Hádegisfréttir Bylgjunnar Landris í miðri Torfajökulsöskju skýrist líklega af kvikusöfnun. Ekki eru merki um að kvikan sé að færast nær yfirborðinu en eldfjallafræðingur segir þetta merki um að eldstöðin sé að vakna. 16.8.2023 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætlar að óska eftir fundi með dómsmálaráðherra vegna flóttafólks sem búið er að þjónustusvipta og er heimilislaust. Hún segir sveitarfélögin skyldug til að þjónusta fólk en vill fá samtal. 14.8.2023 11:42
Launahækkanir þurfi hið minnsta að vera í samræmi við verðbólgutölur Sækja þarf launahækkanir sem eru hið minnsta í samræmi við verðbólgutölur í næstu kjarasamningum að sögn formanns VR. Hann segir mikla samstöðu að skapast fyrir því að sækja mjög kröftuglega fram í komandi viðræðum. Kaupmáttur dróst saman um tæp fimm prósent á fyrstu mánuðum ársins og vaxtagjöld heimilanna jukust um sextíu prósent milli ára. 14.6.2023 12:01
Upphaf hvalveiðivertíðar í uppnámi Umhverfisráðuneytið áformar að vísa frá beiðni Hvals hf. um undanþágu frá starfsleyfi. Fyrirtækið sótti um undanþáguna vegna óvissu um að veiðar gætu hafist á hefðbundnum tíma. Vertíðinni gæti því seinkað í ár. 13.6.2023 15:33
Forsendur gjörbreyttar og tengslin nánast engin „Staðreyndin er bara sú að forsendur fyrir því að reka starfsemi í Moskvu eru gjörbreyttar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sem hefur ákveðið að leggja niður starfsemi íslenska sendiráðsins í Moskvu. Starfsemi rússneska sendiráðisins hér verður takmörkuð og sendiherrann fer heim. 9.6.2023 13:16
Ragnar telur seðlabankastjóra í ójafnvægi Fyrrverandi ríkissáttasemjari minnir seðlabankastjóra á að tala af virðingu um aðila vinnumarkaðarins og hafnar því að hafa reynt að hafa áhrif á ákvarðanir bankans. Formaður VR segir seðlabankastjóra í ójafnvægi og vísar orðum um meintan óstöðugleika sinn á samningafundum til föðurhúsanna 8.6.2023 12:30
Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. 6.6.2023 12:16
Óttast allsherjarverkfall: „Þau vilja ekkert tala um þetta“ Sundlaugum og íþróttahúsum á landsbyggðinni verður lokað um helgina vegna verkfalls BSRB og leikskólum skellt aftur í lás eftir helgi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir alvarlega stöðu að teiknast upp og sýnir ósætti félagsmanna skilning. Trúnaðarmaður telur stefna í ótímabundið verkfall miðað við skilningsleysi viðsemjanda. 26.5.2023 13:08
Hvalur biður ráðherra um undanþágu til að geta hafið veiðar Hvalur hf. hefur sótt um undanþágu frá starfsleyfi til ráðherra til að geta hafið starfsemi og hvalveiðar í sumar. Samkvæmt úttekt heilbrigðiseftirlits þyrfti að gera úrbætur á frágangi við olíutank áður en slíkt yrði gefið út. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands telur samt ólíklegt að leyfið muni stranda á því. 24.5.2023 12:38
Skoðar hvort hægt sé að takmarka hvalveiðar Matvælaráðherra segir til skoðunar að takmarka hvalveiðar í sumar þrátt fyrir hún telji ekki lagastoð fyrir afturköllun á veiðileyfi. Hollywood-stjarna hvetur fólk til þess að mótmæla veiðunum. 23.5.2023 12:01