Ríkisstjórn
1 2 3 4 ›
Hótaði aldrei stjórnarslitum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist aldrei hafa hótað stjórnarslitum í kringum sölu bankanna. Hann segir úttekt <em>Fréttablaðsins</em> á sölu ríkisbankanna innihalda rangfærslur sem hefði mátt leiðrétta með einu símtali en aldrei hafi verið leitað eftir upplýsingum úr ráðuneytinu. Innlent 13.10.2005 19:17
Díselolía 5 krónum ódýrari Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka hið umdeilda olíugjald til að stuðla að frekari notkun díselbíla, sem viðurkennt er að menga síður umhverfið þar sem vélarnar eru sparneytnari en bensínvélar. Útsöluverð díselolíu verður fimm krónum ódýrara en ella í sex mánuði frá og með 1. júlí. Innlent 13.10.2005 19:10
Ríkisstjórnin tapar meirihlutanum Ríkisstjórnin heldur ekki meirihluta sínum í nýjustu skoðanakönnun Gallups en Samfylkingin vinnur á. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 37 prósenta fylgi og tapar einu prósentustigi frá fyrra mánuði. Framsóknarflokkur mælist með tíu prósent og tapar tveimur prósentustigum. Innlent 13.10.2005 19:09
Innflytjendaráð stofnað? Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær skýrslu nefndar um útfærslu á tillögum að stefnumótun í aðlögunarmálum innflytjenda á Íslandi. Nefndin leggur til að komið verði af stað tilraunaverkefni til fimm ára þar sem sérstakt innflytjendaráð verði stofnað sem ætlað er að sjá um móttöku flóttafólks. Innlent 13.10.2005 19:07
Lögin í endurskoðun Þingmenn Framsóknarflokksins vissu ekki betur en að lög um eftirlaun þingmanna og ráðherra væru til endurskoðunar, segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður, en Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær að hann sæi enga ástæðu til að breyta lögunum. Innlent 13.10.2005 19:06
Tíu ár í stjórn Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Davíð Oddsson utanríkisráðherra boðuðu til blaðamannafundar eftir hádegi í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins tók við völdum. Innlent 13.10.2005 19:06
Ríkisstjórnin tíu ára Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson halda á morgun upp á tíu ára ríkisstjórnarsamstarf. Þeir segjast hafa lært mikið af samstarfinu og eru ánægðir með árangur þess. Innlent 13.10.2005 19:06
6 milljarða niðurskurður Ný samgönguáætlun, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi, felur í sér nærri sex milljarða króna niðurskurð á kosningaloforðum sem gefin voru fyrir tveimur árum. Innlent 13.10.2005 19:01
Halldór og Davíð funda enn Ríkisstjórnarfundur var haldinn í morgun og lauk skömmu fyrir fréttir. Ekki var fjallað um fyrirhugaða sölu Landssíma Íslands eins og búist hafði verið við en Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Davíð Oddsson utanríkisráðherra sitja enn á fundi. Innlent 13.10.2005 18:58
Söluferli Símans ófrágengið Ákvörðun um hvernig staðið verður að sölu Símans verður tekin á allra næstu dögum, að sögn Davíðs Oddssonar utanríksiráðherra sem fundaði með Halldóri Ásgrímssyni um málið að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Innlent 13.10.2005 18:58
Síminn: Gengið frá stóru atriðunum Gengið verður frá síðustu stóru atriðunum í sambandi við sölu Símans á allra næstu dögum, að sögn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:58
Auðun hafði engin mannaforráð Auðun Georg Ólafsson, nýr fréttastjóri Ríkisútvarpsins, var ráðinn vegna reynslu sinnar af rekstri og stjórnun, að því er útvarpsstjóri segir. Auðun Georg hafði þó engin mannaforráð í fyrra starfi sínu heldur samræmdi sölustarf umboðsmanna Marel í Suðaustur-Asíu. Innlent 15.3.2005 00:01
Mælt með þeim síst hæfa Fyrrum útvarpsráðsmaður segir að fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í útvarpsráði hafi í gær mælt með þeim umsækjanda í stöðu fréttastjóra Ríkisútvarpsins sem er síst hæfur, Auðuni Georg Ólafssyni. Starfsfólk RÚV skorar á útvarpsstjóra að ráða faglega í stöðuna. Innlent 8.3.2005 00:01
Framtíð Varnarliðsins rædd Embættismannaviðræður um framtíð Varnarliðsins hefjast á næstunni og gerir Davíð Oddsson utanríkisráðherra ráð fyrir að niðurstaða fáist á árinu. Hann og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddust við í fyrradag um framhald viðræðna. Innlent 13.10.2005 18:51
Draga lærdóm af mistökum ráðherra Ungir jafnaðarmenn segja að draga verði lærdóm af mistökum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherraog Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra í Íraksmálinu. Samtökin vilja fyrir alla muni, og telja víst að þorri þjóðarinnar sé því sammála, að hindra verði að slík mistök geti endurtekið sig. Innlent 13.10.2005 18:46
Siv segist ekki muna Siv Friðleifssdóttir, fyrrverandi ráðherra, segist ekki muna hvort stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið ræddur á ríkisstjórnarfundi þann 18. mars árið 2003. Þetta kom fram í þættinum Silfur Egils á Stöð 2 í hádeginu í dag. Innlent 13.10.2005 15:29
Formennirnir viðurkenni mistök Steingrímur Hermannson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist halda að Davíð Oddsson hafi einn tekið ákvörðun um að styðja innrásina í Írak. Hann hvetur stjórnarherrana til að tala opinskátt um málið, birta fundargerðir utanríkismálanefndar og viðurkenna að mistök hafi verið gerð. Innlent 13.10.2005 15:29
Skerpt á lögum Samkeppnisstofnunar Ríkisstjórnin ætlar ekki að setja sérstök lög um hringamyndun. Í staðinn verður skerpt á lögum um Samkeppnisstofnun og verður frumvarp þess efnis lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Innlent 13.10.2005 15:29
Stjórnin framdi stjórnarskrárbrot Stjórnvöld frömdu stjórnarskrárbrot með því að heimila notkun landsins til árásar á Írak segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Hann hyggst krefja forsætisráðherra skýringa á því hvers vegna herir bandamanna fengu leyfi til að hafa hér viðdvöl vegna árásarinnar, löngu áður en listi hinna staðföstu þjóða varð að veruleika. Innlent 13.10.2005 15:27
Halldór neitar ásökunum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þvertekur fyrir að málflutningur hans um þá ákvörðun að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða í Íraksstríðinu hafi verið villandi. Hann segir utanríkismálanefnd Alþingis frjálst að birta það sem hún vill varðandi málið. Innlent 13.10.2005 15:26
Stuðningurinn hófst í febrúar 2003 Íslensk stjórnvöld gáfu leyfi til þess í febrúar árið 2003 að herflugvélar gætu flogið um íslenska lofthelgi og haft hér viðdvöl vegna innrásar í Írak. Listi hinna staðföstu þjóða var ekki birtur fyrr en 18. mars. Í millitíðinni töluðu formenn stjórnarflokkanna í austur og vestur í afstöðunni til Íraksdeilunnar. Innlent 13.10.2005 15:26
Trúnaði aflétt af fundargerðum Þingflokkur Samfylkingarinnar fer fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum funda utanríkismálanefndar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak og um að Ísland skyldi vera sett á lista hinna staðföstu þjóða. Innlent 17.10.2005 23:41
Halldór neitar að tjá sig Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra neitar að tjá sig um ákvörðun hans og Davíðs Oddssonar um stuðning Íslands við Íraksstríðið. Fréttastofan hefur nú í þrjá daga leitað eftir skýringum hans á svörum þess efnis að ákvörðunin hafi verið rædd í utanríkismálanefnd. Innlent 13.10.2005 15:24
Tveggja manna ákvörðun segir Guðni Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðunina um veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða orka tvímælis. Tveir menn hafi tekið þá ákvörðun. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segir að ráðherrann sé með ummælum sínum að treysta stöðu sína fyrir flokksþing Framsóknarflokksins í febrúar. Innlent 13.10.2005 15:23
65 milljónum veitt til smáeyja Ríkisstjórn Íslands mun á næstu þremur árum verja um 65 milljónum króna, jafnvirði einni milljón dollara, til verkefna á sviði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda í smáeyþróunarríkjum. Innlent 13.10.2005 15:22
Nefnd skoðar ásakanir á Impregilo Sérstakri nefnd ráðuneytisstjóra verður falið að rannsaka þær ásakanir sem hafa komið fram á verktakafyrirtækið Impreglio. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun en alls heyra umsvif fyrirtækisins hér á landi undir tíu ráðuneyti. Innlent 13.10.2005 15:20
Davíð í mánaðarfrí Davíð Oddsson utanríkisráðherra er farinn í frí frá utanríkisráðuneytinu í tæpan mánuð. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 hyggst ráðherrann dvelja sér til hressingar í útlöndum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gegnir störfum ráðherrans á meðan. Innlent 13.10.2005 15:20
Gallup stendur við könnunina IMG - Gallup á Íslandi segist standa fyllilega við könnun á afstöðu Íslendinga til þátttöku Íslands á lista hinna viljugu þjóða sem studdu hernaðaraðgerðir í Írak. Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa farið niðrandi orðum um könnunina. Innlent 13.10.2005 15:20
Bæturnar hækka um 3,5% Bætur almannatrygginga hækka um 3,5% um áramótin samkvæmt reglugerð sem heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra hefur undirritað. Þá hækka frítekjumörk um 5%. Félagsmálaráðherra hefur og ákveðið að hækka atvinnuleysisbætur um 3% frá 1. janúar, sem og fæðingarstyrk og lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, einnig um 3%. Innlent 13.10.2005 15:12
Skuldir heimila að hættumörkum Fólk virðist í vaxandi mæli skuldsetja sig meira heldur en greiðslugetan leyfir, segir Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður vegna vaxandi fjölda árangurslausra fjárnáma. Hún vill koma á greiðsluaðlögun fyrir þennan hóp. Innlent 13.10.2005 15:01