Afganistan
6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
Hver borgin fellur á fætur annarri Vígamenn Talibana hafa hert tök sín á yfirráðasvæðum þeirra í norðurhluta Afganistans og virðast þeir vera að undirbúa sig fyrir það að stjórna svæðum þessum til lengri tíma. Stjórnarher landsins á undir högg að sækja en Bandaríkjamenn segja það á ábyrgð Afgana sjálfra að verjast Talibönum. Erlent 10.8.2021 13:14
Talibanar taka tvær borgir til viðbótar Vígamenn Talibana segjast hafa náð tökum á borginni Kunduz, höfuðborg Kunduz-héraðs. Það er eftir harða bardaga í borginni en fregnir hafa einnig borist af falli borgarinnar Sar-e-Pul, sem er einnig höfuðborg héraðs með sama nafn. Erlent 8.8.2021 08:09
Talibanar ná annarri höfuðborg Vígamenn Talibana hafa náð tökum á annarri héraðshöfuðborg í Afganistan. Borgin Sheberghan, höfuðborg Jawzjan-héraðs, er önnur höfuðborgin sem fellur í skaut Talibana á tveimur dögum. Erlent 7.8.2021 12:44
Talibanar taka fyrstu borgina án þess að hleypa af skoti Vígamenn Talibana hafa náð tökum á fyrstu héraðshöfuðborg landsins. Borgin Zaranj í Nimruz-héraði féll í hendur þeirra án þess að skoti væri hleypt af. Zaranj er nærri landamærum Afganistans og Írans. Erlent 6.8.2021 11:57
Reyndu að myrða varnarmálaráðherrann og heita fleiri árásum á leiðtoga Talibanar gerðu í gær bíræfna tilraun til að ráða varnarmálaráðherra Afganistans af dögum og heita frekari árásum á leiðtoga ríkisstjórnar landsins. Bismillah Khan Mohammadi, ráðherrann, var ekki heima og verðir fluttu fjölskyldu hans á brott. Erlent 4.8.2021 11:01
Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat. Erlent 3.8.2021 14:23
Forseti Afganistan kennir brottför Bandaríkjahers um versnandi ofbeldi Ashraf Ghani, forseti Afganistan, hefur kennt skyndilegri og snöggri brottför Bandaríkjahers um versnandi ofbeldi í landinu. Her Afganistan á nú í erfiðum átökum við herskáa Talíbana. Erlent 2.8.2021 21:13
Hafa áhyggjur af auknum árásum á almenna borgara Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af fregnum af auknum árásum á almenna borgara í Afganistan. Sameinuðu þjóðirnar segja þær árásir hafa náð nýjum hæðum að undanförnu samhliða stórri sókn Talibana, sem hafa lagt undir sig stóran hluta landsins síðustu mánuði. Erlent 28.7.2021 22:31
Aldrei hafa fleiri almennir borgarar látist í Afganistan Almennir borgarar í Afganistan sem deyja í átökum hafa sjaldan eða aldrei verið fleiri en nú um stundir, síðan Sameinuðu þjóðirnar hófu að safna slíkum tölum í landinu. Erlent 26.7.2021 06:55
Lofa öllu fögru en halda áfram að ógna og myrða Talibanar munu ekki semja um frið fyrr en Ashraf Ghani, núverandi forseti, fer frá völdum og ný ríkisstjórn verði mynduð. Þeir segjast ekki vilja stjórna einir þar sem engum hafi tekist það til lengri tíma. Erlent 24.7.2021 09:02
Blaðamaður Reuters felldur í átökum við Talibana Danish Siddiqui, blaðamaður og ljósmyndari Reuters fréttaveitunnar, féll í bardögum stjórnarhers Afganistans og Talibana við landamæri Afganistans og Pakistans í morgun. Siddiqui var á ferð með afgönskum hermönnum þar sem þeir reyndu að ná aftur tökum á bænum Spin Boldak. Erlent 16.7.2021 10:29
Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Erlent 13.7.2021 16:49
Vörðust stórri sókn Talibana Stjórnarher Afganistans varðist áhlaupi vígamanna Talibana á Taluqan, höfuðborg héraðsins Takhar, sem liggur að landamærum Afganistans og Tadsíkistan. Talibanar hafa lagt undir sig mikið landsvæði í Afganistan að undanförnu en stjórnarherinn segir þá hafa orðið fyrir miklu mannfalli í þessari árás. Erlent 11.7.2021 20:04
Talibanar ráða flugmenn markvisst af dögum Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum. Erlent 9.7.2021 15:48
Allt herlið horfið frá Afganistan fyrir lok sumars Joe Biden Bandaríkjaforseti lofaði því í gærkvöldi að hann muni ekki senda aðra kynslóð Bandaríkjamanna í stríðreksturinn í Afganistan sem nú hefur staðið í tvo áratugi. Erlent 9.7.2021 07:43
Johnson kallar herlið Bretlands í Afganistan heim Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að herlið Bretlands í Afganistan verði fljótlega kallað aftur heim. Breskar hersveitir hafa verið með viðveru í Afganistan í tuttugu ár, frá hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnana árið 2001. Erlent 8.7.2021 13:53
Yfirgáfu stærstu herstöðina í skjóli nætur Síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu Bagram herstöðina, þá stærstu í Afganistan, um miðja nótt og án þess að segja nýjum afgönskum yfirmanni herstöðvarinnar frá því. Afganskir hermenn uppgötvuðu ekki að þeir væru einir fyrr en nokkrum klukkustundum síðar. Erlent 6.7.2021 09:20
Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn. Erlent 5.7.2021 13:01
Síðustu hermenn NATO yfirgefa Bagram-herstöðina Síðustu hermennirnir úr röðum Bandaríkjahers og annarra NATO ríkja hafa nú yfirgefið Bagram herflugvöllinn í Afganistan. Völlurinn hefur verið aðalbækistöð herliðsins allar götur síðan stríðið gegn Talíbönum og al-Kaída hófst fyrir um tuttugu árum síðan. Erlent 2.7.2021 08:43
Tyrkland komið á lista yfir ríki sem tengjast barnahermennsku Tyrklandi var bætt við lista Bandaríkjanna yfir ríki sem hafa tengingu við notkun barnahermanna á undanförnu ári. Þetta er fyrsta skiptið sem Tyrkland, sem er í Atlantshafsbandalaginu, hefur komist á slíkan lista. Talið er að þetta muni flækja samskipti ríkjanna, sem þegar eru nokkuð slæm, umtalsvert. Erlent 1.7.2021 23:06
Varar við borgarastyrjöld í Afganistan Austin Miller, herforingi og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, varaði í dag við því að Afganar stæðu frammi fyrir erfiðum tímum og mögulega borgarastyrjöld. Leiðtogar ríkisins og aðrir öflugir hópar þurfi að taka höndum saman og berjast gegn Talibönum í kjölfar brottfarar bandarískra hermanna frá landinu. Erlent 29.6.2021 23:05
Um 650 bandarískir hermenn verða eftir í Afganistan Áætlað er um 650 bandarískir hermenn verði eftir í Afganistan þegar búið verður að kalla herlið Bandaríkjahers heim. Hermönnunum sem eftir verða, verður ætlað að tryggja öryggi bandarískra emættismanna í Afganistan. Erlent 25.6.2021 07:56
Kalla bjórinn heim frá Afganistan Stjórnvöld í Þýskalandi hafa ákveðið að ráða verktaka í að flytja tæplega 23 þúsund lítra af bjór frá Afganistan aftur til Þýskalands, nú þegar Atlantshafsbandalagið (NATO) undirbýr að draga hermenn sína út úr Afganistan. Erlent 7.6.2021 23:18
Afganski herinn sagður í slæmu ástandi og óundirbúinn fyrir væntanleg átök Afganski herinn er illa búinn fyrir væntanleg átök við Talibana. Sérfræðingar segja erfiða bardaga í vændum fyrir hermennina sem eru bæði illa þjálfaðir og útbúnir og þykja álíka líklegir til að sýna ríkisstjórninni hollustu og ganga til liðs við einhverja af fjölmörgum stríðsherrum Afganistans. Erlent 27.5.2021 09:59
Talibanar ná tökum á mikilvægu svæði nærri Kabúl Vígamenn Talibana hafa ná stjórn á Nerkh-héraði sem gæti nýst þeim sem gætt inn í Kabúl, höfuðborg landsins. Sveitir Talibana eru nú einungis um fjörutíu kílómetra frá höfuðborginni en héraðið hefur áður verið notað til að gera mannskæðar árásir á Kabúl. Erlent 12.5.2021 14:01
Tugir látnir í sprengjuárás skammt frá skóla í Kabúl Að minnsta kosti fjörutíu eru látnir eftir sprengjuárás sem gerð var nærri skóla í vesturhluta afgönsku höfuðborgarinnar Kabúl í dag. Erlent 8.5.2021 15:29
Námsmenn á meðal þrjátíu látinna í bílsprengjuárás Þrjátíu manns féllu þegar bílsprengja sprakk við gistiheimili í borginni Pul-e-Alam í austanverðu Afganistan í dag. Á meðal þeirra látnu voru framhaldsskólanema sem voru í borginni til að þreyta inntökupróf í háskóla. Erlent 30.4.2021 19:35
NATO byrjar brottflutning frá Afganistan Atlantshafsbandalagið er byrjað að flytja hermenn og búnað frá Afganistan, samhliða Bandaríkjunum. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nýverið að aðkomu Bandaríkjanna að stríðinu í Afganistan verði lokið fyrir 11. september, á tuttugu ára afmæli árásarinnar á Tvíburaturnana. Erlent 29.4.2021 16:06
Talibanar með pálmann í höndunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í vikunni þá ákvörðun að kalla alla hermenn Bandaríkjanna heim frá Afganistan fyrir 11. september næstkomandi. Það ætlar hann að gera án þess að setja talibönum skilyrði. Ákvörðunin gæti reynst íbúum landsins afdrifarík. Erlent 17.4.2021 23:01
Bandalagsríki NATO kalla herinn heim frá Afganistan Danir ætla að kalla herafla sinn heim frá Afganistan í skrefum fram til 11. september næstkomandi, samhliða því sem NATO og Bandaríkin hyggjast draga úr umsvifum sínum í landinu. Danir sendu fyrstu hermennina til Afganistan í janúar 2002 og hafa tekið þátt í stríðinu síðan. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að nú hefjist nýr kafli í samskiptum NATO og Afganistan. Erlent 14.4.2021 20:26