Hátt í tuttugu milljónir hafa tapast í kortasvikamálum í júlí Í júlí hafa 85 svikamál komið inn á borð Landsbankans og þar af 28 mál tengd flutningsfyrirtækjum. Mikil aukning hefur verið á slíkum svikamálum í sumar. 27.7.2023 15:39
Mikilvægt að forðast svæðið norðaustan við gíginn Gígbarmurinn við Litla hrút á Reykjanesskaga er í góðu jafnvægi sem stendur, að sögn eldfjallafræðings. Lítið þurfi þó að breytast til að kvika fari að flæða til norðurs. Varað er við því að vera norðaustan við gíginn. 27.7.2023 14:36
Stórbruni í atvinnuhúsnæði í Reykjanesbæ Eldsvoði kom upp í atvinnuhúsnæði á horninu á Víkurbraut og Hrannargötu í Reykjanesbæ laust eftir hádegi í dag. Tjónið er mikið, bæði á húsinu sjálfu og munum sem eru þar inni. 26.7.2023 12:45
Rannsókn lokið á manndrápi á Ólafsfirði Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra, á manndrápi sem átti sér stað í október á síðasta ári, er lokið. 25.7.2023 17:28
Eldurinn kviknaði sennilega út frá rafhlöðu Forstjóri Endurvinnslustöðvarinnar Terra segir búnað og tæki hafa sloppið vel úr eldsvoða sem kviknaði í skemmu stöðvarinnar í nótt. Hann segir líklegast að eldurinn hafi kviknað af sjálfu sér út frá rafhlöðu í ruslinu. 25.7.2023 16:29
„Stefnan er að ráðast á þetta af miklum krafti“ Slökkviliðsstjóri í Grindavík segir að ráðist verði í slökkvistörf á Reykjanesi af fullum þunga á morgun. Lögregla telur ekki forsvaranlegt að halda gönguleiðum að gossvæðinu opnum allan sólarhringinn. 25.7.2023 11:46
Enn að jafna sig og skoða að leita réttar síns Íslensk fjölskylda varð fyrir áfalli í síðustu viku þegar til stóð að vísa fjölskylduföðurnum, sem búið hefur hér á landi í átta ár, úr landi við komu á Keflavíkurflugvöll. Fjölskyldan er enn að jafna sig og skoðar það að leita réttar síns vegna atviksins. 24.7.2023 13:49
„Stutt gúggl“ til að komast að því hver drap Tupac Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, segir lítið mál að komast að líklegri niðurstöðu um það hver hafi drepið rapparann Tupac Shakur. Nýjar vendingar í morðmáli rapparans hafa vakið mikla athygli. 23.7.2023 09:01
Minni bjórglös og buddan tæmist hraðar Bjórglösin á mörgum börum miðbæjarins hafa minnkað. Stór bjór, sem áður var í fimm hundruð millilítra glösum, er nú kominn í fjögur hundruð millilítra glös. Um er að ræða tuttugu prósent minnkun bjórglasa. Neytendur, sérstaklega þeir í yngri kantinum, eru ósáttir við þessa þróun enda hefur bjórverðið hækkað töluvert á sama tíma. 21.7.2023 14:15
Aðstoðuðu fjölskyldu með úrvinda börn Gossvæðið við Litla Hrút á Reykjanesi er opið í dag en lögregla leggur áherslu á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu. 21.7.2023 09:40