Vegurinn illa farinn eftir fjórtán tonna hertrukk Land í Þjórsárverum er illa farið eftir að þýskur ferðamaður ók fjórtán tonna hertrukk þar yfir og festist. Myndbönd sem ferðamaðurinn birti á netinu hafa vakið athygli. 1.10.2023 21:55
PKK lýsir yfir ábyrgð á sprengjuárásinni Kúrdíski verkamannaflokkurinn PKK hefur lýst ábyrgð á sprengjuárás sem var framin fyrir utan innanríkisráðuneyti Tyrklands í höfuðborginni Ankara í morgun. Innanríkisráðherrann segir ljóst að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. 1.10.2023 20:43
Samrunaviðræður Eikar og Reita í strand Fasteignafélögin Eik og Reitir hafa hætt viðræðum um mögulegan samruna fasteignafélaganna tveggja. 1.10.2023 19:21
Vill aðeins skoða kosti og galla útvistunar Ásdís Kristjánsdóttir segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um útvistun á starfsemi Salarins, tónleikasal bæjarins. Starfshópur muni eingis skoða kosti þess og galla að útvista starfseminni. 30.9.2023 14:25
Jafna mætti rannsókn MAST við „alvarlegt einelti“ Matvælaráðuneytið hefur staðfest stjórnvaldssekt sem Matvælastofnun (MAST) lagði á nautgripabónda vegna brota á lögum um velferð dýra. Bóndinn taldi að rannsókn MAST hefði einkennst af einstrengingslegri háttsemi starfsmanna sem „jafna mætti við alvarlegt einelti“. 30.9.2023 13:35
Þungar áhyggjur af útboði bæjarins á starfsemi Salarins Stjórn Klassís, fagfélags klassískra söngvara á Íslandi, lýsir þungum áhyggjum yfir áformum bæjarstjórnar Kópavogsbæjar um að bjóða út starfsemi Salarins í Kópavogi. 30.9.2023 08:38
Hægfara lægð veldur kalda og vætu Hægfara lægð er nú stödd suðvestur af landinu og verður vindáttin því austlæg í dag, víða gola eða kaldi og væta með köflum, en yfirleitt þurrt á norðanverðu landinu. 30.9.2023 08:17
Handtekinn á skemmtistað og neitaði að yfirgefa lögreglustöð Dyraverðir á skemmtistað í miðbænum óskuðu eftir aðstoð lögreglu vegna ölvaðs manns sem var til vandræða í nótt. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð til viðræðna og að þeim loknum neitaði hann að yfirgefa lögreglustöðina. 30.9.2023 07:57
Unglingar fórnarlömb á gjörbreyttum fíkniefnamarkaði Stjórnmálafræðingur sem búsettur var í um áratug í Svíþjóð segir sturlungaöld ríkja í undirheimum landsins. Svíar hafi miklar áhyggjur af ástandinu. 24.9.2023 20:30
Sjö ára rannsóknarferðalagi Osiris-Rex lokið Bandaríska geimfarið Osiris-Rex lenti við mikinn fögnuð í Utah fylki í Bandaríkjunum í dag. Sjö ár eru síðan það var sent út í geim í þeim tilgangi að safna tveimur kílóum af bergsýnum úr smástirninu Bennu og koma þeim aftur til jarðar. Vonir eru bundnar við að innihald hylkisins geti varpað frekara ljósi á hvernig sólkerfið okkar myndaðist og hugsanlega hvernig lífið kviknaði og þróaðist á jörðinni. 24.9.2023 18:49