Fréttamaður

Jón Ísak Ragnarsson

Jón Ísak er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Segir Harris veika á geði

Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana í Bandaríkjunum, segir að Kamala Harris varaforseti og forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, sé veik á geði. Þetta sagði hann þegar hann var að ræða innflytjendamál á framboðsfundi í Wisconsin.

Lítið jökul­hlaup hafið í Skálm

Lítið jökulhlaup er hafið í Skálm. Rafleiðni mælist um 263 µS/cm. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að hlaupið sé mikið minna en hlaupið sem olli skemmdum á Þjóðveginum í sumar.

Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hez­bollah

Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að með drápinu á Hassan Nasrallah hafi Ísrael verið að framfylgja réttlætinu fyrir hönd fórnarlamba hans. Ísrael sé í fullum rétti á að verja sig gegn Hezbollah, Hamas, Hútum í Jemen og öðrum hryðjuverkasamtökum sem fjármögnuð eru af Íran.

Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal

Minnst 66 eru látnir í Nepal eftir flóð og skriðuföll vegna gífurlegrar úrkomu sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. Búist er við að áfram haldi að rigna um helgina. Ekki er vitað um afdrif 69 manna.

Flýgur þyrlunni á mynd­bandinu og braut engar reglur

Þyrluflugmaður segir að drónaflugmenn hafi verið að fljúga drónum sínum alltof hátt við gosstöðvarnar síðustu daga, og það skapi hættu fyrir þyrlur. Drónaflugmaður segir að það séu pottþétt einhverjir drónaflugmenn sem fljúgi of hátt, en það sé aðallega almenningur með dróna. 

Sí­fellt fleiri verði nær­sýnir vegna snjalltækja

Ólafur Már Björnsson, augnlæknir hjá Sjónlagi, segir að nærsýnisfaraldur herji á heimsbyggðina. Þegar krakkar sitji klukkutímunum saman fyrir framan snjalltæki fari augað að aðlaga sig að breyttum aðstæðum.

Katrín tekur sæti í há­skóla­ráði HÍ

Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur tekið sæti í háskólaráði Háskóla Íalands til næstu tveggja ára. Meðal verkefna háskólaráðs er að marka heildarstefnu í málefnum háskólans og setja reglur um starfsemi háskólans á grundvelli laga. Þá fer háskólaráð með úrskurðarvald í málefnum skólans.

Tveir drengir grófust undir sandi í Dan­mörku og létust

Tveir þýskir drengir, níu ára og tólf ára, sem grófust undir sandi í fjöru á Jótlandi í Danmörku í gær hafa verið úrskurðaðir látnir. Drengirnir höfðu grafið helli í sandbakka á svæðinu og voru í honum þegar hann hrundi. Þeir voru grafnir í sandinum í um 40 mínútur.

Sjá meira