Akureyri
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 56 ›
Besti veiðitíminn framundan en súrt að stutt geti verið í stoppið Strandveiðar í Grímsey eru fyrst núna að hefjast fyrir alvöru, sjö vikum eftir að strandveiðitímabilið hófst. Trillusjómaður segir þorskinn yfirleitt ekki ganga á Grímseyjarmið fyrr en um miðjan júnímánuð. Innlent 23.6.2023 22:44
Malbika nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli Malbikun nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst núna síðdegis og er búist við verkið standi yfir næstu þrjár vikur. Flugvallarstjórinn segir að það muni gjörbreyta aðstöðunni. Innlent 20.6.2023 22:50
Fangageymslur fullar eftir nótt skemmtana á Akureyri Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri þar sem margt var um manninn á ýmsum skemmtunum í gærkvöldi og nótt. Þrátt fyrir að fangageymslur hafi verið fullar í morgun komu engin alvarleg mál upp, að sögn aðalvarðstjóra hjá lögreglunni. Maður sem var handtekinn með öxi í gær er enn í haldi. Innlent 18.6.2023 11:18
Maður hótaði fólki með öxi á Bíladögum á Akureyri Sérsveitin var kölluð út í kvöld á Akureyri vegna manns sem hótaði fólki með öxi á tjaldsvæði Bíladaga sem nú standa þar yfir. Var maðurinn yfirbugaður og vistaður í fangaklefa Innlent 17.6.2023 22:30
Reykspúandi flugsveit þaut yfir viðmælendur í beinni Árlegur flugdagur fer fram á Akureyrarflugvelli á morgun, sautjánda júní. Einkaflugmenn hituðu upp með flughátíð á Melgerðismelum í Eyjafirði. Innlent 16.6.2023 22:42
Útskrifuð og stolt að hafa ekki gefist upp á baráttunni við kerfið Eftir tveggja ára þrotlausa baráttu við kerfið og önnur tvö ár í námi útskrifaðist ung kona sem lögreglumaður síðustu helgi. Henni var upphaflega vísað frá vegna notkunar á kvíðalyfi. Hún er stolt af því að hafa tekið slaginn fyrir alla þá sem hafa haft hugrekki til að leita sér aðstoðar. Innlent 16.6.2023 22:29
Símastulds- og byrlunarmál í saltpækli fyrir norðan Að sögn Eyþórs Þorbergssonar varasaksóknara hjá lögregluembættinu á Norðurlandi eystra verður ekkert að frétta af rannsókn á máli sem tengist meintri byrlun og símastuldi af Páli Steingrímssyni skipstjóra fyrr en í allra fyrsta lagi í haust. Málið liggur því í saltpækli þó langt sé síðan það kom upp. Innlent 16.6.2023 15:40
Alls konar um að vera um allt land á 17. júní Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn með pompi og prakt í dag. Venju samkvæmt er metnaðarfull dagskrá víða um land. Vísir tók saman dagskrána í nokkrum sveitarfélögum. Lífið 16.6.2023 15:29
Kirkjutröppurnar loka og óvíst með opnun Vegna framkvæmda verður á næstu dögum lokað fyrir umferð um tröppurnar að Akureyrarkirkju og ekki er vitað með vissu hvenær opnað verður fyrir umferð um nýjar kirkjutröppur. Innlent 15.6.2023 20:53
Finna engar skýringar á árásum unglinga á strætisvagna Myndavélar hafa verið settar upp í strætisvögnum Akureyrar eftir að hópur unglinga réðst á kvenkyns bílstjóra í maíbyrjun. Vitað er hverjir gerendurnir eru en málið verður ekki kært til lögreglu. Innlent 12.6.2023 15:10
Nauðsynlegt að „spenna beltið“ þegar kemur að netöryggi „Við getum í raun ekki starfað lengur sem litli sveitaskólinn sem enginn hefur áhuga á. Við verðum að horfa á þetta þannig að við erum skotmark; verðum að gera ráð fyrir því þannig að við séum betur í stakk búin þegar eitthvað kemur upp á.“ Innlent 12.6.2023 07:38
Sýknuð af því að beita Örnu McClure umsáturseinelti Fyrrverandi eiginkona Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja var í síðasta mánuði sýknuð af því að hafa beitt Örnu McClure, lögfræðingi Samherja, umsáturseinelti. Einkaréttarkröfu Örnu gegn henni var vísað frá dómi. Innlent 8.6.2023 18:27
Guggan lifir enn Undanfarin ár hefur fjárfesting Reynis Traustasonar og lífsviðurværi sonar hans birt endalausar falsfréttir um Samherja og forstjóra félagsins. Nú þegar sitthvað er að koma í ljós um starfsaðferðir þar á bæ dustar Reynir rykið af lífseigasta bullinu um Gugguna á Ísafirði. Skoðun 8.6.2023 11:00
Tóku fagnandi á móti Sæfara eftir tólf vikur í slipp Grímeyjarferjan Sæfari kom siglandi frá Dalvík og lagðist við bryggju í Grímsey um hádegisbil í dag. Ferjan sigldi loks aftur í morgun, en hún hafði verið tólf vikur í slipp á Akureyri. Upphaflega stóð til að hún yrði sex til átta vikur í slipp. Innlent 7.6.2023 14:10
Göngugötunni lokað fyrir umferð næsta sumar Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í dag að Göngugötunni verði lokað fyrir umferð næsta sumar. Einnig á daginn á sunnudögum núna í sumar. Innlent 6.6.2023 21:53
Silja ráðin samskiptastjóri HA Silja Jóhannesar Ástudóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastjóra Háskólans á Akureyri. Viðskipti innlent 5.6.2023 12:48
Rennibrautirnar á Akureyri lokaðar: „Auðvitað snúa einhverjir svekktir frá“ Stóru rennibrautunum í Sundlaug Akureyrar, Trektinni og Flækjunni, var lokað síðastliðinn þriðjudag vegna viðhaldsframkvæmda og er reiknað með að framkvæmdir standi í tvær vikur. Innlent 3.6.2023 07:00
Grímseyjarferjan hefur loks siglingar á ný í næstu viku Stefnt er að því að Grímseyjarferjan Sæfari hefji áætlunarsiglingar á milli Grímeyjar og Dalvík á miðvikudaginn, en ferjan hefur verið í slipp síðustu vikurnar. Viðhaldsvinna hefur tekið lengri tíma en áætlað var í fyrstu. Innlent 2.6.2023 07:33
Þóttust betla peninga fyrir heyrnarskerta Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði í gær afskipti af tveimur karlmönnum sem stóðu fyrir utan verslanir á Akureyri og betluðu pening sem þeir sögðust vera að safna fyrir heyrnarskerta. Síðar kom í ljós að ekki ræddi um neins konar góðgerðarsöfnun. Innlent 31.5.2023 12:04
Ferjan í slipp og ekkert bólar á ferðamönnum á meðan Ferðaþjónusta í Grímsey er í lamasessi þar sem Sæfari, ferja Grímseyinga, er í slipp. Ferjan átti að byrja að sigla aftur í maí en því hefur tvívegis verið frestað. Veitingamaður í eyjunni hefur áhyggjur af stöðunni. Innlent 29.5.2023 12:19
Óttast allsherjarverkfall: „Þau vilja ekkert tala um þetta“ Sundlaugum og íþróttahúsum á landsbyggðinni verður lokað um helgina vegna verkfalls BSRB og leikskólum skellt aftur í lás eftir helgi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir alvarlega stöðu að teiknast upp og sýnir ósætti félagsmanna skilning. Trúnaðarmaður telur stefna í ótímabundið verkfall miðað við skilningsleysi viðsemjanda. Innlent 26.5.2023 13:08
112 milljóna hagnaður hjá Skógarböðunum Baðlónið Skógarböðin, sem staðsett er í Vaðlaskógi í Eyjafirði, hagnaðist um yfir hundrað milljónir á síðasta ári, þrátt fyrir að lónið hafi ekki opnað fyrr en í maí í fyrra. Gestafjöldi hefur verið meiri en búist var við í upphafi en lónið hefur tekið á móti yfir hundrað þúsund gestum frá því það opnaði fyrir ári síðan. Viðskipti innlent 25.5.2023 20:49
Varð rafmagnslaust á Norðurlandi Rafmagnslaust var á Akureyri, Dalvík og í nærsveitum sökum útleysingar á Rangárvöllum. Að því fram kemur á vef Landsnets voru allir notendur á Akueryri og nágrenni eru án rafmagns. Innlent 25.5.2023 18:39
Bjóða upp á flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar Icelandair ætlar að bjóða upp á flug á milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í tengslum við millilandaflug sitt frá 15. október til 30. nóvember. Flogið verður þrisvar í viku. Viðskipti innlent 25.5.2023 14:21
EasyJet flýgur frá Akureyri til London í vetur Opnað hefur verið fyrir bókanir í flugferðir með easyJet á milli London og Akureyrar í vetur. Fyrsta flugferðin verður 31. október en flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, út mars 2024. Viðskipti innlent 25.5.2023 11:31
Fundu fyrir skjálftanum á Akureyri og Ólafsfirði Jarðskjálfti að stærð 3,8 mældist rúmlega níu kílómetrum austan við Grímsey klukkan 19:22 í kvöld. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi og hefur nokkur eftirskjálftavirkni fylgt honum. Innlent 23.5.2023 19:54
Stefna að milljarða uppbyggingu á félagssvæði KA Undirritaður var samningur á milli Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar (KA) um uppbyggingu íþróttamannvirkja á félagssvæði KA. Samningurinn er framhald af viljayfirlýsingu milli aðila sem var undirrituð í desember 2021. Áætlaður kostnaður við keppnisvöllinn, stúkumannvirkið og félags- og búningsaðstöðuna er rúmlega 2,6 milljarðar á núverandi verðlagi. Fótbolti 23.5.2023 19:51
Tjón vegna sjávarflóðsins á Akureyri metið á 153 milljónir króna Níu tjónsatburðir komu til kasta Náttúruhamfaratryggingar Íslands árið 2022, átta vegna sjávar- eða vatnsflóða en einn vegna jarðskjálfta við Grindavík. Mesta tjónið varð í tengslum við sjávarflóð á Akureyri en það var metið á samtals um 153 milljónir króna. Innlent 23.5.2023 06:51
Viðbrögð „góða fólksins“ hafi verið viðbúin Eigandi plastverksmiðju á Akureyri segir „góða fólkið“ hafa orðið brjálað og hann kallaður arðræningi í ummælakerfum eftir auglýsingu eftir starfsmanni sem væri sjaldan veikur. Hann segir einfaldlega hafa viljað vekja athygli á því að hæfniskröfur væru í raun engar. Viðskipti innlent 22.5.2023 16:58
Fyrst og fremst vonbrigði fyrir Norðurland Bæjarstjóri Akureyrar segir mikil vonbrigði fyrir íbúa Norðurlands að félagið Niceair sé farið í þrot. Of litlum markaði fyrir utanlandsflug frá Akureyri sé ekki um að kenna, heldur öðrum þáttum. Gjafabréf sem fólk á inni hjá félaginu eru líklegast ónýt, að sögn formanns Neytendasamtakanna. Viðskipti innlent 20.5.2023 12:02