Landhelgisgæslan
1 2 3 4 5 6 7 … 29 ›
Búið að taka sýni úr ungu birnunni Búið er að taka ýmis sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær. Næst á dagskrá er að greina sýnin til að komast að því hvort hann hafi borið með sér einhverja sjúkdóma og til að komast að því af hvaða stofni hann var. Hvítabjörninn var kvendýr og var um 163 sentímetrar að lengd. Innlent 20.9.2024 13:59
Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp Tekin verða sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær og hann svo settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp. Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri hjá Náttúrufræðistofnun segir miður að það hafi ekki verið hægt að halda dýrinu lifandi en það hafi ekkert annað verið í stöðunni. Innlent 20.9.2024 09:55
Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Lík af karlmanni fannst í Reynisfjalli nú í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út þar sem ekki var hægt að nálgast líkið langleiðina. Lögregla getur ekki staðfest að líkið sé af manni sem leitað hefur verið að undanfarna daga að svo stöddu. Innlent 19.9.2024 22:26
Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Hvítabjörn sem kom á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var felldur nú fyrir skömmu. Hann fannst skammt frá sumarhúsi, þar sem konan sem tilkynnti um hann dvaldist einsömul. Innlent 19.9.2024 16:01
Senda vopnaða menn á svæðið Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna. Innlent 19.9.2024 14:59
Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Lögreglan á Vestfjörðum fékk fyrir skömmu tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum. Innlent 19.9.2024 14:26
Hífðu slasaðan mann upp úr gili í Skaftafelli Maður féll nokkra metra niður í gil í Skaftafelli síðdegis í dag og var hífður upp með aðstoð þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar. Verið er að leggja mat á ástand mannsins en hann virðist hafa sloppið við meiriháttar meiðsli, að sögn aðalvarðstjóra lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 15.9.2024 15:45
Veikur maður fluttur með þyrlu á Neskaupstað Karlmaður var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Neskaupstað í nótt með verk fyrir brjósti. Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir miðnætti í gær vegna mannsins sem treysti sér ekki til að ganga lengr. Hann var staddur í Sandvík. Innlent 14.9.2024 11:05
Amaði ekkert að ferðamönnum sem sendu neyðarboðin Ekkert amaði að erlendum ferðamanni sem sendi neyðarboð úr neyðarskýli í Hlöðuvík fyrr í dag. Áhöfn varðskips Landhelgisgæslunnar komst í samband við ferðafólkið á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 5.9.2024 22:16
Reyna að ná sambandi við sendanda neyðarkallsins Búist er við því að varðskipið Þór komi að Hlöðuvík á Hornströndum á hverri stundu nú en óljóst neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum þaðan um hádegisbil. Innlent 5.9.2024 20:17
Þór á leið í Hornvík vegna óljóss neyðarkalls Neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum um hádegisbil, en ekki er ljóst hvaðan það barst. Óskað var eftir aðstoð áhafnar á varðskipinu Þór, sem verður komið á vettvang í kvöld. Innlent 5.9.2024 16:13
Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga. Innlent 2.9.2024 23:02
Landhelginni ekki sinnt sem skyldi og sæstrengir illa varðir Skortur á flugvél gerir Landhelgisgæslunni ókleift að sinna landhelginni sem skyldi og lykilinnviðir eins og sæstrengir eru illa varðir fyrir vikið, að sögn forstjóra Gæslunnar. Hann telur óásættanlegt að ekki sé hægt að halda úti að minnsta kosti einni flugvél. Innlent 30.8.2024 22:01
Falsboðið hafi borist erlendis frá Falsboðið sem lögreglu barst, þegar tilkynnt var að tveir ferðamenn væru fastir í helli í Kerlingarfjöllum, kom erlendis frá miðað við IP-tölu tækisins sem skilaboðin voru send úr. Innlent 29.8.2024 13:19
Kona á sjötugsaldri dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum í dag til að sækja konu á sjötugsaldri sem hafði verið dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru. Konan var komin til meðvitundar áður en hún var sótt með þyrlu og send til skoðunar á sjúkrastofnun. Innlent 27.8.2024 16:29
Þyrlusveitin kölluð til fjórum sinnum síðasta sólarhringinn Þyrlusveitir Landhelgisgæslunnar hafa sinnt fjórum útköllum síðasta sólarhringinn ofan á það að hafa sinnt viðbragði við Breiðamerkurjökli í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrlusveitina hafa sinnt sjúkraflugi vegna bráðra veikinda á Hvammstanga, Hornbjargi og Grundarfirði og svo á skemmtiferðaskipi sem var um 150 sjómílur norður af Ísafirði. Innlent 27.8.2024 11:20
Ferðir heimilar allan ársins hring en deilt um manngerða hella „Við treystum þeim fyrirtækjum sem við gerum samninga við að beita sinni bestu dómgreind í mati á aðstæðum og slysin geta alltaf gerst því miður,“ sagði Steinunn Hödd Harðardóttir, þjóðgarðsvörður á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, í samtali við fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar í gær. Innlent 26.8.2024 06:57
Tjaldbúðir fluttar upp á jökul Unnið er í teymum við björgunarstarf þar sem hópur björgunarmanna vinnur við að grafa í ísinn og leita að ferðamönnunum tveimur sem saknað er á meðan aðrir hvíla sig. Innlent 25.8.2024 22:10
Björgunarstarf haldi áfram inn í kvöldið og nóttina Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögregluna vera með þokkalega skýra mynd af aðstæðum á Breiðamerkurjökli þar sem tveimur hefur verið komið undan ís og tveggja er enn leitað eftir að ísveggur hrundi við íshelli. Innlent 25.8.2024 19:42
Alvarlegt slys er ísveggur hrundi í Breiðamerkurjökli Einn er látinn og annar alvarlega slasaður eftir að ísveggur í Breiðamerkurjökli hrundi. Tilkynning barst viðbragðsaðilum klukkan 15 og hefur umfangsmikil leit að tveimur ferðamönnum til viðbótar, sem urðu undir ísfargi, staðið yfir. Innlent 25.8.2024 16:01
Umfangsmikið viðbragð vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar til vegna slyss á eða við Breiðamerkurjökul. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við Vísi, að þyrlurnar hafi verið kallaðar út á mesta forgangi. Innlent 25.8.2024 15:24
Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Veikur farþegi skemmtiferðaskips var sóttu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Grundarfjörð nú fyrir hádegið. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar til þess að koma farþeganum undir læknishendur í Reykjavík. Innlent 19.8.2024 11:38
Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi breskri sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli fyrir viku síðan. Brynjar Karl Óttarsson, grunnskólakennari á Akureyri og umsjónarmaður síðunnar Grenndargralsins, var viðstaddur eyðinguna og segir allt hafa gengið vel. Innlent 14.8.2024 13:31
Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Einn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir að bát hvolfdi í Hvalfirði. Tilkynning barst um málið á áttunda tímanum og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, lögregla, áhöfn á sjómælingaskipinu Baldri og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út. Innlent 12.8.2024 21:14
Ferðamenn í báðum bifreiðum Enn er lokað fyrir umferð um Hringveginn við Skeiðarársand eftir harðan árekstur tveggja fólksbifreiða í Öræfasveit við Gígjukvísl upp úr klukkan 14 í dag. Tveir erlendir ferðamenn voru í hvorri bifreið og hafa þeir allir fjórir verið fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 12.8.2024 18:06
Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Alvarlegur árekstur varð í Öræfasveit við Gígjukvísl á þriðja tímanum í dag þegar tveir bílar skullu saman. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang og mikill viðbúnaður er á svæðinu. Lokað er fyrir umferð um veginn. Innlent 12.8.2024 14:50
Féll af hesti og var án meðvitundar Miklar umferðartafir eru við Kirkjubæjarklaustur vegna slyss sem varð á þriðja tímanum í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum. Innlent 12.8.2024 14:45
Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir það enn til rannsóknar hjá embættinu hvaðan tilkynningin kom um týndu ferðamennina í Kerlingarfjöllum í síðustu viku. Umfangsmikil leit fór fram að tveimur ferðamönnum en eftir um tveggja daga leit tilkynnti lögregla að um gabb hefði verið að ræða og frestaði leitinni. Innlent 12.8.2024 11:35
Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir grafalvarlegt að menn gabbi viðbragðsaðila í áhættusöm og stór útköll, líkt og útlit er fyrir að gert hafi verið með tilkynningu um ferðamenn sem áttu að sitja fastir í helli í Kerlingarfjöllum. Tilkynningin barst í gegnum netspjall Neyðarlínunnar, en framkvæmdastjóri hennar segir vont ef herða þarf að þeim möguleika. Innlent 7.8.2024 19:28
Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi lítur það mjög alvarlegum augum að allt bendi til þess að útkall í Kerlingarfjöllum í fyrrakvöld hafi verið gabb. Hann segir alla skilja eftir sig slóð á Internetinu sem nú verði rakin. Hann hvetur viðkomandi til að stíga fram og viðurkenna mistök sín. Innlent 7.8.2024 13:05