Fjármálafyrirtæki
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 56 ›
Forstjóri: Kvika kemst vonandi nálægt því að ná markmiði um arðsemi í ár Kvika banki kemst vonandi nálægt því að ná markmiði sínu um arðsemi á árinu. „Við erum ánægð með góðan viðsnúning í bankarekstri,“ sagði Ármann Þorvaldsson bankastjóri. Stefnt er á að hleypa af stokkunum 3,5 til fimm milljarða króna framtakssjóði sem fjárfestir í Bretlandi. Innherji 3.5.2024 15:52
Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Spáin rímar við spá Íslandsbanka sem gerir einnig ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir. Viðskipti innlent 3.5.2024 12:39
Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða Landsbankanum 300 þúsund króna kortareikning, sem var til kominn vegna úttekta í brasilísku ríal. Þá þarf hann að greiða bankanum 400 þúsund krónur í málskostnað. Neytendur 3.5.2024 11:44
Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Íslandsbanki hagnaðist um 5,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Kostnaðarhlutfall bankans hækkar á milli ára og er rétt nær fjárhagslegu markmiði bankans. Viðskipti innlent 2.5.2024 17:46
Óvenju hátt skatthlutfall Arion vegna framvirkra samninga Yfir lengra tímabil hafa framvirkir samningar sem Arion banki hefur veitt viðskiptavinum leitt til lægra virks skatthlutfalls, upplýsti bankastjóri. Hagnaður af slíkum samningum urðu til þess að skatthlutfallið var óvenju hátt á fyrsta ársfjórðungi sem kom greinendum á óvart. Hann gerir ráð fyrir því að þróunin verði með öðrum hætti á yfirstandi ársfjórðungi. Innherji 2.5.2024 16:34
Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður. Viðskipti innlent 2.5.2024 12:55
Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Arion banki hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er nokkur samdráttur sé fjórðungurinn borinn saman við sama tímabil í fyrra, þegar Arion hagnaðist um 6,3 milljarða. Bankastjóri segir afkomuna undir markmiðum. Viðskipti innlent 30.4.2024 16:24
Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum um hálft prósentustig. Á föstudaginn lækka innlánsvextir veltureikninga um allt að 0,85 prósentustig. Viðskipti innlent 24.4.2024 10:17
Vanskil fyrirtækja „ekki til marks um almenna breytingu“ hjá viðskiptavinum Íslandsbanki hefur ekki fundið fyrir mikilli aukningu í vanskilum hjá fyrirtækjum á undanförnum mánuðum, hvorki lengri né skemmri tíma vanskilum, segir fjármálastjóri Íslandsbanka. Heildarvanskil hjá fyrirtækjum í viðskiptum við Landsbankans hafa lítið eitt aukist frá áramótum en breytingin er „óveruleg og er ekki til marks um almenna breytingu hjá okkar viðskiptavinum.“ Innherji 23.4.2024 18:01
Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Fráfarandi bankaráð Landsbankans segir hluthafa þurfa að breyta tilgangi félagsins ef hlutverk hans á ekki að vera að taka þátt í samkeppni á fjármálamarkaði. Kaup á TM hafi samræmst eigendastefnu ríkisins því þau hámari virði eignarhluts ríkisins. Viðskipti innlent 19.4.2024 21:09
Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Ný stjórn hefur verið kjörin í bankaráð Landsbankans. Jón Þ. Sigurgeirsson, ráðgjafi hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu er nýr formaður ráðsins og tekur við af Helgu Björk Eiríksdóttur sem hefur sinnt formannsstörfum síðustu átta ár. Viðskipti innlent 19.4.2024 18:15
Spá minni hagnaði hjá bönkum og að þeir nái ekki arðsemismarkmiði Greinendur telja að hagnaður viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast saman á fyrsta ársfjórðungi um ellefu og 16 prósent milli ára að jafnaði. Þeir spá því að bankarnir nái ekki markmiði sínu um arðsemi eiginfjár á ársfjórðungnum. Innherji 18.4.2024 16:11
Skynsamlegt að selja Íslandsbanka Ríkið á miklar eignir. Um 1.300 milljarða króna eru bundnar í eignarhaldi á um 40 ríkisfyrirtækjum, 900 fasteignum og yfir 400 jörðum. Skynsamlegt er að hefja skipulega sölu á þessum eignum sem ekki nýtast í rekstri ríkisins og minnka skuldir ríkissjóðs. Skoðun 17.4.2024 16:01
Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Ásakanir um að leiðin sem Landsbankinn fer til að fjármagna kaup á tryggingafélaginu TM hafi verið valin til að komast hjá því að leita samþykkis hluthafafundar eru aðdróttanir, að sögn bankaráðs Landsbankans. Bankinn sé langt yfir eiginfjárkröfum eftir kaupin. Viðskipti innlent 17.4.2024 12:24
Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Fjárlaganefnd hefur enn ekki fengið svör frá Fjármálaráðuneytinu um hver samskipti þess og Bankasýslu ríkisins voru í aðdraganda kaupa Landsbankans á TM. Nefndarmaður er svartsýnn á að þau berist. Heildarmynd í málinu liggi enn ekki fyrir. Viðskipti innlent 15.4.2024 13:30
Hákon nýr öryggisstjóri Arion Hákon L. Akerlund hefur tekið við starfi öryggisstjóra Arion banka. Viðskipti innlent 15.4.2024 09:35
Landsbankinn ekki seldur á þessu kjörtímabili Forsætisráðherra sér ekki fram á að hlutir í Landsbankanum verði seldir á þessu kjörtímabili en það gæti þó orðið á því næsta. Þá hugnast honum ágætlega að Landsbankinn losi sig við tryggingarfélagið TM. Innlent 14.4.2024 13:40
Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM Bankaráð Landsbankans segir að Bankasýslan hafi verið upplýst um áhuga bankans á að kaupa tryggingafélagið TM í desember og ekki gert neinar athugasemdir fyrr en eftir að tilboð bankans var samþykkt. Bankasýslan ætlar að skipta út fimm bankaráðsmönnum á næstu dögum. Viðskipti innlent 12.4.2024 17:55
Munu skoða að losna strax við TM Bankasýsla ríkisins mun funda með nýju bankaráði Landsbankans að loknum aðalfundi bankans og leggja áherslu á að ráðið meti kaup bankans á TM og leiti leiða til þess að losna við tryggingafélagið. Fyrrverandi fjármálaráðherra vildi að skoðað yrði hvernig væri hægt að losa um eignarhlutinn eins fljótt og auðið er. Viðskipti innlent 12.4.2024 16:53
Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning Stjórnarformaður Bankasýslunnnar segir alveg skýrt að frumkvæðisskyldan sé á Landsbankanum varðandi upplýsingagjöf. Það sé samningsbundið að Landsbankinn upplýsi Bankasýsluna með formlegum hætti um fyrirhugaða sölu. Viðskipti innlent 12.4.2024 16:40
Öllu bankaráði Landsbankans skipt út Bankasýsla ríkisins ákvað á fundi sínum í fyrradag, að fengnum tilnefningum valnefndar, að velja nýja einstaklinga sem verða tilnefndir í bankaráð Landsbankans á aðalfundi hans þann 19. apríl næstkomandi. Til stóð að fimm bankaráðsmenn yrðu tilnefndir til áframhaldandi setu en í ljósi kaupa Landsbankans á TM var hætt við það. Viðskipti innlent 12.4.2024 16:25
Spá því að verðbólga hjaðni Ársverðbólga mun hjaðna á ný í apríl og á næstu fjórðungum eftir nokkuð óvænta hækkun síðasta mánaðar, þessu spáir Íslandsbanki í verðbólguspá sinni Viðskipti innlent 12.4.2024 11:27
Arion áminntur fyrir verklag í skoðun á mögulegum innherjasvikum Viðurlaganefnd Kauphallarinnar áminnti Arion banka opinberlega í dag fyrir að brjóta þannig gegn reglum hennar að hún gat ekki sinnt eftirliti þegar grunur um möguleg innherjasvik kom upp. Ekki var til upptaka af símtali miðlara við fjárfesti sem Kauphöllin sóttist eftir. Viðskipti innlent 11.4.2024 19:13
Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega. Innlent 11.4.2024 12:25
Verður samskiptastjóri Skaga Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Hún hefur síðustu ár gegnt stöðu samskiptastjóra VÍS. Viðskipti innlent 11.4.2024 09:34
Núverandi staða bjóði upp á stýrivaxtalækkun Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika telur að hagkerfið sé komið á þann stað að Seðlabankinn geti byrjað að lækka stýrivexti. Ákvörðun sín um að hætta í bankanum tengist þó ekki því að hann var ósammála peningastefnunefnd. Honum hafi einfaldlega boðist spennandi starf. Innlent 8.4.2024 20:00
Bankarnir gætu þurft að hækka útlánakjör til að vega upp tapaðar vaxtatekjur Ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka fasta vaxtalausa bindiskyldu í því skyni að láta lánastofnanir bera hluta af kostnaði sem fylgir gjaldeyrisforðanum mun að óbreyttu þýða tapaðar vaxtatekjur fyrir bankana, að sögn hagfræðings, sem bendir á að Seðlabankinn hafi sjálfur mikinn hag af stórum forða. Aðgerðin styður við peningalegt aðhald en áframhaldandi vöxtur í peningamagni er til marks um að umsvifin séu enn mikil í hagkerfinu. Innherji 6.4.2024 12:56
Fjármálaráðherra segir „lágmarks kurteisi“ að taka fram þegar gullhúða á lög Fjármála- og efnahagsráðherra sagði að það væri „lágmarks kurteisi“ að tekið væri fram í lagafrumvörpum þegar gengið væri lengra en EES-samningurinn kveði á um. Lagaprófessor sagði að það væri talsvert um að slíkt væri ekki haft upp á borðum. Það væri ólýðræðislegt gagnvart Alþingismönnum. Við þær aðstæður telji þeir að verið sé að innleiða reglur samkvæmt EES-samningum þegar svo sé ekki. Innherji 5.4.2024 14:14
Landsmenn treysta fjármálaráðgjöf minnst allra Evrópuþjóða Íslendingar bera minnst traust allra íbúa Evrópu til fjármálaráðgjafar fjármálastofnanna. Þá er helmingur allra landsmanna neikvæður gagnvart fjármálakerfinu. Bankastjóri Arion banka telur að fjármálahrunið hafi enn þá áhrif. Hægt sé að snúa þessu við með góðum starfsháttum. Innlent 4.4.2024 20:01
Síðasta vígi norrænna seðla fallið Landsbanki Íslands hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur. Viðskipti innlent 4.4.2024 13:54