Heppni að ekki fór verr Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður slapp vel þegar leigubíll keyrði á hann við Hringbraut síðdegis í dag. Hjól hans þarfnast viðgerðar en hann segir lærdóminn að vera ávallt á varðbergi í umferðinni – bæði ökumenn og hjólreiðamenn – sérstaklega nú þegar skammdegið er að skella á. 27.11.2023 21:53
Enn kvikuþrýstingur og hrinan kom á óvart Kvikugangurinn við Grindavík gæti verið breiðari en áður var áætlað og storknun hans gæti tekið mun lengri tíma, miðað við nýjustu líkön. Jarðskjálftafræðingur segir nýjustu jarðskjálftahrinu sýna að enn sé kvikuþrýstingur á svæðinu. 27.11.2023 18:52
Keppendur Squid Game vilja bætur vegna meiðsla Keppendur í raunveruleikaþáttum í anda Squid Game þáttanna vinsælu ætla sér að sækja skaðabætur vegna meiðsla sem þau hafa orðið fyrir við tökur þáttanna. 27.11.2023 00:04
Fengu á baukinn fyrir að neita fatlaðri konu um útgáfu skilríkja Auðkenni, útgefandi rafrænna skilríkja braut jafnréttislög með því að synja fatlaðri konu um útgáfu á rafrænum skilríkjum og neita henni um viðeigandi aðlögun. 26.11.2023 23:22
Keyrði á 112 km/klst á 50-götu Ökumaður var í dag stöðvaður á 112 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km/klst. Var hann handtekinn, sviptur ökuréttindum og færður til blóðsýnatöku. 26.11.2023 21:16
Isaac kominn aftur heim: „Get ekki lýst því hvað ég er þakklátur“ Isaac Kwateng, vallarstjóri Þróttar sem vísað var úr landi 16. október síðastliðinn, er mættur aftur heim til Íslands. Hann fékk dvalar- og atvinnuleyfi í upphafi mánaðar og kveðst eiga erfitt með að lýsa þakklæti sínu gagnvart vina sinna sem börðust fyrir rétti hans til að dvelja hér á landi. 26.11.2023 20:22
„Áfengi og kaffi eru einu fíkniefnin í mínu lífi“ Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata, sem handtekin var á skemmtistaðnum Kiki á föstudagskvöld segir framkomu dyravarða staðarins hafa verið harkalega og niðurlægjandi en viðurkennir að hafa rifið kjaft. 26.11.2023 18:09
Þrettán saknað eftir að flutningaskip sökk Þrettán er saknað eftir að flutningaskip sökk undan grísku eyjunni Lesbos. 26.11.2023 17:06
Hamas-liðar sleppa þrettán gíslum Hamas-samtökin hafa sleppt þrettán ísraelskum gíslum og nokkrum erlendum ríkisborgurum. Misræmi er þó í yfirlýsingum ríkja um tölu gísla sem sleppt hefur verið í kvöld. 25.11.2023 22:04
Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir íslenskra kvenna í brennidepli NY Times Þrátt fyrir að þvingaðar ófrjósemisaðgerðir á fötluðu fólki teljist til mannréttindabrota, eru enn dæmi um þær í Evrópu og á Íslandi. 25.11.2023 20:55