Reykjavík
258 259 260 261 262 263 264 265 266 … 334 ›
Ný mathöll opnar í Borgartúni á morgun „Upphaflega stóð til að opna fyrir páska en í ljósi aðstæðna ákváðum við að fresta opnuninni um stundarsakir. Í svona ástandi er enginn tími fullkominn en við ætlum að ríða á vaðið núna,“ segir Björn Bragi Arnarsson í viðtali við Vísi. Viðskipti innlent 19.4.2021 17:16
Sex þjálfarar hjá Víkingi komnir í sóttkví Sex þjálfarar hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi eru komnir í sóttkví, þar af tveir vegna beinna tengsla við einstakling af leikskólanum Jörfa þar sem upp kom hópsmit. Innlent 19.4.2021 13:02
„Nei, mér er ekki í nöp við Dag B. Eggertsson“ Ólafur Guðmundsson varaborgarfulltrúi botnaði skopmynd hins snjalla Gunnars Karlsson með því að segja að best væri að setja túrbó í bíl Vigdísar Hauksdóttur þar sem hún hefur verið stöðvuð á sínum kappakstursbíl af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Innlent 19.4.2021 11:37
Þrettán í sóttkví vegna smits í Krónunni: „Það fór strax allt í gang hjá okkur“ Innlent 19.4.2021 10:59
Starfsmenn Krónunnar í Austurveri í sóttkví eftir smit Starfsmaður sem er í hlutastarfi hjá Krónunni í Austurveri hefur greinst með kórónuveiruna. Allir starfsmenn verslunarinnar sem voru í samskiptum við starfsmanninn hafa verið sendir í sóttkví í samráði við sóttvarnarlækni og rakningateymi almannavarna. Innlent 19.4.2021 10:24
„Þetta er mjög alvarleg staða og ég næ ekki utan um þetta“ Leikskólastjóri á Jörfa í Hæðargarði í Reykjavík segir stöðuna mjög alvarlega. Fimm starfsmenn og sex börn á Jörfa greindust smituð af Covid-19 í gær. Bergljót er þeirra á meðal og er komin í rúmið. Innlent 19.4.2021 09:13
Öll sem voru á Íslenska barnum 9. apríl fari í skimun Einstaklingur sem smitaður var af kórónuveirunni sótti Íslenska barinn í miðbæ Reykjavíkur föstudaginn 9. apríl. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu barsins nú síðdegis þar sem gestir barsins þann daginn eru hvattir til þess að fara í skimun. Innlent 18.4.2021 18:12
Annar starfsmaður smitaðist á undan og veiran fengið að „malla“ Talið er að starfsmaður á leikskólanum Jörfa í Reykjavík sem greindist fyrst smitaður af kórónuveirunni á föstudag hafi smitast af öðrum starfsmanni leikskólans. Sá hafi einnig mætt með einkenni til vinnu í síðustu viku og veiran því fengið að „malla“ einhvern tíma inni á leikskólanum. Innlent 18.4.2021 16:41
Foreldrar um hópsmitið á Jörfa: „Ég held að margir séu reiðir en við höfum öll gert mistök“ Móðir fimm ára drengs á leikskólanum Jörfa sem greindist með covid-19 um helgina tekur ástandinu af æðruleysi og er þakklát að sonur hennar sé ekki mikið veikur. Hún segir nokkra reiði ríkja meðal foreldra eftir að í ljós kom að smit sem upp kom á leikskólanum megi rekja til brots á reglum um sóttkví en allir geti lent í því að gera mistök og allir geri sitt besta. Innlent 18.4.2021 16:17
Fimm fluttir á sjúkrahús eftir harða aftanákeyrslu Fimm voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir harða aftanákeyrslu á Vesturlandsvegi við Esjuberg um klukkan tvö í dag. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Innlent 18.4.2021 15:40
Skora á borgarstjórn að falla frá áformum um lækkun hámarkshraða Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, mótmælir harðlega áformum meirihluta borgarstjórnar um að lækka hámarkshraða á öllum götum í umsjá borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði. Fulltrúaráðið heldur því fram að áformin muni að óbreyttu ýta umferðinni frekar inn í íbúðahverfi sem verði til þess að ógna umferðaröryggi allra vegfarenda, líkt og það er orðað í tilkynningunni. Innlent 18.4.2021 15:07
Smitum fjölgar á leikskólanum Jörfa: Starfsfólk, börn og foreldrar í sóttkví fram á föstudag Fleiri starfsmenn á leikskólanum Jörfa í Reykjavík hafa greinst með kórónuveiruna í dag eftir starfsmaður þar greindist með veiruna í gær. Starfsmaðurinn fór veikur heim á fimmtudag og voru rúmlega tuttugu börn og allt starfsfólk á einni deild sett í sóttkví. Innlent 17.4.2021 21:17
Nemandi í Sæmundarskóla greindist með veiruna Nemandi í 2. bekk í Sæmundarskóla í Grafarholti greindist með kórónuveiruna. Allir nemendur árgangsins eru nú í sóttkví. Innlent 17.4.2021 21:10
Hraðalækkanir: Fyrir hvern? Snemma á níunda áratug síðustu aldar hafði fólk tekið eftir aukningu í umferðaróhöppum og slysum áratugina á undan. Skoðun 17.4.2021 16:31
22 börn auk starfsfólks leikskólans Jörfa í sóttkví 22 börn og allri starfsmenn á einni deild leikskólans Jörfa í Reykjavík eru í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp hjá starfsmanni á leikskólanum. Smitið greindist í gær og er óvíst hvort leikskólinn getur verið opinn að sögn Bergljótar Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Jörfa. Innlent 17.4.2021 11:36
Golffár á Fróni og nú þegar slegist um rástímana Áhugi á golfinu hefur ekki verið eins mikill í annan tíma á Íslandi. Þó tímabilið sé ekki hafið og nú sé svokallað vetrargolf stundað, sem áður var bara meðal þeirra hörðustu, eru allir rástímar sem í boði eru upp bókaðir og biðlistar í að komast í klúbbana. Innlent 17.4.2021 08:00
Grunaður um sölu áfengis úr bílnum Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl í Árbænum vegna gruns um að ökumaður hans væri að selja áfengi úr bílnum. Töluvert magn af áfengi var tekið úr bílnum og haldlagt. Innlent 17.4.2021 07:26
Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur Tveggja bíla árekstur varð í kvöld á Bústaðavegi í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir áreksturinn. Innlent 16.4.2021 19:07
Telur ósennilegt að Reykvíkingar muni finna mikinn mun Formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir boðaða lækkun hámarkshraða á götum í eigu borgarinnar mikla afturför sem lengja muni ferðatíma Reykvíkinga. Samgönguverkfræðingur telur hins vegar að áhrif á ferðatíma verði hverfandi. Innlent 15.4.2021 20:00
Ráðherrar mætast fyrst í Reykjavík Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, mun ferðast til Íslands í næsta mánuði. Þá mun hann leiða sendinefnd Rússa á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík og taka við formennsku í ráðinu til næstu tveggja ára. Innlent 15.4.2021 15:23
Vítamínsprauta fyrir framtíðina ekki fyrir börnin í Háteigsskóla? Sama dag og grafan mætir og síðasta nálæga græna svæðið er tekið frá börnunum í Háteigsskóla er eftirfarandi birt á vef Reykjavíkurborgar: Skoðun 15.4.2021 14:31
Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni. Innlent 15.4.2021 14:00
Forgangur Strætó á gatnamótum eina svarið við mögulegum áhrifum Verið er að greina hvort boðuð lækkun hámarkshraða á götum í Reykjavík hafi neikvæð áhrif á ferðatíma og rekstrarkostnað Strætó. Eina mótvægisaðgerðin við mögulegum áhrifum væri þó forgangur strætisvagna á umferðarljósum, að sögn framkvæmdastjóra. Innlent 15.4.2021 12:46
Eyþór um lækkun hámarkshraða: „Umferðin getur hreinlega leitað frekar inn í íbúðabyggð“ Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hugnast ekki áform meirihlutans um að hámarkshraði á mörgum af helstu samgönguæðum borgarinnar verði lækkaður. Hann telur að lækkun hámarkshraða muni tefja fyrir almenningssamgöngum auk þess sem það geti skapað hættu á aukinni umferð um íbúðagötur. Innlent 14.4.2021 21:11
Lífi og heilsu verður ekki fórnað fyrir minni umferðartafir Hámarkshraði á götum í eigu borgarinnar verður hvergi yfir fimmtíu kílómetrum á klukkustund samkvæmt nýsamþykktri áætlun borgarinnar. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir öryggi ganga framar mögulegum umferðartöfum. Innlent 14.4.2021 18:41
Byrjað að rífa hlaðinn vegg á Austurvelli Byrjað var í morgun að rífa niður hlaðinn vegg og beð norðan megin á Austurvelli. Veggurinn nær allt frá veitingastaðnum Duck and Rose þar sem áður var Kaffi París austan megin að American Bar vestan megin á torginu. Innlent 14.4.2021 16:15
Hámarkshraði verði hvergi yfir 50 km/klst á borgargötum Dregið verður úr umferðarhraða á götum í eigu Reykjavíkurborgar og verður hámarkshraði hvergi yfir 50 km/klst samkvæmt tillögu að hámarkshraðaáætlun sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði borgarinnar í dag. Stefnt er að því að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum í borginni. Innlent 14.4.2021 15:10
Gísli Marteinn syrgir elsku Tinna sinn „Elsku Tinni er dáinn. Hann kvaddi í gærmorgun eftir þriggja vikna veikindi. Hann var fallegasti og besti hundur sem ég hef kynnst og við söknum hans svo ótrúlega mikið.“ Lífið 14.4.2021 13:35
Borgarfulltrúi stýrir Icelandic Startups Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Hún tekur við starfinu af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní. Viðskipti innlent 14.4.2021 11:50
Ógnaði starfsfólki Domino's þegar hann fékk ekki að borga með reiðufé Lögregla var kölluð að útibúi Domino‘s í Skúlagötu í kvöld þegar óánægður viðskiptavinur ógnaði starfsfólki staðarins. Var sá ósáttur við að fá ekki að greiða fyrir pöntun sína með reiðufé en skyndibitakeðjan hefur ekki tekið við peningum af sóttvarnaástæðum eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst. Innlent 13.4.2021 22:32