Reykjanesbær
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 35 ›
Skjálfti 3,4 að stærð fyrir utan Reykjanestá Skjálfti 3,4 að stærð varð rétt úti fyrir Reykjanestá klukkan 8:08 í morgun. Innlent 4.5.2023 08:31
Útskrifaður af gjörgæslu eftir skipsbrunann í Njarðvíkurhöfn Skipverji sem slasaðist þegar Grímsnes GK-555 brann í Njarðvíkurhöfn fyrir viku er útskrifaður af sjúkrahúsi. Rannsókn lögreglu á brunanum mannskæða er sögð miða vel áfram en ekki er talið að upptök eldsins hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 2.5.2023 13:47
40 þúsund dósir á dag hjá Dósaseli í Reykjanesbæ Mikil og merkileg starfsemi fer fram í Dósaseli í Reykjanesbæ, sem er verndaður vinnustaður. Þar tekur starfsfólkið á móti fjörutíu þúsund einnota umbúðum á hverjum degi en flokkunarvélar sjá um að umbúðirnar fari á rétta staði. Innlent 1.5.2023 21:03
Skólar á Akureyri og Suðurnesjum einnig undir smásjá ráðherra Stýrihópur sem mennta- og barnamálaráðherra skipaði í síðustu viku lagði fram að skólameistarar Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis - miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs myndu hefja samtal um sameiningu eða aukið samstarf. Sama á við Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri. Innlent 28.4.2023 11:11
Ekki talið að eldurinn hafi brotist út með saknæmum hætti Ekki er talið að eldurinn um borð í skipinu Grímsnesi GK555 aðfaranótt 25. apríl hafi brotist út með saknæmum hætti. Innlent 28.4.2023 10:57
Refsing þyngd fyrir manndráp af gáleysi í Plastgerðinni Hæstiréttur hefur staðfest og þyngt refsingu yfir tveimur yfirmönnum í Plastgerð Suðurnesja fyrir manndráp af gáleysi í verksmiðju fyrirtækisins sumarið 2017. Þeir eru taldir ábyrgir fyrir dauða starfsmanns fyrirtækisins sem klemmdist í vinnuvél. Innlent 26.4.2023 15:59
Gullleitarfyrirtæki horfir til íslenskra jarðhitasvæða eftir sýnatöku á Reykjanesi Iceland Resources, fyrirtæki sem leitar að gulli og öðrum góðmálmum, greindi í dag frá niðurstöðum rannsókna á sýnum fengnum frá Reykjanesvirkjun. Forstjóri segir að langt sé í að möguleg vinnsla geti hafist. Innlent 26.4.2023 14:45
Einn liggur enn þungt haldinn á spítala Einn liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir bruna í bátnum Grísmnesi í Njarðvíkurhöfn. Að sögn lögreglu liggja eldsupptök enn ekki fyrir. Innlent 26.4.2023 11:56
Litlu mátti muna að fleiri færust um borð í Grímsnesinu Einn maður lést og tveir slösuðust þegar eldur kom upp í Grímsnesi GK í Njarðvíkurhöfn í nótt. Ljóst er að litlu mátti muna að fleiri færust í brunanum sem var mjög erfiður viðureignar. Báturinn er mikið skemmdur. Innlent 25.4.2023 19:30
Slökkvistarfi lokið á vettvangi banaslyssins í Njarðvík Slökkvistarfi er lokið í Njarðvíkurhöfn þar sem eldur kviknaði í netabátnum Grímsnesi GK-555 í nótt. Vettvangur var afhentur Lögreglunni á Suðurnesjum upp úr klukkan tvö í dag. Innlent 25.4.2023 16:48
Hiti aftur farinn að aukast í bátnum Enn er nokkur hiti í netabátnum Grímsnesi GK-555 sem brann í Njarðvíkurhöfn í nótt og í morgun. Slökkvilið er enn að störfum og verið að dæla töluverðum sjó í gegnum skipið til að kæla það. Innlent 25.4.2023 12:28
Gríðarlegur hiti og eldurinn erfiður viðureignar Gríðarlegur hiti og eldur var í Grímsnesi GK-555, netabáti sem brann í Njarðvíkurhöfn í nótt og í morgun. Varaslökkviliðsstjóri segir eldinn hafa verið gríðarlega erfiðan við að etja. Þá hafi karlmaður sem lést í brunanum ekki verið með lífsmarki þegar slökkvilið náði að koma honum út úr skipinu. Innlent 25.4.2023 11:06
Skipstjórinn um brunann í Njarðvík: Hinn látni pólskur og hefði orðið fimmtugur á árinu Karlmaður sem lést í skipsbruna í Njarðvíkurhöfn í nótt var pólskur og hefði orðið fimmtugur á þessu ári. Hann lætur eftir sig eiginkonu og unglingsson í Póllandi. Þetta segir Sigvaldi Hólmgrímsson, skipstjóri bátsins, í samtali við fréttastofu. Innlent 25.4.2023 10:07
Einn lést þegar bátur brann í Njarðvíkurhöfn í nótt Einn lést þegar bátur brann í Njarðvíkurhöfn í nótt. Sjö voru um borð þegar eldurinn kom upp og þurfti að flytja tvo þeirra á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Endurlífgunartilraunir á þeim þriðja báru ekki árangur. Innlent 25.4.2023 06:45
Kjarnorkuknúnir kafbátar nærri Helguvík Kjarnorkuknúnum orrustukafbátum bandaríska sjóhersins verður heimilt að hafa viðkomu við Ísland og von er á fyrsta kafbátnum á næstunni. Utanríkisráðherra hefur áréttað sérstaklega við bandarísk stjórnvöld að þeir megi ekki bera kjarnorkuvopn innan íslenskrar landhelgi. Innlent 18.4.2023 12:29
Enginn kannast við mann sem framdi vopnað rán í Innri-Njarðvík Laust fyrir klukkan 15 í dag ruddist maður með hettu, sólgleraugu, grímu fyrir vitum og vopnaður hnífi inn í Stapagrill í Innri-Njarðvík og ógnaði starfsfólki. Hann komst á brott með reiðufé úr afgreiðslukassa sjoppunnar. Innlent 17.4.2023 18:53
Í gæsluvarðhald vegna stunguárásar í Reykjanesbæ Landsréttur staðfesti tveggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem er grunaður um að hafa stungið annan mann í hendina í Reykjanesbæ um páskana. Maðurinn er sagður dvelja ólöglega á landinu og hafa komist ítrekað í kast við lögin. Innlent 13.4.2023 18:11
Segir ráðuneytið reka fólk úr íbúðum svo leigja megi hælisleitendum Bæjarfulltrúi Umbótar í Reykjanesbæ segir bæinn vera kominn að þolmörkum þegar kemur að móttöku flóttafólks. Hún segir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið reka fólk úr íbúðum sínum svo leigja megi hælisleitendum þær. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja bæjarbúa ekki treysta yfirvöldum þegar kemur að málaflokknum. Innlent 6.4.2023 13:32
Páskaumferðin hefur gengið vel Umferðin gekk stórslysalaust fyrir sig í gær að sögn lögreglu. Mikill straumur ökutækja var út úr höfuðborginni enda páskahelgin ein stærsta ferðahelgi ársins. Viðburðir eru um allt land og þá var mikil umferð á leið til Keflavíkurflugvallar og þaðan til suðlægari slóða. Innlent 6.4.2023 13:14
Leggjast alfarið gegn því að veita stað Óla Geirs áfengisleyfi Bæjarráð Reykjanesbæjar leggst alfarið gegn því að LUX, skemmtistað í eigu Óla Geirs verði veitt tímabundið áfengisleyfi. Innlent 5.4.2023 21:45
Stefán Arnar sá sem fannst látinn í Reykjanesbæ Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur staðfest að Stefán Arnar Gunnarsson var sá sem fannst látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ um helgina. Leitað hafði verið að Stefáni síðan 3. mars síðastliðinn. Innlent 5.4.2023 13:03
Guðmundur rekinn Guðmundur Elís Sigurvinsson mun ekki starfa áfram á Grímsnesi GK-555 eftir að fimmtán ára stúlka fannst um borð. Skipstjórinn segist hafa rekið hann í gærkvöldi. Guðmundur á sögu um gróft ofbeldi en var sleppt að lokinni skýrslutöku í gær. Innlent 3.4.2023 17:07
Guðmundi sleppt eftir skýrslutöku í gær Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir Guðmundi Elís Sigurvinssyni sem handtekinn var við höfnina í Reykjanesbæ í gær eftir að tilkynnt var að fimmtán ára stúlka í Vestmannaeyjum hefði ekki skilað sér heim í gær. Stúlkan fannst um borð í bát við veiðar á Suðurnesjum. Guðmundur var látinn laus að loknum skýrslutökum. Innlent 3.4.2023 10:06
Fimmtán ára stúlka um borð í bát með alræmdum ofbeldismanni Tæplega 24 ára karlmaður var handtekinn við höfnina í Reykjanesbæ á fjórða tímanum í dag eftir að tilkynnt var að fimmtán ára stúlka í Vestmannaeyjum hefði ekki skilað sér heim í gær. Stúlkan fannst um borð í bát við veiðar á Suðurnesjum. Karlmaðurinn á sögu um gróft ofbeldi. Innlent 2.4.2023 18:16
Líkfundur í Reykjanesbæ Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um líkfund við fjöruborðið við Fitjabraut í Reykjanesbæ á hádegi í dag. Innlent 2.4.2023 15:32
Skemmtistað Óla Geirs í Keflavík lokað Skemmtistaðnum LUX Keflavík var lokað um síðustu helgi vegna skorts á tilskyldum leyfum. Staðnum var lokað stuttu áður en einkasamkvæmi átti að hefjast þar og þurfti að færa veisluna yfir á annan skemmtistað í bænum. Innlent 30.3.2023 15:46
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir manndrápstilraun á nýársnótt Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ á nýársnótt árið 2020. Fórnarlambs manndrápstilraunarinnar var sýknað af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás. Innlent 30.3.2023 11:12
Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. Innlent 28.3.2023 14:10
Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið. Innlent 27.3.2023 11:55
Læra íslensku sem er sérhæfð fyrir vinnu í skólum Í Reykjanesbæ er rekin svokölluð leikskólasmiðja þar sem innflytjendur læra íslensku sem er sérsniðin fyrir störf í leik- og grunnskólum en skortur á íslenskukunnáttu getur staðið fólki af erlendum uppruna fyrir þrifum. Innlent 26.3.2023 23:14