Innlent

Fluttur slasaður af Langjökli eftir vélsleðaslys

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þyrlan lenti skömmu fyrir klukkan sex á Landspítalanum í Fossvogi.
Þyrlan lenti skömmu fyrir klukkan sex á Landspítalanum í Fossvogi. vísir

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi rétt fyrir klukkan sex í dag með slasaðan mann sem var fluttur af Langjökli eftir vélsleðaslys.

Einar Valsson hjá aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

Lögreglan á Vesturlandi óskaði eftir aðstoð þyrlunnar nú síðdegis en frekari upplýsingar um líðan mannsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×