Flóttafólk á Íslandi „
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 24 ›
„Hvernig lifum við af, vitandi af henni hér?“ Systkin frá Bangladess, sem misstu móður sína sviplega í sumar, eru harmi slegin vegna yfirvofandi brottvísunar. Þau segja það óyfirstíganlega tilhugsun að geta ekki vitjað leiðis móður þeirra, sem jörðuð er í Reykjavík. Lögmaður systkinanna segir óásættanlegt að vísa þeim úr landi nú. Innlent 17.9.2022 19:26
Framtíð allt að hundrað manns gæti verið undir Mál Palestínumanns gegn ríkinu, sem flutt var í héraðsdómi á fimmtudag, gæti haft áhrif á stöðu upp undir hundrað flóttamanna hér á landi sem beðið hafa í óvissu síðan í kórónuveirufaraldrinum, að sögn lögmanns. Hann telur framgöngu stjórnvalda í málunum harkalega. Innlent 17.9.2022 13:30
Hættustig á landamærum vegna yfirálags Embætti ríkislögreglustjóra hefur hækkað viðbúnaðarstig á landamærunum á hættustig vegna yfirálags til þess að tryggja örugga móttöku á fólki sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi. Innlent 16.9.2022 10:53
Horfa þurfi á tækifærin og möguleikana sem felist í því að taka á móti erlendu vinnuafli Til skoðunar er að einfalda fólki utan evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað að vinna að sögn félagsmálaráðherra. Vonandi sé hægt að stíga mikilvæg skref í þá áttina á næstu misserum en of snemmt sé að segja til um mögulegt frumvarp. Mikilvægt sé að innflytjendur geti aðlagast íslensku samfélagi með farsælum hætti og vinna þurfi gegn því að hér verði tvær þjóðir. Innlent 9.9.2022 15:00
Íslendingar ættu að leggja út rauðan dregil fyrir erlent vinnuafl Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir allt of flókið og tafsamt að fá fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins til starfa á Íslandi þegar Íslendingar ættu að leggja út rauðan dregil til að fá fólk hingað til lands. Dómsmálaráðherra segir nauðsynlegt að rýmka reglur í þessum efnum. Innlent 7.9.2022 11:47
Dómsmálaráðherra segir fjölgun flóttafólks ekki tilviljun Dómsmálaráðherra segir nauðsynlegt að koma í veg fyrir misnotkun á alþjóðlega verndarkerfinu. Fordómalaus fjölgun flóttamanna til Íslands væri ekki tilviljun og því nauðsynlegt að gera breytingar á lögum um útlendinga til samræmis við það sem þekktist í öðrum löndum. Innlent 6.9.2022 19:54
Kallar eftir því að ríkið stigi inn í og taki við keflinu af sveitarfélögunum Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar kallar eftir því að ríkið taki við þjónustu við fólk á flótta og fólk í leit að alþjóðlegri vernd, í stað þess að sveitarfélögin veiti hana. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ályktaði í gær um að bærinn gæti ekki veitt þá þjónustu sem ætlast væri til af honum. Bæjarstjórinn segir lausnina ekki felast í því að fleiri sveitarfélög taki á móti fólki. Innlent 1.9.2022 15:01
Flóttafólki komið fyrir í Hafnarfirði án samráðs Bæjarstjórn Hafnarfjarðar segir bæinn ekki getað tekið við fleira flóttafólki í bili. Innviðir sveitarfélagsins séu fyrir allnokkru komnir að þolmörkum, þá sérstaklega hvað varðar skólaþjónustu og stuðning til barna varðar. Innlent 31.8.2022 18:32
Tekur gagnrýni Reykjanesbæjar til sín og segir úrbætur á lokametrunum Félagsmálaráðherra segist taka til sín gagnrýni meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um stöðu mála í móttöku flóttafólks og fólks í leit að vernd. Vinna við að fjölga sveitarfélögum sem taki á móti fólki sé á lokametrunum. Það muni létta mjög undir með þeim fáu sveitarfélögum sem hingað til hafi gert það. Innlent 27.8.2022 13:00
Mun fleiri sækja aðstoð við upphaf þessa skólaárs en í fyrra 292 börn sem tilheyra 136 fjölskyldum hafa þegið aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar undanfarna daga. Áslaug Arndal segir aðsóknina mun meiri nú en í fyrra, þegar um 200 börn fengu aðstoð í upphafi skólarás. Innlent 25.8.2022 07:12
Vilja fá fleiri sveitarfélög að borðinu svo hægt sé að sinna fólki vel Meirihluti sveitarstjórnar Reykjanesbæjar er ósáttur við þrýsting ríkisins á sveitarfélagið um að taka á móti fleira flóttafólki og fólki í leit að vernd, án þess að fjármagn fylgi. Að sama skapi gagnrýnir meirihlutinn að ríkið hafi tekið á leigu húsnæði fyrir yfir fjögur hundruð manns á Ásbrú, án þess að ræða við sveitarfélagið. Innlent 25.8.2022 06:31
Úkraínumönnum hér á landi fjölgað um 564 prósent Alls voru 60.171 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 8. ágúst síðastliðinn. Þeim hefur fjölgað um 5.192 frá 1. desember síðastliðnum. Þar munar mestu um 1.588 úkraínumenn sem hér búa en það er fjölgun um 1.349 prósent frá 1. desember. Innlent 15.8.2022 20:36
Eldfjöll, sundlaugar, ís og nammi í uppáhaldi Skapandi sumarnámskeið ætlað úkraínskum börnum sem flúið hafa hingað til lands hefur vakið mikla lukku, en þar fá þau útrás fyrir sköpunargleðina. Þau segjast hrifin af Íslandi, en eldfjöll, sundlaugar og rjómaís eru á meðal þess sem þeim finnst best við landið. Innlent 29.7.2022 08:31
„Markmiðið er að leyfa börnunum að vera börn“ Kennari sem starfað hefur með úkraínskum flóttabörnum síðustu mánuði freistar þess nú að fjármagna sumarnámskeið fyrir börnin, með sölu á bók nokkurri. Markmiðið með námskeiðinu, og starfinu öllu, er að börnin fái að vera börn. Innlent 19.7.2022 13:47
147 umsækjendur um alþjóðlega vernd bíða brottvísunar, þar af 20 börn Hinn 1. júní síðastliðinn biðu 169 einstaklingar frávísunar eða brottvísunar, þar af 22 börn. Af þessum 169 hafa 147 fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd, þar af 20 börn. Innlent 1.7.2022 10:55
Alþingi endurskoðar málsmeðferð við veitingu ríkisborgararéttar Mikilvægt er að heimildir Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar verði ekki þrengdar við endurskoðun á fyrirkomulaginu segir þingmaður Pírata. Nefnd um breytingar á því hefur verið stofnuð og niðurstaða á að liggja fyrir í haust. Innlent 23.6.2022 12:03
Fornir fjendur hlutu sameiginlegan styrk frá UEFA til að aðstoða flóttafólk og hælisleitendur KR og Valur hlutu í vikunni styrk frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, vegna verkefnis tengdu málefnum flóttafólks og hælisleitenda. Frá þessu er greint á vef Knattspyrnusambands Íslands. Íslenski boltinn 22.6.2022 15:30
Felldu tillögu minnihlutans: „Þau vilja halda þessu í útlendingafrumvarpinu til að réttlæta ógeðið“ Á síðasta þingfundi löggjafarþingsins felldu stjórnarliðar tillögu minnihlutans um að veita Úkraínumönnum, sem komið hafa til landsins vegna stríðsins, atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þingkona Pírata telur að brögð séu í tafli og að stjórnarliðar hafi viljað halda sambærilegu ákvæði í útlendingalögum til að réttlæta ýmis önnur ákvæði í því frumvarpi. Innlent 21.6.2022 16:14
Engum verið fylgt úr landi enn sem komið er Í lok síðasta mánaðar stóð til að vísa alls 197 hælisleitendum úr landi, þar af 44 til Grikklands. Stoðdeild Ríkislögreglustjóra ákvað að byrja á hópnum sem senda átti til Grikklands en enn sem komið er hefur engum verið fylgt þangað. Innlent 21.6.2022 11:05
Baráttunni fyrir ríkisborgararétti loksins lokið 22 ára maður frá Nígeríu, sem lenti í mansali og kynferðisofbeldi á flótta frá heimalandi sínu, er orðinn íslenskur ríkisborgari eftir margra ára baráttu. Hann er nú staðráðinn í að skapa sér líf á Íslandi en fyrst á dagskrá er að læra íslensku. Innlent 19.6.2022 21:20
Taka fyrir 25 af 70 umsóknum um ríkisborgararétt Þingflokkar hafa náð saman um að taka fyrir 25 af 70 umsóknum um ríkisborgararétt sem Alþingi hefur borist. Því virðist búið að ná samkomulagi um öll atriði í þinglokasamningum sem þýðir að þinglokin ættu að ganga smurt fyrir sig. Þingið klárast í kvöld eða í fyrramálið. Innlent 15.6.2022 10:13
Ósætti um veitingu ríkisborgararéttar gæti sett þinglok í uppnám Þó þingflokkar hafi náð saman um heildarramma þingloka standa örfá mál eftir sem ekki hefur enn tekist að ná sátt um. Samkvæmt heimildum fréttastofu er veiting ríkisborgararéttar þar stærst og enn lengst á milli flokkanna í því. Nái þeir ekki saman um það í kvöld eða snemma á morgun gæti þetta sett þinglok í algert uppnám. Innlent 14.6.2022 19:22
Örfá dæmi um að íslensk stjórnvöld hafi ekki nýtt sér Dyflinarreglugerðina Fjöldi þeirra sem sótt hefur um alþjóðlega vernd í Evrópu hefur ekki verið meiri frá því borgarastyrjöldin í Sýrlandi var í algleymingi árið 2016. Þá hefur staða flóttafólks sjaldan verið jafn slæm. Stofnandi Solaris flóttamannasamtakanna telur að afnám Dyflinarreglugerðarinnar myndi bæta stöðu þess til muna. Innlent 13.6.2022 17:15
Fyrstu gæludýr úkraínskra flóttamanna koma til landsins í dag Tekið verður á móti tveimur hundum á nýrri einangrunarstöð Matvælastofnunar á Kjalarnesi í dag. Hundarnir tveir eru fyrstu gæludýrin í eigu flóttafólks frá Úkraínu sem tekið er á móti en von er á fleiri dýrum á komandi vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar í dag. Innlent 13.6.2022 15:08
Ungt félagshyggjufólk um allan heim fordæmir fjöldabrottvísanir Alþjóðasamtök ungliðahreyfinga jafnaðar- og félagshyggjuflokka (IUSY) fordæma fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir flóttafólks á Íslandi. Neyðarályktun þess efnis var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á heimsþingi IUSY sem fór fram í höfuðborg Albaníu dagana 2.-4. júní. Innlent 10.6.2022 17:45
Útlendingafrumvarpi Jóns frestað fram á haust Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur frestað afgreiðslu útlendingafrumvarps síns fram á haust. Jón segir þetta gert til að liðka fyrir þinglokum. Það er því ljóst að málamiðlanir ríkisstjórnarinnar báru ekki árangur. Innlent 9.6.2022 15:50
Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskrar fjölskyldu Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskar fjölskyldu sem var föst í hrikalegum aðstæðum í Maríupól í rúman mánuð, en er nú komin til Íslands. Innlent 9.6.2022 08:00
Einstaklingar hafi „farið í þannig ástand“ við handtöku að þeim var gefið róandi Upp hafa komið tilvik þar sem einstaklingar sem flytja á úr landi í fylgd hafa „farið í þannig ástand“ að nauðsynlegt hefur þótt að gefa viðkomandi róandi lyf. Þetta hefur verið gert til að koma í veg fyrir að viðkomandi skaði sjálfan sig eða aðra. Innlent 9.6.2022 06:36
Ný miðstöð fyrir úkraínska flóttamenn var opnuð á Aflagranda Í gær var ný miðstöð fyrir úkraínska flóttamenn opnuð á Aflagranda. Húsnæðið sem starfsemin var áður í er sprungið utan af starfseminni. Um 300 manns komu saman í nýja húsnæðinu í kvöld. Innlent 8.6.2022 08:00
Vinna ríkisstjórnarinnar ótrúverðug ef frumvarp Jóns nær fram að ganga Þingmaður Pírata segir að ríkisstjórnin geti ekki sett á fót ráðherranefnd sem endurskoða eigi útlendingamál á sama tíma og samþykkja eigi útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Forsætisráðherra segir að með nefndinni sé verið að setja útlendingamál í forgang. Innlent 4.6.2022 12:59