Er aðeins á biðlaunum og hnýtir í Hildi og Morgunblaðið Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, verður á biðlaunum borgarstjóra í sex mánuði eftir að hann lét af störfum í byrjun árs. Hann mun ekki þiggja laun sem formaður borgarráðs á tímabilinu. 22.6.2024 12:18
Árásarmaðurinn beitti stunguvopni á háls og maga Maðurinn sem var handtekinn af lögreglunni grunaður um alvarlega líkamsárás gegn tveimur í Kópavogi í gærkvöldi beitti stunguvopni og hæfði mennina í bæði háls og maga. Þeir særðu eru ekki í lífshættu en hlutu alvarlega áverka vegna árásarinnar. 22.6.2024 10:52
Táningur ákærður fyrir morð sjö ára drengs Sextán ára drengur var ákærður fyrir morð í Chicago í Bandaríkjunum í gær. Hann er grunaður um að hafa orðið sjö ára dreng að bana með byssuskoti. 22.6.2024 09:40
„Það er heilmikil kæling af þessu“ Hraunkæling við varnargarðana við Grindavík hefur staðið yfir síðan í nótt. Kælingin virðist hafa borið árangur að mati slökkvistjóra. Á sama tíma hefur vinna við hækkun varnargarðanna staðið yfir. Verkfræðingur hjá Verkís fagnar því minnkandi hraunrennsli. 21.6.2024 15:14
Færa bílastæðið lengra frá Skógafossi og hefja gjaldtöku Framkvæmdir að nýju bílastæði við Skógafoss standa nú yfir en þeim mun ljúka þann fimmtánda september. Vegalengdin að fossinum sjálfum mun lengjast þar sem að gamla bílastæðinu verður lokað. Fólk í ferðaþjónustu hefur gagnrýnt þetta og sagt þetta hamla aðgengi að fossinum. 20.6.2024 12:29
Varar við auknu ofbeldi í leigubifreiðum Daníel O. Einarsson, formaður Frama - félags leigubílstjóra, tekur eftirliti lögreglunnar gagnvart leigubílstjórum fagnandi. Hann segir mikinn fjölda nýliða í faginu hafa neikvæð áhrif á starfsemina og segir ofbeldismál þar sem leigubílstjórar eiga í hlut aukast. 19.6.2024 19:34
Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Breytingar voru gerðar á verkferlum HS Orku strax í kjölfar slyssins árið 2017 sem varð Adam Osowski, 43 ára frá Póllandi, að bana eftir að gas úr borholu Reykjanesvirkjunar, sem er í eigu HS Orku, komst upp í gegnum vatnslagnir vegna yfirþrýstings. 15.6.2024 09:30
Umræða sem eigi ekki við rök að styðjast „Það er alveg skiljanlegt að fólk hafi áhyggjur þegar þetta er svona nýtt verkefni. Það hafa verið mjög aðgengilegar upplýsingar að verkefninu. Síðan fer vissulega alltaf af stað umræður sem eiga ekki við rök að styðjast og það er bara eðlilegt. Þá bendir maður bara fólki á að kynna sér málið betur.“ 13.6.2024 20:02
Ræddu við 26 einstaklinga varðandi vændi og mansal „Við förum annað slagið og höfum samband við þá einstaklinga, sem eru langmest konur, sem auglýsa vændi. Það er í þeim tilgangi að kanna hvort að þær séu í einhvers konar þvingun eða hvort það sé einhver grunur um mansal.“ 13.6.2024 15:00
Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum „Mér finnst þetta merkilegt að við séum komin í svona mikla steinefnaneyslu. Það getur líka verið hættulegt að nota of mikið af steinefnum. Það ruglar í vökvajafnvægi í líkamanum og myndar bjúg og annað.“ 13.6.2024 14:00