breski seðlabankinn var að lækka stýrivexti fyrr í mánuðinum," segir Lúðvík Elíasson, hjá greiningardeild Landsbankans, spurður um þróun vaxta á næstu misserum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sænskt hugvit í þýskar þotur

Sænsk tækni verður væntanlega nýtt í þýsku Tornado-orrustuþoturnar en Saab hefur skrifað undir framleiðslusamning að upphæð einn milljarður sænskra króna, sem samsvarar 8,5 milljörðum íslenskra króna, við þýska hluta flugvélaframleiðandans EADS samkvæmt Vegvísi Landsbankans í dag.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Litlar líkur á yfirtöku

Markaðssérfræðingar Sunday Times spá í líkurnar á yfirtökutilboði FL-Group, sem á Icelandair, í easyJet. Bent er á að gengi bréfa í easyJet hafi verið hærra fyrir helgi en allt árið á undan og er sú hækkun rakin til hugsanlegrar yfirtöku.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Yfirtökuskylda könnuð

Yfirtökunefnd er nú að kanna hvort nýir hluthafar í Icelandair, eða FL Group, séu svo tengdir Baugi og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fjárhagslega, að yfirtökuskylda hafi myndast. Yfirtökunefnd hefur fjallað um málefni FL Group á nokkrum fundum sínum og skipað sérstaka nefnd til þess að kanna hvort nokkrir hluthafar í fyrirtækinu væru svo efnahagslega tengdir að yfirtökuskylda hafi myndast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Margfalda burðargetu GSM

Og Vodafone ætlar að efla GSM fjarskiptakerfi sitt enn frekar á þessu ári með því að taka í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution) sem getur margfaldað flutningsgetu í farsímum viðskiptavina fyrirtækisins. Prófanir á tækninni eru hafnar og er áætlað að hún verði tekin í notkun á síðasta fjórðungi þessa árs.

Innlent
Fréttamynd

Hive kvartar yfir fjarskiptarisum

Fjarskiptafyrirtækið Hive hefur sent inn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þar sem fyrirtækið telur að Síminn og Og Vodafone tvinni saman á óeðlilegan og samkeppnishindrandi hátt fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu og brjóti þar með gegn gildandi úrskurði samkeppnisyfirvalda varðandi samruna fjarskipta og sjónvarps.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olíuútgjöld mun meiri en ætlað var

Olíureikningur Icelandair, eða Flugleiða, er orðinn einum milljarði hærri en gert var ráð fyrir um áramót. Sérstakt olíugjald, sem lagt hefur verið á hvern farmiða, hrekkur hvergi nærri upp í mismuninn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tíu ár frá upphafi netbólunnar

Tíu ár eru liðin frá hlutafjárútboði Netscape en það er talið marka upphaf netbólunnar miklu sem sprakk með látum árið 2000. Fram að útboði Netscape höfðu félög sem sóttust eftir skráningu á markað þurft að sýna mikla tekjuaukningu í þrjá ársfjórðunga og aukinn hagnað eða hagnaðarmöguleika áður en hlutafjárútboð fór fram.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Amide fær leyfi fyrir nýju lyfi

Actavis Group hefur fengið samþykki bandarísku Matvæla- og lyfjastofnunarinnar fyrir markaðsleyfi á lyfinu Loxapine í gegnum bandarískt dótturfélag sitt, Amide. Loxapine er geðdeyfðarlyf og notað til meðferðar á geðklofa. Í tilkynningu frá Actavis segir að lyfið sé góð viðbót við lyfjaúrval Amide á Bandaríkjamarkaði en þó er ekki búist við því að tekjur af sölu lyfsins muni hafa veruleg áhrif á afkomu félagsins árið 2005.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslenskir forstjórar í 21. sæti

Það eru til forstjórar á Íslandi sem fá fleiri milljónir í laun á mánuði. Sjálfsagt finnst einhverjum það býsna gott. En íslenskir forstjórar eru ekki hálfdrættingar á við kollega sína í öðrum Evrópulöndum; verma 21. sætið yfir launahæstu forstjórana í álfunni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fær 20 milljóna starfslokasamning

Andri Teitsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri KEA, fær tæpar tuttugu milljónir króna í starfslokasamning og stjórnarmenn í KEA höfðu fundið að einkafjárfestingum hans á meðan hann var í vinnu við fjárfestingar fyrir KEA

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kannar kröfur banka um kennitölu

Bankar krefja alla um kennitölu þegar keyptur er gjaldeyrir. Samkvæmt lögum er bönkum og sparisjóðum skylt að biðja um hana, fari upphæðin yfir 1,2 milljónir, en annars ekki. Það gera þeir samt og er málið í athugun hjá Persónuvernd.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tekjur Actavis jukust um 14,4%

Heildartekjur Actavis námu 9,8 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og jukust um 14,4 prósent. Það finnst stjórnendum tæpast nóg, en búast við betri afkomu síðari hluta ársins. Robert Wessman, forstjóri Actavis, segir að ársfjórðungurinn hafi verið annasamur hjá félaginu þar sem bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide var keypt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Alcan lækkaði um 42%

Í fréttum frá Greiningardeild Landsbankans er greint frá því að hagnaður Alcan, næst stærsta álframleiðanda í heimi, hafi numið 190 milljónum dollara á öðrum ársfjórðungi og hefur lækkað um 42% frá sama tíma í fyrra, en þá nam hann 330 milljónum dollara.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hagnaðaraukning hjá Og Vodafone

321 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Og fjarskipta hf. sem aftur skiptist í Og Vodafone og 365 prent- og ljósvakamiðla, eftir tekjuskatt á fyrri helmingi ársins 2005 samanborið við 222 milljóna króna hagnað miðað við sama tímabil í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stefna að fiskútrás í Asíu

Íslenskt fiskmeti hefur slegið í gegn í Malasíu undanfarnar vikur. Útflutningsfyrirtækið Triton stefnir að mikilli fiskútrás í Asíu þar sem gæði verða tekin fram yfir lágt verð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fullyrðingar séu óviðeigandi

Það er undarlegt að ríkisskattstjóri skuli láta uppi persónulega skoðun sína á skattkerfinu, segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. Hann segir fullyrðingarnar óviðeigandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hækkun á við verð Símans

Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um tæplega 61 milljarð króna í júlí einum saman sem er nálægt því verði sem Landssíminn seldist á eftir eitt hundrað ára uppbyggingu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fasteignamat sumarhúsa hækkar

Fasteignamat á sumarhúsum og sumarhúsalóðum hefur að meðaltali hækkað um tæpan fjórðung. Fasteignamat ríkisins mat 8.800 sumarhús og eftir endurmatið er virði þeirra metið samtals 47 milljarðar króna. Meðalfasteignamat sumarhúsa eftir endurmatið er rúmar 5,3 milljónir. Fasteignamat tæplega 130 eigna lækkaði en mat tæplega 8700 eigna hækkaði eða stóð í stað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Andri hættir hjá KEA

Framkvæmdastjóri KEA, Andri Teitsson, hefur sagt starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum. Í tilkynningu frá KEA kemur fram að hann og kona hans eigi von á tvíburum auk þess sem þau eigi fyrir fjögur börn 8 ára og yngri svo Andri hyggst taka sér langt feðraorlof. Segir í tilkynningunni að þetta hefði leitt til þess að málefni KEA hefðu verið í biðstöðu um lengri tíma og það taldi stjórnin óheppilegt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lánshæfismat ríkissjóðs óbreytt

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að mat þess á lánshæfi ríkssjóðs sé óbreytt. Lánshæfieinkunn ríkissjóðs gagnvart erlendum skuldum er því enn AA- og AAA gagnvart skuldum í innlendri mynt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Orlof sé fyrir almenna starfsmenn

Framkvæmdastjóri KEA hefur sagt starfi sínu lausu. Hann bað um að fá að fara í fæðingarorlof en stjórn KEA var því mótfallin. Stjórnarformaður KEA telur að lög um fæðingarorlof hafi fyrst og fremst verið sett til að tryggja réttarstöðu almennra starfsmanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skrifað undir kaupsamning Símans

Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirritaði í dag kaupsamning fyrir hönd íslenska ríkisins við Skipti ehf. um kaup Skipta á 98,8 prósenta hlut ríkisins í Símanum. Kaupsamningurinn er gerður á grundvelli tilboðs sem Skipti ehf. gerðu í hlutabréf ríkisins í Símanum þann 28. júlí síðastliðinn, en það hljóðaði upp á 66,7 milljarða króna og var hæst þriggja tilboða sem bárust í eignarhlut ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

British Airways flýgur til Íslands

Samkeppni í flugi á milli Keflavíkur og London mun aukast verulega í mars þegar breski flugrisinn British Airways ætlar að taka upp áætlunarflug á milli Gatwick í London og Keflavíkur fimm daga í viku. Vélarnar fara frá Gatwick snemma á morgnana og héðan klukkan hálfellefu fyrir hádegi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Danir hljóma gramir

Baugur, Straumur og fyrirtæki í eigu Birgis Þórs Bieltvedts hafa keypt stórverslunina Illum við Strikið í Kaupmannahöfn en sami hópur keypti nýverið Magasin du Nord þar í borg. Dönsk blöð greina frá þessum viðskiptum með ítarlegum hætti í morgun og er ekki laust við að úr textanum megi lesa að Dönum þyki berin súr.

Viðskipti innlent