Um 61 þúsund hillumetrar af pappírsskjölum í vörslu ríkisins Í dag eru um 61 þúsund hillumetrar af pappírsskjölum í vörslu afhendingarskyldra aðila ríkisins, þau voru 106.000 árið 2021. Umfangið hefur minnkað um 42 prósent. Helstu niðurstöður nýrrar eftirlitskönnunarinnar Þjóðskjalasafnsins eru að skjalavarsla og skjalastjórn ríkisins fari áfram batnandi. Í fyrsta skipti mælist fjórtán afhendingarskyldir aðilar á þroskastigi 4 sem væri skilgreint sem fyrirmyndar skjalavarsla og skjalastjórn. 10.12.2024 10:51
Gera kröfu um að varaaflsstöðin verði áfram í Vík Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri í Vík segir sveitarfélagið gera kröfu um það að varaaflsstöðin sem nú er við Vík verði þar áfram í vetur svo hægt verði að tryggja að íbúar og gestir sveitarfélagsins hafi öruggt aðgengi að rafmagni. 10.12.2024 09:38
Laugarneshverfi verður áfram eitt skólahverfi Skóla- og frístundaráð hefur fallið frá hugmyndum sínum um að skipta Laugarneshverfi upp í nokkur skólahverfi. Þess í stað hefur verið ákveðið að hverfið verði enn eitt skólahverfi, að sett verði upp skólaþorp á meðan Laugarnesskóli er lagaður og að byggður verði nýr safnskóli fyrir elstu börnin. 9.12.2024 16:31
Netsamband komið á Skagaströnd á undan áætlun Viðgerð er lokið á ljósleiðarastrengnum sem tengir Skagaströnd við netið. Viðgerð lauk nokkrum klukkustundum á undan áætlun. Gert var ráð fyrir að henni myndi ljúka um klukkan þrjú en henni lauk rétt fyrir klukkan eitt. Strengurinn fór í sundur vegna vatnavaxta í Hrafná. 9.12.2024 11:44
Kanna með dróna hvort eldgosinu sé lokið Veðurstofan bíður nú færis til að geta kannað með drónaflugi hvort að eldgosinu sé lokið. Flogið verður með dróna yfir svæðið í dag til að staðfesta. 9.12.2024 11:40
Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 9.12.2024 11:17
Hundruð sækja um aðstoð í aðdraganda jóla Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir jólin erfið mörgum fjölskyldum. Í fyrra hafi samtökin aðstoðað um 1.700 fjölskyldur. Hún segist ekki eiga von á fjölgun í ár en það komi í ljós eftir jól. Fjöldinn geti verið svipaður. Hún segir Íslendinga sem leiti til þeirra oft þá sömu ár eftir ár en að hópur útlendinga taki breytingum. Á morgun byrja samtökin að úthluta jólagjöfum til fjölskyldna sem hafa sótt um til þeirra. 9.12.2024 10:16
Meirihluti barna á Íslandi hefur heyrt um Barnasáttmálann Meirihluti barna á Íslandi hefur heyrt um Barnasáttmálann en vita ekki öll að réttindin eiga við um þau. Með markvissri fræðslu landsnefndar UNICEF hefur hlutfallið aukist úr 53 prósentum í 81 prósent, meðal barna í Réttindaskóla þeirra, sem þekkja rétt sinn. 6.12.2024 15:36
Um 60 á bráðamóttöku í gær vegna hálkuslysa Alls leituðu 60 einstaklingar á bráðamóttöku Landspítalans í gær vegna hálkuslysa. Mikil hálka hefur verið síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu. 6.12.2024 15:24
Ógilda kosningar og endurtaka allt ferlið Stjórnarskrárdómstóll Rúmeníu hefur ógilt niðurstöður fyrri umferðar forsetakosninganna nokkrum dögum áður en seinni umferðin átti að fara fram. Vegna ógildingarinnar þarf að hefja ferlið að nýju og velja nýjan dag fyrir kosningu fyrri umferðar. Það er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að gera það. 6.12.2024 14:52