Goslok möguleg eftir eina til tvær vikur Dregið hefur úr afli gossins um 30 til 50 prósent síðustu vikuna. Goslok eru möguleg eftir eina til tvær vikur ef framleiðni gossins heldur áfram að falla með sama hraða. 29.7.2023 23:07
Tvöfaldur íbúafjöldi á hinsegin hátið í Hrísey Það er mikið um dýrðir í Hrísey þessa helgina. Þar er haldið upp á hinsegin daga í fyrsta sinn og er búist við því að tvöfaldur íbúafjöldi sé staddur á eyjunni yfir helgina. 29.7.2023 21:42
Gefur nýja kærastanum svigrúm til að skilja við eiginkonuna Söngkonan Ariana Grande og nýr kærasti hennar, leikarinn Ethan Slater, hafa ekki hist í nokkurn tíma. Er það vegna þess að Ariana vill veita Ethan svigrúm til að ganga frá skilnaði við eiginkonu hans, Lilly Jay. 29.7.2023 20:20
Sjálfstæðismenn þurfi að gera upp málin hjá sér Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Sjálfstæðismenn verða að gera upp málin innan sinna raða. Mikil óánægja er innan raða Sjálfstæðisflokks með ríkisstjórnarsamstarfið. 29.7.2023 18:48
Fluttur slasaður af Langjökli eftir vélsleðaslys Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi rétt fyrir klukkan sex í dag með slasaðan mann sem var fluttur af Langjökli eftir vélsleðaslys. 29.7.2023 17:55
Milli sex og átta milljarðar tapist í þjófnaði brotahópa Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir stærstan hluta þjófnaða í verslunum vera af völdum erlendra brotahópa. Hann segir lögreglu ekki nægilega tæknivædda til að taka á vandanum og bindur því vonir við að nýr þjófavarnarbúnaður, sem nýtir myndgreiningu í samráði við lögreglu, taki á vandanum. 28.7.2023 17:51
Lýsir sig leiðtoga eftir valdarán Hershöfðinginn Abdourahmane Tchiani hefur lýst því yfir að hann fari nú með völdin í vesturafríkuríkinu Níger. Tchiani leiddi valdarán gegn ríkisstjórn landsins og tókst að steypa henni af stóli fyrir tveimur sólarhringum síðan, með liðsinni öryggisvarða forsetans sem eru undir hans stjórn. 28.7.2023 17:23
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei mælst með minna fylgi Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rétt rúmlega 16 prósent fylgi í nýrri könnun og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi. 28.7.2023 12:28
Botna ekkert í dauða tíu hunda á Austurlandi Yfirdýralæknir MAST segir óútskýrðan dauða tíu hunda á Austurlandi einstakt mál sem stofnunin botni ekki í að svo stöddu. Málið er nú á borði lögreglu. 28.7.2023 11:54
Þrjátíu prósent kjósenda VG styðja nú Samfylkinguna Mesta tryggðin við stjórnmálaflokk er hjá kjósendum Samfylkingarinnar og sú minnsta hjá kjósendum Vinstri grænna. Þetta er niðurstaða könnunar sem Prósent framkvæmdi dagana 22. júní til 19. júlí þar sem spurt var hvaða lista kjósendur hafi kosið í síðustu kosningum og hvort þeir myndu kjósa listann aftur. 27.7.2023 15:46