Björgunarsveitir
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 45 ›
Leit að erlendum ferðamanni enn engan árangur borið Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks leitar enn erlends ferðamanns sem hefur verið saknað við gosstöðvarnar á Reykjanesi frá því um miðjan dag. Lítið skyggni er á svæðinu og leiðinlegt veður en leitað verður fram á nótt ef þörf krefur. Innlent 25.6.2021 22:59
Umfangsmikil leit að manni á gosstöðvunum Björgunarsveitarfólk af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu leitar nú að karlmanni á gosstöðvunum á Reykjanesi. Leitar- og sporhundar frá höfuðborgarsvæðinu hafa einnig verið sendir til að aðstoða við leitina. Innlent 25.6.2021 19:52
Vara fólk við „lífshættulegum fíflaskap“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu með yfirskriftinni „Lífshættulegur fíflaskapur – ekki hetjuskapur,“ þar sem því er beint til fólks sem leggur leið sína upp að gosstöðvunum í Geldingadölum að ganga ekki á nýstorknuðu hrauninu sem þar er að finna. Innlent 22.6.2021 15:03
Hóps leitað í hálfan sólarhring í mjög ósumarlegum aðstæðum á hálendinu Landsbjörg minnir göngumenn á hálendinu á að undirbúa sig nægilega vel og afla upplýsinga um aðstæður áður en haldið er af stað í ferðir, enda endurspegla aðstæður á hálendinu alls ekki árstímann. Innlent 21.6.2021 11:54
Slasaði svifvængjamaðurinn fluttur á brott með þyrlu Allar björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á öðrum tímanum í dag vegna slasaðs svifvængjamanns á Búrfelli í Þjórsárdal. Fyrstu viðbragðsaðilar komu á vettvang á þriðja tímanum og hlúðu að konunni, sem flutt var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítala í Fossvogi. Innlent 20.6.2021 14:19
Þjóðgarðsvörður segir stúlkurnar heppnar að vera enn á lífi Stúlkurnar þrjár sem komust í hann krappann á uppblásnum báti á Þingvallavatni snemma í morgun eru heppnar að vera enn á lífi, segir þjóðgarðsvörður. Þingvallavatn sé stórhættulegt og það beri að varast á hvaða árstíma sem er. Innlent 18.6.2021 12:05
Mikill viðbúnaður við Þingvallavatn vegna þriggja stúlkna í neyð Mikill viðbúnaður var upp úr klukkan sjö í morgun eftir að tilkynning barst Neyðarlínu um þrjár stúlkur í vandræðum á bát í Þingvallavatni. Innlent 18.6.2021 08:21
Dæmi um að fólk fari yfir lögregluborða á gossvæðinu Eitthvað hefur verið um það að ferðamenn við eldgosið í Geldingadölum hafa farið út af merktum gönguleiðum og yfir lögregluborða. Innlent 12.6.2021 10:19
Farsælt samstarf um forvarnir og öryggi Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Félagið var stofnað árið 1999 þegar Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg voru sameinuð. Þá urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi með um 18.000 félögum. Skoðun 8.6.2021 08:00
Sóttu kalda og blauta göngumenn á Fimmvörðuháls Björgunarsveitarfólk af Suðurlandi fóru gangandi og á snjósleðum að sækja tvo göngumenn í vandræðum á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi. Mennirnir voru ekki slasaðir en voru orðnir blautir og kaldir og treystu sér ekki til að halda förinni áfram. Innlent 6.6.2021 07:42
Gefast upp á dónalegum og óhlýðnum ferðamönnum Björgunarsveitarfólk við gosstöðvarnar á Reykjanesi mætir nokkrum dónaskap þegar það reynir að leiðbeina fólki um hvar sé óhætt að vera á gosstöðvunum. Innlent 3.6.2021 11:43
Björgunarsveitir glímdu við fjúkandi fellihýsi í gær Björgunarsveitir, lögregla og slökkvilið sinntu talsverðum fjölda útkalla á suðvesturhorni landsins síðdegis í gær og í gærkvöldi vegna hvassviðrisins sem gekk þar yfir. Óvenjulega mörg útköll sneru að þessu sinni að ferðahýsum sem höfðu fokið til. Innlent 29.5.2021 11:07
Björguðu hrossum sem urðu strandaglópar í Þjórsá Björgunarsveitarfólki úr uppsveitum Árnessýslu tókst að koma stóði hrossa sem urðu strandaglópar á sandeyri í miðri Þjórsá á þurrt land í kvöld. Innlent 28.5.2021 22:16
Trampolín og hjólhýsi valda tjóni Mikið hefur verið um að trampolín fjúki og valdi tjóni í hvassviðrinu sem gerir nú á suðvesturhorni landsins. Þá hafa verið nokkuð um að hjólhýsi fjúki úr stað og valdi tjóni. Innlent 28.5.2021 21:07
Björgunarsveitir til aðstoðar vegna fjúkandi lausamuna Beiðnum um aðstoð vegna hvassviðris á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað undir kvöldið. Langflest útköllin eru sögð vegna fjúkandi lausamuna og klæðninga. Innlent 28.5.2021 19:18
Björgunarsveitir kallaðar út á Hvannadalshnjúk Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út á Hvannadalshnjúk til þess að aðstoða þar gönguhóp sem er á leiðinni niður af jöklinum. Innlent 22.5.2021 15:01
Björgunarsveitir kallaðar út vegna hunds í sjálfheldu Rétt fyrir klukkan 12 á hádegi í dag voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út til aðstoðar við hund í sjálfheldu í Glymsgili í Hvalfirði. Hundurinn hafði hrapað fram af brúninni. Innlent 22.5.2021 14:37
Guðni á gosstöðvunum: „Ólýsanleg og ógleymanleg stund“ „Þetta var ólýsanleg og ógleymanleg stund sem ég var þess heiðurs aðnjótandi að eiga í gærkvöldi,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem fór að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær. Hann segir gosið nánast vera eins og gjöf til þjóðarinnar frá æðri máttarvöldum – leið til að kynna land og þjóð nú þegar verið er að opna á ferðalög á ný. Lífið 19.5.2021 14:30
Banna fullyrðingar Landsbjargar um „umhverfisvæna flugelda“ Neytendastofa hefur lagt bann við fullyrðingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í auglýsingum sínum um sölu þeirra á „umhverfisvænni flugeldum“. Eru fullyrðingarnar taldar ósannaðar, veita rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar og til þess fallna að hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. Neytendur 17.5.2021 10:22
Versta brekkan orðin breiður göngustígur Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. Innlent 13.5.2021 22:44
Bætt aðgengi kom sér vel við björgun slasaðrar konu Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk komu konu til aðstoðar sem slasaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á tíunda tímanum í kvöld. Bætt aðgengi varð til þess að hægt var að koma konunni til aðstoðar á skömmum tíma. Innlent 13.5.2021 21:55
Sóttu slasaðan ferðamann á Esjuna Slökkvilið og björgunarsveitarfólk var kallað að Esju í dag til þess að aðstoða þýskan ferðamann sem hafði slasast. Að sögn varðstjóra hafði ferðamaðurinn verið að dást að Esjunni þegar grjót féll niður og á ökkla ferðamannsins. Innlent 13.5.2021 19:14
Tvö útköll vegna slysa í fjalllendi Björgunarsveit í Borgarfirði var kölluð út rétt fyrir klukkan átta í kvöld vegna konu sem slasaðist á fjallgöngu í Kvígindisfelli norðaustur af Hvalvatni. Á svipuðum tíma voru björgunarsveitir í Árnessýslu kallaður út vegna konu sem hafði slasast á göngu norðan við Hengilinn, innarlega í Skeggjadal. Innlent 11.5.2021 20:35
Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. Innlent 10.5.2021 21:32
Þríbrotin en þakklát fyrir nafnlausan hjúkrunarfræðing Klaudia Katarzyna varð fyrir því óláni að detta og þrífótbrotna á leið niður frá gosstöðvunum á Reykjanesskaga á laugardag. Hún er þakklát viðbrögðum fólks sem átti leið hjá þar sem hún lá brotin, og er ókunnug ung kona sem aðstoðaði Klaudiu henni ofarlega í huga. Lífið 10.5.2021 18:04
Gosfólkið hámar í sig pylsurnar í stórum stíl Slysavarnadeildin Þórkatla hefur komið upp sölugámi, sem kallast Ellubúð, við göngustíginn, sem liggur að gosstöðvunum við Fagradalsfjall og hefur algerlega slegið í gegn. Innlent 7.5.2021 13:20
Flutt slösuð frá gosstöðvunum í gærkvöldi Kona var flutt frá gosstöðvunum í Geldingadölum á Reykjanesskaga í gærkvöldi en óttast var að hún hefði fótbrotnað. Innlent 6.5.2021 07:12
Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum. Erlent 5.5.2021 10:53
Skoða þann kost að leggja akveg upp á Fagradalsfjall Til skoðunar er að leggja akveg upp á Fagradalsfjall til að auðvelda ferðamönnum að sjá eldgosið en jafnframt að bæta núverandi gönguleið svo hún nýtist sem neyðarleið fyrir ökutæki. Bæjarráð Grindavíkur samþykkti nú síðdegis að nýja hraunið fengi nafnið Fagradalshraun. Innlent 4.5.2021 23:04
Slökkvilið á leið að hjálpa kajakræðurum í basli Slökkvilið frá tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var sent að Kollafirði síðdegis í dag til þess að koma tveimur kajakræðurum til hjálpar, sem höfðu lent í ógöngum í versnandi veðri. Innlent 25.4.2021 17:19