Usher sér um hálfleikstónleika Ofurskálarinnar Bandaríski tónlistarmaðurinn Usher mun mun troða upp í hálfleik Ofurskálar NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta á næsta ári. 24.9.2023 17:35
Köld Reykjavík, sætar stelpur og svefnleysi innblástur Fyrsta plata hljómsveitarinnar Spacestation hefur hlotið góðar viðtökur. Ætlunin er að endurvekja rokkhljóm sjöunda áratugarins og skapa „tónlist fyrir fallegt fólk“. 7.9.2023 23:19
Hafsteinn Dan til liðs við HR Hafsteinn Dan Kristjánsson, sem starfað hefur sem kennari við lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 2009, hefur ákveðið að færa sig um set og kenna við lagadeild HR. 5.9.2023 00:15
„Átti bara leið hjá og fékk þessa flugu í hausinn“ „Ég átti nú bara leið hjá þarna hjá höfninni og fékk þessa flugu í hausinn,“ segir Einar Jes Guðmundsson, stuðningsmaður hvalveiða, sem mætti með skýr skilaboð að Reykjavíkurhöfn í kvöld. „Farið heim og skammist ykkar“ voru skilaboðin til hvalveiðimótmælenda sem hlekkjuðu sig við hvalveiðibáta Hvals hf. í morgun. Einari fannst þörf á öðru sjónarmiði á höfninni. 4.9.2023 23:26
„Allir nemendur sammála um að þetta sé alveg galið“ Það kastaðist í kekki milli nemenda Menntaskólans á Akureyri og rútubílstjóra á bílastæði skólans í síðustu viku. Rútubílstjórar nota enn bílastæðið til að hleypa ferðamönnum í Lystigarðinn og leggja um leið fyrir nemendur. Tveir nemendur svöruðu í sömu mynt og upp úr sauð á bílastæðinu. 4.9.2023 22:16
Fara aftur fram á frávísun í hryðjuverkamálinu Sveinn Andri Sveinsson, verjandi annars sakborninganna sem ákærðir eru fyrir skipulagningu hryðjuverka, hefur skilað greinagerð í málinu þar sem farið er fram á frávísun ákærunnar. Fyrri ákæru í málinu var vísað frá þar sem hún taldist ekki nægilega skýr. 4.9.2023 19:29
Mútumálið á Selfossi komið á borð héraðssaksóknara Héraðssaksóknari hefur boðað Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúa í Árborg í skýrslutöku vegna frétta af mögulegu mútubroti Leós Árnasonar fjárfestis. Tómas Ellert greindi frá því að Leó hafi boðið honum fjáhagslega aðstoð í næstu kosningum gegn því að hann stuðlaði að því að sveitarfélagið félli frá kaupum á húsi Landsbankans á Selfossi. 4.9.2023 18:22
„Ég vissi ekki að svona rasismi væri til“ Ferð tveggja sautján ára drengja á bæjarhátíðina Ljósanótt í Reykjanesbæ breyttist fljótt í martröð. Þeir voru nýmættir á hátíðina þegar fjöldi lögreglumanna ýttu öðrum drengnum, sem er dökkur á hörund, upp að vegg og létu fíkniefnahund leita á honum. Mikið sjokk, segir móðir drengsins sem hætti við að fara á hátíðina eftir uppákomuna. Hún sakar lögreglu um rasisma og vill skýringar á atvikinu. 4.9.2023 00:03
Fóru til Buffalo og hrepptu gull í risavaxinni vængjakeppni Þeir Lýður Vignisson og Justin Shouse sem reka vængjastaðinn Just Wingin' It hrepptu gullverðlaun í vængjakeppni í Buffalo í Bandaríkjunum um helgina. „Við erum bara á bleiku skýi enn þá,“ segir Lýður. 3.9.2023 22:33
Þriðji sem lætur lífið af völdum CJS á Íslandi Kona á miðjum aldri lést á síðasta ári skömmu eftir að hafa greinst með hinn sjaldgæfa Creutzfeldt-Jakob sjúkdóm. Sjúkdómurinn hafði tvisvar áður greinst hér á landi og létust báðir einstaklingar stuttu eftir greiningu vegna sjúkdómsins. 3.9.2023 21:09