Seðlabankinn
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 47 ›
Seðlabankastjóri væntir frekari aðgerða gegn verðbólgu í fjárlögum Seðlabankastjóri segir aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu jákvæðar. Þær væru eitt skref af mörgum sem taka verði og væntir frekari aðgerða í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þá hvetur Seðlabankinn lánastofnanir til að nýta aukinn veðrétt heimila eftir mikla hækkun húsnæðisverðs til að breyta skilmálum lána. Innlent 7.6.2023 19:21
Seðlabankastjóri: Verðbólgan gæti hjaðnað hraðar en spár gera ráð fyrir Vísbendingar eru um að verðbólgan kunni að ganga hraðar niður en hagspár gera ráð fyrir, að sögn seðlabankastjóra, og vísar þar meðal annars til þess að hrávöruverðshækkanir erlendis eru að koma til baka auk þess sem væntingar eru um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Hann segir til mikils að vinna að stigin verði frekari trúverðug skref í ríkisfjármálum til að ná niður verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði sem muni þá um leið lækka ávöxtunarkröfu langra ríkisbréfa. Innherji 7.6.2023 16:46
Algjör óvissa um stöðu tryggingataka: „Við höfum haft áhyggjur af þessu félagi lengi“ Seðlabankastjóri segir að fjármálaeftirlit bankans hafi lengi haft áhyggjur af starfsemi slóvakíska tryggingafélagsins Novis. Slóvakíski seðlabankinn hefur afturkallað leyfi félagsins og farið fram á að því verði skipaður skiptastjóri. Stjórnarmaður Trygginga og ráðgjafar, sem hefur selt vörur Novis hér á landi, segir félagið geta staðið við skuldbindingar sínar og hvetur viðskiptavini til að halda að sér höndum. Viðskipti innlent 7.6.2023 15:30
Seðlabankinn hvetur lánastofnanir til sveigjanleika Seðlabankastjóri segir aðgerðir bankans með vaxtahækkunum og hertum lánaskilurðum hafa kælt niður húsnæðismarkaðinn. Sömuleiðis hafi eignamyndun í íbúðarhúsnæði aukist. Brýnt sé að lánastofnanir bjóði lántakendum skilamálabreytingar á lánum miðað við þarfir hvers og eins, sérstaklega eftir að tímabil fastra vaxta á lánum rennur út. Innlent 7.6.2023 11:55
Stýrir háttsemiseftirliti Seðlabankans Linda Kolbrún Björgvinsdóttir hefur verið sett framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 7.6.2023 10:37
Innlend markaðsfjármögnun bankanna of „einhæf“ Innlend markaðsfjármögnun bankanna er of einhæf að mati Seðlabanka Ísland og mikilvægt er að breikka kaupendahóp að óveðtryggðum skuldabréfum bankanna. Innherji 7.6.2023 10:01
Bein útsending: Fjármálastöðugleikanefnd kynnir yfirlýsingu sína Seðlabankinn boðar til blaðamannafundar í dag en tilefnið er yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar. Fundurinn hefst klukkan 9:30 í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Viðskipti innlent 7.6.2023 09:33
Brýnir fyrir bönkum að huga „tímanlega“ að þyngri greiðslubyrði lántaka Mikilvægt er að bankarnir grípi tímanlega til aðgerða til að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika hjá heimilum og fyrirtækjum vegna þyngri greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, sem telur viðnámsþrótt fjármálakerfisins vera góðan. Innherji 7.6.2023 09:03
Heimilin hugi að breytingu lánasamninga Fjármálastöðugleikanefnd brýnir fyrir lánveitendum og þar með einnig heimilunum að huga tímanlega að þyngri greiðslubyrði lántakenda til þess að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika. Vanskil í bankakerfinu séu þó enn lítil og rekstrarafkoma bankanna góð. Innlent 7.6.2023 08:42
Dauðafæri ríkisstjórnarinnar til að lækka vaxtastig Það hefur sennilega ekki farið fram hjá mörgum að nýlega hækkaði peningastefnunefnd Seðlabankans stýrivexti enn einu sinni. Var hækkunin ekki bara sú þrettánda í röð heldur einnig sú mesta í fimmtán ár. Staðan er því sú að stýrivextir Seðlabankans eru nú orðnir 8,75%. En hvað gerist næst? Hvernig er hægt að koma í veg fyrir frekari vaxtahækkanir og stuðla að lækkun vaxta á ný? Skoðun 7.6.2023 07:00
Slóvakískt félag sem tryggði þúsundir Íslendinga svipt starfsleyfi Seðlabanki Slóvakíu hefur svipt líftryggingafélagið NOVIS starfsleyfinu en fyrirtækið hefur á síðustu árum tryggt þúsundir Íslendinga í gegnum miðlunina Tryggingar og ráðgjöf ehf., sem hefur haft drjúgar tekjur af samstarfinu. Innherji 6.6.2023 10:02
Takmarka launahækkanir við tvö og hálft prósent Ríkisstjórnin ætlar að breyta lögum þannig að laun þingmanna og embættismanna hækki ekki um sex prósent um næstu mánaðarmót, heldur 2,5 prósent. Þetta er meðal aðgerða sem ríkisstjórnin ætlar í til að sporna gegn verðbólgu. Innlent 5.6.2023 16:10
Halda örvandi úrræðum til streitu þrátt fyrir varnarorð Seðlabankans Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur ekki tilefni til að bregðast við umsögn Seðlabankans Íslands um framlengingu á úrræðum sem gerir fólki kleift að nýta séreignarsparnað til innborgunar á húsnæðislán. Seðlabankinn telur úrræðin „fremur óheppileg“ á tímum eftirspurnarþenslu. Innherji 5.6.2023 11:30
Maður verður reiður Ísland hefur marga kosti, meðal annars fallega náttúru og gott fólk. Ókostir Íslands eru meðal annars óstöðugt veður, hátt verðlag, lausung og jafnvel spilling í stjórnarháttum og hagstjórn, með áberandi virðingarleysi gagnvart hinum almenna borgara og fjárhagslegu sjálfstæði hans. Skoðun 3.6.2023 15:01
Krónan uppfylli ekki kröfur sem gerðar eru til gjaldmiðla „Svona lítill gjaldmiðill uppfyllir ekki þær kröfur sem við gerum til gjaldmiðla,“ segir Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra. Hann segir vaxtaákvarðanir Seðlabankans ná til afar þröngs hóps í samfélaginu sem valdi skekkju í hagkerfinu. Innlent 1.6.2023 23:57
Í öðrum erindagjörðum í Króatíu en að sóla sig með frúnni Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er kominn til landsins frá Króatíu þar sem hann hélt erindi um efnahagsmál á alþjóðlegri ráðstefnu í Dubrovnik í Króatíu. Hann stýrði pallborðsumræðum um alþjóðlega bankakerfið á ráðstefnunni. Viðskipti innlent 1.6.2023 15:39
Aðgerðir sem bitna á láglaunafólki Í kjölfar kynningu fasteignamats fyrir árið 2024 fannst mér tilvalið að skrifa nokkur orð um áfallið sem fasteignamarkaðurinn á Íslandi er. Til að draga stuttlega saman niðurstöður fasteignamatsins fyrir árið 2024, þá er um að ræða 11,7% hækkun frá fasteignamati fyrir 2023 og fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar um 13,7% á milli ára, sem er gott og blessað enda um minni hækkun að ræða en í fyrra. Skoðun 1.6.2023 14:31
Lífeyrissjóðir mættu huga að „fleiri hólfum“ á skuldahlið bankanna Þrátt fyrir að vaxtakjör íslensku bankanna á nýlegum erlendum útgáfum hafi verið ein þau hæstu frá fjármálahruninu 2008 þá er það „rétt stefna“ að halda þeim mörkuðum opnum á tímum þegar aðstæður eru krefjandi, að sögn seðlabankastjóra. Það væri góð þróun ef íslensku bankarnir gætu farið að fjármagna sig innanlands til lengri tíma á nafnvöxtum en þá þyrftu lífeyrissjóðirnir að fara huga að „fleiri hólfum“ á skuldahlið bankanna. Innherji 1.6.2023 13:07
Simmi Vill segir ríkistjórnina einfaldlega skipaða aumingjum „Ég segi það hér og nú þetta eru aumingjar,“ segir Sigmar Vilhjálmsson viðskiptamaður, betur þekktur sem Simmi Vill, um ríkisstjórn Íslands. Hann segir ráðherrana stinga hausnum í sandinn og setja alla ábyrgð vaxtahækkana á Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra Íslands. Innlent 1.6.2023 12:03
Kristrún vill að launahækkanir æðstu embættismanna fylgi markaðnum Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að laun æðstu embættismanna hækki ekki meira en laun á almennum markaði, enda væri það markmið laga um laun þeirra að þeir leiddu ekki launahækkanir í landinu. Hún og aðrir viðmælendur í Pallborðinu í dag voru sammála um að þörf væri á víðtæku samstarfi um vinnumarkaðinn en á mjög ólíkum forsendum. Innlent 30.5.2023 19:20
Þorsteinn segir íslenskt samfélag ekki rotið, ömurlegt og spillt Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er afar svartsýnn á að samningaviðræður verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda muni ganga vel í haust. Innlent 30.5.2023 15:44
Tókust á um stöðu verðbólgu og vaxta í Pallborðinu Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar mæta í Pallborðið með Heimi Má Péturssyni fréttamanni í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 30.5.2023 12:21
Geðþóttaákvarðanir valdhafanna Það er orðin brýn samfélagsleg spurning hvort Seðlabankinn og seðlabankastjóri valdi hlutverki sínu. Þrettánda stýrivaxtahækkunin í röð skall á þjóðinni í síðustu viku og ef rýnt er í spilin þá má skilja að enn frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan. Skoðun 30.5.2023 09:00
Tvær þjóðir í sama landi Síðustu vikur og mánuði hefur Seðlabankinn, með dyggum stuðningi ríkisstjórnarinnar, hækkað vexti þrettán sinnum í röð og segist með því vera að ráðast að verðbólgunni og frelsa þjóðina frá miklu fári. Í fljótu bragði mætti ætla að afleiðing þessara aðgerða komi nokkuð jafnt niður á þegnum þessa lands. En því fer nú víðs fjarri. Skoðun 30.5.2023 07:00
Baráttan við verðbólguna Ákvörðun Seðlabankans um stýrivaxtahækkun kom ef til vill ekki mjög á óvart miðað við undangengnar ákvarðanir hans. Eina ráð hans virðist vera að ráðast á kaupmátt launafólks til að reyna að hafa áhrif á kauphegðun þeirra sem hafa meira á milli handanna enda hafa hinir tekjulægri ekki borið uppi mikinn vöxt neyslunnar. Skoðun 26.5.2023 11:31
„Hættan við of samræmdar reglur á fjármálamarkaði er samræmið“ Ítrekaðar athugasemdir Seðlabanka Íslands og erlendra stofnana við stjórnarhætti lífeyrissjóða og áhættustýringu þeirra rista ekki nógu djúpt að sögn framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs. Hann varar við því að tilraunir til að endurskoða reglur um áhættustýringu hjá sjóðunum – í því skyni að samræma regluverkið á fjármálamarkaði – geti leitt til þess að allir bregðist við áhættu á sama hátt og þannig magnað upp áhættu á markaði. Innherji 26.5.2023 10:45
Markaðssókn banka á íbúðamarkaði kynti undir verðbólgu Tilfærsla nýrra íbúðalána frá lífeyrissjóðum til banka, sem átti sér stað eftir að vextir voru lækkaðir verulega í upphafi heimsfaraldursins, hafði þau áhrif að peningamagn í umferð jókst og þar með verðbólguþrýstingur. Ólíkt útlánum lífeyrissjóða eru bankalán þess eðlis að nýtt fjármagn verður til við veitingu þeirra. Innherji 25.5.2023 15:01
Vaxtahækkanir og verðbólga í boði verkalýðshreyfingarinnar Viðbrögð við mikilli vaxtahækkun Seðlabankans í gær voru æði kunnugleg. Forysta verkalýðshreyfingarinnar sakaði bankann um að rústa íslenskum heimilum og sagði komandi kjarasamninga í algjöru uppnámi. Þar er um endurtekið efni að ræða frá þeim 12 vaxtahækkunum Seðlabanka sem á undan hafa komið. Skoðun 25.5.2023 14:01
Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. Innlent 25.5.2023 11:47
Forysta SA þarf að „standa í lappirnar“ gegn óraunhæfum launakröfum Seðlabankastjóri gagnrýnir forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og segir þá þurfa að „standa meira í lappirnar“ þegar kemur að óraunhæfum kröfum verkalýðsfélaganna um miklar nafnlaunahækkanir en síðustu vaxtahækkanir bankans sýni að það kosti atvinnurekendur að gera dýra kjarasamninga. Kjölfesta verðbólguvæntinga hefur laskast og seðlabankastjóri viðurkennir að bankinn hafi mögulega gert mistök síðasta haust með því að tala ekki skýrar að hann myndi halda áfram sínu striki óháð því hvað aðrir armar hagstjórnarinnar myndu gera. Innherji 25.5.2023 11:01