Framsóknarflokkurinn
45 46 47 48 49 50 … 50 ›
Vilja undirbúa aðildarviðræður Framsóknarmenn munu að öllum líkindum samþykkja ályktun á flokksþingi sínu í dag um að undirbúningur aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari af stað innan flokksins. Formaður og varaformaður eru á öndverðum meiði. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Hörð átök um Evrópustefnuna Hörð átök eru um Evrópustefnuna á flokksþingi framsóknarmanna. Skoðanamunur formanns og varaformanns kristallaðist í ræðum þeirra í dag. Þar upplýsti Halldór Ásgrímsson að forsætisráðherra Noregs hefði hringt í sig í morgun til að kanna hvort Ísland ætlaði að fara að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Innlent 13.10.2005 18:50
Formannskjör ekki útilokað Flokksþing framsóknarmanna hefst í dag. Ekki er útilokað að Kristinn H. Gunnarsson bjóði sig fram á móti sitjandi formanni eða varaformanni. Búist er við átökum á þinginu, þar á meðal um stefnuna í Evrópumálum </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:49
Ekki aðildarviðræður við ESB Aðildarviðræður við Evrópusambandið eru hvorki tímabærar né skynsamlegar á þessu kjörtímabili. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á flokksþingi Framsóknarflokksins, sem hófst í dag. Innlent 13.10.2005 18:49
Nýju framsóknarfélögin fá aðild Landsstjórn Framsóknarflokksins ákvað í gær að veita tveimur nýstofnuðum framsóknarfélögum úr Kópavogi aðild að flokknum. Bæði Halldór Ásgrímsson formaður og Guðni Ágústsson varaformaður voru fylgjandi inntöku nýju félaganna en tillaga hafði komið upp um að fresta málinu fram yfir landsþing flokksins sem hefst í dag. Innlent 13.10.2005 18:49
Ekki aðildarviðræður að ESB Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur hvorki tímabært né skynsamlegt að fara út í aðildarviðræður að Evrópusambandinu á þessu kjörtímabili. Slíkt væri heldur ekki í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnnar um samstarf. Þetta kom fram í setningarræðu hans á flokksþingi Framsóknarflokksins sem nú stendur yfir á Grand Hótel í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 18:49
Nýstárleg nálgun við byggðamál Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, nálgaðist hin viðkvæmu byggðamál með nýstárlegum hætti í setningarræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins eftir hádegi þegar hann sagði að alls staðar á landinu væru áherslur svipaðar: stytting leiða og betri samgöngur við höfuðborgina. Innlent 13.10.2005 18:49
Klára skuldir vegna Tímans Framsóknarflokkurinn greiðir á þessu ári síðustu afborganir af lánum sem tekin voru til að fjármagna skuldir vegna útgáfu dagblaðsins <em>Tímans </em>sem flokkurinn hætti að gefa út fyrir tólf árum. Þetta kom fram í ræðu framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins á flokksþingi sem hófst í morgun. Innlent 13.10.2005 18:49
Vill fækka ráðuneytum Framsóknarmenn ræða stórfellda fækkun ráðuneyta. Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti á flokksþingi þeirra í dag hugmynd um að fækka þeim úr þrettán niður í sex til átta. Innlent 13.10.2005 18:49
Nýtt kvenfélag framsóknar stofnað Tvö félög framsóknarkvenna starfa nú í Kópavogi. Framsóknarfélagið Brynja var stofnað í gær af sextíu og einni konu sem gengu í Framsóknarfélagið Freyju, Félag framsóknarkvenna í Kópavogi, fyrir síðasta aðalfund félagsins. Aðalfundurinn var hins vegar úrskurðaður ólöglegur þar sem láðst hafði að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 18:48
Siv undrast að vera ekki boðið Nýtt félag framsóknarkvenna í Kópavogi var stofnað í gær. Að því félagi standa konurnar sem nýlega reyndu að hrifsa til sín völdin í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi. Oddvita flokksins í kjördæminu, Siv Friðleifsdóttur, var ekki boðið á fundinn og undrast hún það. Innlent 13.10.2005 18:48
Kristinn ekki sigurvegari Pétur Blöndal alþingismaður er ekki á því að Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður hafi, með endurreisn sinni í Framsóknarflokknum, sigrað flokksforystuna að því er fram kom í máli Péturs í þættinum Íslandi í bítið í morgun. Innlent 13.10.2005 18:47
Ágreiningurinn ekki úr sögunni Kristinn H. Gunnarsson segir allan skoðanaágreining ekki úr sögunni þótt hann tæki aftur sæti í sjávarútvegsnefnd og umhverfisnefnd fyrir hönd Framsóknarflokksins. Innlent 13.10.2005 18:47
Sagði sig úr Samfylkingunni Aðalheiður Sigursveinsdóttir, sem kjörin var í stjórn Freyju, félags Framsóknarkvenna í Kópavogi, í síðustu viku sagði sig úr Samfylkingunni sama dag og hún var kjörin í stjórn Framsóknarfélagsins. Innlent 13.10.2005 15:31
Hátt í 200 nýskráningar í Framsókn Á annað hundrað manns skráðu sig í Framsóknarflokkinn í Kópavogi í dag og er búist við átakafundi hjá félagi Framsóknarmanna í bæjarfélaginu í kvöld. Það er best fyrir flokkinn að leggja niður deilur og láta komandi flokksþing einkennast af sáttum, segir aðstoðarmaður Halldórs Ágrímssonar. Innlent 13.10.2005 15:31
Árni í formannsframboð? Háværar raddir eru uppi innan Framsóknarflokksins um að Árni Magnússon félagsmálaráðherra muni bjóða sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum á flokksþinginu sem haldið verður í lok þessa mánaðar. Innlent 13.10.2005 15:30
Átök innan Framsóknar halda áfram Átök innan Framsóknarflokksins halda áfram, enda aðeins rúmar þrjár vikur í landsfund flokksins. Gera þurfti hlé á fundi Ungra framsóknarmanna í Kópavogi í gærkvöldi eftir að deilur spruttu upp vegna fjörutíu nýskráninga í félagið fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 18:45
Maraþonátök í Framsóknarflokknum Átökin í Framsóknarflokknum eru til tveggja ára því flokksmenn telja að þá muni Halldór Ásgrímsson hætta í stjórnmálum. Árni Magnússon ætlar sér formannsstólinn og hefur hafið valdatafl þar sem hver leikur skiptir máli. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:45
Upplýst samþykki fyrir líffæragjöf Samband ungra framsóknarmanna skorar á Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra að skoða hvort hægt sé að útbúa upplýst samþykki landsmanna fyrir líffæragjöf. Benda ungir framsóknarmenn sérstaklega á framkvæmd sem tíðkast í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna þar sem tekið er fram á ökuskírteini viðkomandi hvort líffæragjöf er samþykkt eður ei. Innlent 13.10.2005 18:45
Óskar eftir uppgjöri í framsókn Fylkingarnar tvær innan Framsóknarflokksins takast á um völd innan flokksins. Formaður Félags framsóknarmanna í Bolungarvík vonar að til uppgjörs komi á flokksþingi svo hægt sé að byrja upp á nýtt. Hann segir mikla óánægju meðal flokksmanna, ekki síst á landsbyggðinni. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:30
Hallarbyltingu afstýrt Páli Magnússyni varaþingmanni tókst að afstýra því að andstæðingar hans næðu völdum í Félagi ungra framsóknarmanna í Kópavogi á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. </font /> Innlent 13.10.2005 15:30
Framsóknarmenn ræna kvenfélögum Framsóknarkonur saka hver aðra um baktjaldamakk og karlar innan flokksins eru sagðir ræna kvenfélögum í valdabrölti sínu. Það vantar upp á að flokksforystan styðji við bakið á konum, segir jafnréttisfulltrúi flokksins. Innlent 13.10.2005 15:29
Framsóknarkonur á rökstólum Konur í Landssambandi framsóknarkvenna, með Siv Friðleifsdóttur, ritara Framsóknarflokksins, fremsta í flokki, sitja nú á fundi til að ræða meðal annars nýjustu hræringar innan flokksins. Innlent 13.10.2005 15:29
Rangt hjá Siv Fulltrúar meirihluta í stjórn Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, segja rangt sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu sinni að fundarkonur á fundi félagsins í gær hafi sjálfar tekið þátt í að kjósa sig inn í félagið. Innlent 17.10.2005 23:41
Hörð valdabarátta innan Framsóknar Formaður Landssambands framsóknarkvenna, Una María Óskarsdóttir, var felld úr stjórn Félags framsóknarkvenna í Kópavogi í gær. Innanbúðarmenn segja að í stjórnarkjöri kvenfélagsins kristallist hörð valdabarátta innan flokksins. Innlent 13.10.2005 15:28
Felld úr stjórn Framsóknarkvenna Formaður Landssambands Framsóknarkvenna, Una María Óskarsdóttir, var felld úr stjórn félags Framsóknarkvenna í Kópavogi í gær. Innlent 13.10.2005 15:28
Stuðningurinn stefnubreyting Halldór Ásgrímsson hafði lýst afdráttarlausri afstöðu ríkisstjórnarinnar varðandi Írak á fundi mánuði fyrir innrás. Þar sagði hann að ef til aðgerða gegn Írak kæmi, yrðu þær einungis gerðar með samþykki öryggisráðsins. Annað kom á daginn. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:25
Ummæli um Írak stangast á Samkvæmt forsætisráðherra hafði Íraksmálið ekki verið rætt í ríkisstjórn viku áður en ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak var tekin. Þingmenn Framsóknarflokksins greinir á um hvort Íraksmálið hafi verið rætt í þingflokknum eða ekki. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:24
Evrópumálin verða stærsta verkefnið næstu 5 til 10 árin Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, útilokar ekki aðild að Evrópusambandinu. Í ítarlegu viðtali segir hann Samfylkinguna hafa glutrað niður möguleika á stjórnarþátttöku í síðustu kosningabaráttu. Hann gagnrýnir sjálfstæðismenn fyrir framkomu sína við forseta Íslands og segir Íslendingum ekki geðjast að Bush Bandaríkjaforseta. Innlent 13.10.2005 15:23
Guðni segir slag óheppilegan Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að átök um embættið á flokksþingi í næsta mánuði væru óheppileg. Hann segist þó ekki óttast mótframboð. Innlent 13.10.2005 15:23