Framsóknarflokkurinn
42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 50 ›
Bjarni Harðarson stefnir á 2. sæti Bjarni Harðarson, fyrrverandi ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins og væntalegur bóksali á Selfossi, hefur aðkveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna komandi kosninga til Alþingis. fréttavefurinn sudurland.is greinir frá. Innlent 6.10.2006 14:34
Stóriðjustefna eða ekki? Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að reisa þrjú ný álver á næstunni og greiða fyrir framkvæmdum í Helguvík. Í sumar sagði hann hins vegar að stjórnvöld hefðu í raun enga stóriðjustefnu. Innlent 7.9.2006 00:05
Hefur afsalað sér þingmennsku Halldór Ásgrímsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, afsalaði sér þingmennsku með bréfi til forseta Alþingis í dag. Halldór hefur setið á þingi frá árinu 1974 til þessa dags, ef undan er skilið tímabilið nóvember til desember 1978 en þá var hann varaþingmaður Austrulandskjördæmis Sæunn Stefánsdóttir, nýkjörinn ritari Framsóknarflokksins tekur sæti Halldórs Ásgrímssonar á Alþingi. Innlent 5.9.2006 16:23
Trúnaðarbestur milli Valgerðar og Alþingis "Það getur komið til þess að ráðherra sé ekki sætt," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Fréttavikunni á NFS. Kristinn vísaði þar til Valgerðar Sverrisdóttur, flokkssystur sinnar og fyrrverandi iðnaðarráðherra. Til umfjöllunar var greinargerð Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun og meðferð þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Innlent 26.8.2006 12:26
Oftrú á samstarfinu við Bandaríkin voru mistök Halldór Ásgrímsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins segir mikið starf framundan í öryggis- og varnarmálum. Þar sem Bandaríkjamenn hafi ákveðið einhliða að fara með allt sitt lið og búnað frá Íslandi, þurfi Íslendingar að styrkja samband sitt við Evrópu. Sjálfstæðiflokkurinn hafi farið fremst þeirra sem hafa haft oftrú á samstarfinu við Bandaríkin og skynsamir menn á þeim bæ hljóti að sjá að nú þarf að skoða margt í nýju ljósi. Innlent 18.8.2006 18:12
Kristinn H. vill í ritaraembættið Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins gefur kost á sér í embætti ritara Framsóknarflokksins. Þar með hafa þrír lýst yfir vilja til að gegna embætti ritara flokksins en ný forysta verður kjörin á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Auk Kristins hafa Birkir Jón Jónsson þingmaður og Haukur Logi Karlsson formaður SUF gefið kost á sér í embættið. Innlent 14.8.2006 13:58
Einar Sveinbjörnsson aðstoðarmaður Jónínu Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, hefur verði ráðinn aðstoðarmaður Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra og hóf hann störf í ráðuneytinu í dag. Innlent 22.6.2006 11:12
Halldór ekki á leið í Seðlabankann Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra segist ekki á leið í Seðlabankann nú þegar hann segir skilið við stjórnmálin. Halldór lét af ráðherraembætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag og hyggst segja af sér þingmennsku að loknu flokksþingi Framsóknarflokksins í ágúst. Halldór segir óráðið hvað taki við eftir það. Innlent 15.6.2006 15:27
Ekkert liggur fyrir um afsögn mína Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stundu að ekkert liggi fyrir um afsögn hans. Guðni segir að hann hafi á fundi með forsætisráðherra og hans nánustu samstarfsmönnum fallist á ákveðnar tillögur sem miðuðu að því að ný forysta tæki við flokknum strax í sumar. Innlent 5.6.2006 23:50
Hyggst draga sig í hlé frá stjórnmálum Halldór Ásgrímsson tilkynnti nú fyrir stundu að hann hefði ákveðið að draga sig í hlé frá amstri stjórnmálanna. Hann hyggst segja af sér forsætisráðherraembætti en mun sitja áfram sem formaður Framsóknarflokksins fram að flokksþingi í haust. Hann mun ekki sækjast eftir endurkjöri. Jafnframt mun Guðni Ágústsson víkja úr stjórn flokksins á sama tíma. Innlent 5.6.2006 21:01
Segja Finn ekki vera lausn fyrir Framsókn Það væri heimskulegt fyrir Framsóknarflokkinn að gera Finn Ingólfsson að formanni, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna segir slíkan leik vondan fyrir Framsókn sem þegar hafi orð á sér fyrir að vera hagsmunaklíka, en ekki stjórnmálaflokkur. Innlent 3.6.2006 11:51
Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. Innlent 31.5.2006 16:11
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. Innlent 30.5.2006 08:24
Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. Innlent 30.5.2006 06:53
Sjálftæðismenn og Frjálslyndir funda á Akranesi í dag Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn funda í dag um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Á Akranesi féll meirihluti Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn í kosningunum. Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir einn hver og Samfylkingin tvo menn. Innlent 29.5.2006 10:26
Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn áfram í meirihluta í Kópavogi Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn í Kópavogi náðu undir miðnætti samkomulegi um að halda meirihluta samstarfi sínu áfram í bæjarstjórn. Innlent 29.5.2006 07:01
Segir slit R-listans hafa verið mistök Vel kemur til greina að endurvekja Reykjavíkurlistann fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2010, að mati Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs. Þetta kom fram í umræðum forystumanna stjórnmálaflokkanna á NFS og Stöð 2 í gærkvöldi. Innlent 29.5.2006 06:42
Gunnar Birgisson áfram bæjarstjóri Oddvitar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi náðu nú í kvöld samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Samkomulag er um að Gunnar I. Birgisson verði bæjarstjóri og að Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknarflokks verði formaður bæjarráðs. Málefnasamningur liggur fyrir og veðrur hann lagður fyrir fulltrúaráð flokkanna á miðvikudag. Innlent 28.5.2006 23:36
Meirihlutinn hélt óvænt velli Meirihlutinn hélt á Ísafirði, þvert á það sem skoðanakannanir höfðu gefið ástæðu til að ætla. Bæjarstjórinn og oddviti Sjálfstæðismanna vill halda áfram samstarfinu við Framsóknarflokkinn undir sinni forystu. Innlent 28.5.2006 08:44
Straumurinn lá til vinstri Straumur kjósenda lá til vinstri í nótt í stærstu sveitarfélögum landsins þar sem Vinstri-grænir og Samfylkingin bættu við sig fjölda sveitarstjórnarmanna. Sjálfstæðismenn bættu lítillega við sig en Framsóknarmenn töpuðu miklu. Innlent 28.5.2006 08:30
Óánægja milli sjálfstæðismanna og minnihluta í Mosfellsbæ Óánægja er komin upp milli sjálfstæðismanna og minnihlutans í Mosfellsbæ. Ekki náðist samkomulag um tilhögun sameiginlegs framboðsfundar sem vera átti í gær og því varð ekkert úr fundinum. Innlent 25.5.2006 18:48
Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn. Innlent 24.5.2006 20:15
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25
Breyting Íbúðalánasjóðs gegn sáttmála Það brýtur í bága við stjórnarsáttmála að leggja Íbúðalánasjóð niður í núverandi mynd, í það minnsta meðan bankarnir bjóða ekki 90 prósenta lán, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Innlent 22.5.2006 22:11
Deila um styrkveitingu til Fram Samstaða Sjálfstæðismanna og Alfreðs Þorsteinssonar um styrkveitingu til Fram sýnir að fyrirgreiðslupólitíkin ræður völdum í Reykjavík ef Sjálfstæðismenn komast til valda segir borgarfulltrúi Samfylkingar. Ómerkilegur málflutningur segja hvort tveggja oddviti Sjálfstæðisflokks og formaður Fram. Innlent 19.5.2006 17:03
D-listi með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn. Innlent 19.5.2006 11:58
Elsti frambjóðandinn 92 ára Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð. Innlent 19.5.2006 08:33
Vinstri grænir tvöfalda fylgi sitt Fylgi hrynur af Framsóknarflokknum á Akureyri en Vinstri grænir nánast tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum, samkvæmt þeim, sem tóku afstöðu í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Sjáflstæðisflokkurinn héldi sínum fjórum bæjarfulltrúum. Innlent 15.5.2006 08:51
Brosi allan hringinn "Ég brosi auðvitað allan hringinn," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar kynntar voru niðurstöður könnunar fyrir NFS um fylgi flokkanna sem eru þar í framboði. Tveir af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Innlent 9.5.2006 21:14
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06