Seðlabankinn
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 48 ›
Segja mikilvægt að ekki sé vegið að sjálfstæði Seðlabankans Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að ekki sé vegið að sjálfstæði Seðlabankans með forsenduákvæðunum sem sigldu kjaraviðræðum við breiðfylkingu ASÍ í strand fyrr í dag. Innlent 9.2.2024 22:12
Þróunin í ferðaþjónustu á næstunni er „einn helsti áhættuþátturinn“ Vísbendingar eru um að jarðhræringarnar á Reykjanesi séu að hafa talsverð neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna í upphafi ársins og „einn helsti áhættuþátturinn“ er hvernig þróunin verður í framhaldinu í atvinnugreininni, að sögn seðlabankastjóra. Ef hagkerfið fer að kólna hraðar en nú er spáð vegna samdráttar í ferðaþjónustu er „alveg klárt“ að það mun flýta fyrir vaxtalækkunum. Innherji 9.2.2024 11:31
Róðurinn að þyngjast í kjaraviðræðunum Róðurinn er tekinn að þyngjast í viðræðum breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins. Tekist er á um forsenduákvæði samninga til fjögurra ára og framlag stjórnvalda ræður miklu um hvort samningar takast. Innlent 8.2.2024 19:21
Varar við „sterkri innspýtingu“ frá stjórnvöldum við gerð kjarasamninga Kröfur breiðfylkingar stærstu verkalýðsfélaga landsins um myndarlega aðkomu stjórnvalda við gerð kjarasamninga með því að stórauka ýmsar bætur í tilfærslukerfunum væru til þess fallnar að ýta undir verðbólgu, rétt eins og miklar launahækkanir, og það er „mikilvægt“ að samningaaðilar geri sér grein fyrir því, að sögn seðlabankastjóra. Hann segir Seðlabankann vera „mjög meðvitaðan“ um að ört hækkandi raunvaxtastig kunni á ákveðnum tímapunkti vera farið að valda meiri skaða en ávinningi. Innherji 8.2.2024 06:30
Seðlabankinn hækkar raunvexti Seðlabankinn tók meðvitaða ákvörðun um það í morgun að hækka raunvexti með því að halda meginvöxtum sínum óbreyttum á sama tíma og verðbólga er að minnka. Seðlabankastjóri segir þetta til marks um að aðgerðir hans gegn verðbólgu hafi skilað árangri. Innlent 7.2.2024 19:21
Minni vöxtur í ferðaþjónustu myndi „létta á þrýstingi“ á peningastefnuna Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir að ef það yrði minni vöxtur í ferðaþjónustu þá myndi það „draga úr spennu og létta á þrýstingi“ sem peningastefnan sé að reyna framkalla. Innherji 7.2.2024 15:32
Flutningar Grindvíkinga hafi lítil áhrif á fasteignamarkaðinn í borginni Seðlabankastjóri telur að brottflutningur fólks frá Grindavík vegna jarðhræringa muni ekki hafa mikil áhrif á fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Áhrifin verði mögulega bundin við Reykjanes og nágrenni. „Það kæmi ekki á óvart ef íbúar vilja búa þar nálægt. Ég held að áhrifin verði aðallega þar í kring.“ Innherji 7.2.2024 12:03
Seðlabankastjóri segir allt á réttri leið Verulega hefur dregið úr einkaneyslu og hagvöxtur fer hratt minnkandi enda hafa raunvextir hækkað töluvert frá því í júní í fyrra. Seðlabankinn fylgist grannt með framgangi kjaraviðræðna og ákvað í morgun að halda meginvöxtum sínum óbreyttum. Innlent 7.2.2024 11:52
Vextir haldast óbreyttir en spennan fer minnkandi og verðbólguhorfur batna Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda vöxtum áfram óbreyttum í 9,25 prósent, sem er í samræmi við spár flestra greinenda og markaðsaðila, en í yfirlýsingu nefndarinnar er sagt að vísbendingar séu um að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var reiknað með. Háir vextir séu farnir að bíta sem endurspeglast í minnkandi spennu og batnandi verðbólguhorfum. Innherji 7.2.2024 09:00
Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 7.2.2024 08:52
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent eins og þeir hafa verið síðan í ágúst þegar þeir voru hækkaðir um hálft prósentustig. Viðskipti innlent 7.2.2024 08:30
Gjöld greiðslukorta erlendis hækkuðu um 38 prósent Þjónustugjöld af greiðslukortanotkun íslenskra heimila erlendis námu um 4,7 milljörðum króna og þar af greiddu heimilin um 4,4 milljarða króna í gengisálag á árinu 2022. Þegar íslenskum krónum er skipt í erlendan gjaldeyri er greitt ákveðið gjald. Að raunvirði hækkuðu gjöld greiðslukorta um 38 prósent frá árinu á undan sem skýrist að nokkru leyti af meiri neyslu erlendis en einnig af almennri hækkun gjalda. Innherji 6.2.2024 16:25
Standið við stóru orðin og lækkið vexti! Opið bréf til peningastefnunefndar og Seðlabankastjóra Skoðun 6.2.2024 06:00
Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. Innherji 5.2.2024 11:59
Er viðsnúningur á húsnæðismarkaði í kortunum? Um mitt ár 2022 hækkaði peningastefnunefnd vexti kröftuglega og þrengdi lánþegaskilyrði og óhætt er að segja að aðgerðirnar hafi slakað verulega á yfirspenntum húsnæðismarkaðnum. Árstaktur húsnæðisverðs að raunvirðir hrapaði úr 17% hækkun niður í 6% lækkun núna í haust. Undir lok síðasta árs komu hins vegar fram vísbendingar um viðsnúning og nýbirtar verðbólgutölur benda sterklega til að í janúar hafi raunverðslækkanakaflanum lokið, að minnsta kosti um stundar sakir. Umræðan 5.2.2024 08:39
Olíusjóðurinn stækkar stöðu sína í sértryggðum bréfum á íslensku bankanna Verðbréfaeign olíusjóðs Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, í íslenskum fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum jókst nokkuð á liðnu ári þegar hann bætti enn frekar við sig með kaupum á sértryggðum skuldabréfum á bankanna. Á sama tíma hélt eign sjóðsins áfram að minnka í íslenskum ríkisbréfum. Innherji 1.2.2024 11:21
Vilhjálmur segir verðlækkun IKEA gott innlegg í kjaraviðræður Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins settust aftur að samningaborði hjá ríkissáttasemjara upp úr klukkan níu í morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir verðlækkun IKEA gott innlegg í viðræðurnar. Innlent 1.2.2024 10:32
Undirliggjandi verðbólga minnkar en telur „útilokað“ að vextir lækki strax Þrátt fyrir að varast beri að lesa of mikið í óvænta lækkun á vísitölu neysluverðs, sem mátti einkum rekja til sveiflubundinna liða, þá er afar jákvætt að undirliggjandi verðbólga virðist vera að dragast saman sem gefur tilefni til aukinnar bjartsýni, að mati greiningar Arion banka. Verðbólguálagið á markaði hefur hríðfallið frá því í gærmorgun en skuldabréfamiðlari telur hins vegar „útilokað“ að peningastefnunefnd muni lækka vexti strax í næstu viku, einkum þegar enn er ósamið á almennum vinnumarkaði. Innherji 31.1.2024 13:49
Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári Spáð er 1,9 prósent hagvexti á árinu 2024 í þjóðhagsspá Íslandsbanka. Markar þetta hagsveifluskil og er tiltölulega hægur vöxtur í sögulegu tilliti. Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári. Viðskipti innlent 31.1.2024 09:14
Minnsta verðbólga í tæp tvö ár Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í mars fyrir tveimur árum og mælist nú 6,7 prósentustig. Þetta hljóta að teljast góð tíðindi inn í kjaraviðræður þar sem samningsaðilar stefna allir að gerð samninga sem leiði til minni verðbólgu og lækkun vaxta. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30.1.2024 11:52
Opinberir starfsmenn með svipaðar kröfur og breiðfylkingin á ríkið Formaður BSRB segir samflot opinberra starfsmanna gera svipaðar kröfur um aðkomu ríkisins að kjarasamningum og stéttarfélög á almenna markaðnum gerðu. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað breiðfylkinguna og SA til fundar í dag. Innlent 29.1.2024 19:20
Mögulegt að boða til verkfalla á fimmtudag Friðarskylda á almennum vinnumarkaði rennur út á fimmtudag. Formaður VR segir augljóst að gripið verði til aðgerða nálgist Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld ekki breiðfylkingu verkalýðsfélaga við samningaborðið. Hugmynd formanns Starfsgreinasambandsins um engar launahækkanir á þessu ári dragi opinberir aðilar gjaldskrárhækkanir til baka hafi ekki verið rædd í innan breiðfylkingarinnar. Innlent 29.1.2024 12:13
Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29
Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46
Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22.1.2024 09:54
Kuldi í kjaraviðræðum vegna deilna um launaskrið Nú þegar hálfur mánuður er þar til friðarskylda rennur út á almennum vinnumarkaði ásamt gildandi skammtímasamningum, er mikil óvissa komin í viðræður breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðsforystan segir atvinnurekendur vilja minni krónutöluhækkanir vegna launaskriðs þeirra hærra launuðu. Innlent 18.1.2024 12:07
Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 17.1.2024 12:34
Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17
Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma. Innlent 15.1.2024 13:21