Icelandair
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 50 ›
Fyrstu MAX-vélarnar komnar til landsins Fyrstu tvær Boeing 737 MAX-þotur Icelandair lentu á Keflavíkurflugvelli á öðrum tímanum í dag. Alls á Icelandair sex slíkar vélar. Innlent 14.2.2021 14:27
Sá sjötti sem kemur til greina í fimm manna stjórn Icelandair Steinn Logi Björnsson, sem starfaði um árabil hjá Icelandair, mun gefa kost á sér í stjórn Icelandair group. Hann er sá sjötti sem gefið hefur kost á sér til setu í fimm manna stjórn félagsins. Aðalfundur félagsins fer fram 12. mars. Viðskipti innlent 13.2.2021 13:44
Leggur til að stjórnin verði óbreytt Tilnefninganefnd Icelandair Group hefur lagt til að stjórn félagsins verði óbreytt. Aðalfundur félagsins fer fram hinn 12. mars næst komandi. Viðskipti innlent 12.2.2021 11:06
Icelandair selur restina af hlut sínum í Icelandair Hotels Icelandair Group hefur gert samning við Berjaya um sölu félagsins á 25% eftirstandandi hlut í hótelfélaginu. Berjaya á fyrir 75% hlut í Icelandair Hotels. Söluverðið er um 440 milljónir króna eða 3,4 milljónir Bandaríkjadala og kemur til greiðslu við afhendingu hlutarins og þegar skilmálar samningsins hafa verið uppfylltir. Viðskipti innlent 11.2.2021 09:33
Hrap hjá Icelandair í fyrstu viðskiptum Hlutabréfaverð í Icelandair hefur fallið um þrettán prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Viðskipti með bréf í flugfélaginu hafa numið tæplega 200 milljónum króna það sem af er degi. Verð á bréfum eftir lækkun er 1,58 krónur á hlut. Viðskipti innlent 10.2.2021 10:18
Rekstur Icelandair í ár aðeins þrjátíu prósent af því sem var fyrir faraldur Icelandair gerir ráð fyrir að rekstrarumfang félagsins á þessu ári verði aðeins þrjátíu prósent af því sem var áður en heimsfaraldurinn skall á. Forstjórinn Bogi Nils Bogason segir verulega óvissu um hve marga starfsmenn verði hægt að endurráða í sumar. Viðskipti innlent 9.2.2021 20:12
Segir Icelandair getað lifað fram á vor 2022 þótt ekkert fari í gang Forstjóri Icelandair segir félagið geta lifað í rúmt ár til viðbótar án þess að nokkuð fari í gang og kveðst bjartsýnn á að þurfa ekki að nýta ríkisábyrgð sem Alþingi samþykkti síðastliðið haust. Fyrirtækið var rekið með 51 milljarðs króna tapi á síðastliðnu ári. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Viðskipti innlent 9.2.2021 13:16
Icelandair tapaði 51 milljarði króna í fyrra Icelandair Group tapaði 51 milljarði króna árið 2020. Faraldur nýju kórónuveirunnar og ferðatakmarkanir höfðu gífurleg áhrif á félagið og dróst sætaframboð saman um 81 prósent á árinu. Viðskipti innlent 8.2.2021 19:53
Risadagur í Kauphöllinni hjá Icelandair eftir flökkusöguhelgi Viðskipti með bréf í flugfélaginu Icelandair voru 444 talsins í dag sem er fjórði stærsti dagurinn í fjölda viðskipta frá hlutafjárútboðinu síðastliðið haust og sá stærsti á árinu 2021. Veltan nam 544 milljónum króna svo meðalstærð viðskipta var 1,2 milljónir króna. Viðskipti innlent 8.2.2021 16:31
Flugmenn í þjálfun keyptu fimm þúsund hótelnætur Á sama tíma tíma og flugheimurinn er í djúpri lægð vegna kórónufaraldursins hefur þjálfun erlendra flugmanna í flughermum Icelandair stóraukist. Þannig sendu erlend flugfélög fimm þúsund flugmenn í þjálfun til Hafnarfjarðar í fyrra. Viðskipti innlent 7.2.2021 16:55
Icelandair auglýsir stöður flugstjóra Icelandair hefur undanfarið auglýst stöður flugstjóra, bæði fyrir farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX og Boeing 757 farþegaþotum, á meðal starfandi flugmanna hjá félaginu. Viðskipti innlent 7.2.2021 13:31
Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila Bandaríski fjárfestirinn Michelle Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila sem haldi á hlutunum fyrir sig. Hún sé þó raunverulegur eigandi hlutanna, en er þó ekki á meðal tuttugu stærstu hluthafa samkvæmt hluthafalista. Viðskipti innlent 4.2.2021 20:47
Flugmenn Icelandair búa sig undir að fljúga Maxinum á ný Flugmenn Icelandair gangast núna undir endurþjálfun á Boeing 737 Max-þotur eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti nærri tveggja ára flugbanni í síðustu viku. Félagið hyggst byrja að ferja þoturnar aftur til Íslands í kringum næstu helgi. Innlent 1.2.2021 22:15
Áforma að ferja tvær Boeing 737 Max-þotur til Íslands í næstu viku Icelandair er byrjað að undirbúa endurkomu Boeing 737 MAX-véla félagsins inn í flugreksturinn eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti kyrrsetningu vélanna síðastliðinn miðvikudag. Stefnt er að því að tveimur MAX-þotum verði flogið frá Spáni til Íslands í síðari hluta næstu viku. Viðskipti 29.1.2021 14:11
Flugvirkjar Icelandair byrjaðir að búa fyrstu MAX-vélina undir flug Flugvirkjar eru fjölmennsta flugstéttin hjá Icelandair um þessar mundir. Tvær umfangsmiklar stórskoðanir standa yfir í viðhaldsstöð félagsins Keflavík auk sem byrjað er að gera fyrstu MAX-vélina klára fyrir flug á ný. Viðskipti innlent 27.1.2021 21:13
Stór farþegaþota rifin í fyrsta sinn á Íslandi Fyrsta niðurrif farþegaþotu, sem fram fer hérlendis, er langt komið í Keflavík. Flugvirkjar Icelandair luku í dag við að ná síðasta hjólastellinu undan Boeing-þotu en flugstjórnarklefinn fer svo á flugsafnið á Akureyri. Viðskipti innlent 27.1.2021 10:50
Ferðaþjónustan bjartsýn en kallar eftir frekari aðgerðum stjórnvalda Mikillar bjartsýni gætir meðal ferðaþjónustufyrirtækja en stór meirihluti þeirra ætlar að halda sínu striki samkvæmt könnun KPMG sem unnin var fyrir Nýársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaklasans og KPMG. Á málstofu klasans kom fram að flest ferðaþjónustufyrirtæki skorti fjármagn til fjárfestinga og að nauðsynlegt væri að byggja upp innviði landsins eins og vegakerfi. Innlent 26.1.2021 11:54
Flughermir Icelandair uppfærður fyrir breytingar á MAX Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir uppfærslur á flughermi félagsins á Flugvöllum í Hafnarfirði vegna MAX flugvélanna hafa verið vottaðan í lok þar síðustu viku. Félagið geti því byrjað að þjálfa flugmenn á Boeing 737 MAX flugvélarnar. Innlent 19.1.2021 13:57
Icelandair setur Iceland Travel í sölu Icelandair Group hefur ákveðið að hefja söluferli á dótturfélagi sínu, Iceland Travel. Félagið segir markmiðið í söluferlinu að hámarka virði fyrirtækisins og tryggja á sama tíma hagsmuni starfsfólks og íslenskrar ferðaþjónustu. Innlent 19.1.2021 10:04
Endurtaka útboð í gerð flugvallar á Grænlandi Flugvallafélag grænlenskra stjórnvalda, Kalaallit Airports, hefur ákveðið að bjóða út að nýju gerð flugvallar við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Þetta er endurtekning á útboði í fyrra en tilboðin sem þá bárust voru sögð hafa verið öll hátt yfir fjárhagsramma verkefnisins. Íslenski verktakinn Ístak var í hópi bjóðenda, sem valdir höfðu verið að undangengnu forvali. Viðskipti erlent 17.1.2021 22:00
Stjórnvöld greiddu Icelandair 350 milljónir króna vegna flugferða Íslensk stjórnvöld greiddu Icelandair tæpar 350 milljónir króna á síðasta ári til að tryggja lágmarksflug til og frá landinu. Fyrsti samningur þess efnis tók gildi í lok mars á síðasta ári og fól í sér að ríkið myndi greiða upp tap flugfélagsins sem hlaust af því að halda flugi gangandi til og frá Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 15.1.2021 13:21
Ekki gefið að fyrirtæki geti skikkað alla í vímuefnapróf Forstjóri Persónuverndar segir ekki sjálfgefið að fyrirtæki geti skikkað allt sitt starfsfólk í skimun fyrir áfengi og fíkniefnum. Icelandair ætlar að taka slíka skimun upp fyrir allt sitt starfsfólk en forstjóri félagsins segir það verða gert í samningum við starfsfólk og stéttarfélög. Innlent 14.1.2021 20:01
Sýn sækir liðsauka til Icelandair, Arion banka og Bláa lónsins Sýn hefur ráðið þau Hákon Davíð Halldórsson, Björgvin Gauta Bæringsson, Ernu Björk Sigurgeirsdóttur, Guðlaugu Jökulsdóttur og Hörð Bjarkason til starfa á rekstar-, fjármála- og mannauðssviði félagsins. Viðskipti innlent 14.1.2021 13:16
Starfsmönnum Icelandair gert að gangast undir reglubundið vímuefnapróf Öllum starfsmönnum Icelandair verður framvegis gert að gangast undir reglubundið vímuefnapróf. Þetta er liður í nýrri stefnu fyrirtækisins sem áfengis- og vímuefnalaus vinnustaður, en starfsmenn verða prófaðir bæði af handahófi og kerfisbundið. Viðskipti innlent 14.1.2021 08:07
Felldu tvo íslenska hesta eftir slys á flugvelli í Belgíu Fella þurfti tvo íslenska hesta eftir að gámur sem þeir voru fluttir í féll af palli á flugvelli í Belgíu rétt fyrir jólin. Icelandair Cargo hefur stöðvað frekari flutning á hrossum til stærstu dreifimiðstöðvar fyrirtækisins í Evrópu um óákveðinn tíma. Innlent 12.1.2021 13:12
Tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út mars Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert nýjan samning við Icelandair sem tryggir lágmarkssamgöngur milli Bandaríkjanna og Íslands til og með 31. mars. Verður því flogið minnst tvisvar í viku til Boston á því tímabili. Innlent 9.1.2021 13:35
Sylvía frá Icelandair til Origo Sylvía Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur hún sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Viðskipti erlent 8.1.2021 09:08
Farþegafjöldi tvöfaldaðist milli mánaða en 95 prósent samdráttur milli ára Fjöldi farþega sem ferðuðust með Icelandair tvöfaldaðist milli mánaða í desember. Fjölgunin endurspeglast í flutningatölum Icelandair Group fyrir desembermánuð sem birtar voru í Kauphöll í dag að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Þrátt fyrir þetta nam heildarfjöldi farþega í millilandaflugi um 14.500 í desember sem jafngildir 95 prósenta samdrætti milli ára. Viðskipti innlent 6.1.2021 17:54
Svar við bréfi Boga Mér hafa borist tvö bréf á síðustu dögum frá Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group. Skoðun 6.1.2021 16:02
Grænland lokað næstu tvær vikur Grænlenska landsstjórnin hefur bannað allt farþegaflug til Grænlands næstu tvær vikur, til 12. janúar. Aðeins verður leyft farþegaflug á vegum stjórnvalda og neyðarflug. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Kim Kielsen forsætisráðherra og Henrik L. Hansen, landlæknir Grænlands, héldu í Nuuk í gær. Erlent 31.12.2020 06:12